14.05.1958
Neðri deild: 95. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (948)
186. mál, útflutningssjóður o. fl.
Ólafur Thors:
Herra forseti. Áður en ég kem að meginmáli mínu, þykir mér rétt að víkja aðeins örfáum orðum að ræðum þeirra tveggja hæstv. ráðh., sem hér hafa talað.
Ræða hæstv. forsrh. var langsamlega að mestu leyti almennar hugleiðingar um vísindalegar og fræðilegar kenningar í sambandi við efnahagsvandamál þessarar þjóðar og annarra, sem ekki eiga eiginlega miklu fremur við í dag, en fyrir tveimur árum eða fjórum, þó að auðvitað væri þar margt skynsamlega sagt, sem ég skal sízt bera á móti. Þó langar mig til að beina til hæstv. forsrh. örfáum spurningum í sérstöku tilefni af ræðu hans.
Hæstv. ráðh. sagði, að það væri nauðsynlegt, að Íslendingar gerðu sér fulla grein fyrir því, að við yrðum að miða vísitöluna við þjóðartekjurnar, eins og hann orðaði það. Ég skil það svo, að hann hafi með því viljað afnema framfærsluvísitöluna og viljað taka upp eins konar framleiðsluvísitölu, enda veit ég, að um það hefur verið talað í stjórnarherbúðunum. Ég hjó einnig í það, og það hljóta allir að hafa gert, að allur andi í hans ræðu hné að því, að fram undan væri gengisfelling fyrr eða síðar og heldur fyrr en síðar. Nú langar mig til að spyrja um, ef hann ætlar að hætta við framfærsluvísitölu og taka upp framleiðsluvísitölu, um leið og hann hyggur á gengisfall, hvort hann þá í þessum efnum tali fyrir hönd allrar ríkisstj. eða eingöngu fyrir hönd síns flokks.
Hæstv. ráðh. sagði, að uppbótakerfið yrði því erfiðara, sem því væri lengur við haldið. Nú vil ég á þetta engan dóm leggja, en ég minni aðeins á, að þessi hæstv. ráðh. kvað upp úr um það vorið 1956, að þá hefði uppbóta- og niðurgreiðslukerfið gengið sér algerlega til húðar. Hann segir nú: því lengur sem því er við haldið, því bölvaðra verður það. Þó ber hann nú fram, tveimur árum eftir að hann í fyrsta skipti afneitaði þessum fyrri átrúnaði sínum, uppbótum og niðurgreiðslu, till. um langsamlega miklu meiri uppbætur og niðurgreiðslur, en nokkur hefur áður þekkt.
Hæstv. ráðh. sagði, að auðvitað yrði að fara eftir ákvörðunum Alþýðusambandsins í aðalefnum, Alþýðusambandið hefði reynzt andvígt gengisfalli, og þess vegna hefði stjórnin ekki getað farið nægilega inn á þá braut, því að hún hefði þá brotið sín loforð. Ég spyr nú hæstv. ráðh.: Telur hann þetta frv. ekki í verulegum efnum einmitt gengisfellingu, eða telur hann sig hreinan af því að hafa fellt krónuna eða viðurkennt fall krónunnar í aðalatriðum með þessu frv.?
Hæstv. ráðh. sagði: Er hægt að bæta útflutningsframleiðsluna minna, en gert er með þessu frv.? Ég veit, að hann skilur, að þetta er spurning, sem er eðlilegra að við spyrjum hann um, heldur en hann okkur. Hæstv. ráðh. hefur fórnað sínum dýrmæta tíma undanfarna marga mánuði til þess að kynna sér þetta viðurhlutamikla og flókna mál. Og það er auðvitað hans skylda að upplýsa málið. En það er þá líka eðlilegt, að við, sem ekki höfum haft aðstöðu til að kynna okkur þau gögn, sem hann hefur verið að rannsaka, spyrjum einmitt hann um þessa spurningu: Er hægt að bæta útflutningsframleiðsluna minna en gert er, eða þarf hún kannske meira en till. bera með sér?
Þegar þetta er upplýst, sagði ráðh., og það er auðvitað ekki upplýst, eins og ég hef leyft mér að vekja athygli á, þá spyr ég, segir hæstv. ráðh., hvernig hægt sé að taka nauðsynlegt fjármagn til að bæta útflutningsframleiðslu upp sínar þarfir með öðrum hætti, en gert er, svo að minna komi við hag almennings í landinu. Ja, ég veit ekki. Ég játa, að við höfum haft afar lítinn tíma til að athuga málið, sjálfstæðismenn. En ég mundi nú nærri spyrja: Eru margar leiðir til, sem legðu meira á allan almenning í landinu, en einmitt þessi, sem farin er? Ég veit, að fullkomin gengislækkun hefði kannske kunnað að koma þyngra við almenning í bili, nema aðrar hliðarráðstafanir yrðu þá gerðar í leiðinni, sem hefðu getað vegið þann aukna þunga upp og létt honum af almenningi. En það má enginn ganga þess dulinn, að hér er verið að leggja alla þyngstu baggana á allan almenning í landinu.
Hæstv. ráðh, sagði: Frv. er spor og stórt spor í rétta átt, — Leyfist mér að spyrja hæstv. ráðh.: Hvað á hann við með: rétta átt? Hvað meinar hann með því? Meinar hann algera gengisfellingu, eða meinar hann burt frá gengisfellingu? Ég veit, að ýmsir stuðningsmenn hans vilja vita þetta og raunar öll þjóðin.
Og loks sagði ráðh.: Menn verða að dæma um það, þegar reynslan fellur á, hvort menn vilja stíga sporið út. — Hæstv. ráðh. Ég spyr: hvert út? Ég spyr enn: hvað á hann við með að stiga sporið út? Á hann þar við endanlega og fullkomna viðurkenningu á falli íslenzks gjaldmiðils?
Það var ýmislegt fleira í ræðu hæstv. ráðh., sem gæti verið ástæða til að spyrja um. Ég skal þó ekki sérstaklega spyrja um það, m.a. af því, að ég mun síðar í ræðu minni koma að því í einu formi eða öðru, svo að honum gefst þá tækifæri til að segja sínar skoðanir um það og gefa þá þær frekari upplýsingar, sem hann telur eðlilegar.
Ég vil gera örstutta athugasemd einnig við ræðu hæstv. viðskmrh. Hann sagði, að þegar skilið hefði verið við bátagjaldeyriskerfið, sem hann nefndi, þá hefði það staðið í mikilli skuld. Það er nú alveg eftir því, hvernig menn vilja orða það, og tölur hans tek ég ekki alveg eins og þær væru beint úr biblíunni, fyrr en ég hef sannprófað þær, og ég veit, að hann skilur manna bezt, að það er ekki ástæða fyrir mig að gera það, blanda saman biblíunni og honum. En ég vil þó segja honum það, að þetta kerfi hefði auðvitað vei getað verið skuldlaust, ef hans núverandi starfsbræður hefðu ekki staðið á móti, að stækkaður væri bátalistinn, þannig að kerfið hefði getað velt ofan af sér.
Þá gat hæstv. ráðh. um hinar miklu vaxandi þarfir útvegsins. Ég leyfi mér að spyrja hann: Af hverju stöfuðu fyrst og fremst þessar vaxandi þarfir útvegsins? Ég svara því sjálfur: Þær stöfuðu fyrst og fremst af pólitíska verkfallinu, sem hann og aðrir samherjar hans stóðu fyrir vorið 1955 og þegar í stað leiddi af sér 13.2% hækkun á kaupgjaldi framleiðsluatvinnuveganna, sem þegar á því ári eða fyrir þau áramót, 1955, höfðu velt á sig nýjum kvöðum, þannig að útgjaldaaukinn var orðinn hvorki meira né minna en 22%. Fyrir þessu verkfalli stóð hann. Ég hef ekki fyrir því annað betra vitni en þann, sem nú heitir „Gregory“-bróðir með honum, þ.e.a.s. hæstv. fjmrh. Hann kvað ákaflega skýrt á um það, að öll bölvun stafaði frá kommúnistunum og fylgihnöttum þeirra, Alþýðuflokknum, í þessum efnum. Hann benti réttilega eins og ég á það, að þá hafði vísitalan staðið föst að heita mátti í ein 2–3 ár, að sparifjáraukning í landinu var mjög mikil og farsæl, að yfirleitt allar loftvogir í efnahagslífinu stóðu vei þegar þetta ógiftusamlega verkfall reið yfir, sem öllum hefur reynzt til mikillar bölvunar, — draugur, sem þá var kveðinn upp og hæstv. ráðh. var nú að berjast við upp á líf og dauða í sinni löngu ræðu áðan. Nú skilur hann það. Ég skal segja ykkur, að ráðherrastóllinn er ekki lítill gáfnagjafi, þegar slíkir vel gefnir menn eins og hæstv. ráðh. fá að setjast í hann. Þessi stóll kemur vitinu fyrir marga, úr því að hann er búinn að snarsnúa svona við heilanum í þessum hæstv. ráðh, og öllum hans þankagangi. (Fjmrh.: Það er verst að þeir tapa því aftur, þegar þeir fara úr honum.) Já, það er nú kannske þess vegna, sem þessi hæstv. ráðh. aldrei vill fara úr stólnum, því að hann veit, að hann hefur af litlu að má, og verður þá lítið úr honum, ef hann fer úr stólnum. Ég skil núna, af hverju hann er rígnegldur við botninn á ráðherrastólnum. Þetta er ein ástæðan, og önnur er sú, að hann er ekki alveg ómetorðagjarn. Það borgar sig aldrei að grípa fram í fyrir mér. Það ætti ráðh. að vita af langri reynslu. (Gripið fram í. —Forseti: Ekki samtal.) Nei, ekki samtal, ég má þó víst svara. Ég hélt, að það væri ráðh., sem ætti að þegja, og ég, sem ætti að tala, herra forseti. (Forseti: Ég nefndi ekki, hver ætti að þegja.) Nei, ég heyrði það, en „hann nefndi lamb og leit á mig.“
Hæstv. viðskmrh. sagði, að við sjálfstæðismenn hefðum barizt miskunnarlaust á móti stöðvunarstefnunni, við hefðum skipulagt kauphækkanir í landinu. Ja, öðruvísi mér áður brá. Væri það nú ægilegur glæpur, ef við hefðum hjálpað einhverjum lágt launuðum mönnum til að fá einhverja kauphækkun? Væri það? Ekki var það áður en ráðh. kom í ráðherrastólinn. En svo er það auk þess gersamlega úr lausu lofti gripið, að við höfum verið að reyna að hafa áhrif á það. Það er ríkisstj. sjálf, sem ýmist hefur staðið fyrir þessum „leiðréttingum og lagfæringum“ eða leyst þær kaupdeilur, sem risið hafa, með jákvæðum ráðstöfunum. Og í tilefni af því, að hæstv. ráðh. nefndi sérstaklega flugmennina, skal ég benda honum á, að það er hann sjálfur og ríkisstj., sem varð þess valdandi, að þessir hæst launuðu menn fengu sínar kröfur og óskir uppfylltar með því að hækka að verulegu leyti þann hluta kaupgjalds þeirra, sem þeir taka í erlendum gjaldeyri. Þeir hafa sjálfir metið þessar hækkanir opinberlega og telja, að stjórnin hafi þannig útvegað þeim 35–40% kauphækkun, sem þó er miklu hærri.
