12.12.1957
Neðri deild: 38. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (97)
5. mál, tollskrá o. fl
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Ég hafði nú ekki ætlað að blanda mér inn í þessar umræður hér um breytingu á lögum um tollskrá, en vegna þess að hæstv. fjmrh. fór hér algerlega með rangt mál áðan, tel ég ástæðu til — vegna kunnugleika á því máli ekki siður en hann — að mótmæla algerlega því, sem hann sagði hér áðan.
Hann sagði, hæstv. ráðh., að það væri sami háttur hafður nú á við úthlutun atvinnubótafjárins og var í tíð fyrrverandi ríkisstj. Fyrrverandi ríkisstj. hafði þann hátt á í sambandi við úthlutun atvinnubótafjárins að skipa nefnd, sem í voru ráðuneytisstjórarnir Sigtryggur Klemenzson, Gunnlaugur Briem og Hjálmar Vilhjálmsson, til þess að gera ýtarlegar till., hvernig þessu fé væri bezt ráðið. Veit ég, að till. þeirra byggðust á réttsýni og kunnugleika, en ekki á neinn hátt á pólitískri hlutdrægni. Og ríkisstj. leit að lokum yfir þessar till. og fór oftast algerlega eftir þeim, Þetta er allt annar háttur, en nú hefur verið við hafður, því að það er kunnugt þrátt fyrir ummæli hæstv. menntmrh., að úthlutunin að þessu sinni er að mestu eða öllu leyti í höndum tveggja hæstv. ráðh., hæstv. félmrh. og hæstv. fjmrh. Og hæstv. sjútvmrh. hefur ekki mælt á móti því, að það sé rétt, sem eftir honum hefur verið haft, að ágengni og rangsleitni hæstv. fjmrh. hafi verið slík við úthlutun fjárins, að við það sé illt að una, (Forseti: Ég vil leyfa mér að beina þeirri spurningu til hv. ræðumanns, hvort hann eigi miklu ólokið af sínu máli, því að kl. 3 á að hefjast fundur í sameinuðu þingi. Ég mundi þá óska þess, að hann gerði hlé á sinni ræðu.) Herra forseti. Það var ekki ætlun mín að halda hér ræðu, og ég geri ráð fyrir því, að ég þurfi ekki langan tíma til að ljúka máli mínu. (Forseti: En við verðum að hætta fyrir kl. 3.) Ég skal verða við ósk forseta og stytta mál mitt mjög.
Það, sem hér hefur einkennt umræðuna um þetta mál, er það, að þeir hæstv. ráðh., sem tekið hafa til máls, hafa kinnroðalaust komið hér upp og vitnað, á móti betri vitund. Það kann að heita hégómamál, þegar hæstv, fjmrh, segir, að hæstv. sjútvmrh. hafi alls ekki kinkað kolli, en ég vil bara upplýsa það vegna þess, hvar ég sit í salnum, að hæstv, fjmrh. hefur alls ekki getað séð það, hvort hæstv. sjútvmrh. kinkaði kolli eða ekki, vegna þess að hæstv. menntmrh. sat á milli og skyggði á. (Forseti: Nú verð ég að biðja hv, ræðumann, ef hann á ólokið af sinni ræðu, að gera svo vel að gera hlé á sinni ræðu, því að nú verð ég að fresta fundi.) Herra forseti. Ég skal verða við óskinni um það, sérstaklega vegna þess, að ég á þá kost á að taka til máls síðar í þessu máli. — [Fundarhlé.]
Herra forseti. Eins og hv. þm, heyrðu áðan, gerði hv. 5. þm. Reykv, (JóhH) fyrirspurn til hæstv. fjmrh, um það, hvort farið væri að greiða úr ríkissjóði fé út á væntanlegt atvinnubótafé 1958. Hæstv. ráðh. svaraði þessu ógreinilega, talaði um, að það væri búið að lofa nokkru fé úr ríkissjóði út á væntanlegt atvinnubótafé, en það væri ekki meira en það, sem hefði gerzt í tíð fyrrv. ríkisstj.
Það má vel vera, að í tíð fyrrv. ríkisstj. hafi verið eitthvað gert að því að lofa fé fyrir fram, en það hefur áreiðanlega ekki verið greitt fyrir fram eða á árinu áður en fé var veitt til atvinnubóta.
