28.05.1958
Efri deild: 110. fundur, 77. löggjafarþing.
Sjá dálk 1237 í B-deild Alþingistíðinda. (999)
186. mál, útflutningssjóður o. fl.
Eggert Þorsteinsson:
Herra forseti. Það er nú varla talið óeðlilegt, að ég láti til mín heyra í sambandi við þær umræður, sem hér fara fram um þetta mál, svo mjög sem um mína afstöðu og annarra skoðanabræðra minna í verkalýðshreyfingunni hefur verið rætt hér í hv. Nd. við þær umr., sem þar hafa farið fram um málið til þessa.
Hv. stjórnarandstæðingar hafa mjög veitzt að hæstv. núverandi ríkisstj. fyrir að hafa borið meginefni þessa frv. undir fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar og talið, að Alþ. væri misboðið með slíkri málsmeðferð, jafnvel látið orð að því liggja, að verið væri að færa löggjafarvaldið frá sjálfri löggjafarsamkomunni, þar með væri verið að skerða þingræði stjskr. og koma í veg fyrir lýðræðislegar starfsaðferðir, svo að nokkuð sé nefnt.
Ég tel þetta í hæsta máta rangtúlkun. Annars vegar er veitzt að ríkisstj. fyrir að standa ekki við gefin fyrirheit um samráð og samstarf við hinar vinnandi stéttir. En geri ríkisstj. hins vegar tilraun til þess, að slíkt samstarf eða samráð sé viðhaft eða könnuð afstaða verkalýðshreyfingarinnar til svona veigamikils máls, áður en það er flutt, þá er henni allt að því brugðið um stjórnarskrárbrot. Þetta er að mínu viti að leggja ofurkapp á það eitt að sverta störf stjórnarinnar í augum almennings og missir marks að mínu viti, því að hvort tveggja getur ekki farið saman.
Ég álít það vera höfuðnauðsyn hverrar ríkisstj. að hafa svo náið samstarf sem verða má við hver þau samtök, sem hlut eiga að máli hverju sinni, og kynna sér afstöðu þeirra, áður en slík lög eru sett, sem hér er flutt frv. að. Í þessu tilfelli var því ógerningur annað, en kanna hug verkalýðssamtakanna, ásamt ýmsum öðrum samtökum, hvað og gert var.
Nú síðustu daga hafa fjölmenn samtök, eins og samband verzlunarmanna, kvartað undan því, að fulltrúar frá þeim samtökum hefðu ekki átt þess kost að fylgjast með undirbúningi málsins, og verður það að teljast réttmætt. Hér er um stærra mál að ræða en svo, að hægt sé að eiga það á hættu, að það verði pappírsgagn eitt vegna andstöðu hlutaðeigandi aðila. Það hefði staðið mun nær minni skoðun, ef hv. stjórnarandstæðingar hefðu fundið að því, að þetta samráð og samstarf hefði ekki verið nægjanlega viðtækt og áhrifa þeirra aðila, sem til var leitað, gætti ekki eins og skyldi, þar sem til þessara aðila hefði ekki verið leitað, fyrr en málið var komið á lokastig.
Við þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið tvö s.l. ár, gætti áhrifa verkalýðssamtakanna mun meir við allan undirbúning mála en nú, og það gerði gæfumuninn á afgreiðslu þessarar stefnu í hópi fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar nú miðað við þá afstöðu, sem áður hafði verið tekin.
Skal nú nánar vikið að ástæðum þess, að ekki náðist full samstaða fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar til þeirrar stefnu, sem í frv. þessu er mörkuð.
Hv. stjórnarandstæðingum hefur af nokkuð eðlilegum ástæðum orðið tíðrætt um þann skoðanamun, sem fram kom í hópi hinna fyrrnefndu fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar, sem á síðasta þingi Alþýðusambandsins voru einróma til þess kjörnir að taka fyrir hönd samtakanna á milli þinga afstöðu til slíkra mála, er hér um ræðir. Samkvæmt þessari ákvörðun Alþýðusambandsþings skyldu með þetta ákvörðunarvald samtakanna fara miðstjórn Alþýðusambandsins og 19 menn aðrir. Þessir 19 menn voru valdir úr þáverandi formannahópi flestra fjölmennustu verkalýðsfélaga innan samtakanna.
