06.11.1958
Neðri deild: 16. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í C-deild Alþingistíðinda. (1367)

9. mál, biskupskosning

Frsm. meiri hl. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Síðasti hv. ræðumaður talaði svo sem Alþ. væri með þessu frv. að seilast inn á sjálfstjórnarrétt kirkjunnar. Á annan veg urðu hans ummæli ekki skilin, hin síðustu og raunar fleira, sem hann sagði í sínu máli.

Vegna þess vil ég einungis benda á, að nú alveg nýlega settist í fyrsta skipti á rökstóla kirkjuþing, sem ætlað er að vera til ráðuneytis Alþ. og stjórnarvöldunum um málefni kirkjunnar. Þetta þing er sett eftir ósk kirkjunnar manna, en skv. lögum, sem Alþ. og forseti Íslands hafa ákveðið skv. stjórnarskrá lýðveldisins. Þessi stofnun, sem einmitt er ætlað að koma af hálfu kirkjunnar og leikmanna, sem hug hafa á hennar málum, fram gagnvart Alþ., hefur einum rómi mælt með frv. Það er því síður en svo, að Alþ. eða flm. þessa frv. og styðjendur séu á óvelkominn hátt að blanda sér í málefni kirkjunnar, að sú stofnun, sem er ætluð til þess að vera kirkjunnar rödd í þessum efnum, hefur alveg ótvirætt lýst yfir stuðningi sinum við málið. Og ég tek sannast sagt meira mark á hennar umsögn en umsögn hv. síðasta ræðumanns, 2. þm. Rang. (SvbH), þó að ég meti hann mikils og viti, að hann er ágætur klerkur. En hann hefur sjálfur sagt hér, að hann talaði ekki í umboði prestastéttarinnar, og raunar lýst því einnig í þeirri umsögn, sem stjórn Prestafélagsins gaf, að henni er með öllu ókunnugt um, hvern hug prestastéttin hefur í málinu. Aftur á móti er kirkjuþingið lögskipað til þess að láta uppi skoðun kirkjunnar á málinu, og prestastéttin hefur með undirskriftum sínum látið uppi, hvern hug hún hefur í þessu máli, gangandi út frá því, að sams konar lagaákvæði væru í gildi eins og menn gerðu um meira en 20 ára skeið; þangað til úrskurðað var öllum að óvæntu núna í haust, að lögin hefðu verið rangskilin. En ætlun með þessu frv. er að færa ákvæðin til þess horfs, sem bæði prestastéttin og allur almenningur í þessu landi hefur talið að væri í gildi.

Mér er það með öllu ókunnugt, hvort hv. síðasti ræðumaður er meðal þeirra, sem skoruðu á kirkjustjórnina að láta núv. biskup, herra Ásmund Guðmundsson, halda áfram að vera í embætti eða ekki, og skiptir það í sjálfu sér ekki ýkja miklu máli. En mér skildist þó af orðum hv. ræðumanns, að hann hafi ekki getað verið í þeim hópi. Hann talaði um undirskriftafargan og annað slíkt, að það ætti að efna til undirskriftafargans nú enn á ný, eins og þær undirskriftir, sem þegar hafa átt sér stað, væru fargan í hans augum, og getur hann þá naumast hafa tekið þátt í því sjálfur. En hafi hann ekki tekið þátt í því, er ljóst, hversu einangraður hann er innan prestastéttarinnar í málinu, þar sem vitað er, að 9 af hverjum 10 prestum landsins tóku þátt í þessu fargani, sem hv. þm. svo nefnir og notar þar einmitt sama orðið og nóbelsverðlaunaskáldið Halldór Kiljan notaði um framferði Rússa gagnvart Pasternak, og er þó vissulega ólíku saman að jafna.