Ekki réð ég því heldur, að Sambandið sýndi þá rausn, eftir að búið var að banna þessar kauphækkanir, að úthluta sínum mönnum 8 eða 10% í kauphækkanir. Ekki réð ég því, að farmennirnir fengju sínar kauphækkanir. Var það ég, eða var það hæstv. viðskmrh., sem sat hér í þinghúsinu dag eftir dag og sagði við þessa menn: Þið skuluð ekki samþykkja fyrstu till., sem kemur, því að það kemur önnur. Þið skuluð ekki heldur samþykkja aðra, því að þær verða þrjár. — Hann tafði sjálfur með því deiluna og endaði svo á því að fá hana leysta með því að hækka fragtirnar í landinu á kostnað lægst launaða fólksins jafnt og annarra.
Þannig eru öll dæmin. Ég nefni nú bara þessi dæmi, af því að þau liggja beinast við. Það eru svo aðrir, sem hér munu minnast nokkuð á, hverju aflabresturinn í landinu hefur valdið um getuleysi ríkisstj. og fjárskort. Ég hygg, að þá komi í ljós nokkuð aðrar myndir en hæstv. ráðh. gat um. Einnig hygg ég að muni upplýsast, að varðandi innflutning á óþarfa, þá veldur þar ekki aðeins um, að stjórnin hafi viljað spara gjaldeyri í þeim efnum, heldur líka hitt, að þessi vara er orðin svo dýr, að fólk getur ekki leyft sér að kaupa hana óendanlega.
Hæstv. ráðh. sagði um meginstefnu þessa frv., að í því væri ekkert, sem bryti í verulegum efnum stefnuna, sem fylgt hefði verið fram að þessu. Hvað sögðu fjórmenningarnir um það í sinni till.? Ég á þar við Eðvarð Sigurðsson, Snorra Jónsson, Eggert Þorsteinsson og Óskar Hallgrímsson. Þeir sögðu, með leyfi hæstv. forseta:
„25. þing Alþýðusambands Íslands lýsti því yfir, að gengislækkun eða aðrar hliðstæðar ráðstafanir kæmu ekki til mála sem úrlausn efnahagsmálanna. Þær ráðstafanir, sem nú er hugsað að gera, hafa á ýmsan hátt hliðstæð áhrif og gengislækkun. Hins vegar virðist tryggt, að þær hafa ekki í för með sér almenna skerðingu kaupmáttar vinnulauna á næstu mánuðum. Greinilegt er, að þessar ráðstafanir í efnahagsmálunum munu leiða til frekari verðbólguþróunar og eru því fráhvarf frá þeirri stefnu, sem 25. þing Alþýðusambandsins fagnaði og lýsti fylgi sínu við og efnahagsmálanefnd og miðstjórn Alþýðusambandsins síðan hafa ítrekað, þ.e. að stöðva verðþensluna. Ráðstafanirnar brjóta því í bága við stöðvunarstefnuna, er verkalýðssamtökin og ríkisstj. þá tóku höndum saman um. Efnahagsmálanefnd og miðstjórn Alþýðusambandsins vísa því frá sér þeim till. um ráðstafanir í efnahagsmálunum, sem nú liggja fyrir, þar sem þær eru ekki í samræmi við það, sem síðasta Alþýðusambandsþing heimilaði þessum aðilum að semja um.“
Þessi hæstv. ráðh., Lúðvík Jósefsson, segir: Þetta er alveg sama stefnan og við höfum fylgt og engin veruleg frávik að minnsta kosti. — Þessir fyrrverandi og núverandi þm. flokks hans og Alþfl. segja þveröfugt. Þeir segja, að þessi stefna brjóti algerlega í bága við stefnuna, sem fylgt hefur verið, og mótmæla henni þess vegna. Mér þykir þessi hæstv. ráðh. gerast furðu djarfur, ef hann ber þessa menn þeim sökum, að þeir segi allir ósatt til um þetta. Þetta er skjalfest líka í blaði sjálfs hæstv. viðskmrh., og ef hæstv. ráðh. vill hafa eitthvað, sem ekki er þó farið að úldna, þá skulum við bara taka Þjóðviljann. Ég hef ekki þann alveg nýkomna úr bakaraofninum með mér, en hitt er ekki neitt kalt brauð, það er Þjóðviljinn í gær. Þar segir:
„Hinar nýju tekjuöflunarráðstafanir eru fráhvarf frá stöðvunarstefnunni. Þær munu hafa í för með sér verulegar verðhækkanir. Gert er ráð fyrir, að núgildandi vísitala muni hækka um 14–16 stig, þegar allt er komið fram. Verðbólguskriðan er sem sé komin í gang á nýjan leik. Að vísu eru þessar ráðstafanir mikið breyttar frá því, sem upphaflega var lagt til. Þær munu hafa mun vægari áhrif á lífskjör alþýðufólksins, en gengislækkun sú, sem barizt var fyrir, og tryggt er, að lífskjörin skerðist ekki næstu mánuði. Engu að síður hljóta Alþb. og verkalýðshreyfingin að líta þessa þróun mjög alvarlegum augum. Í henni felst fráhvarf frá þeirri stefnu, sem skynsamlegust var og hagkvæmust alþýðu manna, og hér er aðeins um bráðabirgðaúrlausn að ræða, verðbólguþróun, sem óhjákvæmilega kallar á aðrar ráðstafanir og till. eftir tiltölulega stuttan tíma.“
Svo mörg eru þau orð. Ég vona, að guð kommúnistanna festi þau djúpt í heila hæstv. ráðh., svo að hann komi ekki hér aftur og lýsi því yfir, að þessi stefna sé sama stefnan í öllum aðalatriðum og fylgt hefur verið. Eða er blað hans að fara með fleipur? Eru fjórmenningarnir, — þarna situr nú einn þeirra, mikill merkismaður, — er hann að fara með fleipur? Ég trúi nú engum andstæðinga minna alveg hundrað prósent, en ég trúi þessum andstæðingi mínum, sem þarna situr, miklu betur, en hæstv. ráðh.
Hæstv. ráðh. vék enn að því, sem hann oft miklast af, að honum hafi með sínum framúrskarandi dugnaði og afburða hæfileikum, samningalipurð og sérstaklega lipurð í að fara með sannleikann — samningalipurð og sannleikameðferðarlipurð — tekizt að hindra stöðvun um áramót á framleiðslutækjum, sem sé algerlega nýtt í sögu þjóðarinnar. Ég nenni nú ekki að vera að karpa um þetta. Menn vita, að það hefur verið undantekning á undanförnum árum, sem ég held að hafi tvisvar sinnum komið fyrir á þeim 10 árum, sem Sjálfstfl. fór með þessi mál, að stöðvun varð, annað skiptið fyrir beinan tilverknað kommúnista og hitt skiptið fyrir óbeinan tilverknað. En nú spyr ég hæstv. ráðh.: Ef það að hindra stöðvun er eina atriðið, sem máli skiptir, er hann þá viss um, að hann sé ekki að valda stöðvun með þessum ráðagerðum og þessu frv.? Mér barst áðan bréf frá Landssambandi ísl. útvegsmanna, þar sem þeir telja rofinn á sér samning og lýsa því yfir, að ákvæði þessa frv. muni valda stöðvun, a.m.k. ef ekki verða gerðar frekari ráðstafanir þeim til tryggingar, Þeir segja m.a.:
„Þá leyfum vér oss að geta þess, að fyrirsjáanlegt er, að með ráðstöfunum þeim, sem fyrirhugaðar eru með frv. þessu, muni sjávarútvegurinn og fiskvinnsla einnig stöðvast, verði ekki jafnhliða gerðar ráðstafanir til þess að útvega sjávarútveginum aukin stofnlán og rekstrarfé.“
En rekstrarfjárskortur hefur hamlað útgerðinni að undanförnu, og fyrirsjáanlegt er, að þörfin fyrir rekstrarfé mun stóraukast við þessar ráðstafanir, sbr. greinargerðina.
Hefur ráðh. tryggt þetta aukna rekstrarfé? Ef ekki, þá liggur hér fyrir yfirlýsing um, að frv. þetta muni stöðva útgerðina. En auk þess segir í þessu bréfi:
„Minnstu bætur, sem jafngilda okkar samningi, og minnstu bætur, sem við komumst af með, eru ekki 80%, heldur 85%, og ekki 50% á síldina, heldur líka 85%.“
Hvað segir hæstv. ráðh. um þetta? Hefur hann talað við þessa menn? Hann hefur gert samning við þá um áramótin, skriflegan, svo er guði fyrir að þakka fyrir þá. Og viðbót við þennan samning er send ráðh. með hans samþykki. Þar segir, að ríkisstj. megi ekki rýra gildi hans með neinum ráðstöfunum á árinu.
Að öðru leyti skal ég ekki fjölyrða um þessa ræðu, en ég hafði dálitið gaman af því, að þegar ég kom út áðan úr umr., þá sagði mjög greinagóður og gáfaður áheyrandi við mig: Hvernig er það með ræðuna hans Lúðvíks, hvar hef ég heyrt hana áður? — Og hann braut heilann, þangað til ljósið rann upp, og sagði:
„Æ nú man ég það, ég heyrði hann Eystein halda hana eftir verkfallið mikla.“ — Það er nú sagt, að hver dragi dám af sínum sessunaut. En að Lúðvík Jósefsson og Eysteinn Jónsson skuli vera orðnir ódýrar vasaútgáfur hvor af öðrum, það er meira en ég hefði haldið fyrir tveimur árum. Ódýrar vasaútgáfur, sagði ég.
