16.05.1958
Neðri deild: 99. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1122 í B-deild Alþingistíðinda. (964)

186. mál, útflutningssjóður o. fl.

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Það er ekki ástæða til þess að halda langa ræðu í tilefni af ræðum hæstv. ráðherra, hæstv. fjmrh. og hæstv. sjútvmrh., en þeir voru báðir að gera tilraun til þess að svara nokkru því, sem ég hafði sagt hér í fyrrinótt, og hæstv. fjmrh. hafði það mikið við mig að eyða miklum tíma af sinni ræðu til þess að svara því, sem ég hafði þá sagt. En málflutningur hæstv. ráðh. var nokkuð blendinn og rök hans dálítið einkennileg, og vil ég benda hv. alþm. og öðrum áheyrendum á það, á hverju hann byggði sínar fullyrðingar, t.d. í sambandi við það, þegar hann var að tala um, að þetta frv. væri til þess að efla atvinnuvegina, eins og hann orðaði það.

Ef menn gera sér grein fyrir því, á hverju fullyrðingar hans eru byggðar, t.d. þegar hann sagði, að þetta frv. mætti verða til þess að efla flug landsins og koma lífi í það, eins og mátti skilja, þá vil ég benda mönnum á, að einmitt þetta frv. getur leitt til þess, að annað flugfélagið, Flugfélag Íslands, verði að stöðva starfsemi sína með öllu, Flugfélögin verða að borga 55% yfirfærslugjald af vöxtum og afborgunum, benzíni og varahlutum og ýmiss konar annarri þjónustu. Það, sem Flugfélag Íslands notar erlendis frá, mun vera 80% af heildarveltunni, en það, sem Flugfélagið kemur til með að fá tekjur af, gjaldeyrir, sem það vinnur inn erlendis, mun ekki vera nema 20% af veltunni. Það mun þess vegna verða að greiða yfirfærslugjald af miklu fram yfir það, sem það vinnur inn. Það er augljóst, og hef ég reyndar fyrir mér orð ýmissa forráðamanna Flugfélagsins, að það getur ekki starfað, eftir að þetta frv. er orðið að lögum. En hæstv. fjmrh. sagði hér í ræðu sinni í dag, að þetta frv. mundi verða til þess að efla flugsamgöngur á Íslandi og milli landa.

Þegar menn gera sér ljóst, á hverju hæstv. ráðh. byggir sínar fullyrðingar, m.a. á þessu, þá held ég, að það sé enginn vandi að gera sér grein fyrir því, hvernig rökhyggja hans er um þessar mundir og á hvaða mælikvarða ber að mæla það, sem hann hefur sagt. Ég tel, að þegar menn hafa gert sér þessa staðreynd ljósa, þá þurfi í rauninni ekki meira að segja í sambandi við ræðu hæstv. fjmrh. En ég get þó án þess að eyða í það löngum tíma minnzt aðeins á fleira, t.d. landbúnaðinn.

Fullyrðing hans um landbúnaðinn var eitthvað svipuð og það, sem hann sagði um flugið. Þetta frv., ef að lögum verður, á að efla landbúnaðinn, vegna þess að fóðurbætirinn hækkar um 43%, innfluttur áburður hækkar um 50%, vélar og varahlutir hækka um 30%. Og hvernig voru rök ráðherrans fyrir þessari eflingu landbúnaðarins? Það var, að það væri orðið svo dýrt að heyja, að það þyrfti að hafa jafnvægi í þessum tilkostnaði, það mætti ekki vera of ódýrt að nota vélar, þá sennilega vegna þess, að vinnukraftur er ófáanlegur. Rökfærsla hæstv. ráðh. í sambandi við landbúnaðinn er ekki ólík því, sem fullyrðingar hans um eflingu flugsins voru. Þetta geta hv. alþm. og aðrir, sem á mig hlýða, einnig haft sem mælikvarða fyrir rökhyggju hæstv. ráðh.

