03.03.1958
Neðri deild: 59. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í B-deild Alþingistíðinda. (906)
93. mál, kostnaður við rekstur ríkisins
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Það er vissulega rétt, sem hæstv. fjmrh. sagði hér áðan, að það ber mikla nauðsyn til þess að vera jafnan vakandi fyrir því að reyna að draga sem mest úr kostnaði við rekstur ríkisins á hverjum tíma, og allar till., sem miða í þá átt, eru vissulega góðra gjalda verðar.
Ég tel engum efa bundið, að það sé hugsun hæstv. fjmrh. að leggja nokkuð af mörkum til þessa aðhalds með því frv., sem hann leggur hér fram. En því miður get ég nú ekki séð í fljótu bragði a.m.k., í hverju þetta aukna aðhald er fólgið eða að það séu miklar líkur til þess, að sú skipan, sem hér er gert ráð fyrir, leiði til þess, að meiri festa komist á skipan þessara mála, en nú er. Eins og hæstv. ráðh. tók hér fram, hefur verið ákveðið á undanförnum árum í 22. gr. fjárl., að ríkisstj. væri heimilt að ákveða, að fjölgun starfsmanna ríkis og ríkisstofnana skuli vera háð samþykki fjmrh., þar til sett verði lög um ráðstafanir til að draga úr kostnaði við opinberan rekstur. Ég veit ekki, hvort það er hugmynd hæstv. ráðh., að þetta frv., sem hann flytur hér, sé þess eðlis, að það geti skoðazt sem sú löggjöf um ráðstafanir til að draga úr kostnaði við opinberan rekstur, sem gert er ráð fyrir í 22. gr. fjárl. En sé svo, þá held ég, að sé óumflýjanlegt að gera ýmsar og það jafnvel allveigamiklar breytingar á þessu frv., því að ég sé ekki betur en frv., eins og það er úr garði gert, beinlínis dragi úr því aðhaldi, sem gert er ráð fyrir í 22. gr. fjárl. Þar er svo ákveðið, að ríkisstj. sé heimilt að ákveða, að fjmrh. skuli fá það vald að hafa endanlegt úrskurðarvald um fjölgun starfsmanna ríkis og ríkisstofnana. Mér kemur það nokkuð á óvart, að það er fram tekið í grg. frv., að það hafi af og til verið ætlunin að framkvæma þessa heimildargr. Ég hef sannast sagna staðið í þeirri meiningu, að þessi heimildargr. hefði verið framkvæmd og þetta vald hefði verið í höndum hæstv. fjmrh. til þessa, a.m.k. hygg ég, að það hafi verið gert ráð fyrir því hverju sinni, þegar Alþ. samþ. þetta ákvæði, að sú væri ætlunin. Hæstv. ráðh. segir í grg. að vísu, að það hafi komið í ljós, að fjmrn. hafi enga aðstöðu haft til að spyrna við fótum, m.a. vegna þess, að ráðningar hafi verið fullkomlega gildar, þótt fjmrn. hafi eigi um þær fjallað. Þetta er vafalaust alveg rétt. En þá verðum við að íhuga, hvaða breytingar það eru í þessu frv., sem draga úr þessum vandkvæðum, sem verið hafa.
Í þessu frv. er lagt til, að skipuð verði eftir ákveðnum reglum þriggja manna nefnd, sem skuli hafa það hlutverk að gera till. um hagfelldari vinnubrögð í ríkisstofnunum til að spara mannahald og annan rekstrarkostnað og undir þessar stofnanir skuli bera allar fyrirhugaðar mannaráðningar, sem ekki eru beinlínis bundnar í lögum eða um sé að ræða starfsmenn, sem ráðnir eru eftir kjarasamningum stéttarfélaga. Þetta er vitanlega góðra gjalda vert. En þá rís í því sambandi þessi spurning: Er vald þessarar nefndar slíkt, að hún geti girt fyrir þá erfiðleika, sem voru á því ákvæði, sem gilt hefur? Er henni veitt slíkt vald? Það skilst mér, að alls ekki sé gert. Þessari nefnd er ekki veitt það sama vald og fjmrh. hefur nú eða getur haft til þess beinlínis að setja fótinn fyrir það, ef hann telur, að óhæfilegar mannaráðningar sé um að ræða í ríkisstofnunum. Þessari n. er eingöngu ætlað að hafa tillögurétt, því að það er tekið fram í 4. gr. frv., að ráð., sá, sem hlut á að máli hverju sinni, sé ekki bundinn við till. n. En hann á að senda fjvn. Alþ. eftir á rökstudda grg., vegna hvers hann hafi ekki farið eftir þeim. Slíkt ákvæði hefur auðvitað harla litla þýðingu, þegar búið er að framkvæma hlutinn. Það er ósköp svipað og með endurskoðun, sem fer fram löngu eftir á, því að við vitum það ósköp vel, að slíkum hlutum verður aldrei kippt í lag, þegar hluturinn einn sinni er orðinn. — Mér skilst, að skv. þessu hafi hin umrædda n, minna vald en hæstv. fjmrh. hefur nú samkvæmt umræddu fjárlagaákvæði, ef ríkisstj. er sammála um það eða fellst á, að því ákvæði sé beitt.
