16.05.1958
Neðri deild: 99. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1163 í B-deild Alþingistíðinda. (970)
186. mál, útflutningssjóður o. fl.
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Það hryggir mig mjög mikið, hvað hæstv. félmrh. hefur miklar áhyggjur út af sálarheill okkar sjálfstæðismanna og ber mikinn kvíðboga fyrir því, hve þjóðin muni dæma okkur hart. Ég held nú satt að segja, að hann ætti að spara sér þessar áhyggjur. Það er auðvitað fallega gert að hugsa meira um aðra en sjálfan sig. En í þessu tilfelli held ég samt, að það muni vera annar aðili, sem þurfi frekar að hafa áhyggjur, heldur en við sjálfstæðismenn, og ég skal upplýsa hæstv. ráðh. um það, að það er alveg óhætt fyrir hann að takmarka áhyggjur sínar við þann aðila, þ.e.a.s. hæstv. ríkisstj., vegna þess að tilfinningar hans og okkar sjálfstæðismanna eru ekki gagnkvæmar að því leyti, að við sjálfstæðismenn berum engar áhyggjur út af hæstv. ríkisstj.
Ég veit ekki satt að segja, hvort hæstv. félmrh. gerir sér grein fyrir því og hæstv. ráðherrar yfirleitt, hvernig það hlýtur að líta út í augum þjóðarinnar, þegar þeir eru sífellt að klifa á því, að við sjálfstæðismenn eigum að benda þeim á, hvernig eigi að leysa þennan vanda. Ég skýrði frá því í fyrrinótt, að Alþýðublaðið hefði sagt frá því fyrir skömmu, — ég skal játa, að það er auðvitað enginn algildur sannleikur, þó að Alþýðublaðið hafi sagt það, — en það komst þannig að orði, að nú ætti að vera mjög einfalt fyrir ríkisstj. að leysa þennan vanda, vegna þess að Sjálfstfl. sé kominn á þann stað, sem hann eigi að vera í íslenzku þjóðlífi. Og þetta er auðvitað í nánu samræmi við það, sem þessir hv. herrar hafa alltaf sagt. Þeir buðust til þess að leiða þjóðina út úr þeirri eyðimörku, sem þeir sögðu að Sjálfstfl. hefði leitt hana inn í. En nú á Sjálfstfl. að fara að koma til þess að leiða þá út úr eyðimörkinni.
Við sjálfstæðismenn höfum aldrei haldið því fram, að við hefðum nein töframeðul til að leysa þennan vanda. Það eru þessir háu herrar, sem hafa haldið því fram, að þeir hefðu þau og að þeir einir væru færir um að leysa vandann. Nú skulu þeir bara leysa hann og láta sjá, að þeir komist af án tillagna okkar. Við munum, eins og við höfum lýst yfir, ekkert skorast undan því að taka við þeim vanda, sem á okkar herðar fellur, þegar þar að kemur, þó að það verði vafalaust ekki glæsilegt við því að taka. En þegar deilt er um grundvallaratriði eins máls, eins og hér er um að ræða, þá er ákaflega haldlítið að ætla að fara að lappa upp á það kerfi, sem byggt er upp og vissulega liggur viss hugsun að baki, eins og að þessu frv. hér; að ætla að fara að umturna einstökum atriðum þess, það er ákaflega vandasamt, vegna þess að það hlýtur að raska þeirri hugsun, sem að baki frv. liggur. Það verður þá að umskapa þetta allt frá rótum og leggja fram alveg nýtt kerfi, og ég held, að það hljóti hver heilvita maður að skilja, jafnvel þótt hæstv. ríkisstj. skilji það ekki, að það þarf meira en 2–3 daga til þess að leggja fram alveg nýjar till. frá grunni. Þetta held ég að sé svo auðskilið mál, að hvaða einfaldur maður sem er hljóti skilja það og jafnvel þótt tvöfaldur sé.
Ég skal ekki þreyta þolinmæði hæstv. forseta. Ég vildi aðeins út af þessari sérstöku fsp., sem kom fram um tillögur okkar sjálfstæðismanna, taka þetta fram í grundvallaratriðum, Það hefur áður verið hér sagt, að við erum sammála hæstv. ríkisstj. um nauðsyn þess að efla atvinnulífið og að atvinnuvegirnir geti gengið, en við erum ekki sammála því kerfi, sem hér er upp byggt, Það er grundvallaratriðið, og ef við eigum að gera okkar brtt., þá þýðir ekkert að vera að breyta einum einstökum lið í því, það verður þá að gera það frá grunni og hafa þá til að byggja á allar þær athuganir, sem til þess þarf að geta byggt upp nýjar, heilsteyptar tillögur.