04.05.1959
Efri deild: 112. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1557 í B-deild Alþingistíðinda. (1232)
144. mál, stjórnarskipunarlög
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Í þeim orðum, sem ég segi við þessa 1. umr. kjördæmamálsins, mun ég í fyrsta lagi leitast við að rekja í stórum dráttum þróun kjördæmaskipunarinnar og kosningafyrirkomulagsins hér á landi, allt frá því að Alþingi var endurreist árið 1845. Verður að telja gagnlegt að hafa þá sögu til hliðsjónar nú, þegar stíga á stórt skref é þá átt að treysta grundvöll íslenzks þingræðis og lýðræðis og gera löggjafarsamkomuna þar með hæfari til þess að rækja hið mikilvæga hlutverk sitt.
Í öðru lagi mun ég taka til athugunar nokkur þau atriði, sem fram komu í ræðum þeirra tveggja hv. þm., sem fluttu allýtarlegar ræður um málið s.l. laugardag, þeirra hv. þm. Str. (HermJ) og hv. þm. Barð. (SE).
Síðan hið endurreista Alþingi kom fyrst saman, eru nú liðin 114 ár. Á þessu tímabili hefur orðið örhröð þróun á öllum sviðum íslenzks þjóðlífs. Á sviði bjargræðisvega landsmanna má segja, að hrein atvinnubylting hafi átt sér stað. Landbúnaðurinn, hinn gamli undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar allt frá upphafi byggðar hennar á Íslandi, sem fyrir hundrað árum var rekinn á frumstæðan hátt með órækt og engjar að grundvelli, er nú byggður á ræktun og vélabúskap.
Sjávarútvegurinn hefur fengið fullkomin vélskip og togara í stað árabáta og smáseglskútna. Fiskiðnaðurinn er orðinn ein aðalframleiðslugrein landsmanna. Fjölþættur iðnaður er vaxinn upp. Á sviði félags-, samgöngu- og menningarmála hefur þróunin ekki síður orðið ör.
Frá því að Alþingi var endurreist, hefur Íslendingum fjölgað úr um það bil 60 þúsund manns í rúmlega 170 þúsundir.
Á stjórnmálasviðinu hafa einnig orðið stórfelldar breytingar. Stjórnmálaflokkar hafa myndazt og horfið, nýir hafa komið í staðinn. Flokkaskiptingin hefur miðazt við verkefnin og aðstöðuna á hverjum tíma. Á tímabili sjálfstæðisbaráttunnar miðaðist flokkaskiptingin fyrst og fremst við baráttu við yfirþjóðina og við það, hversu hratt menn treystu sér til þess eða vildu sækja fram í baráttunni fyrir pólitísku sjálfstæði.
Í þann mund, er hillir undir fullveldisviðurkenninguna, riðlast gömlu flokkarnir, og nýir flokkar koma í þeirra stað. Þá miðast flokkaskiptingin í vaxandi mæli við afstöðuna til hinnar efnahagslegu uppbyggingar, félagslegs öryggis, og á síðustu árum, er hún tekin að mótast talsvert af viðhorfunum í utanríkis- og alþjóðamálum.
Þegar litið er á þær stórfelldu breytingar, sem orðið hafa á tímabilinu, síðan Alþingi var endurreist, í atvinnu-, félags- og efnahagsmálum, sætir það engri furðu, þótt mynd og skipan sjálfrar löggjafarsamkomunnar hafi einnig breytzt verulega. Það kom eðlilega í hlut Alþingis að standa í fararbroddi í senn í sjálfstæðisbaráttunni og í baráttunni fyrir efnahagslegri viðreisn og uppbyggingu þjóðfélagsins. Nýir tímar fólu í sér nýjar þarfir. Hinar síbreytilegu þjóðlífsaðstæður gerðu stöðugt nýjar kröfur til löggjafarsamkomunnar, starfshátta hennar og skipunar.
Í þessu sambandi má það ekki heldur gleymast, að Íslendingar réðu ekki sjálfir skipun hinnar endurreistu löggjafarsamkomu. Erlent konungsvald yfirþjóðarinnar réð öllu um svip hennar, kosningatilhögun, kjördæmaskipun og sjálfa skipan þingsins, sem í upphafi var aðeins ráðgefandi samkoma. Verður og augljóst, þegar þingsagan er athuguð og litið yfir störf Alþingis árið 1845, að mikillar óánægju hefur gætt, ekki aðeins meðal hinna nýkjörnu fulltrúa, heldur og meðal þjóðarinnar almennt um skipan þingsins.
Baráttan fyrir breyttri kjördæmaskipun og kosningatilhögun hefst þannig þegar á hinu fyrsta endurreista Alþingi. Til þingsins bárust þá hvorki meira né minna, en 17 bænaskrár, og er í langsamlega flestum þeirra farið fram á fjölgun þingmanna, aukin réttindi til handa almenningi í landinu og bætta aðstöðu til að hafa áhrif á skipan þess.
Ég tel það ómaksins vert að minnast nokkuð á efni einstakra bænaskráa, sem bárust úr öllum landsfjórðungum.
Eins og kunnugt er, áttu 20 þjóðkjörnir þm. sæti á Alþingi árið 1845. Þar að auki áttu þar sæti 6 konungkjörnir þm., sem konungur útnefndi til setu þar. Fyrsta bænaskráin, sem lögð var fram á þinginu, var frá íslenzkum menntamönnum í Kaupmannahöfn. Var hún lögð fram og lesin af Jóni Sigurðssyni, þm. Ísafjarðarsýslu. Í þessari bænaskrá var lagt til, að þm. yrðu samtals 42. Jón Sigurðsson komst þannig að orði í sambandi við þessa bænaskrá, að „allir væru á einu máli um, að kosningalögin þurfi bráðrar og góðrar umbótar“. Hann kvað málið vera eitt af hinum mikilvægustu, sem upp yrðu borin á þessu þingi.
Úr Norður-Múlasýslu barst bænaskrá, þar sem farið var fram á, að þjóðkjörnum þm. yrði fjölgað um 8, og úr Suður-Múlasýslu um, að þjóðkjörnum þm. yrði fjölgað um 6. Úr Rangárvallasýslu barst bænaskrá um, að þjóðkjörnum þm. yrði fjölgað um 10, og Árnesingar óskuðu sömu fjölgunar á þjóðkjörnum þm.
Úr Barðastrandarsýslu barst bænaskrá um, að þjóðkjörnum þm. yrði fjölgað upp í 42 og þm. yrðu þannig samtals 48.Úr Ísafjarðarsýslu barst ósk um, að þjóðkjörnum þm. yrði a.m.k. fjölgað upp í 38. Úr Strandasýslu barst bænaskrá um, að þjóðkjörnir þm. yrðu 40, 2 fyrir hverja sýslu og 2 fyrir Reykjavík, sem átti einn fulltrúa á hinu endurreista Alþingi.
Eyfirðingar sendu og bænaskrá, þar sem þess var óskað, að þjóðkjörnir þm. yrðu 42, og Suður-Þingeyingar óskuðu þess, að tala hinna þjóðkjörnu þm. yrði sömuleiðis 42, en vildu fækka hinum konungkjörnu niður í 3.
