29.04.1958
Neðri deild: 85. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 960 í B-deild Alþingistíðinda. (931)
93. mál, kostnaður við rekstur ríkisins
Jón Pálmason:
Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður, 2. þm. Eyf., lýsti því hér í ræðu sinni, að eins og þetta frv. liggur fyrir nú, væri það alveg þýðingarlaust, og mun erfitt að mæla gegn þeim rökum, sem hann flutti um það. En frv. er samt sem áður ekki tilgangslaust, það sjáum við allir, því að það hefur þann tilgang að láta þrjá af stuðningsmönnum hæstv. ríkisstj. hafa nokkra launabót, sem mundi að líkindum verða eitthvað svipað því, sem nú er borgað til yfirskoðunarmanna ríkisreikninga. En varðandi gagnið vil ég bæta því við, að það vita allir menn, að enginn maður hefur meira um það að fjalla, sem hér er talað um, eins og er, heldur en ráðuneytisstjórinn í fjmrn., þ.e.a.s. að undanteknum fjmrh. sjálfum. Hér er því verið að fela þeim manni verkefni, sem hann raunverulega hefur og er hans embætti, er hans embættisverk. En það mun vera tilgangurinn að bæta þessum embættismanni, sem er prýðilegur embættismaður, bæta honum eitthvað upp í launum með því að setja á hann þetta starf, og þar að auki tveimur öðrum stuðningsmönnum hv. ríkisstj., einum úr fjvn. og einum, sem ríkisstj. skipar.
Þetta er mjög í samræmi við það, sem hefur gerzt á árinu 1956, því svo að maður nefni aðeins eitt atriði úr þeim reikningum, þá hafa óviss útgjöld skv. 19. gr. farið fram úr ákvæðum fjárlaga um eitthvað rúmar 6 millj. kr., og meginhlutinn af þessari upphæð er styrkir og nefndagjöld og alls konar fríðindi, sem stuðningsmenn hæstv. ríkisstj. hafa verið látnir njóta á því herrans ári 1956, svo að þetta er alveg áframhald á sömu götunni.
Ég skal játa, að það er nokkur framför í brtt. hv. 2. þm. Eyf. um það, að tveir mennirnir væru tilnefndir af fjvn., en auðvitað ættu þeir að vera það allir, annaðhvort af fjvn. eða eins og lagt hefur verið til og stjórnarliðarnir hafa fellt, að þeir væru kosnir hlutfallskosningu hér á hv. Alþingi. En það er gott, að það komi reynsla á það, hvort hv. stjórnarliðar hér vilja gera þá litlu breytingu, að tveir af þessum mönnum skuli vera tilnefndir af hv. fjvn.
Að öðru leyti skal ég svo ekki fjölyrða um málið. Ég geri ráð fyrir því, eins og hv. 5. þm. Reykv. tók fram, að það hafi ekki mikla þýðingu, þó að það væri gerð tilraun með það, sem eðlilegast er, eftir það, sem hér á undan hefur gengið, að leggja til að vísa þessu máli til hæstv. ríkisstj., því að það var skv. áliti fjhn. tilgangurinn með þeirri till. varðandi mitt frv., að það ætti að taka málið til frekari athugunar fyrir næsta þing, og var þess vegna eðlilegast, að báðum málunum væri vísað til hæstv. ríkisstjórnar. Hins vegar vil ég nú sjá, hvernig fer með brtt. hv. 2. þm. Eyf.