Ég skal svo ekki að þessu sinni víkja fleiri orðum að þessum ræðum, sem hér hafa verið fluttar, og snúa mér að öðrum hliðum málsins.
Okkur sjálfstæðismönnum hefur gefizt mjög lítið færi á að grandskoða þetta flókna frv. Það eru óvenjulega mörg ný ákvæði í frv., og þarf að grandskoða það vel, ef menn ætla að komast ofan í kjölinn, enda hefur þetta tekið stjórnina marga mánuði.
Þegar ég var búinn að lesa frv. yfir, þá sagði ég: Hvað er eiginlega verst um þetta frv.? Er það efni þess? Eru það vinnubrögðin, sem við hafa verið höfð? Eða eru það sviknu loforðin, sem yfir því grúfa eins og svartur og draugalegur skýjaflóki?
Hæstv. forsrh. rauf stjórnarsamstarfið vorið 1956 með þau orð á vör eftir 9 ára stjórnarsetu hans sjálfs og flokks hans og eftir samfellda 6 ára fjármálastjórn hæstv. núverandi fjmrh., Eysteins Jónssonar, — með þau orð á vör, sagði ég, að þjóðin væri á eyðimerkurgöngu og fjárhagslegt og pólitískt sjálfstæði hennar riðaði á glötunarbarmi. Hæstv. forsrh. taldi sér ekki fært að bera ábyrgð á þessu ástandi lengur, og það er nú varla von, úr því að honum sýndist það svo. Hann vildi ekki bera ábyrgð á verkum Eysteins Jónssonar, stefnu hans og gerðum á undanförnum árum. Hann sagði, að hér yrði tafarlaust að brjóta í blað, snúa við frá helstefnunni, eins og hann orðaði það, helstefnu undanfarinna ára. Sjálfur treysti hann sjálfum sér langbezt til að vera leiðsögumaður út úr eyðimörkinni og yfir í hið fyrirheitna gósenland öryggis og hagsældar fyrir allan almenning í landinu. Hann sagði, að ef menn bara vildu fylgja sér, þá skyldi enginn missa spón úr sínum aski. Með algerri stefnubreytingu og varanlegum úrræðum í efnahagsmálunum skyldi vandinn verða leystur. Það yrði að gerast tafarlaust, sagði hann. Það yrði „tafarlaust að hætta öllum styrkjum og öllum niðurgreiðslum vegna þess,“ eins og hann orðaði það, „að niðurgreiðsluleiðin er engin frambúðarlausn, heldur hættuleg svikaleið, sem brátt hefnir sín.“ „Gegn þessum voða þarf þjóðin að rísa án tafar, ella er það of seint,“ svo að ég hafi yfir ummæli hæstv. ráðh. og blaðs hans. Gegn þessum voða, gegn niðurgreiðslunum, gegn uppbótunum verður þjóðin að rísa án tafar, ella er það of seint. Það eru tvö ár liðin síðan þessi ummæli voru viðhöfð og þessi fyrirheit voru gefin. Þau eru raunar tekin úr sjálfri kosningastefnuskrá flokkanna fyrir síðustu alþingiskosningar, 1956. Ég skal nú ekki að sinni, hirða um að tilfæra fleiri af þessum ummælum, af því að þeir, sem hér eru inni, þekkja þau svo vel. Þjóðin þekkir að vísu mikið af þeim líka, en þó ekki eins vel og við, sem hér erum. Og það er auðvitað af mörgu að taka, jafnt af ummælunum og af fordæmingunni, — fordæmingunni yfir fyrri úrræðum Eysteins Jónssonar, já, og mín. Ég fylgi bara þar með í kaupbæti, því þegar hæstv. forsrh, talar, þá er hann auðvitað fyrst og fremst að deila á sinn vitra vin, núverandi fjmrh., sem mér hafði verið sammála um allt þetta. Ég sagði ekki samsekur, heldur sammála, því að við vorum ekki sekir, enda hefur enginn sýknað okkur betur en hann sjálfur, meðan hann var í góðra manna hóp.
En það var annar ráðh., sem einnig lýsti yfir einhverju svipuðu, svo að ég nefni nú bara einhvern, nefni t.d. þann, sem næstur mér er, hæstv. viðskmrh. Ég man áreiðanlega, þegar fyrrverandi stjórn í ársbyrjun 1956 lagði 100–150 millj. kr. nýja skatta á þjóðina. Þá var þessi maður nokkuð skeleggur. Þá vissi hann, hvað var verið að gera. Þá vissi hann, hvað svona skattar þýddu fyrir þjóðina. Hann sagði: Hér er ekki aðeins um að ræða einhverja stórfelldustu árás, sem gerð hefur verið á lífskjör vinnandi fólks í landinu, á Íslandi, heldur efnahagslegt glapræði, sem draga mun enn meiri ófögnuð á eftir sér. — Ekki minna, en þetta kostuðu nú 100 milljónirnar þá: hatrömmustu árás og svívirðilegustu atlögu að almenningi í landinu og glapræði, sem mundi draga enn meiri ófögnuð á eftir sér. Fyrir 100 millj. fengum við þetta í þá daga.
Ég játa, að það voru fleiri ráðh., sem töluðu. Hæstv. ráðh. Hannibal Valdimarsson og Gylfi Gíslason, hæstv. menntmrh., rauluðu undir, en mér þykir engin ástæða að vera að hafa það yfir. Þetta er nóg, sem komið er. Sökudólgurinn, Eysteinn Jónsson, fjmrh. hæstv., mótmælti þessu öllu kröftuglega og af mikilli mælsku og miklu viti og hafði rétt fyrir sér í einu og öllu þá, það má hann eiga. Ég sé, að hann brosir hýrt til mín. „Á þér ástarauga, ungur réð ég festa“ — var það ekki?
Hæstv. ráðh. Eysteinn Jónsson færði þá sterk rök fyrir því, að rót meinsins væri öll hjá þeim, sem stóðu fyrir pólitíska verkfallinu. Hann er að vísu búinn að éta þetta allt ofan í sig og kingja því með flestu því bezta úr sinni fortíð, en það verður ekki við því gert, úr því sem komið er, nema hann geri bót yfirsjóna sinna og það heldur fyrr en síðar, og verður þó örðugt, hugsa ég. Í sem stytztu máli sagt: núverandi stjórn skráði þá á skjöld sinn: Það skal gripið fast, mjög fast í taumana. Og svikaleið niðurgreiðslnanna skal tafarlaust stöðvuð. Engar uppbætur, engar skattahækkanir. — Þetta tek ég orðrétt: „Engar uppbætur, engar skattahækkanir á almenning í einni eða annarri mynd, því að verkalýðnum ríður lífið á, að gengislækkun, lögbindingu kaups, vísitöluskerðingu eða nýju skattaflóði verði ekki með neinu móti fram komið á Alþingi.“ Þetta var boðskapurinn þá hjá form. Alþýðusambandsins, núverandi hæstv. ráðh.: Enga skatta, engar niðurgreiðslur.
Ég skal nú ekki hirða um að tilgreina fleiri loforð ríkisstj., að því þó einu viðbættu, að þann 7. okt. 1956 sagði hæstv. forsrh., að sérfræðingarnir hefðu staðfest allt hans mat á efnahagsafkomu þjóðarinnar og þar með, að þjóðin mundi steypast fram af glötunarbarminum, ef ekki yrði tafarlaust snúið við. Og svo bætti hæstv. ráðh. við: „Það er prófsteinn stjórnarinnar, hversu tekst að leiða þjóðina út úr þeim ógöngum, sem alröng og tækifærissinnuð stjórnarstefna liðinna ára hefur leitt út á.“ — Þetta var dómur hæstv. forsrh. þá: Það væri prófsteinn á stjórnina, hvernig henni tækist að leiða þjóðina burt frá sköttunum, burt frá niðurgreiðslunum, burt frá uppbótunum, burt frá öllu því, sem nú er dregið við hún, — öllu. Ég skal ekki fjölyrða um þennan prófstein meira, um efndirnar eða öllu heldur svik stjórnarinnar, því að þjóðin veit öll, að í stað varanlegu úrræðanna fékk hún fyrst jólagjöfina svonefndu í árslok 1956. Það voru 300 millj. kr. í nýjum sköttum, auknar niðurgreiðslur fékk hún, uppbætur auknar og nóg af nýjum „svikaleiðum,“ sem stjórnin áður hafði talið, og enn stórfelldari „árás á lífskjör vinnandi fólks í landinu“ en þekkzt hafði fram að þeim tíma, svo að ég haldi mig við orðalag hæstv. viðskmrh.
Í dag eru þjóðinni enn nýjar gjafir gefnar, og ég vil reyna að leitast við að gefa dálitla lýsingu á þessum nýju gjöfum, sem væri sannari en þær lýsingar, sem grg. frv. ber með sér og ræður hæstv. ráðh, hafa gefið. Ég verð þó að sjálfsögðu að láta mér nægja að drepa aðeins á örfá helztu atriðin, örfáa stærstu drættina og þá fyrst og fremst þá, sem almenningur á örðugast með að átta sig á. Aðrir sjálfstæðismenn munu svo fylla í skörðin og víkja að ýmsum fleiri hliðum á þessu flókna máli heldur en ég geri.
Varðandi útflutningsbætur á landbúnaðar- og sjávarafurðir og niðurgreiðslur landbúnaðarafurðanna læt ég að þessu sinni nægja að segja, að það má vel vera, að það kerfi, sem nú á að innleiða, geri nokkru einfaldari framkvæmdina, en gert var með jólagjöfinni sælu, og það er út af fyrir sig kostur. Ég vil þó slá þann varnagla, eins og ég áðan gat um, að okkur sjálfstæðismönnum hefur ekki gefizt mikið rúm til að athuga málið, og enn fremur vil ég leiða athygli að því, að með ákvæðum frv. er ríkisstj. án afskipta Alþ. gefið mjög mikið vald til þess að ákveða uppbætur bæði á einstökum vöruflokkum og einnig aukabætur á smáfisk og fleiri vörur, sem tilnefndar eru í frv. Það er alveg stjórninni í sjálfsvald sett, hvernig hún ákveður það, a.m.k. ef hún telur sig geta rökstutt það með einhverjum frambærilegum greinargerðum.