Þessi skipan girðir heldur á engan hátt fyrir það, enda er þar beinlínis gefizt upp við að reyna að koma í veg fyrir, að einstök ráðuneyti fari sínu fram, því að það er blátt áfram með þessu ákvæði 4. gr. lögfest, að hver einstakur ráðh. geti haft þessar till. að engu, ef honum sýnist svo. Mér sýnist því, að það séu mjög litlar líkur til þess, að þessi n. hafi meiri áhrif, en hæstv. fjmrh. nú getur haft til þess að sporna gegn útþenslu í ríkisrekstrinum og auknu mannahaldi. Mér þykir ekki líklegt, að einstök ráðuneyti, sem hæstv. ráðh. kvartar um að hafi gert sér þetta eftirlitsstarf erfitt, muni frekar fara eftir till. þriggja manna n. heldur en till. hæstv. fjmrh., ekki sízt þar sem svo er í pottinn búið, að fjmrh. hefur þó aðstöðu til þess að synja um fjölgun, eins og nú er lagaheimild til um, en í þessu frv. er aðeins gert ráð fyrir, að umrædd n. geti gert till., sem ráðh. er svo á engan hátt bundinn við.
Ef ég hef skilið þessa hugsun frv. rétt, þá sýnist mér nokkurn veginn augljóst, að frv. miðar ekki að því að auka aðhald í þessu efni, nema síður sé, þannig að ég held, að það sé erfitt að hugsa sér það, að þetta frv. geti verið grundvöllur að þeirri löggjöf um ráðstafanir til að draga úr kostnaði við opinberan rekstur, sem um er rætt í ákvæði 22. gr. fjárl. að beðið sé eftir og fjmrh. því veitt til bráðabirgða þetta mikla vald, sem hann hefur, ef ríkisstj. vill samþykkja það, eins og málum er nú háttað.
Þá er það enn önnur hlið þessa máls, sem mér finnst ekki vera rétt hugsuð, og það er skipan þessarar umræddu nefndar. Það er gert ráð fyrir því, að ráðuneytisstjórinn í fjmrn, sé einn maður í nefndinni, annar sé tilnefndur af ríkisstj. í heild, sem er nú lítt skiljanlegt, af hverju sú aðferð er höfð, og þriðji sé kosinn af fjvn, Alþ. Samkvæmt þessari reglu hefur Alþ. aðeins einn mann af þremur í þessari n. Mér sýnist, að sú skipun mála út af fyrir sig sé fráleit, úr því að Alþ. á að hafa einhver afskipti af þessu máli, því að samkvæmt stjórnskipun ríkisins er það þó Alþ., sem hefur fjárveitingavaldið, en ekki ríkisstj. Og ef það á að setja slíka n. á laggirnar, þá sýnist mér, að það hljóti að vera eðlilegast og í rauninni það eina sjálfsagða, að Alþ. hafi a.m.k. meiri hluta í þessari nefnd. Með skipan n., eins og er gert ráð fyrir í frv., er augljóst að, að því er stefnt, að tryggt sé á hverjum tíma, að eingöngu stuðningsmenn ríkisstj. eigi sæti í þessari eftirlitsnefnd. Það tel ég einnig mjög hæpna ráðstöfun, því að það er eðlilegt, að einnig komi þar fram á hverjum tíma sjónarmið stjórnarandstöðunnar, því að sannast sagna er hætt við því, ef það eru tveir starfsmenn ríkisstj. sjálfrar, sem skipa meiri hluta í n., með allri virðingu fyrir þeim ágætu mönnum, sem í það mundu veljast, að þá mundi það á hverjum tíma verða ríkisstj., sem hefði úrslitaáhrifin um það, hverjar till. þessir menn mundu gera. Enda þótt sá maður, sem er ráðuneytisstjóri í fjmrn., sé á allan hátt hinn mætasti maður og vinni sitt verk með prýði, þá hygg ég þó, að honum mundi reynast það nokkuð erfitt að mæla gegn ákvörðun fjmrh. eða till. hans um að fjölga starfsliði í einhverri ákveðinni stofnun, sem undir fjmrh, heyrði. Ég hygg a.m.k., að hann yrði settur í æði mikinn vanda í því efni.
