22.04.1959
Efri deild: 106. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1703 í B-deild Alþingistíðinda. (1274)

146. mál, sýsluvegasjóðir

Sigurður Ó. Ólafsson:

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. samgmn. fyrir það, að hún tók á því með fullum skilningi, að sanngjarnt væri að breyta frv. frá því, sem það nú liggur fyrir, í þá átt að gera það viðunanlegra. Eins og hv. frsm. tók fram í sinni ræðu, hefur n. samþykkt að greiða atkv. með þessari till. okkar hv. 1. þm. Eyf. (BSt), sem er á þskj. 423. Að öðru leyti hef ég ekki mikið um ræðu hv. þm. Barð. (SE) að segja, hann skýrði þetta mál frá sínu sjónarmiði. Ég er honum þar að mörgu leyti ósammála, en þó þarf ég ekki að leiðrétta neitt, sem hann sagði; hann skýrði frá málinu eins og það liggur fyrir og frá sínum bæjardyrum séð. En þrátt fyrir þetta samkomulag, sem varð á milli mín og hv. samgmn. um samþykkt þessarar till., þá sé ég ekki ástæðu til annars, en að láta í ljós mitt álit á frv., eins og það liggur fyrir. Ég er ekki samþykkur grundvallaratriðum frv. og þykir skylt að láta skoðun mína í ljós um málið í heild.

Góðar samgöngur til lands og sjávar eru lífæð hvers héraðs í okkar strjálbýla og samgönguerfiða landi. Það má segja, að afkomumöguleikar fólksins, sem býr úti á landinu og ekki sízt í þeim héruðum, sem framleiðsla þeirra er bundin við samgöngur góðar, t.d. í landbúnaðarhéruðum, sem framleiða mjólk að mestu leyti, að afkoma þessa fólks sé bundin við öruggar samgöngur, og er þetta skiljanlegt, þegar tekið er tillit til þeirrar gerbreytingar, sem á hefur orðið undanfarna áratugi, miðað við það, þegar afurðir búanna voru að mestu leyti unnar heima á hverjum bæ, en nú eru þær fluttar daglega á sölu- eða vinnslustaði. Og vitanlega kallar þessi mikla breyting á sterka og örugga vegi, sterkar og öruggar samgöngur, enda verður ekki sagt annað, en undanfarna áratugi hafi verið lagt mikið fé til vega og samgöngubóta um land allt og auðvitað ekki sízt í þeim héruðum, sem eiga allt sitt undir samgöngunum.

Hjá okkur hér á landi er vegunum skipt í þrjá höfuðkafla eða höfuðflokka, þ.e. þjóðvegi, sýsluvegi og hreppavegi. Þjóðvegirnir eru sem kunnugt er kostaðir af ríkinu eingöngu, bæði nýbyggingar og viðhald. Sýsluvegirnir eru kostaðir eftir vissum reglum og gildandi lögum settum af Alþingi, að nokkrum hluta heiman úr héraði og að nokkrum hluta frá ríkissjóði. Hreppavegirnir eru kostaðir af hreppunum, ýmist eingöngu eða þá einstaklingum með hreppum.

Það, sem ég ætla hér að gera að umtalsefni, eins og gefur auga leið vegna þess frv., sem hér er til umræðu, eru sýsluvegirnir. Þetta frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 375, um breytingu á lögum um sýsluvegasjóði, flutt af hv. samgmn. þessarar hv. d., en samið af vegamálastjóra, liggur nú fyrir hér til 2. umr. Ég get ekki látið hjá líða að fara nokkrum orðum um frv. sjálft, þótt hv. frsm. n. hafi gert það hér áðan í sinni ræðu, og um leið minnast á þau áhrif, sem það að mínu áliti hlýtur að hafa á starfsemi sýsluvegasjóða landsins yfirleitt, og um leið á hið þýðingarmikla hlutverk þessara sjóða, sem er að styðja að aukinni vegagerð í hinum ýmsu héruðum landsins, þar sem þeir hafa verið stofnaðir.