Varðandi aftur tekjuöflunina til útflutningsbóta og niðurgreiðslna og hinna nýju yfirfærslubóta, sbr. 1. gr. frv., þá má segja, að um alger og mjög stórvægileg nýmæli sé að ræða. Þessi nýmæli eru mörg flókin, en á þeim stutta tíma, sem okkur sjálfstæðismönnum hefur gefizt til að athuga málið, virðist mér, að höfuðatriðin séu þessi:
Í fyrsta lagi, eins og mönnum er kunnugt, setti núverandi stjórn í árslok 1956 yfirfærslugjald, 16%, á ýmsar vörur, en helztu rekstrarvörur framleiðsluatvinnuveganna voru undanskildar. Auðvitað var þetta 16% gjald ekkert annað en gengisfelling, þótt í smávægilegum stíl væri. Stjórnin þorði bara ekki að nefna það það. Nú er stjórnin ekki lengur feimin, finnst mér, og þó að hún ekki beint nefni gengisbreytinguna, þá er þó grímunni alveg svipt af. Grímunni er svipt af, svo að nú getur enginn lengur efazt um, að hér er um ógrímuklædda gengisfellingu að ræða. Allt frv. er þannig samið og ber það með sér, að það er í verulegum mæli ógrímuklædd gengisfelling. Nú er stjórnin ekki að hika við hlutina, og nú eru það allar vörur allar undantekningarlaust — sem eiga að vera háðar þessu gjaldi. Og gjaldið er ekki lengur 16%, heldur er það í öllum aðalefnum 55%, með því afviki, að vörur, sem nema kannske 10% af innflutningnum og þó varla það, eiga að vera með 30% gjaldi. Af þessu leiðir að sjálfsögðu stórkostlega verðhækkun á öllum vörum. Hún er mismunandi. Hún er minnst á þessum lægsta flokki, og það er kannske ofmælt að segja, að hún sé stórkostleg á honum. — En hún er mjög stórkostleg í öllum aðalefnum og á öllum notaþörfum eða rekstrarvörum framleiðsluatvinnuveganna. Og svo að menn átti sig á því, hversu gífurlega verðhækkun þessi dulbúna gengislækkun hefur í för með sér, þá þykir mér rétt að benda á, að auk þess, að menn verða nú að kaupa allan gjaldeyri fyrir 30% og þó að langsamlega mestu leyti fyrir 55% hækkað verð, þá er það nýmæli, að þar ofan á kemur, að tollgreiðslur til ríkissjóðs hækka stórkostlega af þessum ástæðum, því að samkvæmt frv. skulu tollarnir einnig lagðir á yfirfærslugjaldið. Hversu stórfelld áhrif þetta hefur, sjá menn bezt á því, að aðeins af þessari einu breytingu á tilhögun tollaálagningarinnar, sbr. 33. gr. frv., er ríkissjóði ætlað að hagnast á einu ári um 144 millj., sem ég held nú að verði raunar langtum meira, en þar er greint. Enn fremur er áætlað skv. frv., að hækkun yfirfærslugjaldsins af innfluttum vörum ein út af fyrir sig gefi útflutningssjóðnum 452 millj. kr. nýjar tekjur, þ.e.a.s., að tekjurnar af þessum efnum hækki úr 128 millj. og upp í 580 millj. Þar eru þess vegna 450 millj. kr. nýjar álögur á þjóðina.
Þá vil ég í öðru lagi geta þess, að gengisfellingin eða yfirfærslugjaldið svonefnda af öðrum yfirfærslum, en vörukaupum á skv. frv. að hækka úr 13 millj. í 253.5 millj„ eða um 240.5 millj.
Í þriðja lagi er lagt á nýtt benzíngjald, sem samkvæmt frv. á að vera 62 aurar, en er miklu meira í raun og veru á lítrann, og er það talið gefa 24.6 millj. í nýjar tekjur.
Og í fjórðu lagi er loks þess að geta, að innflutningsgjaldið helzt áfram, en samkvæmt 36. gr. er það talið lækka um 86 millj., en aukatekjurnar eiga að hækka um 15.9 millj.
Eftir þeim gögnum, sem okkur hafa verið afhent, bæði í frv. og af þeim sérfræðingum, sem hafa látið okkur skýrslur í té, og það er aðallega í gær og nokkrar á sunnudag, þá virðist heildarmyndin vera sú, að nýjar álögur á þjóðina séu sem að framan greinir, alls 790.4 millj., sem skiptast þannig, að í útflutningssjóð renna 646.4 millj., en í hlut ríkissjóðs koma 144 millj. Mér þykir rétt að taka það fram, að um nokkurn hluta af duldu greiðslunum má deila, en það er líka það eina, sem hægt er að deila um. Og ég vil einnig benda á, að í grg. frv. er reynt að hylja heildarálögurnar, þ.e.a.s. villa mönnum sýn beinlínis með þeim rökum, að ekki beri að reikna til nýrra álagna hina stórfelldu skatta á rekstrarvörur útflutningsatvinnuveganna, og það með þeim rökum, að útflutningsbæturnar séu hækkaðar í samræmi við þessa nýju bagga á framleiðslunni. Þetta eru auðvitað alger tyllirök og villandi upplýsing, sem mér finnst ekki sæmileg, svo að ekki sé fastar að kveðið, því að auk þess sem alveg er ósannað mál, að auknu uppbæturnar jafngildi þessum nýju álögum, þá liggur alveg í augum uppi, að einstakar framleiðslugreinar og einstakir framleiðendur fá auðvitað ekki uppbætur, sem jafngilda hinum nýju álögum. Þannig getur t.d. vel svo farið, að það skip, sem þyngsta baggana ber af þessum nýju álögum, fái minnstar uppbætur úr sjóðnum. Þetta er stórkostleg röskun frá því, sem nú hefur verið. Það hefur að sönnu verið þannig, að því meiri afla sem menn hafa fengið, því meiri bætur fá þeir. En nú er það þannig, að þótt menn fái nauðalítinn afla, þá geta orðið lagðar á þá miklu þyngri kvaðir en hina, sem fá miklu bæturnar vegna mikla aflans, vegna þess, hve veiðarfærin, sem þeir geta notað alveg eins mikið af — vegna óhappa og annars sem lítinn afla fá, hækka í verði með þessu móti sem og allar aðrar notaþarfir útgerðarinnar. Sama mun sjálfsagt vera hægt að finna dæmi um úr landbúnaðinum.
En að þessu slepptu, sem þó er aðalatriðið, þá stenzt auðvitað þessi meginhugsun alls ekki, að reyna að leyna því, sem lagt er á þjóðina, með þessum hætti. Það stenzt auðvitað alls ekki, því að það mætti þá alveg eins vel með sama þankagangi segja, að fjárlögin séu bara núll, og þá með þeim rökum, að tekjurnar komi allar frá þjóðinni, en öll útgjöldin renna auðvitað til þessarar sömu þjóðar. Svona hugsanagangur stenzt auðvitað engan veginn.
Ég vil nú leyfa mér til frekari fullvissu og til skýringar á sumu því, sem óupplýst er eða ekki nægjanlega upplýst í frv., að bera fram nokkrar spurningar til hæstv. ríkisstj.:
1) Hverjar verða tekjur útflutningssjóðs eftir núverandi kerfi, og hverjar verða þær eftir frv.?
2) Hver er hækkun útflutningsuppbótanna, í fyrsta lagi til sjávarútvegsins, í öðru lagi til landbúnaðarins?
3) Hverjar eru forsendur þess, að hækka verður bæturnar?
4) Hefur Landssambandið samþykkt að breyta þeim samningi, sem ríkisstj. gerði við útvegsmenn um síðustu áramót, og ef svo er ekki, telur ríkisstj. þá heimilt að lögfesta stórfelldar breytingar á hinum umsömdu fríðindum án samþykkis Landssambandsins? Ég veit að vísu, eftir að ég samdi þessa spurningu, að Landssambandið hefur ekki samþykkt það, samkvæmt bréfi, sem mér barst áðan, en ég vil þó heyra ummæli hæstv. viðskmrh. um þetta.
5) Hefur Stéttarsamband bænda samþykkt frv. fyrir sitt leyti, og hvernig hljóðar yfirlýsing þess? Um það vitum við ekkert.
6) Er það rétt, að ríkisstj. hafi lýst því yfir við stjórn Alþýðusambandsins og 19 manna nefndina, að án samþykkis þeirra yrðu ráðstafanir þessar ekki gerðar? Mér virðist nú, að hæstv. forsrh. hafi gefið það fullkomlega í skyn og raunar meira. En ég vil gjarnan heyra um það yfirlýsingu.
7) Telur ríkisstj. yfirlýsingu Alþýðusambandsins og 19 manna nefndarinnar samþykki á frv. eða mótmæli gegn því? Hvort heldur?
8) Felur frv. í sér bann gegn kauphækkunum umfram hina lögbundnu hækkun samkvæmt frv.?
9) Ef svo er ekki, hefur ríkisstj. þá tryggingu fyrir því, að Alþýðusambandið beiti sér ekki gegn frekari kauphækkunum og einstök stéttarfélög hagi sér þá í samræmi við það?
10) Telur ríkisstj., að ráðstafanir þessar standist, ef frekari kauphækkanir verða, en frv. gerir ráð fyrir?
11) Er tekjuöflun frv, miðuð við aðeins 5% kauphækkun eða einhverja vísitöluhækkun umfram 200 stig og þá hve mikla?
12) Er gert ráð fyrir óbreyttum niðurgreiðslum, eða ætlar ríkisstj. sér að greiða niður að einhverju leyti væntanlegar verðhækkanir og þá hverjar og að hve miklu leyti?
13) Hvað er gert ráð fyrir mikilli hækkun framfærsluvísitölunnar til næstu áramóta? Það virðist vera upplýst nú af ræðum ráðh., að það verði 14–17 stig. Það væri náttúrlega fróðlegt að vita, hvort heldur er.
14) Hve mikið af tekjuþörf útflutningssjóðs og ríkissjóðs stafar af kvöðum vegna hinna nýju álaga samkvæmt frv.?
15) Er það rétt, að vegna þessa frv. hækki verðlag á helztu lífsnauðsynjum geigvænlega, t.d. að kaffi, sykur og kornvörur eigi að hækka um 15%, að sement eigi að hækka um 30%, að timbur eigi að hækka um 29%. að benzín eigi að hækka úr kr. 2.09, eins og það nú ætti að vera, upp í kr. 2.90, að olían muni hækka um 24%? Og hvað mundi þá hækka t.d. fóðurbætir, tilbúinn fatnaður, vefnaður og aðrar slíkar vörur?
16) Hver verður hækkun á rekstrarvörum landbúnaðar, sjávarútvegs og iðnaðar samkvæmt frv.?