Af þessum bænaskrám verður það augljóst, að það er sameiginleg skoðun Íslendinga, þegar er Alþingi hefur verið endurreist, að þm. þurfi að fjölga verulega, til þess að það geti gegnt hinu mikilvæga hlutverki sínu, og að rýmka beri verulega um kosningarréttinn. Sérstaklega er mönnum það þyrnir í augum, að kosningarrétturinn sé bundinn við verulegar fasteignir.
Árangurinn af þeirri baráttu, sem almenningur í landinu hefur fyrir réttlátari og eðlilegri skipun Alþingis þegar í upphafi sjálfstæðisbaráttunnar, kemur fram í fjölmörgum breytingum, sem síðan hafa verið gerðar á kjördæmaskipuninni og skipan Alþingis. Þjóðin hefur þannig mótað mynd Alþingis í hendi sér með það mark og mið fyrst og fremst fyrir augum að gera það sem hæfast til þess að fara með forustu í baráttunni fyrir auknu frelsi og sjálfstæði og síðar fyrir efnahagslegri viðreisn og uppbyggingu.
Sú skoðun hefur alltaf verið ríkjandi á öllu því tímabili, siðan löggjafarsamkoman var endurreist, að óhjákvæmilegt væri að miða skipan hennar við þjóðfélagsaðstæðurnar á hverjum tíma. Hið erlenda vald reyndi að sjálfsögðu oft og lengi að standa gegn eðlilegum kröfum þjóðarinnar um umbætur á skipan þingsins, en baráttunni var haldið áfram, og ekkert megnaði að stöðva heilbrigða þróun og sjálfstætt mat hverrar kynslóðar á þörfum sínum og aðstöðu. Hver kynslóð hlýtur að hafa hliðsjón af reynslunni, en hún fer engu að síður sínar eigin götur. Þannig hefur þetta verið, og þannig mun þetta verða, enda þótt margir eigi erfitt með að skilja það. Í hverju þjóðfélagi eru alltaf til margir menn, sem skilja ekki þörf breytinganna, þróunarinnar, sem er lögmál lífsins.
Ef litið er á þær breytingar, sem orðið hafa á kjördæmaskipuninni, frá því að Alþingi var endurreist, kemur m.a. þetta í ljós:
Árið 1857 er fyrsta breytingin gerð á kjördæmaskipuninni. Þá var Skaftafellssýslu skipt í tvö kjördæmi. Kjördæmin voru þá orðin 21, og þjóðkjörnir þm. jafnmargir. Á tímabilinu 1859–1873 áttu því sæti 27 þm. á Alþingi, þar af 6 konungkjörnir.
Önnur breytingin á kjördæmaskipuninni er gerð með stjórnarskránni árið 1874. Þá var tala þjóðkjörinna þm. ákveðin 30 og jafnframt ákveðið, að Gullbringu- og Kjósarsýsla, Ísafjarðarsýsla með Ísafjarðarkaupstað, Húnavatnssýsla, Skagafjarðarsýsla, Eyjafjarðarsýsla með Akureyrarkaupstað, Þingeyjarsýsla, Norður-Múlasýsla, Suður-Múlasýsla, Skaftafellssýsla, Rangárvallasýsla og Árnessýsla skyldu hver um sig kjósa tvo þm. Urðu kjördæmin þá 19, 11 tvímenningskjördæmi og 8 einmenningskjördæmi. Tala þm. er þá samtals 36.
Þriðja breytingin er gerð árið 1877, en þá er Þingeyjarsýslu og Skaftafellssýslu aftur skipt í tvö kjördæmi hvorri, eins og áður hafði verið. Kjördæmin eru þá 21, 9 tvímenningskjördæmi og 12 einmenningskjördæmi. Hélzt þessi kjördæmaskipun í 25 ár eða til ársins 1902.
Ísafjarðarsýslu er svo skipt í tvö kjördæmi árið 1902. Er það fjórða breyting kjördæmaskipunarinnar. Þingmannatalan hélzt þá óbreytt.
Fimmta breytingin er gerð með stjórnskipunarlögunum 1903, en þá var þjóðkjörnum þingmönnum fjölgað um 4, úr 30 upp í 34, og þrjú ný kjördæmi lögákveðin, Ísafjarðarkaupstaður, Akureyrarkaupstaður og Seyðisfjarðarkaupstaður, sem hver skyldi kjósa einn þm., og enn fremur var einum þm. bætt við Reykjavík, sem nú kaus 2 þm. Samtals voru nú kjördæmin orðin 25, 9 tvímennings- og 16 einmenningskjördæmi, og þm. eru þá samtals orðnir 40. Árið 1901 voru íbúar landsins orðnir um 78 þús. Búa tæplega 63 þús. þeirra í sveitum, 8.800 í kaupstöðum og verzlunarstöðum með yfir 500 íbúa og 6.600 í Reykjavík.
Árið 1920 er svo sjötta breyting kjördæmaskipunarinnar samþ. Þá er þm. Reykjavíkur fjölgað um tvo, upp í 4, og jafnframt ákveðið, að þeir skuli allir kosnir með hlutfallskosningu.
Sjöunda breytingin á kjördæmaskipuninni er gerð árið 1922, þegar Húnavatnssýslu er skipt í tvö kjördæmi, Vestur-Húnavatnssýslu og Austur-Húnavatnssýslu.
Áttunda breytingin er gerð, þegar Gullbringu- og Kjósarsýslu er skipt í tvö kjördæmi árið 1928. Er þá Hafnarfjarðarkaupstaður gerður að sjálfstæðu kjördæmi.
Með nýju stjórnskipunarlögunum, er tóku gildi 19. júní 1915, hafði konungkjörið einnig verið lagt niður, en landskjör sett í staðinn. Var þá ákveðið, að í stað hinna 6 konungkjörnu þm. skyldu kjörnir 6 þm. með hlutfallskosningu um land allt. Er þetta níunda breytingin, sem gerð er á kjördæmaskipuninni.
Tíunda breytingin er svo gerð með breytingu á stjórnarskránni árið 1934. Þá er landskjörið lagt niður, 2 þm. bætt við Reykjavík, svo að þm. Reykjavíkur urðu þá 6, og þm. í heild fjölgað úr 42 í allt að 49. Jafnhliða var þá tekið í lög, að auk 38 kjördæmakosinna þm. skyldu eiga sæti á Alþingi allt að 11 þm. til jöfnunar milli þingflokka, þannig að hver þeirra hafi þingsæti í sem fyllstu samræmi við atkvæðatölu sína við almennar kosningar.
Ellefta breytingin, sem gerð er á kjördæmaskipuninni, er svo gerð árið 1942. Þá er þm. Reykjavíkur fjölgað um 2, úr 6 upp í 8. Siglufjarðarkaupstaður verður þá sérstakt einmenningskjördæmi, og hlutfallskosningar eru teknar upp í tvímenningskjördæmunum. Jafnframt er haldið áfram fyrri ákvæðum um úthlutun allt að 11 uppbótarþingsæta til jöfnunar milli flokka.
