06.04.1959
Neðri deild: 101. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í B-deild Alþingistíðinda. (1080)

126. mál, veiting ríkisborgararéttar

Pétur Pétursson:

Herra forseti. Allshn. þótti rétt að gera brtt., sem hér er birt á þskj. 344, þess efnis að bæta við frv. nöfnum tveggja manna, sem hafa sótt um ríkisborgararéttinn nokkru síðar ,en hin erindin komu. Þessir menn uppfylla þau skilyrði að öllu leyti, sem n. hefur farið eftir og prentuð eru með frv., og því leggur n. til, að þessum tveimur nöfnum sé nú bæt inn á listann.