Gildandi lög um sýsluvegasjóði eru frá 1933 með áorðnum breytingum frá 1947. Höfuðtilgangur þessarar lagasetningar var sá að örva hin ýmsu héruð til að leggja nokkuð af mörkum sjálf til aukningar vegakerfa sinna. Eftir því sem þau lögðu meira fram til sýsluvegasjóðs, því ríflegra varð tillag ríkisins hlutfallslega. Ákvæði lútandi að þessu voru sett í lögin 1947, og eru þau þessi, með leyfi hæstv. forseta:

„Nú er á einu ári varið meira fé úr sýsluvegasjóði og með framlagi samkvæmt síðari málslið 6. gr. en svarar 2%o af fasteignaverði lands og lóða og 1%o af fasteignamati húsa, og skal þá ríkissjóður greiða á móti því, sem umfram er, sem hér segir: Móts við það framlag, sem svarar til 2-4%o af land- og lóðaverði og 1–2%0 af húsaverði, greiðist jafnmikið framlag úr ríkissjóði, móti framlagi, er nemur 4 –l0%0 af land- og lóðaverði og 2–5%o af húsaverði, greiðist tvöfalt framlag úr ríkissjóði, en þrefalt á móti því, sem umfram er.“

Þetta er hin gildandi regla um úthlutun sýsluvegafjár nú til hinna einstöku sýsluvegasjóða eftir gildandi lögum. En hámark þess, sem sýslufélög mega leggja í sína eigin sjóði, er 12 og 6%o fasteignamatsverðs í sýslunni. Þegar þessi breyting var gerð á lögunum, þ.e.a.s. 1947, sem ég minntist á núna, þá mælti Jón Sigurðsson, þm. Skagf., svo m.a.:

„Við flm. leggjum því til, að þeirri reglu verði fylgt, að því meir sem sýslufélögin leggja á sig, því ríflegar komi ríkissjóður á móti þeim. Hygg ég, að hér sé vel stillt í hóf, og erum við flm. þess fullvissir, að því fé, sem ríkissjóður legði þannig fram, yrði vel varið.“

Þannig fórust þessum hv. þm. orð, þegar hann mælti fyrir þeirri breytingu á lögunum, sem nú á að nema úr gildi, og hugsunin er þessi, sem ég benti á áðan, að örva hin einstöku héruð til þess að leggja sem mest fram úr eigin vasa, leggja sem mest á sig, eftir því yrði ríkissjóður ríflegri í framlögum til þeirra. Þetta lýsir sem sagt einkar glögglega þeirri hugsun, sem að baki lá þessari lagasetningu um sýsluvegasjóði, en hún var sú, sem ég nú drap á.

En samkvæmt þessu frv. verð ég að segja það, að úthlutun á ríkisstyrknum til hinna einstöku sýslufélaga gerbreytist. Samkvæmt núgildandi lögum um sýsluvegasjóði er heildartillag ríkissjóðs til þeirra ekki bundið við hámark, heldur aðeins ákveðið, að tillagið skuli vera, eins og ég áðan benti á, miðað við tillag viðkomandi sýslu, sem er þó ákveðið í hámarki 12 og 6% fasteignamatsverðs. Það er því ekki rétt, þegar sagt hefur verið sem svo, að stóru sýslurnar gætu gleypt, eins og það hefur verið orðað, allt sýsluvegaféð, ef þær legðu nógu mikið fram sjálfar, m.ö.o.: eins og lögin voru, áður en þetta fasteignamat breyttist, að þá rynni þetta og þetta mikill hluti ríkistillags til sýsluvega til nokkurra fárra, stórra sýslufélaga. Þetta er ekki rétt nema að nokkru leyti, vegna þess að ríkið veitir fé, eins og margtekið er fram, eftir sömu hlutföllum um allt land, eftir því hlutfalli, sem sýslurnar leggja til sjálfar. Ég skal til skýringar þessu t.d. benda á, að ef Árnessýsla, sem er langstærsta sýslan hvað sýsluvegasjóð snertir, allt í einu hætti t.d. að leggja fé í sýsluvegasjóð sinn, hvaða aðili mundi græða á því? Það er vitanlega ríkissjóður. Tillag ríkissjóðs til Árnessýslu félli niður, vegna þess að hún sjálf hætti að leggja til síns eigin sýsluvegasjóðs. Önnur sýslufélög, aðrir sýsluvegasjóðir á landinu mundu ekki fá einn eyri af þessu fé, elns og lögin eru núna. Sá eini aðili, sem á þessu mundi græða, er ríkissjóður sjálfur. Ef þetta er ekki réttur skilningur minn,