17) Ætlar ríkisstj. sér að draga úr verklegum framkvæmdum ríkisins sem nemur þeim kostnaðarauka, sem leiðir af frv.?
18) Telur ríkisstj, þessar ráðstafanir leysa vanda útflutningsatvinnuveganna og ríkissjóðs til frambúðar?
19) Eru þessar till. ríkisstj. í samræmi við till. útlendu eða innlendu sérfræðinganna, sem unnið hafa að rannsóknum efnahagsmálanna á vegum núv. ríkisstj., og ef svo er ekki, í hverju er þá munurinn fólginn?
Og loks vil ég spyrja: Ætlar ríkisstj. sér að birta almenningi eða a.m.k. Alþingi álitsgerðir og till. sérfræðinganna, ekki útdrátt, heldur í heild, a.m.k. alþm.?
Ég vænti nú, að hæstv. ríkisstj. svari þessum spurningum í meginatriðum. Ég ætlast ekki til, að menn geri það í dag endilega, en að n. fái þá upplýsingar um það, þegar hún vinnur að málinu.
Ég tel nú, að menn geti áttað sig á því, sem að þjóðinni er rétt, þ.e.a.s. efndunum á fyrirheitunum, sem ríkisstj. hafði gefið, þ.e. á því, hvort búið sé að „leiða þjóðina út úr eyðimörkinni“, „burt frá niðurgreiðslunum og uppbótunum, sköttunum og bráðabirgðaúrræðunum“ yfir í hið fagra gósenland.
Það, sem skeð hefur, er nefnilega ekki það, að horfið hafi verið frá þeirri stefnu, sem var lýst sem feigðargöngu, heldur hitt, að hert hefur verið á göngunni. Fyrst leggur þessi stjórn, sem lofaði að leggja enga nýja skatta á þjóðina, 300 millj, kr. nýja bagga á hana í árslok 1956. Þar næst hefur hún mjög skert kjör alls almennings, sem hún lofaði að bæta, bæði með 6 stiga vísitöluskerðingunni, með því að halda niðri vísitölunni á kostnað almennings um 9 stig, sem gert hefur verið, og þó einkum með því að leyfa verðlaginu í landinu að hækka mjög mikið, án þess að menn fengju bætur í vísitölunni, og það er auðvitað þar með framkvæmd stórfelld fölsun á vísitölunni. Og þetta er auðvitað allt gert á kostnað launþeganna, sem ríkisstj. taldi sig myndaða til þess að vernda, — ekki til að níða, heldur til að vernda. Ofan á þetta bætist svo, að nú á að rétta að þjóðinni 790 millj. kr. nýja skatta, 14–17 stiga nýja vísitöluhækkun, stórfelldar verðhækkanir, allra nauðsynja. Geigvænlegri nýrri verðbólguskriðu er hrundið af stað, eins og blað hæstv. viðskmrh. hefur komizt að orði. Loks er svo lögbundið kaupgjald, a.m.k. önnur hlið þess, og er þá ótalin hin stórfellda gengislækkun.
Með þessum hætti er sú stjórn, sem lofaði að girða fyrir nýjar skattaálögur á þjóðina, búin á tæpum tveimur árum að leggja á þjóðina nýja skatta að upphæð 1.100 millj. kr. Fjárl. eru á milli 7 og 8 hundruð milljónir til samanburðar. Og auk þess er búið að fella gengið og eins og ég sagði að hrinda af stað nýrri verðbólgu, svo að aðeins séu nefndir stærstu drættirnir í myndinni, sem við okkur blasir.
Mér þykir aðeins rétt að vekja athygli hinna vinnandi stétta, sem ríkisstj. segist nú hafa gefið alla ást sína og trúnað, á því, að þegar stjórnin var ung og saklaus, þá sagðist hún mundu láta burgeisana borga brúsann. Kannast nokkur maður við það, að burgeisarnir áttu að borga brúsann? Hverjar eru efndirnar?
1956, þegar 300 millj. voru á lagðar, þá gleymdist þetta að sönnu. En þó var það djásn látið prýða höfuð stjórnarinnar, að nauðsynjum almennings væri í öllum aðalefnum hlíft. En nú eru komin ný brandajól, og nú er sett upp ný kóróna, — gamla djásninu hent út á haug, ný kóróna er sett upp og ný kjörorð letruð á skjöld ríkisstj. Og nú eru það ekki lengur burgeisarnir, sem eiga allt að borga, — alls ekki. Nú eru það nefnilega hinar vinnandi stéttir svokölluðu, sem eiga að bera nær allan þungann.
Það eru hinar fjölmennu stéttir, sem eiga að borga brúsann. Nú er það kaffið, nú er það sykurinn, matvaran, byggingarefnið, byggingarkostnaðurinn á öllum sviðum og rekstrarvörur framleiðslunnar, sem herskyldan og kvaðirnar eru lagðar á, og nú er það hin fjölmenna stétt, — hin efnalitla fjölmenna fylking, sem mest hefur verið svikin, — nú er það hún, sem á að gjalda ríkisstj. skattgjaldið með því að bera meginþungann af þessum nýju 790 millj. kr. sköttum, sem lagðir eru á þjóðina. Og þetta er ætlazt til að hún geri, svo að blessuð stjórnin, stjórn hinna vinnandi stétta, falli nú ekki. Það er auðvitað mikils virði. Ég veit nú satt að segja varla, hvort þetta er raunalegra, en það er hlægilegt, — ég veit það ekki. En svona skrípaleikur eins og hér hefur verið leikinn með ást til alþýðunnar á vörum, með loforð, sem eru svikin næstum fyrr en þau eru gefin, hann hefur aldrei verið leikinn í íslenzku stjórnmálalífi fyrr eða síðar.
Ég segi eins og er, að ég tel erfitt að gera sér fulla grein fyrir, hvernig á að stýra út úr þeim ógöngum, sem nú hefur verið stefnt í fyrir beinan og óbeinan tilverknað ríkisstj. Ég tel erfitt að gera sér, án frekari gagna, fulla grein fyrir því, eins og nú er komið. Og ég skal því ekki að þessu sinni ræða frekar um efnishlið málsins. En ég veit ekki, svo bág og bölvuð sem efnishliðin er, hvort formshliðin, þ.e.a.s. vinnubrögðin, sem við hafa verið höfð, eru miklu betri, nema verri séu. Verð ég þess vegna að víkja nokkuð að þeirri hliðinni.
Stjórnin hefur nú unnið að þessum málum í nær tvö ár, og það verður maður að játa að er seinagangur af hendi þeirra manna, sem lýstu yfir í öndverðu, að nú yrði „tafarlaust að brjóta blað í íslenzkri stjórnmálasögu og stefna í þveröfuga átt við það, sem gert hafði verið“. Það er mikill seinagangur að þurfa tvö ár til að kúvenda á slíkri göngu fyrir þá, sem vissu, að kúvendingin var slík lífsnauðsyn fyrir þjóðina.
Síðan í desember hafa sérfræðingar undir forustu Jónasar Haralz hagfræðings unnið að þessu máli, og eftir því sem hann hefur tjáð okkur, þá skilaði þessi n. áliti 18. marz s.l. Ríkisstj. hefur þess vegna haft þetta mál milli handa án þess að vilja segja okkur til eða frá um þær upplýsingar, sem hún hafði, í nær tvo mánuði. Á þessum tveimur mánuðum hefur þó verið rætt við ýmsa aðra aðila. Útgerðarmenn segja, að við þá hafi verið rætt, en af þeim teknir helgir eiðar um, að þeir létu ekki nokkurn mann vita neitt af því, sem um var rætt. Enn fremur vita menn, að seinasta hálfa mánuðinn hefur verið rætt við 6 manna nefndina svonefndu og 19 manna nefndina og Alþýðusambandsstjórnina, þ.e.a.s. fyrst eru það sérfræðingarnir, sem rannsaka málið, svo er það ríkisstj., sem setur upp gleraugu og kíkir á málið, og svo er „valdhöfunum“ sent málið, þ.e.a.s. sexmenningunum og 19 manna nefndinni, mönnunum, sem eiga að ráða því. Fyrir þessum valdhöfum kraup svo ríkisstj., eins og allir vita, lengi og bað um náð. Hún bað þá fyrst um að fylgja þessu máli, veita því stuðning, en ef það væri ómögulegt, hvort þeir vildu þá ekki lýsa yfir, að þeir a.m.k. skyldu ekki vinna gegn því. Og eftir því sem ég hef heyrt og vil gjarnan fá það staðfest, þá var því lýst yfir í þennan hóp, að ef hann ekki leyfði stjórninni að flytja málið, þá yrði það ekki flutt. Það er líka alveg í samræmi við það heiti, sem þeir hafa fengið hér í landinu, „yfirstjórn yfir Alþingi“, „hinir raunverulegu valdhafar“. Og ég vil biðja menn að athuga, að það er ekki fyrr, en sérfræðingarnir eru búnir að fjalla um málið, sem er eðlilegt, það er ekki fyrr en stjórnin er búin að kynna sér málið, sem er eðlilegt, en það er heldur ekki fyrr en 19 manna nefndin er búin að leyfa stjórninni að leggja frv. fram, sem „52 manna nefndin“, þ.e.a.s. Alþingi Íslendinga, fær að heyra um málið. Og þegar mér loks tókst að fá 4 eða 5 eintök á laugardaginn var af þessu frv., þá var ég eiðsvarinn að láta engan um það vita nema þingmenn Sjálfstæðisflokksins, af því að „þingmenn stjórnarflokkanna væru ekki einu sinni búnir að fá það.“ Þeir eru líka bara í „52 manna nefndinni“, vesalingarnir, — Alþingi Íslendinga.
