14.05.1958
Neðri deild: 95. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1073 í B-deild Alþingistíðinda. (954)
186. mál, útflutningssjóður o. fl.
Björn Ólafsson:
Herra forseti. Nokkrir ræðumenn, sem hér hafa talað í kvöld, sérstaklega af hálfu stjórnarflokkanna, hafa minnzt á þá vísitöluhækkun, sem gert er ráð fyrir að leiði af þeim ráðstöfunum, sem hér er um að ræða. Hæstv. sjútvmrh. sagði, ef ég man rétt, að hækkun vísitölunnar mundi verða 15–17 stig. Aðrir, sem hafa minnzt á þetta, hafa talað um 14–15 stig. Ég hef hérna í höndunum afrit af útreikningi frá hagstofunni, og þar er um þrenns konar afbrigði að ræða: Í fyrsta lagi, að vísitalan hækki um 14 stig, í öðru lagi, að hún hækki um 15.9 stig, og í þriðja lagi, að hún hækki um 19 stig, þegar allur þunginn er kominn inn í vísitöluna.
Nú þætti mér fróðlegt að vita, hvað er hið rétta í þessu, hvað er gert ráð fyrir að vísitalan vaxi, þegar öll áhrif frv. eða ráðstafananna eru komin fram.
Hæstv. forsrh. sagði í sinni ræðu, að ráðstafanir þær, sem frv. fjallar um, væru mjög stór áfangi í rétta átt, svo að ég viðhafi hans orð rétt. Virðist þá ekki mikil goðgá, þó að menn spyrji í einfeldni sinni: Hvar er hæstv. forsrh. staddur með þjóð sína á leiðinni út úr eyðimörkinni? Þegar núverandi stjórn tók við völdum, sagði hann, að efnahagskerfið væri helsjúkt og að þjóðin væri á eyðumerkurgöngu, sem enda mundi í ógöngum og þrengingum, ef þjóðin yrði ekki leidd út úr eyðimörkinni með skjótri og öruggri leiðsögu. Hann bauðst til þess að verða leiðsögumaðurinn og ætlaði að leiða hana til fyrirheitna landsins, án þess að hún þyrfti að fórna til þess nokkru af lífsgæðum sínum eða þægindum. Síðan eru nú tvö ár. Sex mánuðum eftir að gangan hófst, var þjóðinni sagt, að nú yrði hún að taka á sig þungar byrðar, til þess að hægt væri að halda áfram ferðinni, en þó var áfangastaðurinn enn ekki í augsýn. Nú eftir tveggja ára göngu tilkynna leiðtogarnir, að nú verði þjóðin að taka á sig þyngri byrðar, en nokkru sinni fyrr, ef hún vilji hafa nokkra von til þess að komast til fyrirheitna landsins. Er nú furða, þó að stjórnin sé spurð: Hvar erum við nú staddir í eyðimörkinni? Ef við leitum svars í þessu frv. ríkisstj., sem hér liggur fyrir, þá munum við komast að raun um, að stjórnin er stödd nokkurn veginn á sama stað í eyðimörkinni og þegar hin vonglaða ganga hennar hófst á miðsumri fyrir tæpum tveimur árum.
Þær ráðstafanir, sem nú á að gera, ef þetta frv. verður að lögum, eru engin lausn á þeim vanda, sem atvinnulíf og efnahagskerfi landsins er nú komið í. Hér er, eins og hefur verið margtekið fram í kvöld, aðeins tjaldað til einnar nætur. Stjórnin hóf göngu sína með stórum orðum og miklum loforðum, en nú fleytir hún áfram efnahagslífi landsins til haustsins með byltingu á efnahag og skerðingu á kjörum. En enginn veit, hvað við tekur í haust, og menn loka augunum og stinga höfðinu í sandinn, en stjórnin sjálf lætur hverjum degi nægja sína þjáningu, eins og þjóðin sjálf verður að taka við sinni þjáningu.
