12.12.1957
Neðri deild: 38. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í B-deild Alþingistíðinda. (99)
5. mál, tollskrá o. fl
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. — Hæstv. fjmrh. minnti mig á, að hann hefði sagt, að það mundi ekki borga sig fyrir mig að fullyrða, að það væri annar háttur hafður nú á með úthlutun atvinnubótafjárins, heldur en var í fyrrv. stjórn. Mér er nú alveg rétt sama, hvort hæstv. ráðh. álítur það borga sig eða ekki að segja sannleikann. Það kannske borgar sig í bili að þegja yfir sannleikanum eða segja eitthvað annað, en sannleikann. En hæstv. ráðh. veit það, að þegar hann kemur hér upp í ræðustólinn og segir, að það sé sami háttur hafður á nú með úthlutun þessa fjár eins og var í fyrrv. stjórn, þá veit hann, að hann er að skrökva, en það er það alvarlegasta.
Ég skal ekki segja meira um það. En ég býst við, að hv. alþm. hafi tekið eftir því, að svar hans við fsp. hv. 5. þm. Reykv. (JóhH) var ekki vel greinilegt. Eða áttuðu menn sig á því, sem hæstv. ráðh. var að segja? Hann sagði: Það hefur oft komið fyrir áður, að það hafi verið greitt út á væntanlegar fjárveitingar. — Það má vel vera, að það hafi komið fyrir, að það hafi verið greitt fyrir fram út á væntanlega fjárveitingu, eftir að frv. til fjárl. hefur verið lagt fram, eftir að vitað var, að slík fjárveiting yrði veitt. En hér er að ræða um atvinnubótafé, sem ekki er sérstök fjárveiting fyrir á hvern stað, eða á að skilja það svo, að það sé nú þegar búið að úthluta því atvinnubótafé, sem á að koma til nota á árinu 1958? Ég er ekki kunnugur í stjórnarráðinu núna, en það veit ég, að því hefur ekki verið úthlutað. Það hefur ekki enn verið úthlutað því fé, sem á að veita til atvinnubóta fyrir næsta ár, nema þá í huga hæstv. fjmrh., að hann hugsar sér að láta það fara á vissan og ákveðinn stað. Hafi hæstv. fjmrh, nú þegar greitt úr ríkissjóði fyrir fram það, sem hann ætlar að láta á einhvern stað af atvinnubótafé næsta árs, þá er það eingöngu vegna þess, að hann treystir því, að hann hafi á næsta ári sama einræðisvaldið og hann hafði á s.l. ári til þess að ráða því, hvert atvinnubótaféð fer. Og þá er hér um hreinan skrípaleik að ræða, þegar talað er um, að valdið sé hjá Alþingi, að úthlutun fjárins sé hjá ríkisstj, allri, að úthlutun fjárins sé undirbúin af embættismönnum, samvizkusömum og kunnugum málefnunum, því að slík úthlutun hefur ekki enn átt sér stað, á því atvinnubótafé, sem á að nota á næsta ári. En eftir orðum hæstv. fjmrh. áðan ber að skilja það svo, að hann hafi nú þegar greitt út úr ríkissjóði fé, sem hann, sami hæstv. ráðh., ætlar að endurgreiða aftur af því fé, sem verja á til atvinnubóta á næsta ári, en hv. Alþingi hefur ekki enn samþykkt og enn hefur ekki verið úthlutað nema í huga og kolli hæstvirts ráðherra.