Þetta er sú kjördæmaskipun, sem við búum við í dag. Byggist hún á ferns konar kosningafyrirkomulagi. Í fyrsta lagi er 21 þm. kjörinn í einmenningskjördæmum, 8 eru kjörnir í Reykjavik með hlutfallskosningu, 12 eru kosnir með hlutfallskosningu í 6 tvímenningskjördæmum, og 11 eru landskjörnir þm., sem þingflokkunum er úthlutað til jöfnunar milli flokka.
Ég hef nú í höfuðdráttum gert grein fyrir þeim breytingum, sem gerðar hafa verið á kjördæmaskipun landsins, allt frá því að Alþingi var endurreist. Megintilgangur þessara breytinga, eins og ég hef áður bent á, hefur verið sá að gera Alþingi sem hæfast til þess að gegna hlutverki sínu og vera rétt mynd af vilja þjóðarinnar á hverjum tíma. En þrátt fyrir þessar breytingar fer því þó víðs fjarri, að löggjafarsamkoman geti í dag talizt rétt mynd af vilja íslenzku þjóðarinnar. Lagfæringarnar, sem gerðar voru á kjördæmaskipuninni á árinu 1903, 1915, 1920, 1934 og síðast árið 1942, voru að vísu stór spor í rétta átt. Hjá þeim breytingum varð ekki komizt, og þær bættu á sínum tíma úr miklu óréttlæti og hafa átt sinn þátt í því, að löggjafarsamkoman hefur verið í tengslum við þjóðarviljann og hefur getað haft heilladrjúga forustu um mál þjóðarinnar út á við og inn á við.
Misréttið í núverandi skipun Alþingis sést greinilegast, þegar athuguð eru úrslit síðustu alþingiskosninga, sem fram fóru árið 1956. Sjálfstfl. fékk þá 35.027 atkv. og 42.4% atkvæða, en hann fékk aðeins 19 fulltrúa á Alþingi. Framsfl., sem hlaut 12.925 atkv. og 15.6% kjósenda, hlaut hins vegar 17 þingsæti. Alþfl., sem hlaut 15.153 atkv, og 18.3% kjósenda, fékk 8 þingsæti, og Alþb., sem hlaut 15.859 atkv. og 19.2% kjósenda, hlaut 8 þm. kjörna. Í þessum kosningum höfðu Framsfl. og Alþfl. með sér kosningabandalag, svokallað Hræðslubandalag. Bandalag þessara tveggja flokka hlaut samtals 33.9% kjósenda, en 25 þm. kjörna. Munaði minnstu, að þessir tveir flokkar og bandalag þeirra hlytu meiri hluta á Alþingi með aðeins rúmlega þriðjung kjósenda á bak við sig. Er þetta vissulega táknræn mynd af ófullkomleika íslenzks lýðræðis og þingræðis í dag.
Núverandi kjördæmaskipun felur ekki aðeins í sér misrétti milli strjálbýlis og þéttbýlis, heldur milli strjálbýliskjördæmanna innbyrðis. Sést það greinilega, ef athugaðar eru nokkrar tölur, Á Seyðisfirði greiddu við seinustu kosningar 410 kjósendur atkv., í Austur-Skaftafellssýslu 711 og í Vestur-Húnavatnssýslu 740. Á Akureyri greiddu hins vegar atkvæði 4.197, í Gullbringu- og Kjósarsýslu tæp 7.000 og í Borgarfjarðarsýslu rúmlega 2.400. En öll þessi kjördæmi kusu jafnmarga fulltrúa á Alþing, þau fengu sinn þm. hvert.
Það frv., sem hér liggur fyrir um breytingu á kjördæmaskipuninni, felur þess vegna ekki aðeins í sér viðleitni til þess að leiðrétta misrétti gagnvart íbúum þéttbýlisins, heldur einnig það misrétti, sem ríkir milli kjördæma strjálbýlisins innbyrðis. Með frumvarpi því, sem hér liggur fyrir, er lagt til, að öllu landinu verði skipt í 8 kjördæmi. Meginstefna þess er, að strjálbýlið haldi þeirri fulltrúatölu, sem það hefur nú, en hins vegar verði fjölgað í þéttbýlinu. Í tveimur hinna nýju kjördæma utan Reykjavíkur, Miðvesturlandskjördæmi og Norðurlandskjördæmi eystra, er þm. þó fjölgað um einn í hvoru. Hins vegar er fækkað um einn þm. á Austurlandi, þar sem fæstir kjósendur standa á bak við hvern þm.
Í þessu sambandi vil ég vekja athygli á því, að það er auðvitað hinn mesti misskilningur, að með þessu séu Seyðfirðingar, sem búa í minnsta kjördæminu á Austurlandi, sviptir þm. sínum. Það kjördæmi, sem Seyðisfjörður verður í, Austurlandskjördæmi, á að kjósa 5 þm., og hljóta Seyðfirðingar auðvitað að eiga sinn hluta í þessum fulltrúum, og þeir geta eftir breytinguna snúið sér til 5 þm., sem ber skylda til þess að gæta hagsmuna þeirra og berjast fyrir þeim. Áður höfðu Seyðfirðingar aðeins einn þm., sem bar sérstök skylda til þess að gæta hagsmuna þeirra á Alþingi. Má því segja, að réttur þeirra hafi verið verulega aukinn, en ekki tekinn af þeim, eins og hv. framsóknarmenn vilja vera láta.
Þá er samkv. frv. þessu lagt til, að þm. Reykjavíkur verði fjölgað úr 8 upp í 12 og að þm. Reykjanesskagans verði fjölgað um 3, þannig að þau byggðarlög, sem nú eru í Gullbringu- og Kjósarsýslu og Hafnarfirði og kjósa 2 þm., kjósi framvegis 5 þm. En í þessum landshluta hefur fjölgun íbúanna orðið hvað mest utan Reykjavíkur á undanförnum árum.
Ég skal ekki rekja efni þessa frv. frekar, enda hefur það verið gert áður. En ég leyfi mér að benda á það, að ágreiningsatriði milli þeirra þriggja flokka, sem þetta frv. flytja, og andstæðinga málsins, Framsfl., eru nú orðin miklu færri, en þau voru fyrir tiltölulega skömmum tíma. Flm. þessa frv. leggja til, að tala þm. verði samtals 60, 49 kjördæmakosnir og 11 uppbótarþm. Framsfl. leggur til, að þm.- talan verði hin sama og gert er ráð fyrir í þessu frv. Hann vill aðeins hafa uppbótarþingsætin einu færra, 10 í stað 11. Jafnframt leggur Framsfl. til, að kjördæmakosnir þm. verði 50. Um þetta atriði er því óþarfi að della. Í frv. er einnig lagt til, að þm. Reykjavíkur verði fjölgað um 4. Framsóknarmenn leggja einnig til, að þm. höfuðborgarinnar verði fjölgað um sömu tölu. Ekki getur þessi fjölgun til höfuðborgarinnar því valdið miklum ágreiningi, úr því sem komið er. Í frv. er lagt til, að þm. Reykjanesskagans verði fjölgað um 3 upp í 5. Framsóknarmenn leggja til, að þessi landshluti fái sömu þingmannatölu. Í till. framsóknarmanna er einnig gert ráð fyrir, að hlutfallskosningarnar, sem upp voru teknar í tvímenningskjördæmunum árið 1942, haldist.