Það eru þessi atriði, sem ég vildi gjarnan láta koma fram hér, áður en mál þetta verður tekið til meðferðar í nefnd, því að þetta eru í rauninni undirstöðuatriði þessa frv., sem hér um ræðir. Mér sýnist sem sagt, að frv, geti naumast leitt til þess að skapa á nokkurn hátt meira aðhald en nú er, nema síður sé, ef ekki verða gerðar á því allverulegar breytingar frá því, sem það nú hljóðar.
Hæstv. ráðh. sagði, að það hefði ekki verið talið fært eða heppilegt að leggja til, að sérstakur embættismaður yrði skipaður sem nokkurs konar ráðsmaður ríkisins til þess að hafa með þessi mál að gera. Víðtækasta frv., sem gerði ráð fyrir raunhæfustum aðgerðum til þess að sporna við útþenslu í ríkisrekstrinum, mun án efa vera frv. það, sem flutt var á sínum tíma af þáverandi fjmrh., Jóhanni Þ. Jósefssyni, sem gerði ráð fyrir að koma á fót eftirlitsstofnun eða eftirlitsmanni með ríkisrekstrinum, ráðsmanni ríkisins. Vafalaust hefur þessi skipan haft sína annmarka eins og aðrar, og skal ég ekki nánar út í þá sálma fara, og það getur vel verið, að það sé óheppilegt að hafa fastan embættismann í þessu starfi, sem hafi þar alræðisvald og sé um áratugi við það bundinn og ekki sé hægt að gera þar breytingar á. Það er hins vegar augljóst mál, að slíkur starfsmaður yrði þó að hafa vissa tryggingu fyrir því að vera ekki settur frá völdum, þó að hann kynni að leggja fram einhverjar till., sem viðkomandi ríkisstj. ekki líkaði í alla staði. Ég skal ekkert um það segja á þessu stigi málsins, hvort sú skipan er heppilegri, en að setja einhvers konar n., sem verður þá að sjálfsögðu að hafa víðtækt vald. En á það má benda, að t.d. í Bandaríkjunum mun sú skipan á vera, að þar er sérstakur ríkisráðsmaður, ef svo má segja, sem er skipaður í það starf tiltekið árabil, og hann má ekki endurskipa. Það gæti án efa komið til greina, a.m.k. er sjálfsagt að kynna sér þá skipan mála, hvort það gæti verið hentugt að taka hana upp hér.
Ég skal ekki orðlengja um þetta mál að sinni. Ég ítreka það, að ég er sammála hæstv. fjmrh. um hina miklu nauðsyn þess að koma á meira aðhaldi um rekstur ríkisins og sparnaði á mörgum sviðum. Það er án efa hægt í ýmsum greinum að koma við ýmsum sparnaði. Og það er rétt hjá honum, sem hann tók hér fram áðan, að þær sparnaðarnefndir, sem skipaðar hafa verið á undanförnum árum, hafa aðeins starfað skamman tíma og hafa í rauninni ekki annað getað gert, en komið með ábendingar, því að þær hefðu þurft að hafa miklu lengri starfstíma, ef þær hefðu átt að kanna allar aðstæður í einstökum ríkisstofnunum og gera sér grein fyrir því, hvort þar væri hægt að fækka starfsliði eða koma við hagkvæmari vinnubrögðum. Að því leyti er það vafalaust rétt, að það er nauðsyn að koma á laggirnar ákveðinni stofnun, sem með þetta hafi að gera, hvort sem það er ákveðinn embættismaður eða nefnd manna. En ég held, að það sé mikil nauðsyn, að þessu frv., sem hér liggur fyrir, verði allverulega breytt, ef það á að ná þeim tilgangi, sem hæstv. fjmrh, sýnist vilja stefna að.