Ég viðurkenni, að það er ósköp eðlilegt, að ríkisstj, hafi vissa leynd um meðferð svona mála, það er þjóðarnauðsyn, en leynd með þessum hætti er ekki þjóðarnauðsyn, heldur þjóðarskömm. Og ég vil bara spyrja menn: Á hvaða braut erum við með þessum hætti, þegar þannig er búið að flytja úrslitavaldið í þjóðmálunum út fyrir þessa veggi, út fyrir veggi þinghússins, og afhenda það vissum stéttarsamtökum í landinu? Á hvaða braut erum við? segi ég, og ég svara sjálfur: Með þessum hætti er geigvænleg hætta færð yfir þjóðina. Það eru löglega kjörnir alþingismenn þjóðarinnar og löglega kjörinn forseti þjóðarinnar, sem með þetta vald eiga að fara í sameiningu, eins og stjórnarskráin kveður á um. Og þeir, sem kaupa sér völd og tryggja sér stjórnarforustu eða stjórnarsetu með því að greiða fylgi kommúnista því verði að afhenda þeim stéttarsamtökum, sem þeir hafa yfirráðin í, það vald, sem Alþingi og forseta landsins ber að fara með, þeir hafa framið svik við þjóðina og teflt lýðræði, þingræði, frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar í voða. Þetta finnst mér alvarlegast af öllu því, sem hér er að ske. Og ég veit, að hæstv. ráðh. sumir hverjir eru bæði það greindir menn og það samvizkusamir, að undir niðri hrýs þeim hugur við því, sem þeir eru nú búnir að gera. Ég veit það. Ég hygg, að forsrh, hæstv. sé þar engin undantekning, þótt hann hafi ekki sagt mér neitt um það.
Það er svo annað mál og þessu alveg óskylt, að sérhver stjórn í landinu vill hafa sem bezt samstarf við umboðsmenn launþeganna. Það er ósköp eðlilegt. Það er auðvitað langfarsælast að geta komið málum þannig fyrir, að góð samvinna sé á milli launþeganna, að ég nú ekki nefni hið volduga Alþýðusamband, og ríkisstjórnar landsins. Þessa getur enginn gengið dulinn, sem hefur þurft að fást við stjórnarstörf í landinu. En það er allt annað mál og því óskylt, hvort menn vilja afhenda þessum aðilum hið raunverulega vald, þannig að þingmenn fái ekki að sjá fyrirmæli, sem þeir eiga þó á eftir að ljá höndina til að lögfesta eða í hæsta lagi mega nota munninn til að mótmæla, fyrr en hinir aðilarnir eru búnir að „leyfa“ stjórninni að flytja það.
En nú spyr ég: Hvað var það svo í raun og veru, sem skeði í þessum hæstarétti? Hvað var það, sem skeði þar? Var stjórninni leyft að gera þetta? Var henni leyft að flytja frv., eða var henni bannað það? Eins og stjórnarblöðin, Alþýðublaðið og Þjóðviljinn, segja frá þessu, þá er það a.m.k. mjög hæpið, að stjórnin hafi fengið „innflutningsleyfi“, þ.e.a.s. leyfi til að flytja frv. hérna inn á þing. Þeir skyldu þó ekki hafa smyglað þessu inn? Um þetta ríkir a.m.k. óvissa. Fjórmenningarnir, sem ég gat um, þeir Eðvarð Sigurðsson, Snorri Jónsson og Óskar Hallgrímsson, að ógleymdum hinum allra merkasta, Eggert Þorsteinssyni, sem hér heyrir á mig og þar af leiðandi er langmerkastur af þeim, mótmæla eindregið og segja, eins og ég áðan gat um, með leyfi hæstv. forseta: „að efnahagsmálanefndin og miðstjórnin vísi frá sér þeim till. um ráðstafanir í efnahagsmálunum, sem nú liggja fyrir, þar sem þær eru ekki í samræmi við það, sem síðasta Alþýðusambandsþing heimilaði þessum aðilum að semja um“. Þetta eru mótmæli skýr og greinileg. Og jafnvel sjálf till., sem var samþykkt, er í raun og veru efnisleg mótmæli, þó að það megi kannske túlka hana með mesta velvilja sem góðviljaðir menn séu að uppfylla vesala bón ríkisstj. En hvernig fór svo um þessa till., sem ég var að lesa upp? Hvernig fór um sjálfa aðalmótmælatill.? Það fór þannig um hana skv. upplýsingum stjórnarflokkanna í blöðum þeirra, að hún var felld með 14: 15 atkv. Þegar búið var að fella hana, var hin till. samþykkt með 16 atkv., ég held gegn 1, og 12 sátu hjá. Mér er nú sagt, að það séu ekki nema 28 aðilar, sem atkvæði hafi á þessari samkundu. Mér er sagt það. Og mér var líka kennt, þegar ég var ungur, að 14 og 15 væru 29. Og hvaðan í ósköpunum þessi eini hefur komið, veit ég ekki. Ég veit að vísu, að einn af þeim, sem björguðu stjórninni með atkvæði sínu, var hæstv. félmrh., forseti Alþýðusambandsins. Þar átti hún sannarlega hauk í horni, sem þar greiddi atkvæði með sjálfum sér, en á móti öllum helztu verkalýðsforingjunum á Íslandi, þ.e.a.s. þeim, sem fara með umboð langsamlega flestra þeirra manna, sem hér eiga hlut að máli. En hvaðan kom þá sá eini? Ja, þegar liðsbón stjórnarinnar var að falla, þá var byrjað að síma út um allt land eftir liðsauka. Allt kom þó fyrir ekki, þar til stjórnin mundi eftir, að í Breiðdalsvik var líka eitthvert félag, sem talizt gat atkvæðisbært. Þangað var strax símað og beiðzt hjálpar. Strax var skotið á fundi. En atkvæði reyndust jöfn, þar til Gudda gamla í Breiðdalsvík rakst inn. Hún vildi styðja Eystein sinn og líka Lúðvík sinn. Og Gudda skar úr. Mér var sagt þetta. Ég sel það ekki dýrara, en ég keypti, að Gudda gamla í Breiðdalsvík hefði skorið úr um, svo að þetta 29. atkvæði náðist. (Fjmrh.: Nú hefur einhver verið að spila með þig.) Ja, það er ekki vafi. Mér finnst svo afskaplega ósennilegt, að þið séuð að sexmenna þarna á bakinu á henni Guddu gömlu í Breiðdalsvik, ríkisstjórnin. Það er ekki trúlegt. En einhvers staðar að kom nú þetta 29. atkvæði.
Ofan úr skýjunum eða neðan úr helvíti. Hvaðan veit ég ekki. En ég stend fastur á bókstafnum, að 14 og 14 eru 28 og 14 og 15 eru ekki 28, því stend ég fast á.
En svo að við höldum okkur að hinni þungu alvöru þessa máls, þá segi ég, að það er a.m.k. vafi, hvort hinn sanni valdhafi hefur veitt „innflutningsleyfi“ hingað á þingið. Sannleikurinn er, að umboðsmenn 80% verkalýðsins sögðu nei, en umboðsmenn aðeins 20% sögðu já. Þetta er ekki að samþykkja, heldur að fella, samkvæmt öllum réttum lýðræðisreglum.
Stjórnin taldi þetta samþykkt, og þá og þá fyrst þorði hún að afhenda okkur þm. frv. Það er þá þannig komið fyrir stjórn hinna vinnandi stétta, sem sagðist í raun og veru í öndverðu, ekkert vera nema eins konar verkfæri verkalýðsins, gera bara það, sem sér væri sagt. Ég man ræðuna, sem hæstv. forsrh. flutti í ágúst 1956. Ég hef ekki heyrt annan eins kærleika og aldrei aðra eins auðmýkt og allra sízt frá annarri eins höfuðkempu og hæstv. ráðh., eins og lýsti sér í þeirri ræðu. Ég gat ekki betur merkt, en hann væri þarna allur einar biðilsbuxur og á hnjánum, hlaðinn kærleika til þessara stétta, með fyrirheit á vörum, að hann skyldi aldrei gera neitt nema það, sem þeir segðu honum að gera eða lofuðu honum að gera a.m.k., en helzt ekki nema það, sem þeir segðu honum að gera. Þannig er þá komið fyrir þessari stjórn. Allur þorri verkalýðsins hefur mótmælt þessu, sem verið er að gera, í gegnum umboðsmenn þeirra, sem fara með langsamlega mesta valdið, því að það eru formenn hinna stærstu félaga, sem hafa neitað, og formenn hinna smæstu, sem hafa játað. Það er þess vegna ekki höfðatölureglan, sem gildir hérna. Hún var nú í gildi einu sinni, ef ég man rétt. Nei, það er ekki höfðatölureglan, sem gildir. Það er að berjast einhvern veginn fram úr þessu, svo að maður undir fölsku yfirskini geti látizt hafa fylgt þeim, sem maður hét tryggðinni, þ.e.a.s. verkalýðnum. Ég er ekkert að hallmæla stjórninni fyrir það, að hún fer ekkert eftir því, sem þessi verkalýður er að segja þarna í þessum efnum. Ég er ekkert að hallmæla henni fyrir það. En ég er að hallmæla henni fyrir að vera að lofa þessu og svíkja það svo.
Það er þannig komið fyrir stjórninni, að hún hefur mótmæli alls þorra verkalýðsins. Og hún hefur með hæpnum aðferðum talið sig hafa eins atkvæðis meiri hluta. Allir vita, að einn af þeim, sem voru með stjórninni, var hæstv. félmrh, og svo Gudda annar. En sjálfur lýsir verkalýðurinn yfir, að það sé þverbrotin stefnan, sem hann lofaði fylgi. Þverbrotin sú stefna, sem stjórnin taldi sig byggða á eða myndaða til að framkvæma, að prófsteinninn, sem stjórnin taldi sjálf að ætti að sanna, hvort hún mætti lifa eða deyja, sé mölbrotinn í höndunum á henni, — þetta telur allur verkalýðurinn, — orðinn að smámylsnu. Ofan á þetta er augljóst orðið, að það, sem hæstv. forsrh. segir að verkalýðurinn mótmæli, Alþýðusambandið mótmæli, gengisfellinguna, er stjórnin nú búin að leggja fyrir Alþingi til staðfestingar. Og enginn, sem hlýddi á ræðu hæstv. forsrh., gat komizt hjá að skilja, að hann var að meina það, að þetta væri ekki aðeins áfangi, heldur risavaxinn áfangi á leiðinni að fullkominni gengislækkun. Það getur enginn misskilið það, og ég endurtek fyrirspurn mína: Meinar hæstv. ráðh., að hér sé um verulega gengisfellingu að ræða gegn mótmælum verkalýðssamtakanna, eða meinar hann það ekki? Stórfellda gengislækkun, sagði ég, og svo nýja verðbólguskriðu.
Þetta er þá árangurinn, sem hefur náðst með öllum þessum aðferðum, sem ég kemst ekki hjá að víta stjórnina verulega fyrir, þegar hún þannig hefur flutt þungamiðju valdsins frá Alþingi og yfir til annarra, sem að sönnu eru vel þess verðugir, að þeirra hagsmuna sé vel og vendilega gætt, en þingið hefur ekkert leyfi til að afhenda það vald, sem kjósendurnir hafa falið Alþingi og forseta landsins að fara með.