Hvað er þá orðið eftir af sérstöðu Framsfl. í þessu máli? Hann vill fjölga þm. jafnmikið í þéttbýlinu og flm. þessa frv. leggja til. Hann vill enn fremur halda hlutfallskosningunni í tvímenningskjördæmunum. Og loks lýsir hann því yfir, að hann sé fylgjandi því, að úthlutað verði svo að segja sömu tölu uppbótarþingsæta og gert er ráð fyrir í þessu frv. Hvernig getur Framsfl., eftir að hafa markað þessa stefnu, talið þetta frv. fela í sér stórkostlega réttindaskerðingu fyrir strjálbýlið og þá fyrst og fremst fyrir sveitirnar? Í hverju er sú stórkostlega hætta fólgin, sem hann sífellt talar um að nú vofi yfir strjálbýlinu? Það, sem eftir stendur af sérstöðu Framsfl., er aðeins andstaða hans gegn hlutfallskosningunum. En einnig því sjónarmiði sínu hefur Framsfl. reynzt ótrúr. Hann leggur til, að haldið verði hlutfallskosningu í Reykjavík og í tvímenningskjördæmunum og upp tekin hlutfallskosning á Akureyri, þar sem hann leggur til að 2 þm. verði kjörnir. Engum getur blandazt hugur um það, hver er raunveruleg ástæða þessarar afstöðu Framsfl. Í Reykjavík og á Akureyri getur hann haft hag af því, unnið á því þingsæti, að kosið sé með hlutfallskosningum. Þar vill Framsfl. hafa hlutfallskosningu. Í öðrum landshlutum og þá fyrst og fremst í einmenningskjördæmunum telur hann sig hafa hag af því að hafa meirihlutakosningu. Þess vegna er Framsfl. á móti hlutfallskosningum þar.
Hv. þm. Str. talaði um það hér á laugardaginn, að barátta Sjálfstfl. og annarra flokka, sem þessu máli eru fylgjandi, fyrir hlutfallskosningum um land allt byggðist fyrst og fremst á pólitískum hagsmunum þeirra. En hvers vegna vill Framsfl. hafa hlutfallskosningar í Reykjavík og á Akureyri, en ekki í öðrum landshlutum? Ætli það sé ekki vegna þess, að hann er að gæta pólitískra hagsmuna sinna? En vegna þess að hlutfallskosningarnar eru nú orðnar aðalágreiningsatriðið og e.t.v. eina ágreiningsatriðið í sambandi við afgreiðslu þessa máls, þykir mér rétt að rekja lauslega sögu þeirra hér á landi.
Fyrstu skýrt mótuðu till. og óskirnar um hlutfallskosningar hér á landi koma fram í tímaritsgrein, sem Páll amtmaður Briem ritar árið 1900. Færir hann þar rök að því, að þetta kosningaform sé réttlátara og skynsamlegra, en meirihlutakosningin og tryggi sérstaklega rétt minni hl. til þess að hafa áhrif á stjórn landsins. Páll Briem kemst m.a. að orði á þessa leið í tímaritsgrein sinni, sem hann áður hafði flutt um fyrirlestur:
„Atkvæði hvers kjósanda á að hafa fullt gildi í hlutfalli við önnur atkv., eigi aðeins er snertir þann mann, er hann vill kjósa, heldur þann flokk, er hann fylgir að málum. Atkv. eins kjósanda er ekki betra, en annars.“
Næst gerist svo það, að Hannes Hafstein flytur á Alþ. árið 1905 frv. um að skipta landinu í 7 kjördæmi, er kjósi 4–6 þm. með hlutfallskosningum. Vakti þessi till. þegar mikla athygli og vann sér mikið fylgi. Árið 1907 flytur Hannes aftur þetta frv., og munaði þá minnstu, að það næði samþykki á Alþingi. Margir þjóðþekktir og merkir stjórnmálamenn lýstu fylgi sínu við hlutfallskosningarnar og hina nýju kjördæmaskipun, sem Hannes Hafstein lagði til að tekin yrði upp. Meðal annarra komst hinn merki samvinnufrömuður og bóndi, Pétur Jónsson frá Gautlöndum, þm. S-Þ., að orði um hlutfallskosningarnar á þessa leið:
„Það hafa viðurkennt nálega allir, sem á þetta mál hafa minnzt, að hlutfallskosningin er sú réttlátasta kosning, sú kosning, sem leyfir flestum skoðunum að koma fram á sjónarsviðið á eðlilegan hátt, ef þær hafa nokkurt verulegt fylgi í landinu, í stuttu máli fegursta kosningaaðferðin.“
Ólafur Briem bóndi á Álfgeirsvöllum gerðist einnig mikill stuðningsmaður hlutfallskosninganna. Komst hann m.a. að orði um frv. á þessa leið :
„Andmælendur frv. játa, að til grundvallar fyrir því liggi frjálslyndi, réttlæti og hagsýni. En þeir segja, að ekki sé enn kominn tími til að innleiða slík lög, sakir þess að þjóðin sé þeim andhverf. Ég get ekki séð, að fullgild ástæða sé til þess að byggja eingöngu á undirtektum þingmálafunda um þetta mál, enda er það ekkert nýstárlegt að breyta til lögum eftir því, sem reynslan kennir að bezt fari.“
Þórhallur Bjarnarson biskup, þáv. þm. Borgf., bar fram þá brtt. til frv. Hannesar Hafsteins, að kjördæmin yrðu 4 í stað 7, og taldi heppilegt að miða við gömlu fjórðungaskiptin. Komst hann í því sambandi að orði á þessa leið:
„Fyrir mér eru góð hlutfallskosningalög hita- og kappsmál, því að þau eru runnin af rót réttlætishugsjóna.“
Hannes Hafstein flutti einnig glögg rök fyrir réttmæti hlutfallskosninganna, og margir fleiri ágætir og merkir menn töldu rétt að taka þetta kosningafyrirkomulag upp.
Í framhaldi af ummælum þessara manna um hlutfallskosningafrv. Hannesar Hafsteins má svo geta þess, að einn merkasti leiðtogi Framsfl. og skapari hans, Jónas Jónsson frá Hriflu, hefur ritað greinar, þar sem hann hefur tekið sterklega undir þessa till. og talið það íslenzku lýðræði og þingræði til eflingar, að landinu yrði skipt í nokkur stór kjördæmi með hlutfallskosningum.
Einnig er þess skemmst að minnast, að einn af núv. miðstjórnarmönnum Framsfl., Gunnar Þórðarson bóndi í Grænumýrartungu, ritaði fyrir 4 eða 5 árum grein í Tímann, þar sem hann lagði til, að hlutfallskosning yrði upp tekin um land allt. Hann lagði aðeins til, að kjördæmin yrðu nokkru minni, en gert er ráð fyrir í frv. þessu. En grein hans byggðist á sömu meginstefnu um nytsemi hlutfallskosninganna, eins og fram kemur í því frv., sem hér liggur fyrir til umr.
