12.12.1957
Neðri deild: 38. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í B-deild Alþingistíðinda. (92)
5. mál, tollskrá o. fl
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Það er aðeins eitt atriði til þess að leiðrétta þann fráleita málflutning, sem hv. síðasti ræðumaður viðhafði varðandi meðferð atvinnutryggingafjárins.
Hann sagði, að því fé væri úthlutað þannig, að hæstv. fjmrh. og hæstv. félmrh. úthlutuðu fénu. Það er eins og þessi maður sé nýkominn hér inn á Alþ. og hafi enga þekkingu á því, hvað fyrrv. ríkisstjórnir hafi aðhafzt. Væri rétt að marka það, sem þm. segir, þá ætti meðferð mála í síðustu ríkisstj. að hafa verið þannig, að því fé, sem þá var veitt á fjárl. til atvinnuaukningar, hafi verið úthlutað af hæstv. fjmrh., Eysteini Jónssyni, og hæstv. félmrh., Steingrími Steinþórssyni. Trúir nokkur maður því, að hv. Sjálfstfl. hafi setið í ríkisstj. og látið þessa tvo menn, Eystein Jónsson og Steingrím Steinþórsson, úthluta upp á eigin spýtur öllu fé, sem veitt var til atvinnuaukningar?
Auðvitað er það þannig nú eins og var áður, að þessu fé er úthlutað af ríkisstj. Það mun hafa verið þannig áður og er þannig enn.