21.04.1959
Efri deild: 105. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1697 í B-deild Alþingistíðinda. (1263)
146. mál, sýsluvegasjóðir
Sigurvin Einarsson:
Herra forseti. Þetta mál um sýsluvegasjóðina vildi ég biðja hæstv. forseta að taka út af dagskrá. Ástæðan er sú, að strax eftir 1. umr. málsins hafði samgmn. fund um málið. Á þann fund komu þeir hv. 1. þm. Eyf. (BSt) og hv. 2. þm. Árn. (SÓÓ) og óskuðu eftir að mega lýsa brtt. við þetta frv., sem þeir hugðust flytja, eða þó öllu heldur vildu biðja n. að flytja. Þeir afhentu n. skriflegt uppkast að þessari brtt., ag höfum við haft það síðan. Mér var þá falið að eiga viðræður við vegamálastjóra um þessa brtt., því að við vildum gjarnan leitast við að ná samkomulagi innan n. um frv., svo að því yrði frekar hraðað í gegnum þessa hv. deild.
Vegamálastjóri gat fallizt á þessa brtt. að nokkru leyti. Nú er búið að útbýta henni hér sem þskj., og till. er flutt af þessum hv. þm., sem ég nefndi, en hv. 1. þm. Eyf. liggur veikur og getur ekki tekið þátt í þessum umr. Ég gat komið skilaboðum til hans í morgun til þess að fá vitneskju um það, hvort hann óskaði eftir, að þessu yrði eitthvað frestað vegna veikinda hans, og óskar hann eindregið eftir því, að málið sé tekið út af dagskrá að þessu sinni. Þetta ætti ekki að þurfa að hindra málið neitt eða a.m.k. sáralítið, vegna þess, að ef það tekst samkomulag um þetta mál innan samgmn., þá verður allur gangur málsins greiðari, bæði í þessari d. og hv. Nd.
Ég vil því ítreka beiðni mína til hæstv. forseta, að hann fresti umr. og taki málið út af dagskrá af þessum ástæðum.