Hæstv. ráðh. fullyrti einnig, að þetta mundi verða til eflingar og styrktar iðnaðinum. Ég hygg, að iðnrekendur hafi meira vít á þessu, en hæstv. ráðh., og þeir hafa allt aðra skoðun á þessu máli, en hann. Þeir telja, að ef þetta frv. verði samþ., muni það hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir iðnaðinn og leiða til stórkostlegs samdráttar. En hæstv. ráðh. segir, að þetta muni efla iðnaðinn.

Þegar menn flytja mál sitt á þann veg, sem hæstv. ráðh, gerði í dag, þá er óþarft að eyða tíma til þess að svara, vegna þess að fullyrðingar hæstv. ráðh. eru byggðar á svo augljósum sandi, að hver sem á hann hlýðir hlýtur að sjá, að hér er farið með rökleysu eina.

Það er því óþarfi að eyða löngum tíma í það að ræða við hæstv. ráðh. um málið, og skal ég láta því lokið að tala við hæstv. ráðh. Þess gerist ekki þörf. Hann var svo kaldrifjaður, að hann jafnvel leyfði sér að láta ánægju í ljós yfir þessu frv., sem flutt er hér inn í þessa hv. d. vegna þess, að sú fjármálastefna, sem fylgt hefur verið á undanförnum mánuðum, hefur leitt til þess, að atvinnuvegir landsins horfa með ugg fram á framtíðina og eru — eins og nú er ástatt — hjálparþurfi á ýmsan hátt. En því miður mun þetta frv. — þótt að lögum verði — í framkvæmd hæstv. ríkisstj. ekki verða atvinnuvegum landsins til styrktar eða hjálpar, heldur mun það verða til þess að draga úr framkvæmdum og framleiðslu og verða til samdráttar í atvinnulífinu og bjóða heim margs konar erfiðleikum.

Hæstv. sjútvmrh. kvartaði undan því í dag, að hann væri alltaf nefndur viðskmrh., en ekki sjútvmrh. Ég skal bæta úr því að þessu sinni og nefna hann hæstv. sjútvmrh., ef honum þykir það betra. Hann talaði hér nokkuð í kvöld, og ræða hans gefur ekki heldur tilefni til þess að svara miklu. Ég get gefið hv. alþm. og öðrum áheyrendum einnig nokkurn mælikvarða til þess að fara eftir um hans málflutning, því að hann kom hér með fullyrðingu, eins og hæstv. fjmrh., sem hvergi fær staðizt. Hæstv. sjútvmrh. sagði m.a., að í janúarmánuði 1956, þegar lög um framleiðslusjóð voru sett, hafi Sjálfstfl. og form. hans, hv. þm. G-K., lagt til, að allar vörur yrðu skattlagðar jafnt. Þessi fullyrðing er út í loftið og hefur ekki við nein rök að styðjast, og það vita allir, að með lögum um framleiðslusjóð voru ekki lagðir skattar á nauðsynjavörur, — ekki á nauðsynjar almennings, ekki á rekstrarvörur. Það er fyrst núna, sem slíkur skattur er lagður á rekstrarvörur. Þegar hæstv. ráðh. kemur með fullyrðingu eins og þessa, ber hana á borð fyrir þingheim allan, þá hygg ég, að fæstum detti í hug að taka alvarlega yfirleitt fullyrðingar hans um þetta mál. Það er raunalegt, að hæstv. ráðherrar skuli ekki ræða málin með meiri alvöru en þeir gera, með meiri festu og í öðrum tón, því að það er sannarlega ástæða fyrir þá, þegar þeir leggja fram frv. eins og þetta, að biðjast frekar afsökunar á því, hvernig komið er vegna þeirrar stefnu eða stefnuleysis, sem fylgt er, heldur en reyna að blekkja menn með staðlausum staðhæfingum.

