22.04.1958
Neðri deild: 82. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í B-deild Alþingistíðinda. (921)

93. mál, kostnaður við rekstur ríkisins

Jón Pálmason:

Herra forseti. Því hefur verið yfirlýst af hv. fjhn., að það frv., sem ég flutti hér fyrir nokkru um varnir gegn ofeyðslu hjá ríkinu, hafi verið afgr. í hv. fjhn., en á þann veg, að það sé till. um að vísa því til hæstv. ríkisstj.

Ég skal nú ekki um þessa afgreiðslu tala neitt nú, af því að ég hef ekki séð neitt frá n. um það efni og veit ekki, á hvaða grundveili þessi till. er byggð. En eins og gefur að skilja, þá hlýtur í umr. um þetta frv., sem hér liggur fyrir og er stjórnarfrv., að vefast nokkuð inn í þær till., sem fyrir liggja í mínu frv. um eftirlit gegn ofeyðslu, og sannleikurinn er sá, að þetta gripur nokkuð hvað inn í annað, þó að það séu mjög ólíkar till., sem fram eru bornar í þessum efnum.

Við 1. umr. þess frv., sem hér liggur fyrir, lýsti ég því, hvað það væri í raun og veru fáránlegt, sem hér er lagt til, að sú n., sem á að vera til eftirlits, væri skipuð eingöngu mönnum úr stuðningsliði ríkisstj, á hverjum tíma, þegar á að vera um eftirlit að ræða með framkvæmdum ríkisstj., þá skuli það vera menn, sem stjórnarliðið sjálft skipar eingöngu til þess að dreifa ábyrgðinni, sem annars hvílir á ríkisstj. og fyrst og fremst á fjmrh. varðandi meðferð fjármálanna. Hér er gert ráð fyrir því, að ríkisstj. sjálf skipi einn manninn, að fjvn. skipi annan, sem þá yrði auðvitað úr meiri hl., og þriðji maðurinn sé ráðuneytisstjóri fjmrn., sem nú er stjórnarstuðningsmaður, en kannske yrði það ekki alltaf. En hvað sem því liður, þá er það starfsmaður, sem engin ástæða er til að sé í þessari n., því að hann er starfsmaður fjmrn. og forustumaður þess hvort eð er. Ég verð þess vegna að segja, að ef þessari skipun er haldið, þá tel ég það engu skipta fyrir Alþ., hvort þetta frv, er samþ. eða ekki, og ég fyrir mitt leyti get ekki greitt því atkv., ef þeirri skipan á að halda.

Nú kemur það í ljós, að afstaða hv. fjhn. til þessa frv, er ekki gleggri en það, að það er ekki nema minni hl. n., sem mælir með frv. skilmálalaust, því að þrír af fimm nm. skrifa undir nál. með fyrirvara og tveir af þeim hafa þegar gert grein fyrir, á hverju hann er byggður.

Ég verð nú að segja það, að þær brtt., sem hér eru fluttar af hv. minni hl. fjhn, á þskj. 434, eru til stórmikilla bóta á þessu frv., ef samþ. yrðu, og sneru því að mjög miklu leyti í svipað horf í sumum aðalatriðum eins og mitt frv. er byggt á, og er þar fyrst og fremst um að ræða þá umorðun, sem þar er fram sett á 3. gr. þessa frv. og byggir á því, að þessir þrír eftirlitsmenn séu kosnir af Alþ. og þá væntanlega með hlutfallskosningu í Sþ. Ég tók það fram hér við umr. um daginn, að ég legg á það litla áherzla, hvort það væru yfirskoðunarmenn ríkisreikninganna eða sérstök n. kosin af Alþ., sem hefði þetta eftirlit með höndum. En ég legg á það höfuðáherzlu, að þeir menn, sem þarna er um að ræða, séu kosnir af Alþ., vegna þess að þeirra verk á að vera það að vernda rétt Alþ. gegn þeim yfirgangi, sem Alþ. hefur að undanförnu verið sýnt og hefur komið fram í því, að fjárl. hafa verið skoðuð sem eins konar málamyndalög, sem ekki væri freka,r en verkast vildi, skylt að fylgja og hefur enda ekki verið gert nema í mjög takmörkuðum skilningi og aldrei verr, en nú þessi síðustu tvö ár. Þess vegna er það meginatriði í þessu máli, að þeir menn, sem eiga að hafa þarna eftirlit með framkvæmdavaldinu, séu starfsmenn Alþ. og kosnir af því, þarna er um þrjá menn að tala og þá yrðu það menn af þremur stjórnmálaflokkum.