Framsóknarmenn reyna nú að brennimerkja alla þá, sem berjast fyrir hlutfallskosningum í stórum kjördæmum og frv. því, sem hér liggur fyrir, sem fjandmenn sveitanna. En treysta þeir sér til þess að fullyrða, að Pétur á Gautlöndum, Hannes Hafstein, Þórhallur biskup, Jónas frá Hriflu og Gunnar frá Grænumýrartungu hafi byggt till. sínar um hlutfallskosningar um land allt á illvilja til sveitanna eða strjálbýlisins yfirleitt?
Hlutfallskosningar til Alþingis eru fyrst teknar upp árið 1915, þegar konungkjörið er afnumið og stjórnarskránni breytt þannig, að landskjör 6 þm. er tekið upp. Þegar þessi breyt. var gerð, er ekki annað vitað, en allir hafi verið sammála um hið nýja kosningafyrirkomulag. Engar raddir heyrðust þá um, að með landskjöri 6 þm. væri verið að skerða rétt strjálbýlisins eða sýna sveitunum sérstakan fjandskap. Var þó landið allt með þessari breyt. að vissu leyti gert að einu kjördæmi.
Næsti áfangi í sögu hlutfallskosninganna hér á landi er svo stjórnarskrárbreytingin, sem gerð er árið 1920. Þá er þm. Reykjavíkur fjölgað upp í 4 og ákveðið, að þeir skuli allir kosnir með hlutfallskosningu. Mér er ekki kunnugt um, að framsóknarmenn, sem þá voru orðnir allstór flokkur á Alþ., hafi látið í ljós sérstakan ótta við hlutfallskosningar yfirleitt, þegar þessi breyt. var gerð. Engin mótmæli bárust a.m.k. úr hópi þeirra gegn því, að hlutfallskosning væri tekin upp í Reykjavík.
Með lögtöku uppbótarsætanna 11 árið 1934 er að vissu leyti gengið lengra á braut hlutfallskosninganna. Þau eru í raun og veru nýtt form á landskjöri, form, sem tekið er upp til þess að ná meiri jöfnuði og réttlæti milli þingflokka. Margir framsóknarmenn börðust, eins og vitað er, gegn þessari leiðréttingu á kjördæmaskipuninni, sem miðaði að því að gera Alþ. að réttari mynd af vilja þjóðarinnar. En ýmsir af leiðtogum þeirra og merkari þm. munu þó hafa átt nokkurn þátt í því, að þessi leið var farin.
Árið 1942 eru svo hlutfallskosningar teknar upp í 6 tvímenningskjördæmum. Framsóknarmenn börðust eins og ljón gegn þeirri breyt. og töldu, að hún mundi hafa í för með sér stórfellt óhagræði fyrir íbúa þessara héraða. Reynslan hefur hins vegar orðið sú, sem allir íbúar tvímenningskjördæmanna viðurkenna nú, að aldrei hefur verið unnið betur að framfaramálum þessara kjördæma, en síðan flest þeirra fengu þingfulltrúa úr tveimur stærstu stjórnmálaflokkum þjóðarinnar. Og nú er svo komið, að framsóknarmenn treysta sér ekki til þess að flytja till. um afnám hlutfallskosninga í tvímenningskjördæmum.
Enn má á það benda, að á árinu 1937 beittu framsóknarmenn sér sjálfir fyrir því, að hlutfallskosningar í stórum kjördæmum voru teknar upp til búnaðarþings. Hefur sú skipan haldizt í aðalatriðum síðan og gefizt vel, enda þótt nokkrum kjördæmum hafi verið skipt í smærri kjördæmi síðar.
Hvernig geta framsóknarmenn með rökum haldið því fram gagnvart bændum, að það sé í samræmi við hagsmuni þeirra, að þeir kjósi með hlutfallskosningum í stórum kjördæmum til síns eigin stéttaþings, en hins vegar sé þeim hinn mesti háski búinn, ef sama skipulag verði tekið upp að því er varði kosningu á fulltrúum þeirra til Alþingis?
Ég vil einnig minna á það, að árið 1903 eru teknar upp hlutfallskosningar til bæjarstjórna í kaupstöðum um land allt. Er ekki annað vitað, en sú skipun hafi gefizt vel, og engar tillögur hafa verið uppi um það að afnema hlutfallskosningar til bæjarstjórna, hvorki í Reykjavík né úti um land. Er nú svo komið, að allt frá árinu 1936 hefur það ákvæði verið í l. um hreppa, þar sem 3/4 íbúanna eru búsettir í kauptúni, að þar skuli kosið með hlutfallskosningu til hreppsnefnda. Einnig er vitað, að í mörgum sveitahreppum víðs vegar um land er kosið með hlutfallskosningu. Þjóðin hefur þannig, eins og sést af þessari örstuttu sögu hlutfallskosninganna hér á landi, enga ástæðu til þess að óttast þær.
Á það má einnig benda, að allar þær þjóðir, sem okkur eru skyldastar, þ.e.a.s. Norðurlandaþjóðirnar, hafa um langt skeið haft hlutfallskosningu til þjóðþinga sinna. Bæði Norðmenn, Danir, Svíar og Finnar kjósa þannig til þinga sinna. Engum kemur til hugar í þessum löndum að krefjast afnáms hlutfallskosninganna. Þær hafa þvert á móti reynzt réttlátar og gagnlegar í framkvæmd. Af þeim hefur ekki leitt stjórnmálalega ringulreið, þvert á móti er það viðurkennt, að þessar þjóðir, sem allar eru þroskaðar lýðræðisþjóðir, búi við festu og öryggi í stjórnmálum sínum.
Þeir erfiðleikar, sem orðið hefur vart í finnskum stjórnmálum á síðustu árum, spretta ekki af kosningafyrirkomulagi landsins, heldur af utanríkispólitískum ástæðum og nábýlinu við volduga einræðisþjóð. Bretar og Bandaríkjamenn hafa að vísu talið sér henta betur að halda í meirihlutakosningu í einmenningskjördæmum. En þar gegnir allt öðru máli en hér. Fólksfjöldi í hverju einstöku kjördæmi er þar svo mikill, að kostir meirihlutakosningarinnar njóta sin miklu betur en í örfámennu þjóðfélagi eins og hinu íslenzka.
Annars fer því víðs fjarri, að Framsfl. hafi verið trúr þeirri stefnu sinni að vilja skipta landinu í einmenningskjördæmi. Innan Sjálfstfl. hafa einmenningskjördæmin lengstum átt mikið fylgi. En sjálfstæðismenn hafa bundið fylgi sitt við þau því skilyrði, að sama kosningafyrirkomulag gilti um allt land, að Reykjavík og hinum stærri kaupstöðum og þéttbýli yrði þá einnig skipt í einmenningskjördæmi með meirihlutakosningu. En á það hafa framsóknarmenn aldrei viljað fallast. Sjálfur álít ég, að einmenningskjördæmin með meirihlutakosningu hafi ýmsa kosti, en þau hafa einnig stóra galla, eins og reynsla þjóðarinnar sýnir glögglega á síðari árum.