þá veit ég, að þeir menn, sem þessum málum eru kunnugastir, leiðrétta þetta. En ég bendi á þetta vegna þess, að það er stundum sagt, að stærstu sýslurnar hafi hrifsað til sín mestan hluta af ríkistillaginu til sýsluvegasjóðanna, og er þá látið í það skína, ef það er sagt skýringalaust, að ríkistillag til sýsluvegasjóða væri fyrir fram ákveðin upphæð, og eftir því sem einhver sýsla tæki stærri hluta af því til sin, fengju hinar minna. En þetta er alger misskilningur, eins og ég hef sýnt fram á og eins og lögin eru núna. En aftur get ég ekki betur séð, en samkvæmt þeirri breytingu, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, breytist þetta á þann veg, að heildartillagið verður bundið við hámark. Í 1. gr. segir: „Framlag ríkissjóðs skal þó aldrei vera hærra, en tvöföld heildarupphæð innheimtra sýsluvegasjóðsgjalda um land allt næsta ár á undan.“ Þess vegna verður afleiðingin sú, ef þetta frv. verður samþykkt, að heildarupphæð ríkissjóðs til sýsluvegasjóða er bundin við hámark, en óbundið það, sem sýslur geta lagt til þeirra, og eiga þá kröfu á mótframlagi frá ríkissjóði, þá getur það bitnað á hinum sýsluvegasjóðunum, þannig að þeir fái minna en ella. M.ö.o.: samkvæmt frv. á að binda ríkissjóðsframlagið við hámark.

Ég hef ekki hugsað þetta mál svo, að ég geti gert mér í hugarlund, hvort þetta geti ekki haft einhverjar slæmar afleiðingar, að setja þetta í lögin, að tillag ríkissjóðs skuli vera bundið við hámark. Fasteignamatið, sem tillagið er bundið við, er óbreytt árum saman. Ríkissjóðstillagið er bundið við það, og það fasteignamatið — breytist ekki árum saman. En hver er kominn til að segja, að fjárþörf sýsluvegasjóðanna breytist ekki? Við getum bara litið til baka og séð, hvaða geysilegum breytingum allt verðlag í landinu hefur tekið núna undanfarin 10–15 ár, en allan þennan tíma var gamla fasteignamatið gildandi. Ég skal ekki fullyrða um það, hvort hámarksákvæðið til sýsluveganna getur haft einhver áhrif í framtíðinni til verra, fyrir sýsluvegasjóðina, og er það vegna þess, að ég hef ekki haft tækifæri til að athuga það, og þess vegna vil ég ekki fullyrða það, en ég aðeins bendi á þetta.

Ég vil þá aðeins athuga frv. nokkru nánar, en ég hef gert.

1. gr. inniheldur aðalefni frv. Þar segir, að árlega skuli veita úr ríkissjóði til sýsluvega upphæð, sem eigi sé lægri, en sem nemi 6%0 af samanlögðu fasteignamatsverði landa og lóða og 3%o af samanlögðu fasteignamatsverði húsa í öllum sýslum, þar sem sýsluvegasjóðsgjald er innheimt. Og þarna er að finna lágmarkið, sem gilda skal um þetta atriðl. Og þá segir enn fremur: „Framlag ríkissjóðs skal þó aldrei vera hærra, en tvöföld heildarupphæð innheimtra sýsluvegasjóðsgjalda um land allt næsta ár á undan.“ Þarna er að finna hámarkið, þessa upphæð, sem skipta skal árlega á milli sýsluvegasjóða landsins, og hvorki meira né minna. Þá kemur 3. málsl. 1. gr., sem segir: „Vegamálastjóri annast skiptingu á framlagi ríkissjóðs samkv. 1. málsgr., og skal við skiptinguna aðallega miða við lengd sýsluvega í hverri sýslu, en jafnframt skal þó höfð hliðsjón af, hve mikill hluti veganna er lagður, ruddur eða ekki akfær og með hve háum hundraðshluta sýsluvegasjóðsgjald er innheimt.“ Í fljótu bragði lítur þetta nógu vel út, að það á að breyta úthlutunarreglunum til þess að hjálpa þeim héruðum, sem eru styttra á veg komin með sína vegi. En þegar farið er að grandskoða ákvæðin nokkuð, þá kemur ýmislegt í ljós. Skiptingin á ekki að fara núna eftir því, hvað hver sýsla leggur af mörkum, ekki nema að nokkru leyti eða litlu leyti, en aftur lengd veganna, sem ræður, hvað mikill hluti þeirra er akfær eða hálfgerður. Ekkert tillit skal taka eftir frv. til þess, hvort umferð er um þá daglega allt árið með þungum vöruflutningabílum, 5–10 tonna bílum, eða hvort þeir eru í notkun nokkra mánuði ársins og þá ef til vill að mestu leyti með létta umferð. Og útkoman verður sú, að þær sýslur, sem hafa mesta sýsluvegi og ég vil segja ekki minni nauðsyn á að hafa sýsluvegina en aðrar, þær verða aðallega fyrir barðinu á frv. vegamálastjóra, þeirra framlag er stórlega skert, svo að það þykir manni nokkuð úr hófi fram, og þá á ég við það, eins og frv. liggur fyrir í byrjun.

