15.12.1958
Efri deild: 38. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1223 í B-deild Alþingistíðinda. (1137)
65. mál, virkjun Sogsins
Björn Jónsson:
Herra forseti. Eins og hæstv. forseti hefur lýst, hef ég leyft mér að flytja ásamt hv. 1. þm. N-M. brtt. við þetta frv. þess efnis, að 2. málsgr. 1. gr. falli niður, og eru til þess nokkrar ástæður, sem ég vil skýra ofur lítið.
Þetta mál snýst um það, hvernig afla skuli 30 millj. kr. lánsfjár til greiðslu tolla af innflutningi efnis til Sogsvirkjunarinnar. Ég tel ekki með öllu óeðlilegt eftir atvikum, að þessa fjár sé aflað með útgáfu skuldabréfa, eins og gert er ráð fyrir í 1. og 3. málsgr. 1. gr. frv., en er hins vegar algerlega andvígur þeirri aðferð, sem viðhafa á skv. 2. málsgr.
Þessi skuldabréf, sem þarna á að gefa út, eiga að vera verðtryggð, en þó ekki í samræmi við almennt verðlag í landinu, heldur í samræmi við rafmagnsverðsvísitölu. Það á ekki að verðtryggja þessi bréf í samræmi við framfærsluvísitölu, eins og verið hefur um þau einu skuldabréf, sem hingað til hafa verið gefin út verðtryggð í landinu, heldur verð á ákveðinni þjónustu, sem innt er af hendi. Ég held, að með þessu fyrirkomulagi væri farið út á mjög hálan ís, að ekki sé meira sagt, og skapað fordæmi, sem gæti leitt af sér margs konar vandkvæði, ef farið væri lengra út í svipaða sálma. Ég tel þetta vera mjög vanhugsað, og raunar hreina fásinnu.
Ég veit ekki, við hvað helzt mætti jafna þessu, — það væri þá kannske það, ef fyrirtæki eins og mjólkursamsalan þyrfti á lánsfé að halda til byggingar mjólkurstöðvar eða einhvers því um líks og gæfi þá út skuldabréf, sem væru miðuð við verð á mjólk. Síðan gætu önnur fyrirtæki komið með kjötvísitölu o.s.frv. endalaust. Ég held, að ef verðtryggja á innstæðufé eða lánsfé, verði að gilda um það sömu reglur í öllum tilfellum, en ekki mismunandi eftir því, til hvers féð á að fara.
Auðvitað er verðtrygging á lánsfé og innstæðufé mál út af fyrir sig, stórmál, sem ýmsir hafa verið að tæpa á að undanförnu vegna hinnar vaxandi verðbólgu og þeirra vandræða, sem hún skapar fyrir þá, sem eiga sparifé. En ef út í slíkt væri farið, þá held ég, að engum gæti blandazt hugur um, að það yrði að gilda ein og sama verðtrygging fyrir allt innstæðufé og allt lánsfé.
í grg þessa frv. er frá því skýrt, að viss fyrirgreiðsla, sem ekki er þó fyllilega skilgreind, af hálfu seðlabankans sé háð því, að þessi skuldabréf séu verðtryggð á þann hátt, sem í frv. er gert ráð fyrir. Ég held, að það leyni sér ekki af því, sem segir í grg., og af því, sem fram hefur komið á öðrum vettvangi, að þarna mun vera átt við það, að seðlabankinn muni kaupa verulegan hluta þessara skuldabréfa eða að minnsta kosti það, sem ekki selst á venjulegum verðbréfamarkaði.
Ég verð að segja, að mér finnst það algerlega óframbærilegt, að lánsfé seðlabankans verði fyrst verðtryggt af öllu lánsfé í landinu. Ég held, að það væri miklu meiri sanngirni og miklu meiri þörf í því, að aðrir yrðu þar á undan, t.d. almennir sparifjáreigendur. Það er vitað, að seðlabankinn tekur mikið fé, milljónatugi, af atvinnuvegum þjóðarinnar umfram þarfir, og ég tel þess vegna algerlega fráleitt, að hann verði settur skör hærra. en allir aðrir, sem eiga fé, og að hans fé verði þannig tryggt umfram allt annað.
Enn er sú ástæða til þess, að ég er andvígur þessum hluta frv., að til þessa hefur aðeins ein stofnun í landinu notið þeirra forréttinda að mega gefa út vísitölutryggð eða verðtryggð skuldabréf, en það er húsnæðismálastofnunin eða Landsbankinn fyrir hennar hönd. Ég tel, að ef önnur stofnun á þarna einnig að koma með verðtryggð bréf inn á markaðinn, þá geti það ekki leitt til annars en þess, að þessi stofnun verði ófærari en ella um að sinna sínu ætlunarverki, þ.e.a.s. að ráða bót á húsnæðisleysinu og húsnæðisbölinu í landinu. Af þeirri ástæðu einnig er ég á móti þessari málsgr. frv.
Ég tel það líka algerlega óviðeigandi, að seðlabankinn, sem á að réttu lagi að vera undir stjórn ríkisstj. á hverjum tíma, setji Alþ. og ríkisstj. skilyrði um það, hvernig stofnanir, sem heyra undir ríkið, leiti sér lánsfjár. Ég tel miklu nær lagi, að ríkisstj. geti fyrirskipað seðlabankanum að lána fé með eðlilegum hætti, ef hann hefur það á annað borð handbært, til þeirra hluta, sem hér um ræðir, eða annarra. Ég held, að það sé ríkisstj., sem á að ráða seðlabankanum, en ekki öfugt. Ég hefði eftir atvikum talið, að eðlilegt væri, að þetta mál hefði beðið fyrirgreiðslu ábyrgrar ríkisstj. Það mun vera upplýst, að málið líður enga nauð og framkvæmdir við Sogsvirkjunina stöðvast ekki, og ríkissjóður mun heldur ekki bíða neitt óbætanlegt tjón af því, þótt þetta mál bíði um sinn, og væri það sæmra, ef ekki er hægt að leysa það með öðrum hætti en þeim, sem hér er lagt til.