Ég veit vel, að stjórnin hefur og mun reyna að hylja nekt sína með því að stagast á því, að Sjálfstfl. hafi ekki borið fram sérstakar till. til úrbóta í þessum efnum, heldur höfum við aðeins látið okkur nægja að deila á ríkisstj. fyrir allt hennar fálm, úrræðaleysi, brigðmælgi við sín fyrirheit. En ég held, að við nánari athugun hljóti menn að komast að raun um, að þetta er haldlítill skjöldur fyrir ríkisstj. Það eru í fyrsta lagi núverandi stjórnarflokkar, en ekki við sjálfstæðismenn, sem gáfu um það skýlaus fyrirheit að leysa efnahagsvandamálin þegar í stað, eins og þeir gerðu eftir stjórnarmyndunina, eftir algerlega nýjum leiðum og með varanlegum úrræðum og án þess að skerða kjör nokkurs manns, svo að ég endurtaki það enn og æ. Í öðru lagi hefur Sjálfstfl. fyrir löngu gert sér fulla grein fyrir því, að í þessum málum, eins og komið er, þá er ekkert einhlítt ráð til, sem lækni meinið. Og ég get alveg fullvissað hæstv. forsrh. um það, að hann skal ekki reyna að leika þá list að ætla að gera þetta með einu pennastriki, úr því að honum miklu — hvað á ég að segja — fimari maður gat ekki brúkað pennastrikið eins og þurfti. Og út af þessu eilífa tali um pennastrikið vil ég nú aðeins minna á það, að pennastrikssagan er, ef ég man rétt, þó að hún komi þessu ekki við, þannig til komin, að þegar við lifðum okkar blómatíð, Alþfl., kommúnistarnir og sjálfstæðismennirnir á dögum nýsköpunarstjórnar, sem vann þau afrek, sem jafnvel þessi — ég bið hæstv. forseta að afsaka fyrir fram — þessi auma stjórn lifir á, — þegar við unnum þau afrek, þá sagði Framsfl.: Við viljum ekki kaupa nein framleiðslutæki, fyrr en búið er að lækka kaupgjaldið, þannig að framleiðslutækin fái borið sig. Ég sagði hins vegar: Við skulum afla þessara fullkomnustu tækja. Við skulum reyna á, hvað þau þola, og allir sýna svo þegnskap í því að miða kaupgjaldið við gjaldþol þessara stóru, miklu og fullkomnu tækja. Ef menn vilja þetta og standa saman um það, þá er hægt með einu pennastriki að fjarlægja hættu verðbólgunnar, — Þetta var ekki gert, og framsóknarmennirnir eru um það alveg jafnsekir og við. Þeir hafa staðið í því að kaupa ný og miklu dýrari tæki, eftir að kaupgjaldið hafði ekki lækkað, heldur hækkað og jafnvel margfaldazt, en þá voru þeir líka komnir í stjórn sjálfir. En í fyrra skiptið höfðu þeir orðið af sporvagninum og vagnstjórinn einhvern veginn farið af stað, án þess að þeir væru búnir að fá sér sæti, framsóknarmennirnir. Það man ég. Þeir fyrirgáfu mér það nú seint og gera það vist aldrei. Nei, við erum löngu búnir að gera okkur grein fyrir því, að það eru engin töfraráð til í þessu.
Sjálfstfl. hefur marglýst þeirri skoðun sinni, að frumskilyrði þess, að jákvæður árangur náist er, að fullkomnar upplýsingar liggi fyrir um allt efnahagsástand þjóðarinnar, en að síðan sé á grundvelli þeirra staðreynda, sem þar eru upplýstar, hverju sinni beitt þeim úrræðum, sem við þær sérstöku ástæður þykja hyggilegust. En hér á Íslandi og viða erlendis er það svo, að enginn annar en sá, sem ræður yfir ríkiskerfinu, á aðgang að þeim málsatriðum, sem rannsaka þarf. Það vita einnig allir, sem hér eru inni.
Stjórnarliðar hafa þá líka fallizt á þessa skoðun okkar alveg opinberlega. Það sést m.a. á ummælum foringja þeirra, hæstv. forsrh. Þau eru birt í Tímanum 20. fyrra mánaðar, en þar segir hæstv. forsrh. frá því, að um langan tíma hafi verið unnið látlaust að þessum málum. Síðan bætir hann við orðrétt: „Fram hefur farið mjög ýtarleg athugun á öllu fjárhagskerfinu. Sérfræðingar undir forustu Jónasar Haralz hagfræðings hafa fjallað um þá rannsókn og lagt skýrslu fyrir ríkisstj. Má segja, að nú liggi alveg ljóst fyrir, hvernig ástandið er svo og hver áhrif einstakar aðgerðir til leiðréttingar og úrbóta komi til með að hafa. Þá er það ríkisstjórnarinnar, stuðningsflokka hennar og loks Alþingis í heild að velja þær leiðir, sem heppilegastar eru og færar eru taldar.“ — Þetta eru orð hæstv. forsrh, sjálfs. Sá, sem þetta mælir, játar alveg réttilega og alveg hiklaust, eins og ég er ekkert óvanur af hendi hæstv.forsrh., að það sé ekki fyrr, en margir hæfir hagfræðingar, sem aðgang eiga að öllu ríkisbákninu og geti þess vegna rannsakað öll gögnin, séu búnir að rannsaka allt fjárhagskerfið og semja skýrslur um þá rannsókn, að auðið sé yfirleitt að gera sér skynsamlega grein fyrir málinu. Má segja, að nú, segir hæstv. forsrh., þ.e.a.s. að fengnum þessum upplýsingum og nú fyrst, sé auðið að gera sér skynsamlega grein fyrir, hver áhrif einstakar aðgerðir til leiðréttingar og úrbóta komi til með að hafa, og þá og þá fyrst, þegar þetta liggur fyrir, komi til kasta stjórnarinnar og Alþingis.
Hér segir hæstv. ráðh. alveg hið sanna. Hann hittir naglann alveg á höfuðið. Hann segir: Fyrst þurfum við að halda á meiri fróðleiksmönnum í þessum efnum, en við erum sjálfir. Við þurfum að kalla til meiri og vitrari menn á þessu sviði, menn, sem hafa meiri þekkingu á þessu sviði, heldur en við höfum sjálfir, og opna fyrir þeim öll þau gögn, sem við ráðum yfir sem handhafar ríkisvaldsins, og láta þá rannsaka þetta allt saman. Þegar þeir svo eru búnir að semja sínar skýrslur, þá eiga þeir að afhenda okkur þær, við að kynna okkur þær, við að fá fullar skýringar á einu og öllu hjá þessum sérfræðingum. Svo er það ég, Hermann Jónasson, og mínir samstarfsmenn og Alþingi Íslendinga, sem hefur valdið. — Þetta er alveg rétt. Hann vantar þekkinguna, næga, eins og mig, en hann hefur valdið og það í dag meira en ég, þó að skömm sé frá að segja, en valdið hefur hann. En hann segir: Ég vil ekki nota þetta vald, fyrr en ég fæ stuðzt við þekkinguna. — Þetta er alveg rétt: Fyrst rannsókn, svo ákvörðun. Þessi dómur ráðherrans er málefnalegur, og hann er réttur, en hann er þá um leið endanlegur og óáfrýjanlegur dauðadómur yfir þeim, sem hafa verið að krefjast þess af Sjálfstfl., að hann legði fram úrræði til lausnar á efnahagsvandanum, fyrr en gögnin hafa legið fyrir og Sjálfstfl. hefur haft nægjanlegan tíma til að rannsaka þau, sjá þau, ekki bara í frv.-formi, ekki með tveggja tíma viðtali við viti borna og ágæta hagfræðinga, bæði hagstofustjórann og Jónas Haralz hagfræðing, heldur með langri rannsókn á sjálfum gögnunum, eins og ríkisstj. hefur haft á þessum málum. Það eru 2 mánuðir síðan hún fékk tillögurnar. Á þeim 2 mánuðum hefur hún verið að yfirheyra þessa menn. Ég er ekkert gáfaðri maður, en Hermann Jónasson eða hinir, og ég þarf meira en 2 tíma til þess að læra það, sem hann gat ekki lært á skemmri tíma, en tveimur mánuðum. Það þarf ég. Þetta er alveg rétt hjá hæstv. ráðherra. Gögnin verða að liggja á borðinu og verða að rannsakast, og mönnum verður að gefast kostur á að rannsaka þau, áður en er hægt að heimta af þeim tillögur. En það vita allir, að öllu hefur þessu verið leynt fyrir okkur sjálfstæðismönnum eins og mannsmorði alveg fram á síðustu stundu. Okkur hefur þess vegna algerlega skort þá aðstöðu og skortir enn, sem forsrh. hæstv. telur frumskilyrði þess, að auðið sé að gera skynsamlegar till. til úrbóta.
Ég vil benda á, að stjórnin hefur ekki látið sér nægja að leyna okkur upplýsingunum, sem hún taldi frumskilyrði fyrir því, að hún gæti sjálf myndað sér skynsamlega skoðun og gert sér grein fyrir, hver áhrif einstakar aðgerðir hefðu. Hún hefur einnig á allan hátt reynt að villa okkur sýn og það jafnvel svo, að sjálf grg. er sýnilega samin í því skyni, að þjóðin fái skakka mynd af því, sem verið er að gera, að hún fái ekki að vita, hverjar þarfirnar eru og hversu mikla nýja skatta á að leggja á hana. Nei, þessu til viðbótar hefur stjórnin fleira gert á okkar hlut í málinu. Ég skal í því sambandi minna á, að sjálfur viðskmrh, landsins tók sig til, — ég held það sé fyrir einum 10 vikum, — og ritaði tvær stórmerkar greinar að eigin áliti — í Þjóðviljann um viðskiptamálin og um efnahagsmál þjóðfélagsins. Ég man það áreiðanlega rétt, að í þessum greinum lýsti hann því yfir, að öll tekjuþörfin væri 90 millj., öll þörf fyrir nýjar tekjur handa ríkissjóði og útflutningssjóði, og þar af ætlaði hann ekki að bíta nema bara litla sneið, 25 millj., þá væri allt hans í lagi. Ríkisstj. lét þetta gott heita langa hríð. Og ég hugsaði: Ósköp er þetta nú ánægjulegt, ef það skyldi vera satt. En ósköp er það ótrúlegt, að þessi ráðh. sé farinn að segja satt, hugsaði ég. Þetta var nú heldur ekki sennilegt, sem hann sagði. En loks kom þó hljóð úr horni. Það var fyrir skömmu, að Alþýðublaðið tók rögg á sig og sagði, að þörfin væri ekki 90 millj., alls ekki, hún væri hvorki meira né minna en 200 millj. Þjóðviljinn lét ekki á sér standa. Hann kenndi þennan 200 millj. króga hvorki meiri né minni manni en sjálfum hæstv. menntmrh. og sagði, að hann væri bara hreinn fáviti. Það var nú ekkert fínna: doktor, prófessor, menntamálaráðherra og bráðvel gefinn maður, bara fáviti! Þá ofbauð mér nú, þetta fékk hann fyrir það, — og kalla ég nú ekki allt ömmu mína, það játa ég. En í dag er þetta nú ekki 90 millj., og það er ekki heldur 200 millj. Í dag stendur öll ríkisstj. sameiginlega að nýrri tekjuöflun, sem er hvorki meira né minna en 790 millj. Það er þrisvar og hálfu sinni Gylfi Gíslason og einu sinni Lúðvík Jósefsson, 200 sinnum 31/2 og einn 90 milljóna Lúðvík í viðbót. Það er nú bara það, sem er orðið úr þessu.