Með frv. fylgir grg. vegamálastjóra. Þar er að finna ýmsar fróðlegar töflur. M.a. er tafla þar, sem segir um, hvernig tillag ríkisins skiptist milli sýsluvegasjóða landsins, ef miðað er við hið nýja fasteignamat og allar sýslur miða tillag sitt við 6%0 af land- og lóðaverði og 3%0 af húsaverði. En það athugist, að sýslurnar hafa heimild til þess að miða við 12%0 og 6%o eftir núgildandi lögum og einnig áfram, þó að þetta frv. verði samþykkt.

Ég vil þá minnast á útkomuna hjá nokkrum sýslum. Ég vil minna á eina sýslu t.d., og tek þær þá bara holt og bolt, að samkv. nýja fasteignamatinu og miðað við, að sýslutillag sé 6%0 og 3%0, þá á ríkissjóður að veita þessari sýslu 112 þús. kr., en heimatillagið er 67 þús. kr. Þetta virðist vera sem sagt mjög nálægt þeim reglum, sem nú gilda, að ríkissjóðstillagið sé heldur meira, ef þessi sýsla er í hámarki með sitt tillag. Samkvæmt tillögu vegamálastjóra, eins og frv. er, á þessi sýsla að fá 108 þús. í staðinn fyrir áður 112 og borga 86 þús. kr. sjálf í staðinn fyrir 67 þús. kr. áður. Þetta er ekki mjög mikil breyting hjá þessari sýslu. Ég vil minna á eina, sem á að greiða sjálf 76 þús. kr. eftir núgildandi fasteignamati, og 126 þús. kr. fær hún úr ríkissjóði. Þessi sýsla á eftir till. vegamálastjóra að leggja sjálf til 129 þús. og fá 245 þús. kr. Þessi sýsla hækkar sem sagt, hún fær næstum því tvöfalt sitt tillag.

Ég skal ekki fara langt út í þetta til þess að þreyta ekki hv. dm. En ég vil, úr því að ég er byrjaður á að skýra frá því, hvernig þetta kemur út eftir þessum till. vegamálastjóra, minnast á Árnessýslu, sem er, eins og ég sagði áðan, stærsta sýslan. Eftir núgildandi lögum, ef hún miðaði tillag sitt við 6%0 og 3%o eftir núgildandi fasteignamati, þá leggur hún sjálf til 423 þús., en á að fá 705 þús. úr ríkissjóði á móti því. Eftir till. vegamálastjóra ætti Árnessýsla að leggja til sömu upphæð sjálf, 423 þús., en fá úr ríkissjóði 184 þús. M.ö.o.: það á að kippa af tillagi til hennar, miðað við núgildandi fasteignamat, rúmlega hálfri millj. kr. Þetta er aðeins skyndimynd af því, hvernig frv. verkar, ef það verður samþykkt óbreytt. Verði okkar till. samþykkt, þá vitanlega gerbreytist þetta.

Í grg. frv. segir vegamálastjóri, með leyfi hæstv. forseta:

„Í grg. minni til samgmn. Alþingis, dags. 2. marz þ. á., um till. til breyt. á vegalögum er að því vikið, að mikil nauðsyn sé á því að hækka verulega framlög til sýsluvega, bæði úr héraði og úr ríkissjóði.“

Þetta segir vegamálastjóri í grg. sinni. En hvernig kemur þessi hækkun til sýsluveganna fram eftir frv.? Það hefur verið bent á, að það hækkar nokkuð vegna hærra fasteignamats, en síðan stendur það í stað vegna hámarksins. Tillag ríkissjóðs er ekki hækkað, en það er sett í hámark, en skiptingu ríkistillagsins er háttað á þá leið, að tillag til sumra héraða er stórlega hækkað með því að svipta önnur héruð miklum hluta styrksins, þau héruð, sem hafa ekki minni þörf á góðum vegum og vegirnir liggja mjög þungt á fjárhagslega, hafa ekki minni þörf á því, en önnur. Mér finnst þess vegna, að þessi hækkun, sem héruðin úti um land fá, sé ekki rétt fengin.

