06.04.1959
Efri deild: 95. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1187 í B-deild Alþingistíðinda. (1029)
101. mál, selja jörðina Bjarnastaði í Unadal
Frsm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti. Þetta frv. var flutt í Nd. af þingmönnum Skagf. Það fer fram á að heimila ríkisstj. að selja jörð, sem ríkið á, heitir Bjarnastaðir og er fremsti bær í Unadal í Hofshreppi í Skagafjarðarsýslu. Þetta er eyðijörð, er búin að vera það í nokkur ár, og ég tel og ég held landbn. öll, enda þótt einn nefndarmaður væri ekki viðstaddur á fundinum, þegar málið var afgreitt, að það sé rétt að gera þetta. Jörðin byggist ekki aftur, heldur á að fara undir afrétt, hún liggur upp að afréttinni og í þröngum, litlum dal, og hreppinn vantar tilfinnanlega upprekstrarland.
Nefndin mælir þess vegna með því, að heimilt sé að selja jörðina.