Stjórninni virðist hafa gengið illa að skilja sitt hlutverk. Að vísu er það ekki neitt undrunarefni. Á stjórninni eru þrjú höfuð, sem horfa sitt í hverja áttina, þau hafa hvert sína tungu og talar hvert með sinni. Stjórnarflokkarnir hafa haldið því mjög að almenningi, að ráðstafanir til lausnar vanda framleiðslu- og efnahagsmála mundu gerðar, ekki á þann hátt að skerða lífskjör og þægindi fólksins, heldur með því að láta hina ríku borga. Það átti að kippa í liðinn að mestu leyti sársaukalaust.
Einn aðalfarartálmi stjórnarinnar virðist vera sá annmarki, að stjórnarflokkarnir hafa hvorki haft samhug né þrek til þess að horfast í augu við þá staðreynd, að verðbólgusjúkt þjóðfélag getur ekki gert hvort tveggja í senn, að draga saman seglin með minni eyðslu og halda við tölulega óskertum lífskjörum fólksins. Þess vegna hefur verið togazt á um bjargráðin, þangað til úr þeim varð fóstur, sem hvorki er fugl né fiskur og getur ekki þjónað þeim tilgangi, sem að er stemt, nema til næsta dags.
Annar farartálminn er sá, að ríkisstj. og flokkar hennar, sem hafa tekið að sér að lækna verðbólguna, virðast gera sér heldur óljósa grein fyrir því, hvaða meðul eigi við sjúkdóminn. Lækning verðbólgunnar er fyrst og fremst minni eyðsla, minni eyðsla einstaklinganna, minni eyðsla ríkisvaldsins, hins opinbera. Verðbólgan hvetur til eyðslu, og þessir tveir óvinir heilbrigðs atvinnulífs, eyðslan og verðbólgan, haldast venjulega í hendur og þreyta kapphlaup hvor við annan. En ríkisstj. ætlar sér að framkvæma lækninguna án þess að hagga við eyðslu ríkisvaldsins, sem sífellt fer vaxandi. Til þess að geta haldið við eyðslu hins opinbera á öllum sviðum, eyðslu, sem orðin er skefjalaus, eru sífellt heimtaðir hærri skattar af þjóðinni, til þess að ríkisvaldið þurfi ekki að gera hið sama sem það nú heimtar af hverjum einstaklingi í þessu landi, að draga úr eyðslunni, svo að jöfnuður náist í viðskiptum þjóðarinnar við útlönd.
Í þeim gífurlegu álögum, sem með frv. eru lagðar á alla landsmenn, er ríkisvaldið ekki að draga úr sínum kröfum. Aðeins sú tollahækkun, sem ríkisvaldið fær af hinum nýju ráðstöfunum er, eins og hér hefur verið tekið fram í kvöld, 144 millj. kr. á ári. Þetta kemur ekki fram í frv. Það leynist í hinum mörgu og flóknu ákvæðum, sem fáir geta gert sér grein fyrir nema sérfræðingar, sem hafa aðgang að öllum skýrslum og útreikningum í þessu efni. En það er að sjálfsögðu æskilegt fyrir ríkisstj., að almenningur reki ekki augun í þann stóra skerf, sem ríkisvaldið tekur til sín í álögum til þess að þurfa ekki að minnka eyðslu ríkissjóðs.
Ríkisvaldið, sem nú ætlar að lækna meinsemdina, er sjálft sýkt af eyðsluhugarfari verðbólgunnar, ekki síður, en fjöldi af einstaklingum þjóðfélagsins. Þess vegna liggur vel við að hafa yfir hið forna spakmæli og segja við ríkisvaldið: Læknir, græddu sjálfan þig. Ef ríkisstjórnin vill hafa einhverja von um að lækna það öfugstreymi í efnahagslífinu, verður hún að byrja á því að gera hinar sömu kröfur til sjálfrar sín eins og hún gerir til allra þegna þjóðfélagsins.
