14.05.1958
Neðri deild: 95. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1009 í B-deild Alþingistíðinda. (949)
186. mál, útflutningssjóður o. fl.
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég ætla ekki að flytja ræðu. Ég tala sennilega seinna einhvern tíma í þessu máli. Ég ætla að bera hérna fram 3 fyrirspurnir til hv. stjórnarandstæðinga. Hv. þm. G-K. (ÓTh) bar fram 20 spurningar, svo að það má telja mikla hógværð að bera fram aðeins 3. En ég vil skjóta þessu núna strax inn í umr.
Hv. þm. G-K. hefur nú haldið hér ræðu, sem ég tel hann lítt öfundsverðan af. Það má tala um það síðar. Það er enginn maður öfundsverður af því að standa hér eins og hann gerði í tvo klukkutíma og rífa niður þær till. eða gera tilraun til að rífa niður þær till., sem gerðar eru til viðreisnar, án þess að hafa nokkurt jákvætt orð að segja um það þjóð sinni eða þingi, hvað eigi að gera. Og þetta hefur hv. þm. sennilega fundið sjálfur, því að í lok ræðu sinnar gerðist honum mjög tíðrætt um það, að ekki mætti ætlast til þess, að hv. stjórnarandstæðingar hefðu nokkuð til málanna að leggja annað en þetta niðurrif hv. þm.
Hv. þm. hefur hér á þessum tveimur klukkustundum, eða klukkustund og þremur kortérum, þangað til hann kom að afsökununum í lokin, fordæmt till. ríkisstj. að meginstefnu til og í einstökum atriðum. En í lok ræðu sinnar segir svo hv. þm., þegar hann finnur missmíðin allt í einu, að það megi ekki ætlast til þess af stjórnarandstæðunni, að hún geri till., til þessa skorti hana öll skilyrði, það eigi ekki að ætlast til þess, að þeir geri till. út í bláinn. En hv. þm. telur sig hafa skilyrði til þess að fordæma till. ríkisstj., ekki aðeins að meginstefnu til, heldur í einstökum atriðum. Hv. þm. verður að vita, að hér verður að fara tvennt saman, að sá, sem þykist hafa þekkingu til þess að fordæma ekki aðeins að meginstefnu til, heldur einnig í einstökum atriðum till. ríkisstj., hann verður að gera till. sjálfur. Hann verður að segja til sjálfur, hvað hann vill gera. Það er ekki hægt að sleppa með það að fleygja sér flötum, eins og hv. þm. G-K, gerði hér í lok ræðu sinnar, því að hann fleygði sér bókstaflega flötum og grátbændi hv. þingheim og stjórnina að ætlast ekki til þess, að þeir gerðu till., þá skorti þekkingu, og hvernig gætu þeir gert það út í bláinn. Þetta gerði hv. þm. eftir að hafa í sjö kortér lagt dóm á till. ríkisstj. að meginstefnu til og í einstökum atriðum. Nei, svona sleppa menn ekki, hv. þm. G-K. Þess vegna spyr ég nú Sjálfstfl., og öll þjóðin spyr. Hv. þm. er búinn að tala eins og sá, sem hefur þekkinguna, um till. okkar, og þá verður hann að segja, hvað hann vill. Vill Sjálfstfl. gengisbreytingu? Ef þeirri spurningu verður svarað neitandi, þá spyr öll þjóðin: Sjá þeir leið til þess að lækka uppbæturnar frá því, sem stjórnin gerir ráð fyrir í sínum till.? Og þriðja spurningin er svo, og henni verða þeir einnig að svara: Hvernig vilja þeir deila byrðunum, ef þeir vilja ekki gera það eins og stjórnin leggur til? Það ætlast enginn til þess, að þeir svari þessum spurningum í kvöld, en þeir verða að svara þessum spurningum, á meðan þetta mál er til meðferðar hér á hv. Alþingi. Það er ekki bara ég, sem spyr. Það spyr öll þjóðin um þetta.