Hv. þingmenn Framsfl. hafa mjög haldið því fram, að núv. kjördæmaskipun væri fornhelg og byggðist á sögulegri þróun sýslna og héraðsstjórna. En þessi staðhæfing er ekki í neinu samræmi við staðreyndirnar. Kjördæmaskipunin er fyrir löngu gersamlega klofin frá sýsluskipuninni. Á það má einnig benda, að gamla sýsluskiptingin er á marga lund miklu líkari þeirri kjördæmaskipun, sem nú er verið að lögleiða, heldur en núv. kjördæmaskipun. Þetta sést greinilega, þegar litið er á sýsluskiptinguna, eins og hún var á 14. öld, en þá skiptist landið í 9 sýslur samkv., því, sem hinn ágæti fræðimaður, dr. Jón Jóhannesson prófessor, segir í riti sínu „Saga Íslendinga“. Segir dr. Jón, að þær hafi skipzt samkv. eftirfarandi mörkum:
1) Milli Hrútafjarðarár og Siglufjarðar (Húnavatns- og Hegranesþing).
2) Milli Siglufjarðar og Helkunduheiðar (Vöðla- og Þingeyjarþing).
3) Milli Helkunduheiðar og Lónsheiðar (Múlaþing).
4) Milli Lónsheiðar og Jökulsár (Skaftafellsþing).
5) Milli Jökulsár og Þjórsár (Rangárþing).
6) Milli Þjórsár og Botnsár (Árnes- og Kjalarnesþing).
7) Milli Botnsár og Langár (Þverárþing).
8) Milli Langár og Þorskafjarðarár (Þórsnesþing).
9) Milli Þorskafjarðarár og Hrútafjarðarár (Þorskafjarðarþing). Af þessari upptalningu sést það greinilega, að væntanlegt Vestfjarðakjördæmi og bæði Norðurlandskjördæmin skv. frv. því, sem hér liggur fyrir, ná yfir nákvæmlega sömu svæði og hinar gömlu sýslur náðu á 14. öld. Síðar hafa svo margvíslegar breytingar orðið á sýsluskiptingunni. En kjarni málsins er sá, að það er hið erlenda konungsvald, sem ræður hinni fyrstu kjördæmaskipun hins endurreista Alþingis.
Í sambandi við tal framsóknarmanna um hin fornhelgu kjördæmi, sem konungsvaldið ákvað með tilskipuninni um endurreisn Alþingis, má benda á það, að þegar konungkjörið var afnumið og landskjörið tekið upp árið 1915, minntist enginn á, að konungkjörið væri „fornheilagt“, enda þótt það hefði verið ákveðið um leið og Alþ. var endurreist, árið 1845. Enginn minntist heldur á það þá, að réttur karlmanna til þess að neyta kosningarréttar einir væri „fornhelgur“ og af þeirri ástæðu mættu konur ekki öðlast kosningarrétt. En með stjórnskipunarlögunum frá 1915 var konum veittur kosningarréttur og þar með náð merkum áfanga á þróunarbraut íslenzks lýðræðis.
Af þessu sést það enn, hversu orðræður framsóknarmanna um, að kjördæmaskipunin frá 1845, sem byggðist á konunglegri tilskipun, sé fornhelg og við hornsteinum hennar megi ekki hrófla, eru rakalausar.
Framsóknarmenn segja, að sú kjördæmaskipun, sem lagt er til að verði upp tekin í þessu frv., feli í sér ranglæti gagnvart strjálbýlinu. Í þessu sambandi vil ég benda á það, að þegar athuguð er kjósendatalan á bak við hvern þingmann í hinum væntanlegu kjördæmum, miðað við síðustu kosningar, kemur það í ljós, að í strjálbýlinu verða fæstir kjósendur um hvern þingmann. Í Austurlandskjördæminu verða t.d. 1.143 kjósendur um hvern þm., Vestfjarðakjördæmi 1.167, Norðurlandskjördæmi vestra 1.175 og Vesturlandskjördæmi 1.256 um hvern þm. Hins vegar verða 1.425 kjósendur um hvern þm. í Suðurlandskjördæmi og í Norðurlandskjördæmi eystra 1.815, en í því kjördæmi er Akureyri. Í Reykjaneskjördæmi verða 2.180 um hvern þm. og í Reykjavík 3.133 kjósendur um hvern þm.
Af þessum tölum verður það ljóst, að því fer fjarri, að gengið sé á hlut strjálbýlisins með hinni nýju kjördæmaskipun. Þvert á móti er gert ráð fyrir, að fólkið í strjálbýlustu hlutum landsins hafi allt að því þrefaldan atkvæðisrétt á við kjósendur í Reykjavík. Það er einnig mín skoðun, að réttlátt sé og eðlilegt, að strjálbýlið hafi hlutfallslega nokkru fleiri fulltrúa en þéttbýlið, sem hefur að mörgu leyti betri aðstöðu. Er sú stefna einnig viðurkennd í þessu frv.
Sú staðreynd liggur nú einnig fyrir, að framsóknarmenn hafa sjálfir lagt til, að Reykjavík fái jafnmarga þm. og gert er ráð fyrir í samkomulagsfrv. því, sem hér liggur fyrir frá þremur stjórnmálaflokkum. Eftir að framsóknarmenn hafa sjálfir flutt till. um sömu fulltrúatölu höfuðborgarinnar, geta þeir naumast haldið því fram, að með slíkum tillögum sé verið að ganga stórkostlega á hlut fólksins í strjálbýlinu.
Hv. þm. Str. deildi mjög á starfsháttu stjskrn., sem skipuð var eftir stofnun lýðveldisins 1944. Taldi hv. þm., að allir flokkar hefðu verið sammála um endurskoðun stjórnarskrárinnar og henni hefði átt að geta verið lokið fyrir löngu. Kenndi hann formanni stjskrn., hv. 1. þm. Reykv. (BBen), um það, að n. hefði gefizt upp við hlutverk sitt.
Hv. þm. Str. hefur í þessari frásögn sinni hallað sannleikanum mjög. Sannleikurinn er sá, að fulltrúar Sjálfstfl. lögðu einir allra fulltrúa í stjskrn. í nóv. 1952 fram till. í n. um breyt. á stjórnarskránni, og þar á meðal tjáðu þeir sig fúsa til samninga um nýja kjördæmaskipan, hvort heldur væri á grundvelli einmenningskjördæma um land allt eða hlutfallskosninga í nokkrum stórum kjördæmum. Þegar sjálfstæðismenn höfðu lagt þessa till. fram, varð um það samkomulag í nefndinni í samráði við ríkisstj. Steingríms Steinþórssonar, sem þá fór með völd, að áframhaldandi starf n. væri þýðingarlaust, á meðan ekkert samkomulag fengist um kjördæmaskipunina. Var þá ákveðið, að nefndin skyldi koma saman til fundar, jafnskjótt og einhver einn nefndarmanna óskaði. Engin ósk hefur allt til þessa dags borizt um það, að kvatt yrði til fundar í stjórnarskrárnefnd.