Það, sem er einna mest áberandi í afskiptum ríkisstj. og flokka hennar af því mikla vandamáli, sem langvarandi verðbólga hefur haft í för með sér, er sú blekking, sem ætíð hefur verið höfð í frammi í sambandi við þessi mál. Sósíalistaflokkarnir í ríkisstj. hafa jafnan róið að því öllum árum, þangað til þeir komust í ríkisstj., að telja almenningi trú um, að rétta leiðin út úr verðbólgunni væri stöðugt vaxandi kröfur um hærri laun. Við vitum, hvernig þær kröfur verka, þegar framleiðslan getur ekki risið undir þeim. Kauphækkanirnar eru sóttar aftur í vasa almennings með nýjum sköttum. Nú eru þeir menn, sem dyggilegast hafa unnið að því að brjóta niður efnahagskerfi landsins, að prédika verðstöðvun. Þessir menn, sem 1955 brutu niður varnargarða, er höfðu staðið óhaggaðir í 3 ár gegn flóðbylgju dýrtíðarinnar, eru nú að heimta þann skatt af almenningi, sem þeir sjálfir telja að þurfi nú að greiðast til þess að stöðva þá hættulegu öfugþróun, sem þeir hafa sjálfir leyst úr læðingi með áróðri sínum og blekkingum. Þegar svo ekki verður umflúið vegna lífsafkomu þjóðarinnar að snúast til varnar, er blekkingunum haldið áfram með því að telja þjóðinni trú um, að hún þurfi engu að fórna til að koma efnahagsmálum sínum á heilbrigðan grundvöll. En þegar svo blekkingunni er svipt burt með einu pennastriki í þessu frv. og þjóðin fær að horfa í gegnum vefinn, þá blasir við henni sú staðreynd, að allt, sem henni var sagt, er rangt. Henni var sagt, að ekki yrði gengislækkun. Henni var sagt, að ekki yrði kjaraskerðing. Nú getur hún sjálf séð og dæmt um, hvernig henni hefur verið villt um sýn.
Leiðin til farsællar efnahagssamvinnu þjóðfélagsstéttanna er ekki sú að blekkja þjóðina í aðalvandamálum hennar. Farsælasta leiðin er að segja fólkinu sannleikann um vandamál þess. Það er líka stytzta leiðin til skynsamlegrar og varanlegrar lausnar á málunum. Eðlileg og sönn fræðsla í þeim efnum er öruggasti grundvöllurinn til að byggja á. Alþýða landsins, sem yfirleitt er greind og öfgalaus, skilur það, að atvinnuvegirnir verði að bera sig fjárhagslega til þess að geta starfað. Fólkið veit það, að ef atvinnuvegirnir bera sig ekki og þurfa á aðstoð ríkisins að halda, þá verður það sótt til þeirra aftur, sem framleiðslan hefur ofborgað. Það er einnig vandalaust að fá fólkið til að skilja, að gjaldeyrir landsins verður að vera skráður á réttu gengi, til þess að útflutningsframleiðslan geti lifað og starfað á heilbrigðan hátt.
Það þarf ekki langan tíma til þess að gera sér grein fyrir því, að uppistaðan í bjargráðum ríkisstj. er gengislækkun, þótt reynt sé með margþættum og flóknum till. að dylja þá óhagganlegu staðreynd. Gengislækkunin er kölluð yfirfærslugjald og innflutningsgjald, að öllum líkindum til þess að vesalings kommúnistaflokkurinn eigi hægara með að halda áfram að telja sínu fólki trú um, að hér sé ekki um gengislækkun að ræða. En með þessum flóknu gengisfellingarráðstöfunum, sem ákveða margs konar gengi, erum við að setjast á bekk með þeim þjóðum Suður-Ameríku, sem mesta ringulreið hafa í fjármálum sínum og jafnan er bent á sem klassísk dæmi um það, hvernig þjóðir eigi ekki að haga fjárreiðum sínum. Þetta ástand er ekki aðeins auðmýking fyrir þjóðina í augum annarra þjóða, heldur setur það okkur á bekk með efnahagslega óþroskuðum þjóðum, sem varhugavert er að eiga nokkur skipti við.