Ályktun um þessa skipan mála er svo hljóðandi, með leyfi forseta:
„Fyrir liggur, að Alþingi og ríkisstj. hljóti á næstu vikum að lögfesta og framkvæma mikilvægar aðgerðir í efnahagsmálum til tryggingar höfuðatvinnuvegum hennar. Ljóst er, að það varðar mjög afkomu og lífskjör allrar alþýðu, hvernig til tekst um þessa löggjöf og framkvæmd hennar. Með tilliti til þessa og þeirrar yfirlýsingar núverandi ríkisstj., að fullt samráð skuli haft við verkalýðshreyfinguna um lausn efnahagsmálanna, samþykkir 25. þing Alþýðusambands Íslands að kjósa nefnd, sem ásamt miðstjórn sambandsins komi fram sem fulltrúi verkalýðssamtakanna gagnvart ríkisstj. í samræmi við stefnu Alþýðusambandsins, eins og hún er mörkuð í samþykktum þessa þings.“
Hvernig voru svo sjálfar samþykktir Alþýðusambandsþingsins um efnahagsmál? Í þessum samþykktum segir m.a. svo, með leyfi forseta:
„25. þing Alþýðusambands Íslands lýsir yfir óskoruðu fylgi við þá stefnu núverandi ríkisstj. að stöðva verðbólguþensluna og fagnar þeirri yfirlýsingu hennar, að samráð skuli haft við verkalýðshreyfinguna um lausn efnahagsmálanna og engar ráðstafanir skuli gerðar, sem verkalýðshreyfingin ekki sættir sig við. Þingið lýsir því yfir, að við aðgerðir þær í efnahagsmálum, er nú standa fyrir dyrum, er það algert lágmarksskilyrði verkalýðshreyfingarinnar, að ekkert verði gert, er hafi í för með sér skerðingu á kaupmætti vinnulaunanna, og að ekki komi til mála, að auknum kröfum útflutningsframleiðslunnar verði mætt með nýjum álögum á alþýðuna, svo sem með gengislækkun eða hliðstæðum ráðstöfunum.“
Að athuguðum þessum samþykktum má öllum vera ljóst, að verkalýðsfulltrúunum var mikill vandi á höndum hafandi það veganesti, er í ályktun þessari felst.
Í höfuðatriðum var þó samkomulag um hin almennu atriði ályktunarinnar, en niðurstöður hennar voru menn ekki á einu máli um. Fulltrúarnir voru sammála um, að með frv. þessu væri í veigamiklum atriðum vikið frá þeirri verðstöðvunarstefnu, sem farin hefur verið nú síðan núverandi ríkisstj. tók við völdum og verkalýðssamtökin hafa stutt og vildu styðja áfram. Jafnframt voru menn á einu máli um, að afleiðingar þessara ráðstafana yrðu meiri verðhækkanir, en átt hafa sér stað síðustu þrjú missirin. Fyrir þennan fund þessara fulltrúa hafði miðstjórn Alþýðusambandsins samþykkt það atriði eitt út af fyrir sig, að í stað næstu 9 vísitölustiga, kæmu þau ekki til greiðslu á vinnulaun, yrði nú þegar lögfest 5% grunnkaupshækkun.
Þá var samkomulag um að fagna fyrirheiti ríkisstj. um lögfestingu lífeyrissjóðs fyrir togarasjómenn og að gerðar yrðu nokkrar breytingar á skattalögunum láglaunafólki í hag. Einnig var með sérstakri ályktun einróma fagnað því, sem þegar hefur verið lögfest af félagslegum umbótum í stjórnartíð núverandi ríkisstj.
Í þessum fulltrúahópi var hins vegar ágreiningur um það, hvort telja bæri, að þessar ráðstafanir hefðu á ýmsan hátt hliðstæð áhrif og gengislækkun, en því hélt minni hluti fulltrúanna fram, eins og skýrt hefur verið frá í dagblöðum. Aðalágreiningurinn var þó, eins og ég greindi frá áður, um niðurstöður ályktunarinnar.