Hins vegar er því sleppt í brtt. minni hl., sem er í mínu frv., að þessi n. hafi frestunarvald á ákvörðunum um umframgreiðslur frá fjárl., og það tel ég þó töluvert mikið atriði, en eigi að siður mikla bót frá frv., sem hér liggur fyrir, í þeirri brtt., sem hér er um að ræða, enda þótt frestunarvaldinu sé sleppt. En eins og ég hef sýnt fram á áður, þá er nú ekki farið fram á meira með því frestunarvaldi heldur en það, að ákveðið sé að fresta ágreiningsmálum, sem þannig koma upp, um 4–5 mánaða skeið, sem vera mundi í hæsta lagi milli þinga, eins og nú er komið málum.

Hv. þm. V-Húnv. mælti gegn þessari brtt, m.a. á þeim grundvelli, að það væri ekki ástæða til þess að taka neina menn úr stjórnarandstöðunni á hverjum tíma inn í þessa eftirlitsnefnd, og færði sem rök fyrir því m.a. till., sem hér hefði komið fram fyrir nokkrum árum frá hv. fyrrv. þm. Barð. um, að fjvn. kysi einn mann til þess að hafa eftirlit með fjárreiðum ríkisins.

Það eru nú margar till. náttúrlega, sem um þetta hafa verið fluttar, og ekkert óeðlilegt, þó að þær komi fram margvíslegar frá einstökum mönnum. En þær hafa ekki komið frá flokkum fyrr, því að hv. þm. Barð. þáv. flutti þessa till. upp á sitt eindæmi sem form. fjvn., og þó að hún stefndi til bóta frá því, sem áður hafði verið, þá verð ég að segja, að það væri ófullkomið ástand að ætla einum manni það eftirlit, sem hér er um að ræða, eins og málum þessum er komið.

Þá mælti hv. þm. V-Húnv. mjög á móti 3. brtt. á þskj. 434 um það, að haft skyldi samráð við þessa eftirlitsnefnd um skiptingu á ýmsu fé, sem veitt er sameiginlega á fjárlögum.

Ég verð nú að segja það, að hvenær sem það er ákveðið, sem ætti að ákveða, að slík eftirlitsnefnd hefði um það nokkurt úrskurðarvald, hvernig þessu fé yrði skipt, — en hvenær sem slíkar till. yrðu fram settar og lögfestar, þá mundu þær í fyrsta lagi verka þannig, að það yrði gengið frá fjárlögunum að þessu leyti á annan veg en gert er, sem ég teldi framför, því að það hefur heldur stefnt í þá átt, að fjvn. hefur látið fara fleiri af sameiginlegum fjárveitingum óskiptum, en áður var. Hitt tel ég miklu réttara, af því að ég vil láta þingið sjálft ákveða svona hluti, að það sé gert á þann veg, að sem flestum slíkum fjárveitingum sé skipt af þinginu sjálfu. En ef á annað borð er eitthvað af slíkum fjárveitingum, eins og t.d. til atvinnubóta og fleiri hluta, ef þeim er sleppt utan við fjárlögin til ríkisstj. óskiptum, þá er það mjög sanngjarnt frá mínu sjónarmiði, að það séu eftirlitsmenn Alþingis, sem fjalla um það, hvernig sú skipting fer fram. Hins vegar vitum við það, sem kunnugastir erum þessum málum, að þó að fjvn. hafi lagt í það mikla vinnu og haft um það samráð við þm. allra kjördæma, hvernig einstökum fjárveitingum er skipt, t.d. til vegabóta, brúargerða o.fl., þá hefur verið algerlega vikið frá því af hálfu þeirra ráðherra, sem um það hafa fjallað, eins og komið hefur fram mjög rækilega í aths. okkar yfirskoðunarmanna um þau efni. Þess vegna er sannarlega þörf á því, að með þessu sé ríkara eftirlit, en verið hefur.

Hv. 3. þm. Reykv. vék nokkuð hér að sinni sérafstöðu í þessu máli og kom inn á það, að hann teldi nauðsynlegt, að það væri haft eftirlit yfirleitt með ríkisrekstrinum öllum og þetta frv. í rauninni ætti þá að færast út á miklu víðara svið, en hér er til ætlazt. Það, sem þessi hv. þm. sagði um það efni, var að mörgu leyti rétt, en í rauninni frá mínu sjónarmiði utan við það verksvið, sem hér er um að ræða um eftirlit með því, að fyrirmælum Alþingis sé hlýtt, því að ef ætti að setja á eftirlit með ríkisrekstrinum í heild sinni, þá verður það auðvitað að gerast af Alþingi og þá á annan hátt, en gert er ráð fyrir með þeirri eftirlitsnefnd, sem hér er talað um, og með þeim till., sem fyrir liggja í mínu frv. um, að yfirskoðunarmenn ríkisreikninganna hafi það eftirlit með höndum.