Ég vil ekki vera hér að rifja upp ummæli, sem stjórnarflokkarnir hafa haft hver um annan, meðan á þessum vísindalegu umræðum stóð, hvort það væru 90 millj. eða 200 millj. Þau eru engum til sóma. En ég vil aðeins benda á það tvennt, að forsrh. játar, að skynsamlegar till. verði alltaf að byggjast á upplýsingum, sem stjórnin hefur leynt okkur, og í öðru lagi, að það er augljóst, að úrræði á hverjum tíma hljóta alltaf eðli málsins samkvæmt — það hljóta allir að skilja — að velta á því að mjög verulegu leyti, hversu mikla leiðréttingu þarf að gera frá því ástandi, sem þjóðin býr við. Ég held, að það sé engin djúp speki, að það verður að miða mjög mikið við það ástand, sem þjóðin býr við, og þá að sjálfsögðu nú við það, hvort afla þarf 90 millj., eins og hæstv. viðskmrh. sagði, 200 millj., eins og hæstv. menntmrh. er talinn faðir að, eða þeirra 790 millj., sem stjórnin hefur nú eignazt öll í sameiningu. Og ég vil með þessu hafa sýnt, að með því að við höfum ekki fengið að sjá neitt af þessum gögnum, fyrr en allra síðustu dagana og með því að stjórnin hefur verið að hampa 90 millj. og upp í 200 millj. framan í þjóðina, þá hefur okkur alveg skort aðstöðu til að gera skynsamlegar till., miðaðar við það ástand, sem þjóðin nú býr við og ríkisstj. nú loksins eftir tveggja mánaða yfirlestur og skoðun á tillögum hagfræðinganna telur að þurfi 790 millj. kr. nýja skatta til að ráða bót á. Er þó vitaskuld um enga bót að ræða nema til bráðabirgða.
Ég vil um þetta að lokum benda á það, að þegar Sjálfstfl. hefur farið með völdin í landinu, þá hefur hann aldrei kveinkað sér neitt við að leggja fram tillögur og framkvæma þær, ef hann hefur verið þess megnugur. Ég minni aðeins á, að við vorum í stjórn með hæstv. núv. forsrh. 1939 og stóðum ásamt með honum að mjög veigamiklum tillögum á sviði efnahagsmálanna, þ. á m. gengisfellingu, og kveinkuðum okkur ekkert við það. Það var nauðsyn, sem ekki varð umflúin. Við gerðum aðeins skyldu okkar, en við gerðum líka skyldu okkar. Ég minni á, að 1949 í árslokin var það hlutskipti Sjálfstfl. að mynda minnihlutastjórn, sem átti sæti í þrjá mánuði. Við töldum það okkar verkefni að hrinda úr vör flotanum, sem hætt var við stöðvun, ef hann var ekki stöðvaður, og það tókst. En við töldum það einnig okkar skyldu að undirbúa og rökstyðja nýjar aðgerðir í efnahagsmálunum. Við kvöddum þá til tvo sérlega hæfa sérfræðinga, þá Ólaf Björnsson prófessor og Benjamín Eiríksson bankastjóra. Þeir kunnu meira en við, alveg eins og sérfræðingar stjórnarinnar, sem nú hafa unnið, kunna í þessum efnum meira en hæstv. núverandi ríkisstj. Við vörðum afar miklum tíma þá til þess að reyna að kynna okkur öll gögn málsins. En eftir að við höfðum gengið úr skugga um, að tillögur þeirra voru í meginatriðum réttar, þá hikuðum við ekki við að bera þær fram, eftir þó, ef ég man rétt, að hafa látið a.m.k. tvo af andstöðuflokkum okkar hafa málið til meðferðar, bæði frv, og grg., í heilan mánuð. Þetta frv. hné að gengisfellingu, eins og allir hv. alþm. vita. Það er mál fyrir sig, að þegar við lögðum það fram, vorum við felldir á málinu. Það var Framsfl., sem bar fram vantraustið á okkur. En hálfum mánuði seinna vorum við svo búnir að mynda stjórn með Framsfl. til þess að bera fram til sigurs tillögurnar, sem Framsfl. hafði borið fram vantraust á okkur út af. Slíkt er auðvitað alveg nýmæli í þingsögu nokkurrar þjóðar, en það kemur ekki þessu máli við. Við framkvæmdum svo tillögurnar með Framsfl. Það kom svo á daginn vegna Kóreustyrjaldarinnar og annarra ekki farsælla kringumstæðna, að þessi gengisfelling nægði ekki, og það þurfti að grípa til nýrra úrræða strax snemma árs 1951, ef ég man rétt. Þáverandi ríkisstj. með þátttöku sjálfstæðismanna undir forustu hv. 1. þm. Skagf. hikaði þá ekki heldur við að gera það, sem gera þurfti. Ég held það hafi nú verið hæstv. fjmrh. og ég, sem vorum aðalsökudólgarnir þá, þegar bátagjaldeyririnn var lagður á, og ekkert síður ég, en hann. En við hikuðum ekki, og það var gert, sem gera þurfti. Ég segi þess vegna, að Sjálfstfl. þarf engan kinnroða að bera fyrir það, að hann hafi hikað í valdaaðstöðu við að undirbúa tillögur, leggja þær fram og bera þær fram til sigurs, ef auðið var. Hitt er svo annað mál, að það er ekki sakarefni á hendur okkur, að við viljum ekki bera fram tillögur út í bláinn. Það er ekki hægt að selja okkur undir sök fyrir það að bera ekki fram tillögur, þegar okkur skortir allar þær forsendur eða allar þær upplýsingar, sem hæstv. forsrh. lýsir yfir að séu frumskilyrði þess, að hægt sé að gera tillögur af viti.
Ég hef auðvitað margt fleiri um þetta mál að segja, og það er að sönnu erfitt í svona stóru máli að takmarka sig, svo að ræðutíminn verði ekki algerlega úr hófi. En ég hef þó ekki talað hér — held ég — lengur en hæstv. ráðh, gerðu, meira að segja hæstv. viðskmrh.
Ég skal að þessu sinni ljúka máli mínu með því að segja, að þegar hæstv. ríkisstj. hafði setið að völdum í fimm mánuði, minnir mig, þá var hún búin að bregðast svo mörgum af sínum kosningaloforðum og fyrirheitum og stefnuskráratriðum, að þess var krafizt, að hún ryfi þing, léti fram fara nýjar kosningar og gæfi með því kjósendum landsins kost á því að dæma um, hvort þeir vildu áfram fela þeim mönnum völdin, sem höfðu ekki aðeins látið undir höfuð leggjast að framkvæma þau fyrirheit, sem þeir gáfu fyrir kosningarnar og voru kosnir til að efna, heldur höfðu þeir í mörgum efnum framkvæmt alveg hið gagnstæða við það, sem lofað var. Þessi till. var sem kunnugt er felld. Stjórnin hafði þá ekki þann manndóm að vilja ganga undir dóm kjósenda. Hún hafði það ekki. Nú í dag hafa að sönnu enn fleiri misst traust á stjórninni, en nokkru sinni fyrr. Það sér maður m.a. á úrslitum í bæjar- og sveitarstjórnarkosningum í janúarmánuði s.l., og er þó alveg víst, að síðan hefur hallað mikið undan fæti fyrir stjórninni, sem von er. Sumir telja þó, að úr því sem komið er, geti stjórnin ekki miklu spillt eða marga flekki sett á heiður landsins út á við umfram það, sem hún er búin að gera, og telja því e.t.v. rétt, að hún hangi enn um skeið, nægjanlega lengi til þess, að menn geti áttað sig á því í eitt skipti fyrir öll, að gæfuna sækir enginn í slíka samvinnu, sem nú á sér stað, eða með því að fela þeim mönnum, þeim sundurleitu og úrræðalausu mönnum, forustu sína, sem nú fara með völdin. Það er mikill vinningur og má kaupa það nokkru verði, ef þjóðin gerir sér svo glögga grein fyrir þessu, að sú vitneskja endist henni um stund til að forðast þann ófagnað, sem hún nú býr við.
Þegar ég lít yfir feril stjórnarinnar og sé, hvernig komið er fyrir henni, þá minnist ég þess, að þegar ég var smásnáði í sveit, heyrði ég stundum talað um, að hross yrðu afvelta. Þau lágu þá á bakinu, skorðuð milli þúfna, gátu enga björg sér veitt, og það beið þeirra ekkert nema hungurdauðinn, ef enginn bjargaði þeim. Einhvern veginn dettur mér nú þetta í hug, þegar ég hugsa um blessaða stjórnina okkar. Hún liggur nefnilega núna afvelta, skorðuð á milli annars vegar brigðmæla og eigin sundurlyndis, en hins vegar þverrandi trausts eða öllu heldur vaxandi vantrausts þjóðarinnar. Og sannast sagna teygist hver skanki í sína átt, samlyndið er nú ekki betra. Og þannig fær stjórnin sér litla eða enga björg veitt. Við sjálfstæðismenn megnum ekki að bjarga stjórninni, úr því sem komið er, enda er ég ekki alveg viss um viljann, því að margur mun nú mæla, að farið hefði fé betra, þó að hún yrði þarna afvelta, þangað til hún yrði hungurmorða.