Niðurstöður þeirrar ályktunar, sem samþykkt var með brtt. fyrrnefndu, voru svo hljóðandi, með leyfi forseta:
„Að þessu athuguðu og jafnframt vegna annarra mikilvægra verkefna fyrir afkomu og lífskjör íslenzkrar alþýðu í framtíðinni, sem úrlausnar krefjast nú, leggur nefndin og miðstjórn Alþýðusambands Íslands til, að verkalýðshreyfingin vinni ekki á móti eða torveldi framgang tillagnanna.“
Niðurstaðan í okkar till., sem í minni hl. urðum, var hins vegar svo hljóðandi, með leyfi forseta:
„Efnahagsmálanefnd og miðstjórn Alþýðusambands Íslands vísa því frá sér þeim till. um ráðstafanir í efnahagsmálum, er nú liggja fyrir, þar sem þær eru ekki í samræmi við það, er síðasta Alþýðusambandsþing heimilaði þessum aðilum að semja um.“
Af þessu, sem ég nú hef sagt, ætti að vera ljóst, hver hinn raunverulegi skoðanamunur var í fulltrúahópnum. Hv. stjórnarandstæðingum hefur orðið mjög tíðrætt um úrslit atkvgr. þessara till. Hið sanna er, að brtt. fyrrnefnda var samþykkt með eins atkvæðis mun, 15:14 atkv. Hæstv. félmrh. hefur einnig skýrt frá því við umr. í Nd., að á þessum fundi hafi komið fram brtt. um, að í stað orðanna „vísa því frá sér“ í till. okkar í minni hl. kæmu orðin „mótmæla því“, en hafi verið felld með öllum atkv. gegn einu, og þetta er einnig rétt.
Ég hef hér reynt að telja fram það, sem ég veit sannast og réttast um afstöðu þess fólks, sem þennan fulltrúahóp myndaði, og vona, að þar með sé öllum efasemdum um þessi atriði bægt frá.
En hver var þá ástæðan til þess, að ekki náðist nú öruggari samstaða innan verkalýðsfulltrúanna, en hér var raunin á og áður hefur verið á minnzt? Í fyrsta lagi fannst ýmsum þar, að málið kæmi of seint til álita verkalýðshreyfingarinnar og nánast þannig, að hún fengi þar engu um breytt og enga aðstöðu til þess að gera till. til breytinga. Í hin fyrri skipti hafði þó verið tekið tillit til ýmissa brtt. frá þessum aðilum, enda náðist þá betri samstaða um málið og eindregnari stuðningur þessara verkalýðsfulltrúa.
Í öðru lagi er nú gert ráð fyrir allverulegum hækkunum á t.d. byggingarefnum og hráefnum til verksmiðjuiðnaðarins, án þess að nokkur vissa sé í dag fyrir því, að aukið verði rekstrarfé til iðnaðarins, þ.e.a.s. verksmiðjuiðnaðarins, eða aukið fé til útlána í veðlánakerfi húsnæðismálastjórnar. Frá atvinnulegu sjónarmiði virðist hér því stefna hraða leið til minnkandi atvinnu, þegar kemur fram á haustmánuði eða undir næstu áramót og áhrifanna fer verulega að gæta. Það er óþarft að rekja hér, hvað rekstrarfjárvandræðin hafa torveldað eðlilega þróun íslenzks verksmiðjuiðnaðar, til þess eru dæmin of augljós. Þær verðhækkanir á hráefni, sem af samþykkt frv. þessa leiðir, hljóta því óhjákvæmilega að kalla á meira fjármagn, aukið rekstrarfé eða stöðvun ella.
Það er mjög bent á það, að hin erlenda iðnaðarvara fullunnin muni hækka meira, en hráefni til iðnaðarins og þannig veita honum vernd. En mér verður spurn: Hvað stoðar það, ef stórlega dregur úr framleiðslu hins innlenda iðnaðar?
Bygging íbúðarhúsnæðis hefur verið með allra mesta móti s.l. 2 ár hér á Faxaflóasvæðinu og þó mest í Reykjavík og nágrenni. Vel hefur því miðað í áttina um lausn þessa mikla vanda. Af ýmsum hagfræðingum, er unnið hafa að rannsókn efnahagsmála undanfarin ár, hefur verið komizt að þeirri niðurstöðu, að húsaverð og verð leiguhúsnæðis sé ein helzta undirrót vaxandi verðbólgu undanfarinna ára. Það má því augljóst vera, að frá því sjónarmiði einu er mikil nauðsyn á lausn þessa vandamáls. Minnkandi framboð leiguhúsnæðis og húsnæðis til sölu hlýtur að vefa þráðinn í verðbólgunetið á ný. Þeir, sem minnst hafa fjárráðin, verða fyrst í þetta net veiddir. Og hvert er svo þetta fólk, sem hér á hlut að máli? Hinn 1. apríl s.l. lágu fyrir 1.518 umsóknir um íbúðalán hjá húsnæðismálastjórn til íbúða á öllum stigum, og ætti að fullnægja lánaþörf þessa fólks, sem varlega er áætlað 8–10 þús. manns, miðað við 5–7 fjölskyldumeðlimi, vantar um 85 millj. kr. nú þegar, og er þá ótalin fjárþörf byggingarsjóðs Búnaðarbankans til bygginga í sveitum á þessu ári, sem vart mun vera undir 12 millj. kr. Tala þess fólks, sem svo byggir afkomu sína á vinnu við þessar byggingar, iðnlærðra og óiðnlærðra, er óljósari, en þar er einnig um nokkrar þúsundir manna að ræða.