Uppbæturnar til útflutningsframleiðslunnar ákveða í raun og veru gengislækkun krónunnar. Á allan útfluttan fisk og fiskafurðir nema síld og á allar útfluttar landbúnaðarvörur er greitt gengi, sem nemur 80% af skráðu gengi bankanna, þ.e.a.s. þessar útflutningsvörur fá fyrir hvert sterlingspund um 82 kr. og fyrir hvern dollar rúmlega 29 kr. Það stoðar því lítið að neita þeirri staðreynd, eingöngu til þess að villa almenning, að hér er um stórfellda gengislækkun að ræða. Slík fullyrðing er aðeins til að misbjóða dómgreind almennings. Það er einnig blekking, sem sett er fram í þeirri von, að almenningur geti ekki gert sér grein fyrir hinum flóknu ráðstöfunum, að ekki sé um kjaraskerðingu að ræða frá því ástandi, sem nú er. Breytingin á almennum kjörum verður stórfelld, eins og sést á því, að nýjar álögur til viðbótar þeim, sem fyrir eru, til útflutningssjóðs og ríkissjóðs í sambandi við hin nýju yfirfærslugjöld og innflutningsgjöld hafa verið taldar hér 790 millj. kr. Það samsvarar því, að lagðar séu 5 þús. kr. á hvert einasta mannsbarn í landinu í sambandi við þessa nýju tekjuöflun. Ég skal ekki deila um þessar 790 millj. kr., sem hæstv. menntmrh. gerði hér að umtalsefni, en ég held mér að þessari tölu, þar til annað reynist sannara.
Þetta staðfestist svo að sjálfsögðu með því, að mikill hluti innflutningsins, m.a. svokallaðar gjaldháar vörur, sem lagt er á sérstakt innflutningsgjald, hækka stórkostlega í verði. Yfirfærslugjaldið hækkar nú fob-verð þessara vara, sem eru í þrem flokkum, eins og hér segir: Lægsti flokkurinn hækkar um 14.9%, miðflokkurinn hækkar um 38.9% og hæsti flokkurinn um 52.6%, og það er hækkun á fob-verði þessara vara vegna yfirfærslugjaldsins. Þetta er raunveruleg hækkun í þessum flokkum samkv. útreikningi sérfræðinga.
Engum getur dulizt, að hér er um stórfellda hækkun að ræða, og hver sem staðhæfir annað fer með staðlausa stafi.
Eins og tekið hefur verið fram hér af öðrum, sem talað hafa í kvöld, sérstaklega hv. 1. þm. Rang., þá er mikil hækkun á kornvörum, kaffi, sykri og öðrum nauðsynjavörum, sem áður hafa ekki verið háðar þeim hækkunum nema að litlu leyti, sem fyrr hafa verið settar á. Byggingarkostnaðurinn hækkar um 11.6%, en sement og óunnið timbur um 30%. Þetta út af fyrir sig gefur mönnum ljósa hugmynd um, að það verða auknir erfiðleikar á því fyrir almenning að koma sér upp þaki yfir höfuðið.
Ég skal svo ekki fara frekar út í þetta mál að sinni. Það verður nú eftir þessa 1. umr. sent til n., og gefst frekari tími til athugunar. En það er ljóst, að ríkisstj. og flokkum hennar hafa verið sorglega mislagðar hendur í efnahagsmálum þjóðarinnar, allt frá því að stjórnin tók við völdum. Henni hefur mistekizt allt, jafnvel blekkingin, sem höfð hefur verið í frammi til þess að fá almenning til að trúa á nýju fötin keisarans. Verðstöðvunin er orðin að háðsmerki í lífsins bók stjórnarinnar. Þrátt fyrir þessar flóknu ráðstafanir stendur farvegurinn enn þá opinn fyrir flaum verðbólgunnar, sem stjórnin lofaði að stöðva. Vanmáttugar ráðstafanir eru settar fram, sem stjórnarflokkarnir fylgja með hangandi hendi, — ráðstafanir, sem skipa okkur á bekk með lélegustu fjármálaþjóðum veraldar. Og eftir allt stritið, allar blekkingarnar, öll gjöldin og alla skattana er svo tjaldað til einnar nætur, og allt atvinnulíf í landinu heldur áfram að vera á hverfanda hveli.