Samkomulagið um, að nefndin skyldi hætta störfum, var staðfest af Steingrími Steinþórssyni, þáv. hæstv. forsrh., með því, að hann tilnefndi engan mann í stað Ólafs prófessors Jóhannessonar, sem sagði sig úr nefndinni um áramótin 1952 og 1953. Frá þessu er greinilega skýrt í nál. meiri hl. stjskrn. Nd. um þetta frv., og sé ég ekki ástæðu til að rekja sögu þess frekar hér. Aðeins má benda á það, að þegar vinstri stjórnin var mynduð undir forustu hv. þm. Str. í júlí 1956, ákváðu stuðningsflokkar hennar, að þeir skyldu reyna að leysa málið með samningum sín á milli, en ekki innan stjórnarskrárnefndar undir forustu varaformanns Sjálfstfl., en einnig þetta loforð sitt sveik síðasta ríkisstj. hv. þm. Str.
Kjarni málsins er auðvitað sá, að samkomulag um endurskoðun stjórnarskrárinnar hefur ekki náðst vegna þess, að við Framsfl. hefur ekki verið hægt að ná neinum samningum um kjördæmamálið. Hann hefur jafnan reynt að þvælast fyrir réttlátri lausn þess máls og þá ekki hirt um, þó að það bitnaði á heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar. Það situr því vissulega illa á hv. þm. Str. að fárast nú yfir því, að andstöðuflokkar Framsfl. hafi hindrað endurskoðun stjórnarskrárinnar. Framsfl. ber þar langsamlega mesta ábyrgð.
Hv. þm. Str. lét einnig liggja að því, að stækkun kjördæmanna og upptaka hlutfallskosninga hafi fyrst og fremst það markmið að draga úr opinberum framlögum til framkvæmda í strjálbýlinu. Þetta sögðu hv. framsóknarmenn líka, þegar hlutfallskosningarnar voru teknar upp í tvímenningskjördæmunum árið 1942. Þá sögðu þeir, að lækka ætti framlög til vega, brúa og annarra verklegra framkvæmda í þágu landbúnaðarins, strax og búið væri að koma á hlutfallskosningunum. En hvað segir reynslan í þessum efnum? Ég minntist á það hér áðan. Almenningur í tvímenningskjördæmunum mun nú yfirleitt sammála um það, að aldrei hafi verið haldið betur á málum héraða þeirra, en einmitt síðan hlutfallskosningarnar voru teknar upp.
Í framhaldi af fullyrðingu sinni um það, að kjördæmin væru stækkuð og hlutfallskosningar teknar upp til þess að draga úr fjárframlögum til verklegra framkvæmda í sveitunum, endurtók hv. þm. Str. fullyrðingu sina og annarra framsóknarmanna um það, að núv. ríkisstjórn og þeir aðrir, sem staðið hafa að afgreiðslu fjárlaga, hefðu beitt sér þar fyrir stórfelldum niðurskurði á fjárveitingum til verklegra framkvæmda. Ég hélt, að framsóknarmenn mundu láta sér nægja að halda þessari blekkingu fram, áður en fjárlög voru afgreidd, áður en þjóðin sæi framan í svip fjárlaganna. En jafnvel nú, eftir að alþjóð veit, hvernig fjárlögin líta út og hvernig hagað er fjárveitingu til einstakra framkvæmda, halda framsóknarmenn áfram að halda fram gersamlega ósönnum fullyrðingum um það, að dregið hafi verið stórkostlega úr framlögum til nauðsynlegra framkvæmda í sveitum landsins.
Allir hv. þm. vita, að fjárframlög til vega og brúa hafa ekki verið skorin niður um einn eyri. Fjárframlög til hafna og lendingarbóta um land allt hafa verið hækkuð og þar að auki tryggt lán til þess að vinna að hafnarframkvæmdum á skipulegri hátt og í stærri stíl, en unnt hefur verið undanfarin ár. Allir hv. þm. vita líka, að tryggt hefur verið lán til þess að halda í horfinu með raforkuframkvæmdir og tryggja framkvæmd 10 ára rafvæðingaráætlunarinnar, sem fyrrv. ríkisstj. undir forustu hv. þm. Str. vanrækti mjög. Kom sú vanræksla m.a. fram í því, að látið var undan fallast að leggja raforku til 232 sveitabýla, sem áttu að hafa fengið rafmagn samkvæmt rafvæðingaráætluninni fyrir árslok 1958.
Það gefur góða hugmynd um andlegt ástand framsóknarmanna um þessar mundir, að hv. þm. Str. hélt því einnig fram, að það sýndi þrælslund, að hv. 2. þm. Skagf. (JS) skyldi leyfa sér að minnast á það í útvarpsumræðunum í Nd. um daginn, að íslenzkum bændum gæti verið gagnleg samvinna við fólkið í þéttbýlinu, í stað þess að láta einangra sig og fá þannig miklu verri aðstöðu til þess að koma málum sínum fram. Ég er sannfærður um það, að mikill meiri hluti bænda í öllum landshlutum vill eiga góða samvinnu við fólkið við sjávarsíðuna og telur það miklu vænlegra til þess að skapa nauðsynlegan skilning á þörfum og hagsmunum sveitanna. En framsóknarmenn hafa alltaf reynt að ala á úlfúð og illindum milli sveitafólksins og almennings í sjávarþorpum og kaupstöðum landsins. Slíkt er vissulega síður en svo til þess fallið að bæta aðstöðu þess. Ummæli Jóns á Reynistað í útvarpsumræðunum áttu því við fyllstu rök að styðjast. Það sýnir líka seka samvizku framsóknarmanna, að þeir hafa undanfarnar vikur látið Tímann halda uppi taumlausum árásum á þennan merka þingbónda og héraðshöfðingja fyrir hina rökföstu útvarpsræðu hans við 1. umr. kjördæmafrv. í Nd. Hefur þetta gengið svo langt, að forustugrein Tímans hefur verið nokkurs konar framhaldssaga um Jón á Reynistað og ræðu hans. Mun það enn sanna það, að hann er einn raunsæjasti forustumaður íslenzkra bænda í dag.
Þá fjölyrti hv. þm. Str. mjög um það, að sjálfstæðismenn hefðu á undanförnum árum lýst því yfir, að hlutfallskosningar í stórum kjördæmum kæmu ekki til greina. Þessi ummæli hv. þm, hafa við lítil rök að styðjast. ýmsir af forustumönnum Sjálfstfl. hafa í ræðu og riti rætt um kosti stórra kjördæma með hlutfallskosningu, þ. á m. hv. þm. A-Húnv. (JPálm), sem fyrir mörgum árum ritaði um þetta greinar í víðlesnustu blöð landsins. Enginn hefur orðið var við það, að Jón Pálmason tapaði fylgi, hvorki í Austur-Húnavatnssýslu né í öðrum landshlutum, enda þótt hann hafi rætt þetta mál af fullri hreinskilni og lýst sig fylgjandi því kosningafyrirkomulagi fyrir mörgum árum, sem nú á að lögtaka. Svipuðu máli gegnir einnig um hv. 7. þm. Reykv. (GTh), sem einnig hefur í ræðum og riti mörg undanfarin ár haldið mjög fram kosti hlutfallskosninga. Hitt er svo annað mál, að auðvitað breytist afstaða manna til einstakra þjóðmála og oft á skemmri tíma, en liðinn er síðan 1942, er kjördæmaskipuninni var síðast breytt.