Hæstv. ráðh. á eftir að svara því, hvort farið sé að greiða fé úr ríkissjóði út á væntanlegt atvinnubótafé 1958, og það er æskilegt, að hann vilji koma hér aftur upp í ræðustólinn og svara því greinilega: Hefur hann greitt úr ríkissjóði fé, sem síðar á árinu 1958 á að greiðast af því fé, sem varið verður til atvinnubóta? Og hvaða heimild hefur hæstv. ráðh. til þess að greiða á árinu 1957 úr ríkissjóði það, sem síðar kynni að verða greitt af atvinnubótafé á árinu 1958? Það er æskilegt, að þessu verði svarað greinilega, svo að hv. þm. viti um það, hvort þessi óvenjulega aðferð getur átt sér stað og hvort það er sannleikur, sem sumir halda fram um slíkar greiðslur. Það virðist vera, að hæstv. fjmrh, sé farinn að verða nokkuð uppivöðslusamur og taka sér einræðisvald, ef þetta er sannleikanum samkvæmt. Og ég segi: Það færi betur, að hann gæti borið slíkar sakir af sér, og hann má vera þakklátur fyrir, ef hér væri með rangt mál farið, að fá hér tækifæri til þess að hreinsa sig af þessu.
Það er ekki undarlegt, þótt að því sé fundið, að tveir hæstv. ráðh. úthluti atvinnubótafénu, þegar það er orðið jafnmikið og það var á s.l. ári og eins og ætlað er að það verði á næsta ári. Það er ekki undarlegt, sérstaklega vegna þess, að þegar byrjað var á því að veita á fjárl. fé til atvinnubóta í því skyni að bæta atvinnuástandið á þeim stöðum, þar sem það er verst, þá var ekki meiningin, að þetta væri þannig gert.
Við sjálfstæðismenn vildum hafa lýðræðislega aðferð í þessu efni. Frv. var lagt fyrir Alþingi að tilhlutan sjálfstæðismanna, frv., sem var samið af jafnvægisnefnd, hv. fyrrv. þm. Barð., Gísla Jónssyni, og hv. þm. N-Þ. (GíslG). Það var um svokallaðan jafnvægissjóð og um það, hvernig bezt og lýðræðislegast væri hægt að koma fyrir ráðstöfunum í því skyni að efla jafnvægi í byggð landsins, svo að það fé, sem veitt væri til þess hverju sinni, gæti komið að sem beztum notum. Í þessu frv. var gert ráð fyrir, að Alþingi kysi fimm manna nefnd, sem hefði með höndum úthlutun atvinnubótafjárins. Við sjálfstæðismenn vildum fylgja þessu frv. allir sem einn, en það var stöðvað í þinginu, vegna þess að hæstv. fjmrh, vildi ekki fá fulltrúa frá Sósfl. til þess að hafa hönd í bagga með úthlutun þessa fjár. Það þótti of lýðræðislegt. Þá þótti þessum hæstv. ráðh. sem Sósfl. væri gert of hátt undir höfði, að hann hefði 1/5 af því áhrifavaldi að úthluta þessu fé. En það virðist sem það hafi orðið nokkur skoðanamunur hjá þessum hæstv, ráðh., síðan hann settist í ríkisstj. með Sósfl., því enda þótt hæstv, fjmrh. ráði mestu í dag um úthlutun þessa fjár, þá kemst hann þó ekki hjá því að taka eitthvert tillit til þess, sem sósíalistar segja í þessu efni, eins og nú er málum komið.
Mér þykir rétt að upplýsa þetta hér, þar sem hæstv. fjmrh. sagði hér áðan, að við sjálfstæðismenn hefðum alltaf verið ánægðir með það, að atvinnubótafénu væri úthlutað eins og nú er gert. En eins og ég sagði áðan, var því ekki úthlutað eins og nú er gert, þótt þetta frv. næði ekki fram að ganga, vegna þess að þrír valinkunnir menn, ráðuneytisstjórarnir, gerðu sameiginlega till. um það, hvernig þessu fé skyldi verða úthlutað, og hjá þeim réð ekkert annað, en réttsýni, þegar þeir lögðu sínar till. fram, enda sá ríkisstj. sjaldan eða aldrei ástæðu til að breyta út frá tillögum þeirra.
Hæstv. fjmrh. vill sýnilega sem minnst um þessi mál ræða, Hann væntir þess að hafa á næsta ári sömu aðstöðu til úthlutunar á atvinnubótafénu eins og hann hefur haft s.l. ár og hugsar þá sennilega gott til að nota féð eins og honum sýnist heppilegast.
