22.04.1959
Efri deild: 106. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (1275)

146. mál, sýsluvegasjóðir

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Ég get haft þetta fremur stutt. — Hv. 2. þm. Árn. (SÓÓ) ræddi málið af mikilli sanngirni og prúðmennsku, verð ég að segja, þótt hann að sjálfsögðu haldi fram sínum sjónarmiðum í þessu máli.

Ég vil þá benda hæstv. forseta á það, sem ég gleymdi í ræðu minni áðan, að það mun vera villa í 3. gr. frv.: „Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt er úr gildi numin 2. gr. laga nr.150 17. maí 1947.“ Þetta er rangt. Þau eru ekki nr.150, heldur nr. 50, svo að ég vænti þess, að hæstv. forseti láti leiðrétta þetta nú þegar.

Þá vil ég leiðrétta einn hlut, sem ég sagði hér áðan, að þeir, sem voru fjarverandi á fundi samgmn. í morgun, voru hv. þm. V-Sk. (JK) og hv. 4. þm. Reykv. (EggÞ), því að það eru þeir, sem eiga sæti í þessari hv. n., en ég hafði sagt, að það hefði verið hv. 4. landsk. (FRV), en hann á ekki sæti í nefndinni.

Hv. þm. lagði áherzlu á það, hversu það væri nauðsynlegt, að ríkisframlagið færi hækkandi eftir því, sem sýslufélögin legðu meira fram sjálf. Út af fyrir sig vil ég ekki mótmæla þessu. En það verður þá alveg samhliða að líta á það, hvaða möguleika þessi sýslufélög hafa til þess að leggja mikið fram. Þegar fasteignamatið hækkar aðeins um 48% í einni sýslu, en um 409% í annarri sýslu og heimild sýslufélaganna til þess að innheimta sýsluvegagjald fer eftir þessu fasteignamati, þá sjá menn, hversu mjög misjafnir möguleikar eru fyrir sýslufélögin að leggja eigið framlag fram. Sú sýsla, þar sem fasteignamatið hækkar ekki nema um 48%, getur aldrei komizt nema í hámark hundraðstölunnar af þessu fasteignamati. En hin sýslan getur það alveg eins, sem hefur fengið 409% hækkun á fasteignamat sitt. Og það er þetta, sem gerir það að mínum dómi útilokað að láta fasteignamatið gilda sem mælikvarða á ríkisframlagið.

Hann gat þess að, að óbreyttum lögum tapaði ekkert sýslufélag á því, þótt ríkisframlagið hækkaði til annars sýslufélags. Þetta er alveg rétt. Það breytir ekki framlögum ríkisins til hinna sýslufélaganna, ef lögunum er ekkert breytt. En þörfin fyrir að breyta lögunum er einmitt sú, að það eru heftir möguleikar þeirra sýslufélaga, sem hafa lágt fasteignamat og kannske erfiðari fjárhag, til þess að leggja sýsluvegi, ef lögunum er ekki breytt. Hv. þm. skýrir alveg rétt frá þessu. Með þessu frv. breytist þetta aftur á móti. Hann nefndi sem dæmi, hvað ríkisframlag til Árnessýslu mundi lækka mikið, ef frv. þetta yrði samþykkt og ef brtt. kæmi ekki til. Það er alveg rétt. En við skulum ræða málið eins og það liggur fyrir og eins og nefndin mælir með því, að brtt. sé samþ. Þá er þetta ekki eins óskaplegt og maður skyldi halda, því að þá lækkar ríkisframlagið ekki nema úr 603 þús. niður í 537. Árnessýsla mundi á eftir fá þó um sjötta hluta af öllu ríkisframlaginu, ef brtt. er samþ. eins og n. leggur til. Það er því ekki nema að litlu leyti, sem þetta er á kostnað þessara sýslufélaga, að framlag ríkisins til hinna sýslufélaganna hækkar. Það er líka, eins og ég sagði áðan, fyrir það, að framlagið í heild verður nú hækkað. Ef við aftur á móti förum út í að gera okkur grein fyrir sjálfum þörfunum, lengd sýsluveganna í hverju héraði og ástandi þeirra, þá hljótum við að sjá, að það er erfitt að standa á móti jafnmiklu sanngirnismáli og þetta frv. er. Eitt af þeim sýslufélögum, sem kynnu að lækka við þessa breyt., hefur t.d. ekki einn einasta km óbílfæran í sínum sýsluvegum. Það er dálítill munur, en er um önnur sýslufélög, sem greinilega er skýrt frá í nál. með frv.