Hæstv. sjútvmrh. talaði um, að nú væri lagt mest á lúxusvörurnar. En þetta er ekki rétt. Það er fyrst núna í sambandi við ráðstafanir um efnahagsmál, sem mestur og þyngstur skattur er lagður á nauðsynjavörur, það er fyrst núna, sem skattar eru lagðir á rekstrarvörur, og það er fyrst núna, sem nokkur ábyrgur maður leyfir sér að halda því fram, að slíkir skattar á rekstrarvörur geti leitt til þess að létta undir með atvinnuvegunum. Slíkri fjarstæðu hefur enginn viljað halda fram áður.

Hæstv. sjútvmrh. talaði um það, að sjálfstæðismenn hefðu kynt undir verkföllunum að undanförnu, það væri þeirra sök. Þessu hefur svo oft verið mótmælt, að þess gerist ekki þörf að hrekja það frekar, því að enginn, sem hefur fylgzt með þróun málanna,frá því að núverandi hæstv. ríkisstj. tók við, tekur þessar ásakanir á hendur Sjálfstfl. gildar. Það getur ekki verið sök Sjálfstfl., ekki hægt að færa honum það til sakar, þótt hann hafi í blöðum sínum sagt frá því, sem hefur verið að gerast, sagt frá því, þegar stéttarfélög hafa sagt upp samningum. Það er ekkert annað, sem Sjálfstfl. hefur gert. Hann hefur sagt hlutlaust frá því, sem hefur gerzt. En það er eins og hv. stjórnarflokkar vilji ekki sætta sig við þá málsmeðferð. Það er vitanlega skylt að segja landsmönnum rétt frá því, sem er að gerast, þeirri þróun, sem er í efnahags- og atvinnulífinu, hvort sem þær fréttir eru góðar eða slæmar. Það er það, sem almenningur ætlast til af góðum fréttablöðum, að þau segi vel og skilmerkilega frá því, sem er að gerast. Þegar samningum hefur verið sagt upp af einu eða fleiri stéttarfélögum, þá er það staðreynd, hvort sem sagt er frá því eða ekki.

Hæstv. sjútvmrh. talaði um það hér áðan, að það hefði margt breytzt síðan í febrúar eða marz, þegar hann skrifaði greinar sínar í Þjóðviljann og talaði um, að ekki vantaði nema 90 millj. kr. Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðh., það hefur margt breytzt. Það breytist margt í íslenzku þjóðlífi og atvinnulífi núna á hverjum mánuði og það af eðlilegum ástæðum. Það er vegna þess, að nú síðustu mánuðina hefur raunverulega verið stjórnarkreppa í landinu. Það hefur raunverulega verið stjórnarkreppa í landinu og þjóðarskútan verið á reki. Þess vegna hefur margt breytzt, og þess vegna er það, að þótt hæstv. sjútvmrh. hafi í febrúarmánuði álitið, að það mætti kannske komast af með 90–100 millj. kr. í útflutningssjóð og ríkissjóð, þá er það víst alveg rétt hjá honum, að það verður alls ekki komizt af með þá upphæð nú og siður en svo, og það er vegna hinna öru breytinga, sem hafa átt sér stað á þessu tímabili, vegna þess að það hefur verið stjórnleysi og ráðleysi.

Hv. stjórnarflokkar tala um, að það verði að koma nýjar aðgerðir í haust. Þetta stóra frv., sem við nú erum að ræða um, á ekki að koma að gagni nema til hausts, og það er vegna þess, að þeir gera ráð fyrir stórum breytingum á næstu mánuðum. Þeir segja að vísu, að þetta frv. sé stórt spor í áttina. En til hvaða áttar? Til hvaða áttar stefnir hæstv. stjórn? Það væri fróðlegt að gera sér grein fyrir því.