Annars er ástandið á því sviði eins og flest

um öðrum í okkar fjármálum í mjög mikilli óreiðu og afleitlega á margan hátt að því unnið. M.a. vil ég í þessu sambandi geta þess, sem ég fyrir mitt leyti tel mjög athugavert, að mjög stórum og þýðingarmiklum ríkisstofnunum, sem eru hreinar ríkisstofnanir, er haldið utan við fjárlög og utan við ríkisreikninga eins og það komi þeim ekkert við, og stærsta stökkið í því efni er það, sem nýlega hefur verið tekið um útflutningssjóð, sem hefur með að gera fjármuni, sem eru miklu meiri, en öll fjárlögin voru áður; þó að hann sé hrein ríkisstofnun, er honum haldið alveg utan við fjárlög og ríkisreikninga. Auðvitað á slík stofnun sem útflutningssjóður, þó að honum sé haldið sem sérstakri stofnun, þá eiga allir hans reikningar að fylgja með ríkisreikningum, eins og hjá hverri annarri ríkisstofnun. Sama er að segja t.d. um Tryggingastofnun ríkisins, þjóðleikhúsið og fleiri stofnanir. Um þetta höfum við töluvert rætt, yfirskoðunarmenn, og erum sammála um það, að þetta ástand sé engan veginn gott, eins og það er. Það er heldur ekki gott, eins og lengi hefur verið tíðkanlegt með allar þær stofnanir, sem eru á 3. gr. fjárlaga, að það er ekki tekið inn á rekstrarreikning ríkisins annað, en mismunur á tekjum og gjöldum í þessum stofnunum, í stað þess að taka allar tekjur og öll gjöld inn á rekstrarreikning, eins og er með aðrar stofnanir og ætti að sjálfsögðu að vera.

Þá vil ég að síðustu minnast örlítið á það, sem hv. þm. V-Húnv., frsm. meiri hlutans, nefndi hér um aðstöðu stjórnarandstöðunnar. Hann hélt því fram, að stjórnarandstaðan hefði á hverjum tíma eftirlitsaðstöðu í gegnum yfirskoðun ríkisreikninganna.

Þetta er eins og sakir standa algerlega rangt, því að það er ekki nein eftirlitsaðstaða annað, en það að gera athugasemdir við það, sem búið er fyrir löngu að afgreiða og yfirskoðunarmenn ríkisreikninga hafa ekkert vald til þess að fá breytt, heldur bara segja til um og gera aths. við: Þetta hefur nú verið svona með farið. — Svo þegar kemur til kasta Alþingis, þá er ekki að neinu leyti tekið tillit til þess, og þess vegna er sú eftirlitsaðstaða, sem þarna er um að ræða, nánast engin, heldur er það bara það eitt, að stjórnarandstaðan hefur á þennan hátt aðstöðu til þess að fylgjast með því, sem hefur verið gert, og segja frá því, og má segja kannske, að hún hafi verið oft of hlífin með að rita um það, birta þær aths. og allt, sem í því sambandi er um að ræða, að birta það í blöðum, svo að þjóðinni gefist kostur á að sjá, hvað er um að ræða. Þar að auki hefur það nú stundum verið svo, að stjórnarandstaðan hefur engan mann átt í yfirskoðun ríkisreikninga, þó að það sé ekki þannig eins og nú standa sakir. Það átti sér stað hér á árunum, þegar Sósfl. var einn í stjórnarandstöðu, að hann átti þá engan mann í yfirskoðun ríkisreikninga, og svoleiðis getur komið fyrir aftur, ef aðstaða er þannig í Alþingi.

Það er þess vegna alls ekki rétt með farið hjá hv. þm. V-Húnv., að það sé nokkur eftirlitsaðstaða, sem þarna er um að ræða, eins og sakirnar standa, heldur er það aðeins aðstaða til þess að finna að því, sem búið er að afgreiða og ganga frá, löngu áður en það kemur í hendur þeirra yfirskoðunarmanna, sem um það eiga að fjalla.

Í stuttu máli er það þess vegna afstaða mín til þessa frv., að ef það á að ganga óbreytt hér í gegn, eins og það liggur fyrir á þskj. 174, þá tel ég að því enga bót. Ég tel það ekki mikils virði, en töluvert mikla breytingu og breytingu til mikils gagns, ef brtt. minni hl. fjhn. á þskj. 434 yrðu samþykktar.