13.02.1959
Efri deild: 69. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1202 í B-deild Alþingistíðinda. (1055)

89. mál, sauðfjárbaðanir

Friðjón Þórðarson:

Herra forsetl. Ég vil byrja á því að leiðrétta ummæli hjá hv. frsm. n. Hann skýrði frá því, að sektir fyrir að baða ekki sauðfé væru 10 kr. og að þær væru aldrei innheimtar. Að vísu eru sektarákvæði í núgildandi lögum mjög lág, það er rétt, þau eru frá 10 til 500 kr., en á það má bæta vísitöluálagl eftir lögum frá 1948, þannig að ég hygg, að engum dómara, sem á annað borð færi út í það að sekta menn fyrir að baða ekki sauðfé sitt, dytti í hug að sekta mann um 10 kr. Og að sektir þessar séu ekki innheimtar, — ja, mér er kunnugt um það, að menn hafa verið sektaðir um nokkur hundruð krónur fyrir að baða ekki, og þær sektir hafa verið innheimtar.

Að öðru leyti vil ég taka það fram, að landbn. hefur fjallað um þetta frv., en nm, hafa ekki orðið sammála um efni þess í öllum atriðum.

Það er til bóta að steypa tvennum lögum, sem nú gilda um þetta efni, saman í ein lög. Það er jafnan aðgengilegra og horfir til bóta.

Aðalbreytingin, sem gert er ráð fyrir að taki gildi samkv. þessu frv., er, að lögskipaðar sauðfjárbaðanir skuli hér eftir aðeins fara fram annan hvern vetur. Þetta nýmæli hefur víða valdið nokkrum ágreiningi. Ég er því andvígur og hef því undirritað nál. með fyrirvara og borið fram brtt. á þskj. 248 þess efnis, að lögskipaðar sauðfjárbaðanir skuli hér eftir sem hingað til framkvæmdar árlega.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, hversu erfiðlega hefur gengið að útrýma fjárkláða á Íslandi. Það hefur ekki tekizt enn, þrátt fyrir ákvæði laga um sauðfjárbaðanir árlega og sérstakar útrýmingarbaðanir. Hlýtur það þó að vera keppikefli allra sauðfjáreigenda og raunar allra landsmanna. Hvort það tekst nú með því að lögleiða tilslakanir í þessum efnum, skal ósagt látið, en ósennilegt verður það að teljast.

Það er ein höfuðröksemd þeirra, sem nú vilja hverfa að því ráði að baða annað hvert ár, að núgildandi lögum hafi verið illa framfylgt, menn hafi komizt hjá því að hlýða lögunum. Þá á að gefa eftir. Hér er svipað að farið og ef foreldrar semdu um það við kjarkmikil, en fremur óstýrilát börn sín, að þau þyrftu ekki að þvo sér nema annan hvern dag, af því að þau nenntu ekki að standa í því að láta þau þvo sér daglega.

Þegar hin stórfelldu fjárskipti fóru fram á árunum 1944–52, mun hafa verið reynt eftir megni að útrýma fjárkláðanum, einkum á Vestfjörðum, en þaðan voru líflömb keypt haust eftir haust og flutt víðs vegar um landið og dreift um fjárskiptasvæðin. Þrátt fyrir útrýmingarbaðanir og árlegar þrifabaðanir á þessu svæði, — sem mér er að vísu ókunnugt um, hvernig framkvæmdar hafa verið, — hefur gengið erfiðlega að halda fjárkláðanum í skefjum, og enn leynist hann einhvers staðar á Vestfjörðum. Að minnsta kosti hefur hann borizt til Dalasýslu með lömbum, sem þar voru keypt á síðustu árum.

Frv. þetta var sent til umsagnar sýslunefnda s.l. vor. Á aðalfundi sýslunefndar Dalasýslu var samþ. að mæla með frv. að öðru leyti en því, að rétt var talið, að þrifabaðanir færu fram árlega. Það má vel vera, að afstaða sýslunefndar Dalasýslu hefði orðið önnur, ef menn hefðu ekki rekið sig á, að þeir höfðu fengið þennan hvimleiða vágest í kaupbæti við síðustu lambakaup á Vestfjörðum, — einmitt af því svæði, sem átti að vera kjörið til að útrýma fjárkláða af með nútíma baðlyfjum, áður en líflömbum væri dreift þaðan víðs vegar um byggðir landsins. Það skal ósagt látið, hverjum hér er um að kenna, en menn verða að horfast í augu við þá staðreynd, að enn hefur ekki tekizt að hreinsa íslenzkan fjárstofn af þessum óþrifum, og meðan svo er, má ekkert tækfæri láta ónotað til að kveða þau niður fyrir fullt og allt.