Hv. þm. sagðist hafa kosið helzt, að hægt hefði verið að mæta þessum þörfum sýslufélaganna, sem mesta þörfina hafa, án þess að lækka hjá neinum öðrum. Ég get tekið alveg undir þetta. Það væri skemmtilegast. En þá má ekki setja hámark á ríkisframlagið. Nú hafa alþm. það á valdi sínu, hvað þeir veita mikið til þessa, með því að það er ákveðið í fjárlögum. Ég vil ekki fullyrða um það, hvernig þetta kann að verka í framtíðinni. Hitt vil ég þó segja, að óeðlilegt er það ekki, að Alþ. sjálft ákveði með afgreiðslu fjárlaga, hvað það vill leggja til þessara framkvæmda og hvað það vill leggja til hinna. Það er ekki óeðlilegt út af fyrir sig. En víst er það svo um ýmis mál, að ríkið er bundið við að leggja fram samkv. sérstökum lögum, öðrum en fjárlögum, svo að það er ekkert einsdæmi og fjarri því, þó að svo væri um ríkisframlagið til sýsluveganna. En þá verður það líka að vera tryggt, að ríkið geri það. Það er t.d. í lögum, hvað ríkið á að leggja til skólabygginga, svo að ég nefni dæmi. En það er orðinn nokkur dráttur, vægast sagt, á því, að ríkið hafi gert þetta, og heyrt hef ég þeim rökum beitt, að þótt ríkið eigi að leggja svona og svona mikið fram, þá sé ekki sagt í lögunum, að það eigi að gera sama árið og ætlazt er til að framlögin komi. Þetta atriði skal ég viðurkenna að er fyllilega athyglisvert, hvort á að fallast á þetta ákvæði, að hámark ríkisframlagsins skuli bundið í fjárlögum. Ég hef samt gert það og vil undir engum kringumstæðum hindra þetta frv. út frá þessu atriði.

Loks kom hv. 2. þm. Árn. (SÓÓ) að því atriði, að samgmn. hefði ekki verið fljót í störfum sínum með þetta frv., því að samkv. grg. hefði vegamálastjóri skrifað samgöngumálanefndum bréf 2. marz út af þessu máli, sem nú væri fyrst að koma hér til 2. umr. í dag. Því skal ég svara, að þetta bréf hefur aldrei komið til samgöngumálanefndar efri deildar. Þegar samvinnunefnd samgöngumála eru skrifuð bréf, þá ganga þau til samgöngumálanefndar Nd., og það var ekki 2. marz, sem þetta mál var lagt fyrir okkur, það var ekki einu sinni 2. apríl. Það var 8. apríl, sem þetta mál var lagt fyrir fund samvn. samgm. Það er ekki lengra síðan.

Að lokum drap hv. þm. á það, hvort ég legði á það áherzlu, að hæstv. forseti boðaði fund hér að loknum þessum fundi til að taka málið til 3. umr., og benti hann á, að hv. 1. þm. Eyf. (BSt) væri fjarstaddur og gæti ekki tekið þátt í meðferð þessa máls í þessari hv. d., ef þetta yrði gert. Það er slæmt að vísu, að hv. 1. þm. Eyf. er hér ekki viðstaddur. En ég hef enga víssu fyrir því, að hann verði viðstaddur, þó að þetta yrði dregið fram á föstudag, og það er annað, sem ég legg meiri áherzlu á, þ.e. að málið nái fram að ganga. Ég hef skilið það svo, að það muni vera stutt til þinglausna, og málið á eftir að fara í gegnum Nd. Ég vil ekki stofna málinu í hættu með því að draga nú í tvo daga síðustu umr. í þessari hv. deild, til þess eins að vonast eftir því, að hv. 1. þm. Eyf. geti þá verið viðstaddur. Ég vil heldur taka það á mig, eftir að búið kann að vera að samþ. þá brtt., sem hann er sjálfur flm. að, að leggja til, að þetta verði gert, málinu verði hraðað svona, eins og ég lagði til við hæstv. forseta áðan, af því að hitt vil ég ekki að komi fyrir, að málið dagi uppi.