20.01.1959
Neðri deild: 59. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1727 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)
83. mál, húsnæði fyrir félagsstarfssemi
Björn Ólafsson:
Herra forseti. Ég er ekki á móti því, að þessi félagasamtök, sem hér um ræðir, fái rétt til þess að kaupa íbúðarhúsnæði til notkunar fyrir starfsemi sína. En mér finnst til of mikils ætlazt, að Alþ. sé látið samþykkja lög í hvert skipti, sem slík félagasamtök óska eftir að eignast íbúðarhúsnæði til sinna þarfa. Þess vegna finnst mér, að rétta leiðin hjá hv. flm. hefði átt að vera sú að koma með breyt. á l. og fela það á vald ráðh. að gefa þessa undanþágu, sem hér er um að ræða. Við skulum ekki ímynda okkur, að þetta verði síðasta lagafrv., sem flutt verður í þessu skyni, ef heimild verður ekki gefin eða breyt. verður ekki gerð á l. frá því, sem þau eru nú. Ég sé ekki, að Alþ. eigi auðvelt með að neita öðrum félagasamtökum um slíka heimild eftir þau fordæmi, sem þegar hafa verið gefin í þessu efni. Ég vil þess vegna skora á hv. flm., að þeir breyti þessu frv. sínu á þann veg, að gefin sé heimild í l. til ráðh. að ákveða um þetta atriði.