Við 1. umr. frv. kom það skýrt fram hjá flm., að þessu máli yrði hraðað í gegnum þingið, því að það yrði að samþykkjast og það sem fyrst og að mér virtist óbreytt. En þetta viðhorf breyttist þó nokkuð, þegar við hv. 1. þm. Eyf. fórum á fund samgmn. og tjáðum henni, að við mundum flytja brtt. við frv., og skýrðum frá efni hennar. Nm. tóku þessu mjög vinsamlega, tóku vinsamlega afstöðu til tillögunnar og kváðust mundu skýra vegamálastjóra frá efni hennar. Síðar tilkynnti nefndin okkur, að hún mundi samþykkja tillögu okkar, þó með því skilyrði, að við breyttum henni nokkuð að tillögu vegamálastjóra. Frá þessu hefur hv. frsm. n. skýrt, og þarf ég ekki að rekja það nánar. Nú höfum við flutt þessa till., og hún liggur hér fyrir á þskj. 423, og till. er um að breyta að nokkru 3. mgr. 1. gr., að því leyti, að framlag til sýslu skuli aldrei vera lægra, en hún leggur sjálf til sýsluvegasjóðs, en nefndin gerði þá kröfu að boði vegamálastjóra, að við þetta skyldi bætast, að þá yrði tillag sýslu miðað við 6%o fasteignamatsverðs lands og lóða og 3%o fasteignamatsverðs húsa. Þetta ákvæði tókum við síðan upp í okkar till., og nú er það einmitt í henni, eins og hún liggur hér fyrir. En ég vil geta þess, að þrátt fyrir þetta er tillagan, þó að hún yrði samþykkt, engan veginn að mínu áliti allra meina bót hvað frv. snertir. Ég held því fram, að hún sníði verstu ágalla af frv., en breyti því ekki í grundvallaratriðum. Það er álit mitt, að frv. stefni ekki í rétta átt.

Nú vil ég taka fram, að andstaða mín gegn þessu frv. byggist hvorki á því, að ég vilji koma málinu fyrir kattarnef, eins og hv. þm. V-Sk. lét hér skína í í gær, né að ég viðurkenni ekki fyllilega þörf hinna ýmsu héraða fyrir aukið tillag til sýsluvega. Það er langt frá því, og enginn taki orð mín svo. Ég skal fyllilega viðurkenna þörf þeirra. En ég felli mig ekki við það, að þessari þörf þeirra sé fullnægt með því að taka tillagið af sumum héruðum, sem mjög mikla þörf hafa fyrir það og kannske er lífsskilyrði, eins og ég hef tekið fram, að samgöngurnar séu sem allra beztar, að það sé tekið tillagið af þeim til þess að hækka hjá hinum. Ég hefði álitið, að hægt hefði verið að hafa aðrar aðferðir við þetta, vegna þess að svona aðferðir eru ekki til annars, en að vekja óþarfa úlfúð og óánægju og ég vil segja: auka ef til vill misræmið á milli héraða, þvert á móti því, sem frv. er ætlað að gera.

Ég er ekki í vafa um, að ýmsar aðferðir hefði verið hægt að hafa og finna til þess að bæta hag þessara héraða á annan hátt en þennan eða án þess að skerða hlut annarra sýslufélaga. Það má t.d. benda á, hvort ekki hefði verið réttara í þessu máli að binda hámark prómillegjaldsins við 6%0 og 3%0 í lögunum, í staðinn fyrir að láta helmingi hærra gjaldið gilda, 12 og 6, eins og það er enn þá í lögunum og verður áfram, — hvort ekki hefði verið réttara að breyta því og taka bara niður í 6 og 3, með heimild til hækkunar hjá þeim sýslum, sem ekki hafa fengið fasteignamat hjá sér hækkað til helminga eða rúmlega það. Þetta finnst mér að hefði getað verið til athugunar, og ef þetta hefði verið haft einhvern veginn á þennan hátt, þá hefði verið hægt að hafa úthlutunarreglurnar óbreyttar eins og þær eru núna. Einnig gæti ýmislegt fleira komið til greina, sem ég skal ekki rekja hér.