Með því að allar áætlanir um tekjustofna veðlánakerfisins standist, það sem eftir er ársins, þá munu geta orðið til um 14 millj. kr. til úthlutunar, og er þá ekki gert ráð fyrir öllum þeim umsóknum, sem daglega streyma inn til húsnæðismálastofnunarinnar á hverjum degi, síðan fyrrnefnd athugun var gerð og til þess tíma, að næsta úthlutun fer fram.
Sú hækkun, sem frv. þetta gerir ráð fyrir á byggingarefni, mun stórlega auka lánsfjárþörf þessa fólks. Þegar hins vegar er tillit til þess tekið í fyrsta lagi, að engin svör hafa fengizt um, að tryggt verði viðbótarlánsfé til húsnæðismálastjórnar, í öðru lagi, að meginhluti þess fólks, sem hér um ræðir, er með miðlungstekjur og lægri, og ljóst er, að margir hljóta að heltast úr lestinni og verða að hætta, í þriðja lagi, að aukast mun stórlega á hina ónotuðu fjárfestingu í hálfbyggðum húsum, þá er ómögulegt að komast fram hjá þeim eðlilegu afleiðingum slíks ástands, að áður en langur tími líður mun hvort tveggja fylgjast að: aukinn húsnæðisskortur og alvarlegur samdráttur í atvinnulífi byggingarmanna. Það væri rangt að vita þetta, en halda því leyndu.
Nú þekki ég vel svörin sem oftast eru fram borin við þessum atriðum: Fjárfestingin er þjóðfélaginu um megn. Við höfum ekki efni á svo mikilli fjárfestingu o.s.frv. — Nú ætla ég mér ekki að hrekja þessar umsagnir okkar hagspekinga á undanförnum árum, sem sjálfsagt eru vandlega fundnar. Hinn sívaxandi fjöldi hálfbyggðra húsa, sem hafa verið frá 1 til 5 ár í byggingu, er hins vegar staðreynd. Og væri ekki hreinna að stemma á að ósi og banna þessu fólki að byrja á því að byggja hús í stað þess að draga úr byggingarframkvæmdum með lánsfjárskorti og auka þannig enn á tölu hálfbyggðra og ónýttrar fjárfestingar?
Þörfin fyrir stórum aukinn fjölda íbúða er einnig staðreynd. Það er og staðreynd, að efnivörur til bygginga í dag eru almenn neyzluvara og þá helzt fólks með meðallaun og minna.
Ég vitnaði til þess hér áðan, að okurleiga og okurverð húsa hefði verið talið til helztu orsaka verðbólguþróunarinnar á undanförnum árum. Þegar haft er í huga ástand þessara mála nú, lánsfjárskorturinn og svo hækkun sú, sem frv. þetta gerir ráð fyrir á byggingarefni, án fyrirheits um útvegun lánsfjár, þá sýnist mér, að ekki muni líða langur tími, þar til afleiðinganna fer að gæta á ný.
Með því, sem ég nú hef sagt, eru athugasemdir mínar þessar:
1) Frv. sem heild er fráhvarf frá þeirri verðstöðvunarstefnu, sem verkalýðssamtökin vildu styðja og hafa lýst fylgi sínu við.
2) Lánsfjárþörf verksmiðju- og handverksiðnaðar stóreykst vegna hækkaðs tilkostnaðar. 3) Engin svör liggja fyrir um, hvernig á að mæta þessari auknu lánsfjárþörf, þrátt fyrir það að ríkt hefur verið eftir leitað.
4) Áhrifin af hækkun efnivara til byggingariðnaðar munu verða alvarlegur samdráttur í byggingariðnaði, sem gæta mun þegar um áramót og í byrjun næsta árs.
Af framantöldum ástæðum mun ég ekki stuðla að samþykkt frv., heldur greiða atkv. gegn því.