Ég skal ekki fara meira út í þetta atriði. En ég vil benda á, að hæstv. ráðh. hefur öðrum þræði viljað láta í það skina, að hann væri aðeins gjaldkeri ríkissjóðsins, vegna þess að Alþingi hefði ráðstöfunarréttinn og fjárveitingavaldið hverju sinni. Og menn minnast þess, hversu oft hæstv. fjmrh. talaði um útgjaldaráðuneytin í fjárlagaræðu sinni við 1. umr. fjárl. nú í haust. Hann eyddi verulegum tíma í það að reyna að sanna alþjóð, að önnur ráðuneyti, en fjmrh. væru hin svokölluðu útgjaldaráðuneyti og hann væri fyrst og fremst í ráðuneytinu til þess að skrifa upp á ávísanir frá þessum útgjaldaráðuneytum og annast greiðslur fyrir þeirra hönd.
Ég man það, að eftir þessar umr. talaði ég við mikilsmetinn framsóknarmann, og hann hafði það á orði, að eftir þessa ræðu hæstv. fjmrh., eftir þessa kenningu hæstv. fjmrh., þá verðum við að hætta því að kalla Eystein Jónsson fjmrh, fjármálamann. En Framsóknarfi. og Tíminn hafa gert ákaflega mikið að því á undanförnum árum að reyna að telja fólki trú um það, að hæstv. fjmrh. væri alveg sérstakur fjármálaspekingur. En sjálfur reyndi hann að sanna það fyrir alþjóð, að hans hlutverk í ráðuneytinu væri aðeins að annast greiðslur og samþykkja ávísanir, sem önnur ráðuneyti gæfu út.
Í sambandi við þetta frv., sem hér liggur fyrir um breytingu á lögum um tollskrá, mætti ýmislegt segja. Það mætti segja, að það væri ekki eðlilegt að taka með sérstökum lögum prósentu af tekjum ríkisins til þess að byggja tollstöðvarbyggingar hér í Reykjavík og annars staðar um landið, og ég vil halda því fram, að það væri eðlilegra að taka sérstaka fjárveitingu á fjárl. hverju sinni í þessu skyni og láta það koma fram á fjárl., hverju varið er til þessara framkvæmda eins og annarra. Sama máli gegnir með lögreglustöðvarbyggingu og ýmsar fleiri nauðsynjaframkvæmdir, sem beðið er eftir. En till. um þetta er fram komin á þennan hátt vegna þess, að því er vantreyst, að fé fáist í þessu skyni með öðru móti. Fjárl. hafa hækkað stöðugt undanfarin ár, og fjmrh. og stuðningsflokkar núverandi hæstv. ríkisstj. eru ekki sérstaklega ánægðir yfir því, hversu fjárl. stíga nú ár frá ári og allra mest síðan núverandi hæstv. ríkisstj. var mynduð. Þess vegna er eðlilegt, að hæstv. fjmrh. og stuðningsflokkar ríkisstj. vilji reyna að kippa út úr fjárl. sem mestu til þess að fela nokkurn hluta þeirra fyrir alþjóð.
Við vitum, að í landinu eru nú í dag tvenns konar fjárl. Annars vegar eru fjárl. ríkisins, fjárl. hæstv. fjmrh., Eysteins Jónssonar, sem ætlað er að afgr. núna fyrir jólin. Hins vegar eru fjárlög útvegsins og útflutningsframleiðslunnar, fjárlög hæstv, sjútvmrh., Lúðvíks Jósefssonar, sem ætlað er að fresta afgreiðslu á fram yfir bæjarstjórnarkosningarnar, og má það vera vegna þess, að til þeirra fjárlaga þurfi ekki minna í beinum sköttum á landsmenn, heldur en á fjárlög ríkisins.
Ég skal ekki fara að ræða fjárl. í sambandi við þetta, vegna þess að til þess gefst tækifæri á eftir. En það er áreiðanlegt, að menn eru almennt farnir að átta sig á því, bæði innan þings og utan, hvernig farið er með fjármál ríkisins í heild og að það verður að koma á stefnubreytingu í þessu efni. Almenningur í landinu gerir ekki feluleik sér að góðu öllu lengur, vegna þess að nú eru jafnvel betri tækifæri, en fyrr að sjá nokkuð í gegnum það, sem á að hylja. Það kemur fram að lokum.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð öllu fleiri. Ég sé, að hæstv. fjmrh. er að koma inn í salinn, — og ég vona þá, að hann a.m.k. svari þeirri fyrirspurn hv. 5. þm. Reykv. alveg greinilega, hvort hann hefur nú þegar greitt úr ríkissjóði til fyrirtækja eða fyrirtækis, til sveitarfélags eða kaupstaðar fé, sem á að greiðast á næsta ári með væntanlegu framlagi til atvinnubóta.