12.05.1959
Efri deild: 118. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 1733 í B-deild Alþingistíðinda. (1329)
83. mál, húsnæði fyrir félagsstarfssemi
Eggert Þorsteinsson:
Herra forseti. Þau félagasamtök, sem hér eiga hlut að máli, höfðu samráð við heilbr.- og félmn. beggja d. um flutning þess, og þó að málið hafi verið svo lengi á döfinni hjá hv. Nd., þá er áreiðanlegt, að um mál þetta er enginn ágreiningur, a.m.k. var ekki um hann vitað í hv. félmn. beggja d., þegar fram á flutning þess var farið. Ég vil því mjög eindregið mælast til þess við forseta, ef ekki koma fram sérstök andmæli gegn því, þar sem svo er áliðið þingtímans, að reynt yrði að hraða framgangi þessa máls, og ég tel ekki heldur ástæðu til þess, að málið fari hér til n. Hér er ekki um svo viðamikið mál að ræða, að það þurfi sérstakrar rannsóknar við, enda mun hv. n. í Nd. hafa aflað sér þeirra upplýsinga, sem þörf var á. Það er vitað, að félmrn. er meðmælt þessu og að umrædd félög, sem í frv. frá greinir, hafa þegar fest kaup á þessu húsi út á loforð þingnefnda beggja deilda um stuðning við málið.
Ég mælist þess vegna eindregið til þess, að málið þurfi ekki til n. að fara, þar sem óvíst er um framhald á deildafundum, þó að þeir kunni að verða einhverjir, og að málið fái sem skjótastan framgang hér í deildinni.