Síðan hefur það m.a. sannazt áþreifanlega, að ómögulegt er að ná neinu samkomulagi við Framsfl. um heilbrigða og réttláta kjördæmaskipun, hvorki um að skipta öllu landinu í einmenningskjördæmi né aðra skipan. Mér heyrðist einnig á ræðu hv. þm. Str. hér á laugardaginn sem afstaða hans til manna og málefna í íslenzkum stjórnmálum hefði að ýmsu leyti breytzt ekki óverulega jafnvel á skemmri tíma en 17 árum, sem liðin eru frá því, að síðasta kjördæmabreyting var samþykkt. Hann talaði allt öðruvísi um samstarfsflokk sinn og bandalagsflokk frá kosningunum 1956, Alþfl., í ræðunni á laugardaginn, en hann talaði um hann vorið 1956. Árið 1956, þegar Framsfl. var að hefja samvinnu við Alþfl. um kosningaundirbúning og ríkisstj., var Alþfl. „heilbrigður og góður“ flokkur, málsvari alþýðunnar og jafnvel „frjálslyndur umbótaflokkur“! Í ræðu hv. þm. Str. á laugardaginn var þessi sami Alþfl. orðinn vondur flokkur, „flokkur, sem er að deyja“, og flokkur, sem flutti þetta „ljóta mál“ inn á Alþingi til þess að „geta lifað“.
Hv. þm. Str. endurtók, að það ætti ekki að ráða svip stjórnskipunarlaga, að „flokkur væri að deyja“. En það skyldi þó aldrei ráða neinu um afstöðu Framsfl. í kjördæmamálinu, að hann sjálfur vilji lifa og það góðu lífi með miklu þingfylgi þrátt fyrir takmarkað traust meðal íslenzkra kjósenda?
Hv. þm. Str. kallaði Sjálfstfl. í ræðu sinni „kaupmangaraflokk“. Það er naumast ástæða til þess að svara þessum ummælum hv. þm., en ástæða er þó til þess að vekja athygli á því, að þau eru mælt af manni, sem telur það helgustu skyldu sína að standa trúan vörð um mesta auðfyrirtæki landsins. Það er víst engin hætta á því, að þessi hv. þm. og flokkur hans verði kenndur við kaupmang, brask eða hermang, jafnvel ekki með olíu á Keflavíkurflugvelli!
Hv. þm. Barð. sagði í sinni ræðu hér á laugardaginn, að ekki væri hægt að gæta hagsmuna fólksins í litlu kjördæmunum, eftir að hlutfallskosning hefði verið tekin upp í stórum kjördæmum og það fólk, sem núna á heima í einmenningskjördæmum, væri orðið kjósendur í stærri kjördæmum. Af tilefni þessara ummæla hv. þm. Barð. mætti spyrja hann og hv. þm. Str. að því, hvort þeir ætli sér að hætta að berjast fyrir hagsmunum fólksins í Strandasýslu og Barðastrandarsýslu, ef þeir kynnu að verða kosnir á þing í hinu nýja Vestfjarðakjördæmi. Missa þeir virkilega allan áhuga fyrir hagsmunamálum fólksins í þessum héruðum, þótt þeir verði kosnir með atkv. fleira fólks, en þeir hafa hingað til haft að baki við kosningu sína? Þá ályktun virðist mega draga af ummælum hv. þm. Barð. og hv. þm. Str.
Ég vil segja þessum hv. þm. Framsfl. það, að það er ekki ætlan mín að láta af baráttu fyrir framfaramálum fólksins við Ísafjarðardjúp, sem hingað til hefur verið kjósendur mínir, enda þótt ég kynni með haustinu að verða kosinn á þing í hinu nýja Vestfjarðakjördæmi, sem nær yfir allar sýslur Vestfjarða. Ég mun þvert á móti halda áfram að gæta hagsmuna þess hér á Alþ. eftir megni, um leið og ég teldi mér skylt að berjast jafnhliða fyrir hagsmunum annarra byggðarlaga á Vestfjörðum. Ég geri mér vonir um, að milli allra þm. hins nýja Vestfjarðakjördæmis geti tekizt góð samvinna um framfara- og hagsmunamál þess landshluta. Það er einmitt slík samvinna, sem strjálbýlið þarf mjög á að halda, ekki aðeins milli þm. sinna, heldur og milli hinna einstöku byggðarlaga og ráðamanna þeirra. Og það er mín skoðun, að með hinum stærri kjördæmum muni samvinna fólksins í strjálbýlinu aukast að miklum mun og styrkja aðstöðu þess í sókn þess fyrir bættum lífskjörum, meira jafnrétti og batnandi aðstöðu í lífsbaráttunni. Það er líka fjarstæða, sem hv. þm. Framsfl. þrástagast á, að tengslin milli þm. og kjósenda séu úr sögunni með stækkun kjördæmanna. Þm. og stjórnmálaflokkarnir hafa nákvæmlega sömu hagsmuna að gæta í því eftir sem áður að halda tengslum við fólkið, þekkja óskir þess og vilja og reyna að fullnægja réttmætum kröfum þess. Við þm. Sjálfstfl., sem fylgjum þessu frv. og hinni nýju kjördæmaskipun, sem það gerir ráð fyrir, gerum það vegna þess, að við teljum, að með því sé lagður grundvöllur að auknu réttlæti, traustara lýðræði og þingræði og heilbrigðara stjórnarfari í landinu.
Það er vissulega kaldhæðni örlaganna, að sá stjórnmálaflokkur, sem fyrst og fremst hefur kennt sig við samvinnustefnuna, skuli snúast gegn þeirri breyt. á kjördæmaskipun landsins, sem einmitt mun hafa rík áhrif í þá átt að auka samvinnu héraðanna og fólks þeirra um hagmunamál þess. En Framsfl. hefur dagað uppi eins og nátttröll, sem lítur brún nýs dags á lofti. Hann hefur á sér yfirskin samvinnunnar, en afneitar hennar krafti. En enginn stjórnmálaflokkur þolir það til lengdar að standa gegn heilbrigðri þróun í þjóðfélagi sínu. Þess vegna á Framsfl. eftir að iðrast þess sárlega, að hann hefur staðið eins og þrándur í götu alls samkomulags um réttláta lausn kjördæmamálsins. Misréttinu verður eytt og réttlætið mun sigra, og á grundvelli þess mun Alþingi, hin fornhelgasta stofnun þessarar þjóðar, halda áfram að vera brjóstvörn íslenzku þjóðarinnar í sveit og við sjó, í sókn hennar fyrir batnandi þjóðfélagi í landi sínu.