21.04.1959
Neðri deild: 113. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1218 í B-deild Alþingistíðinda. (1117)
81. mál, bæjarstjórn í Hafnarfirði
Forsrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Það hefur nú orðið nokkur dráttur á afgreiðslu þessa máls, og liggja til þess þær ástæður, að skömmu eftir að frv. var fram borið, bárust andmæli gegn því frá hreppsnefnd Garðahrepps. Eftir að það varð ljóst, að ekki var fullt samkomulag á milli bæjarstjórnar Hafnarfjarðar annars vegar og hreppsnefndar Garðahrepps hins vegar um mörkin á milli lögsagnarumdæmanna, kom það í ljós, að æði margir alþm. ræddu við mig um það, að erfitt væri fyrir þá að afgreiða málið, án þess að samkomulag á milli þessara tveggja málsaðila lægi fyrir.
Það var þess vegna í það farið að freista að ná þessu samkomulagi, og það tókst. Samkomulagið er á þá lund, að tvö lítil svæði, sem upphaflega voru tekin inn í frv. sem hluti af væntanlegu lögsagnarumdæmi Hafnarfjarðar, eru felld í burtu og verða áfram í Garðahreppi. Þessi svæði eru annað á vesturmörkum kaupstaðarins, en hitt á suðurmörkunum. Á vesturmörkunum liggja nú þegar nokkur hús, og þar búa nokkrir menn, sem hafa um skeið verið taldir til Garðahrepps, þó að það kunni að orka tvímælis, hvort þeir eigi þar að vera eða ekki. Til samkomulags var af meiri hluta bæjarstjórnar á það fallizt, að þetta svæði yrði áfram innan Garðahrepps. Hitt svæðið, á suðurmörkum kaupstaðarins, er ekki byggt af neinum, en um það er það að segja, að þar er nokkur ágreiningur um mörk á eignarlandi Hafnarfjarðarkaupstaðar, og til þess að blanda ekki þeim deilum inn í þetta mál, sem ekkert koma því við, var á það fallizt að breyta suðurmörkunum lítillega til þess að forðast deilur út af þessu atriði. En vitaskuld breytir það engu um kröfur Hafnarfjarðarkaupstaðar í sambandi við mörk eignarlandsins, sem er annað, en takmörk lögsagnarumdæmisins, þannig að þó að nokkur hluti sé þar undanskilinn lögsagnarumdæminu, mun Hafnarfjarðarkaupstaður eftir sem áður halda fram sínum rétti til eignar á landinu. Þetta eru tveir litlir skikar, og má segja, að þeir hafi ekki mikla þýðingu til né frá í þessu sambandi.
En í 1. gr. frv. er sérstakur kafli, merktur b, sem líka hefur verið felldur niður, en það eru ræktunarlönd, sem Hafnarfjarðarbær á sínum tíma fékk á leigu hjá ríkissjóði með sérstökum lögum, og þar með heimild til þess að innlima þau lönd í lögsagnarumdæmið. Til þess að koma málinu áfram og firra vandræðum hefur nú verið fallið frá því að gera nú kröfu um innlimum þessa lands, heldur verður það áfram í Garðahreppi, þó að landið sé í umsjá Hafnarfjarðarkaupstaðar eða m.ö.o. hann hafi það á leigu frá ríkissjóði.
Ég fyrir mitt leyti tel, að það hafi verið skynsamlegt og eðlilegt að fallast á það samkomulag, sem gert hefur verið, frekar en að halda málinu óbreyttu til streitu, eins og hv. 6. landsk. þm. virtist vilja gera, enda meiri hl. bæjarstjórnar Hafnarfjarðar, sem vildi vinna það til samkomulagsins og til þess að fá málið örugglega fram að láta af hendi þessa skika, sem gert er ráð fyrir í brtt. nefndarinnar.
Ég tel líka, að ef ekki hefði verið til samkomulagsins gengið, hefði verið stefnt í fulla tvísýnu um afgreiðslu málsins og kannske öllu meiri líkur til, að ekki hefði náðst meiri hluti fyrir samþykkt þess, a.m.k. eftir þeim upplýsingum, sem ég hafði um það hjá ýmsum hv. alþm., sem ræddu við mig um málið.
Ég tel þess vegna, að það hafi verið rétt og skynsamlegt að fara þessa samkomulagsleið, og er henni samþykkur. Ég vil þess vegna vænta nú, þegar þessum ágreiningi við Garðahrepp er rutt úr vegi og algert samkomulag um málið, að þá hljóti það héðan af skjóta afgreiðslu.