Hæstv. forsrh. talaði fagurlega hér fyrir stuttu um þetta mál, og hann sagði, að eina lausnin á okkar vanda væri að hverfa frá vísitölukerfinu og taka upp framleiðsluvísitölu. Þótt hann segði það ekki beinlínis, þá var ekki hægt að skilja ræðu hans öðruvísi en svo, að hann teldi gengislækkun sjálfsagða leið. Þá má þess vegna hugsa sér, að hann telji þetta frv. stórt spor í áttina til fullkominnar gengislækkunar. En hvað segja aðrir hæstv. ráðh. og stuðningsmenn stjórnarinnar? Hvað sagði hv. 3. þm. Reykv. um framleiðsluvísitöluna? Ég er hræddur um, að hann og hans flokkur ætli sér að halda í aðra átt. Hann og hans flokkur lýsa sig andvíga framleiðsluvísitölu, eins og hv. 3. þm. Reykv. tók hér skýrt fram. Hv. 3. þm. Reykv. og hæstv. sjútvmrh. hafa talið sig andvíga gengislækkun. Ég held þess vegna, að hæstv. ríkisstj. sé a.m.k. tvíátta, og þá er hún stefnulaus, þá á það að ske á næstu mánuðum, sem hefur skeð á undanförnum mánuðum, að stórar breytingar verði í okkar efnahags- og atvinnulífi á hverjum mánuði. Það er það, sem veldur ugg og svartsýni margra í þessu landi, hvernig stefnuleysi og úrræðaleysi núverandi hæstv. ríkisstj. er að leiða okkar atvinnulíf og fjármálakerfi í fullkomin vandræði.

Það er eðlilegt, að menn vonist ekki eftir miklu af ríkisstj., sem sýnir sig í slíku stefnuleysi sem fram kemur í þessu. Og þegar hæstv. ríkisstj. er að spyrja sjálfstæðismenn, hvað þeir vilji til málanna leggja og hvers vegna þeir komi ekki með till. frá sínu sjónarmiði, úr því að þeir gagnrýna það frv., sem hæstv. stjórn hefur lagt fram, þá er ekki nema eðlilegt, að sjálfstæðismenn spyrji: Til hvers er að koma með till. handa þessari stjórn til að framkvæma? Þessi hæstv. stjórn getur ekki framkvæmt þær till., sem hún sjálf ber fram, og hana mundi skorta vilja og getu til þess að framkvæma á viðunandi hátt till., sem sjálfstæðismenn kynnu að bera fram. Það, sem þarf að gera til úrbóta og bjargar okkar þjóð, er það að stokka upp og gefa þjóðinni tækifæri til þess að leggja sinn dóm á það, sem gerzt hefur undanfarið. Þetta verður ekki lagfært fyrr, og það er þjóðarnauðsyn, að það dragist ekki lengi, vegna þess að það er rétt, sem hæstv. sjútvmrh. sagði hér í dag: Það eru örar breytingar, það vantaði e.t.v. ekki nema 90 til rúmar 100 millj. í febrúarmánuði til bjargar atvinnuvegunum, en það vantar í dag samkvæmt frv., sem þeir leggja fram, samkvæmt því sem frv. segir, 580 millj. kr. Þeir hafa vefengt, hæstv. ráðh., að það væru 790 millj., sem vantar. Þeir hafa vefengt það. Látum það vera, að þar standi fullyrðing gegn fullyrðingu, en þeir véfengja þó ekki þær tölur, sem þeir prenta í frv. sjálfu. Samkvæmt frv. viðurkenna þeir 580 millj.

Hæstv. sjútvmrh. viðurkennir, að nú þurfi 580 millj. í útflutningssjóð og ríkissjóð, en talaði um 90 millj. í febrúarmánuði í vetur. Ég hygg, að þetta sé staðfesting á því, að breytingarnar eru örar og dýrtíðin vex með hröðum skrefum, einmitt vegna stefnuleysis og aðgerðaleysis okkar atvinnulífi til bjargar frá hendi hæstv. ríkisstj. Og það er þess vegna, sem nauðsynlegt er, að það verði breytt um stefnu, að það verði ekki dregið lengi úr þessu að fá breytta stjórnarhætti, en það gerist ekki með öðru móti, en gefa þjóðinni kost á að dæma um þau verk, sem hæstv. ríkisstj. hefur unnið á undanförnum mánuðum.