09.12.1958
Efri deild: 33. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í B-deild Alþingistíðinda. (109)
62. mál, almannatryggingar
Utanrrh. (Guðmundur Í. Guðmundsson):
Herra forseti. Á nýliðnu sumri urðu nokkrar launahækkanir í landinu hjá verkamönnum og iðnaðarmönnum umfram þau 5%, sem ákveðin voru til hækkunar með lögunum um útflutningssjóð. Fyrir nokkru var einnig samþykkt ályktun í sameinuðu Alþingi, sem gerði ráð fyrir því, að opinberir starfsmenn fengju hliðstæða hækkun við þá almennu launahækkun, sem varð á s.l. sumri. Það hefur verið venja, að helztu bótagreinar almannatrygginga fylgdu eftir launahækkunum og þá sérstaklega launahækkunum til opinberra starfsmanna. Þegar þál. var afgreidd í Sþ. um launahækkun til opinberra starfsmanna, var því lýst yfir, að ríkisstj. hefði í undirbúningi frv. til laga, sem heimilaði hliðstæðar hækkanir frá almannatryggingum til bótaþega. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er fram borið til þess að fullnægja þeirri yfirlýsingu. Gert er ráð fyrir í frv., að helztu bótagreinar almannatrygginga hækki frá 1. sept. 1958 um 9½%. Þær bótagreinar, sem hér er um að ræða, eru ellilífeyrir, örorkulífeyrir og barnalífeyrir svo og aðrar þær bætur, sem miðaðar eru við elli- og örorkulífeyri, en þær eru makabætur, mæðralaun, ekkjulífeyrir, uppbót á elli- og örorkulífeyri, allt að 100%, svo og slysabætur, þegar um er að ræða varanlega örorku eða dauða.
Nokkrar bótagreinar eru undanþegnar, eins og yfirleitt hefur verið venja, þegar stofnað hefur verið til hækkana með svipuðum hætti og nú, en þær bótagreinar eru fjölskyldubætur, fæðingarstyrkur, 3 og 9 mánaða bætur til ekkna, slysabætur og vissar viðbótardánarbætur.
Útgjaldaaukning sú, sem af þessum hækkunum leiðir, er um 4 millj. kr. fyrir tímabilið frá 1. sept. til ársloka 1958, en fyrir allt árið 1959 er talið, að heildarhækkunin nemi um 11 millj. kr. Af þessum upphæðum kemur 1/3 hluti í hlut ríkissjóðs að greiða.
Ég hygg, að það sé ekki fleira, sem ástæða er til að taka fram um þetta frv. að svo stöddu. En með því að tíminn er orðinn nokkuð naumur til útborgunar fyrir Tryggingastofnun ríkisins, vildi ég mega óska eftir því, að hægt væri að hraða málinu hér í þessari hv. deild og legg til, að því verði vísað til 2. umr. og heilbr.- og félmn.