Ég get ekki að lokum látið vera að minnast lítið eitt á undirbúning þessa máls og tilkomu þess inn á hv. Alþ. Í grg. frv. segir m.a.:

„Af því, sem að framan greinir, og við athugun á þeim upplýsingum, sem sýndar eru á fylgiskjali I-IV, virðist mér ljóst, að hið nýja fasteignamat sé með öllu ónothæfur grundvöllur fyrir skiptingu á ríkisframlagi til sýsluveganna eftir gildandi lögum.“

Þetta segir vegamálastjóri í grg. Og í grg. segir enn fremur þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Í grg. minni til samgöngumálanefnda Alþ., dags. 2. marz þ. á., um tillögur til breyt. á vegalögum er að því vikið, að mikil nauðsyn sé á því að hækka verulega framlag til sýsluvega, bæði úr héraði og frá ríkissjóði, ef bygging þeirra á ekki að dragast fleiri mannsaldra, og vil ég undirstrika það hér. En þó að eðlilegt yrði talið að innheimta aukin framlög frá sýslunum sem gjald miðað við fasteignamat, þá tel ég ófært að skipta auknu ríkisframlagi á sama grundvelli og verið hefur.“

Þetta segir vegamálastjóri í grg. fyrir frv. Og hann segir enn fremur, að hann hafi sagt þetta eða lagt þetta fram skriflega 2. marz hjá samgöngumálanefndum. Nú virðist mér, að þar sem vegamálastjóri segir alveg hiklaust, að þetta sé ófær grundvöllur, sem nú er verið að löggilda, ófær grundvöllur til þess að fara eftir, og hann lætur samgöngumálanefndir beggja deilda vita þetta 2. marz, því er ekki frv. þetta lagt þá fram strax, til þess að það hefði þó verið mánuði lengur eða vel það hægt að átta sig á þessu stórkostlega máli? Það mátti samgöngumálanefndunum vera ljóst um þetta mál, svona gerbreytingu í þýðingarmiklu og viðkvæmu máli, að það mundu verða gerðar tilraunir til þess að lagfæra, ef stórir gallar mundu verða þar á, og enginn vafi var á því, að það mundi verða stórgallað í augum sumra, sæmilegt í augum sumra, en ágætt hjá öðrum. Þetta finnst mér samgöngumálanefndir, sem vissu um þetta álit vegamálastjóra, hafa ekki gert rétt, að hraða þá ekki því að láta þetta frv. koma fram, til þess að tími gæfist til að athuga það.

Ég vil svo að síðustu endurtaka það, að að samþykktri till. á þskj. 423, þ. e. a. s. till. okkar hv. 1. þm. Eyf. (BSt), að henni samþykktri skal ég viðurkenna það, að allra verstu annmarkar eru numdir af frv. þessu, og þess vegna mun ég ekki ganga á móti framgangi málsins að því svo breyttu. En ég vil þó segja það, að ég stend við þær athugasemdir, sem ég hef gert við frv. nú.

Viðvíkjandi þeirri ósk hv. frsm. að setja nú annan fund í dag til þess að afgreiða málið út úr deildinni, þá vildi ég láta í ljós þá skoðun og skjóta því til hv. frsm., hvort hann sæki það svo fast eða nefndin sæki það svo fast, að þetta sé gert, að það sé alveg ófrávíkjanlegt að ljúka málinu á öðrum fundi í dag. Eins og fram hefur komið og sést á þskj. 423, er hv. 1. þm. Eyf. annar flm. að brtt. Ég hef ekki náð í hann í síma, þar sem hann hefur verið veikur, en hv. frsm. hefur fengið boð frá honum, að hann vildi samþykkja till., eins og hún liggur fyrir, með þessari breyt., sem inn er komin í hana vegna beiðni eða að tillögu vegamálastjóra. En ég gæti vel trúað því, að hv. 1. þm. Eyf. hefði haft löngun til þess að láta álit sitt í ljós um málið, og þess vegna hefði ég óskað eftir því, að það hefði verið látið nægja í dag að vísa málinu til 3. umr. Það væri þá hægt að taka það aftur á dagskrá, t.d. á föstudaginn, og ég mundi ekki gera frekari tillögur um að fresta málinu, ef hv. 1. þm. Eyf. yrði þá ekki kominn til þings.