Hinu verð ég eindregið að mótmæla, sem hv. þm. sagði að vísu ekki berum orðum, en hann gaf í skyn hvað eftir annað, svo að ekki gat dulizt, hvað honum bjó í huga, að núv. herra biskup hafi sjálfur óskað eftir þeim undirskriftum, sem átt hafa sér stað, og átt hlut að því, að þær voru gerðar, nánast að það hafi verið fyrir bónarstað hans, að menn léðu nafn sitt til þeirra undirskrifta. Samkvæmt þeim sögnum, sem ég hef af þessu, fer því fjarri, að þetta sé rétt. Það er síður en svo, að biskup sé upphafsmaður þessa máls. Og það get ég sagt af eigin raun og þarf ekki annarra umsagnir við, að biskupinn er ekki upphafsmaður þessa frv., það er ekki flutt að hans ósk eða tilhlutan á nokkurn veg.

Hitt er í raun og veru eðlilegt, að mönnum sýnist sitt hvað um slíkt mál eins og þetta. En með því þarf ekki að gefa í skyn, hvorki að það sé uppkomið fyrir áróður frá einum né öðrum, enn þá siður, að það sé flutt í því skyni að gera hlut kirkjunnar lítinn. Ég get látið mér nægja að vitna til þess, að kirkjuþingið sjálft hefur mælt með frv., og má nærri geta, hvort það hefði svo gert, ef það væri skoðun þeirra aðila, sem þar sitja, að tilgangur frv. væri sá að gera veg kirkjunnar og biskups minni, en verið hefði.

Þá lét hv. síðasti ræðumaður svo sem að einhverju leyti væri rangt sagt það, sem í grg. frv. er sagt um embættissetu herra Jóns Helgasonar fram yfir sjötugsaldur. Það, sem í grg. segir, er — með leyfi hæstv. forseta — þetta:

„Um þá túlkun, sem lagakennararnir gerðu, skal ekki deilt, þó að hún brjóti í bága við það, sem gert var um hinn eina biskup, sem þar til nú hefur náð sjötugsaldri, eftir að lögin frá 1935 tóku gildi, en engin efnisbreyting hefur orðið að þessu leyti frá því, sem í þeim l. var ákveðið.“

Þetta er óumdeilanlega rétt. Það verður ekki með neinu móti burtskýrt, að herra Jón Helgason sat í embætti, þangað til hann var töluvert kominn á 73. ár, og það verður ekki heldur með neinu móti burtskýrt, að hann gerði það eftir beinum tilmælum kirkjumrh., sem þá var og svo vill til að er hinn sami maður og er kirkjumrh. í dag. Hafi hann ekki stuðzt við vilja prestastéttarinnar þá, má segja, að ákvörðun hans hafi verið enn hæpnari ,en hún jafnvel verður að teljast, eftir að álit þessara tveggja lagakennara kemur til. En það haggar ekki því, að þá taldi kirkjumrh., að sérákvæði giltu um biskup. Það var hiklaust hlutazt til um það af þáv. stjórnarvöldum, að aðrir embættismenn væru látnir víkja úr embætti, strax og lögin frá 1935 tóku gildi, enda segir berum orðum í 3. gr. þeirra: „Þeir opinberir embættis- og starfsmenn, sem eru orðnir sjötíu ára, er lög þessi öðlast gildi, skulu víkja úr stöðum sinum 1. janúar 1935, eða gangi lögin siðar í gildi, þá 1. dag næsta mánaðar, eftir að lögin öðlast gildi“ Lögin eru undirrituð 9. jan. 1935, svo það hefur eftir atvikum verið þá um vorið, vorið 1935, sem embættismönnum almennt hefur verið skylt að víkja úr embætti og þeir látnir þaðan hverfa.

Hv. síðasti ræðumaður sagði, að það hefði ekki tekið til biskups, vegna þess að hann hefði verið skipaður eftir allt öðrum reglum og áður en þessi lög komu í gildi og jafnvel áður en lögin um biskupskjör komu í gildi. En auðvitað var það svo, að allir embættismenn, sem urðu að víkja 1. janúar 1935 eða 1. næsta mánaðar eftir að lögin gengu í gildi, voru auðvitað búnir að taka við embætti, áður en þau lög gengu í gildi. Það segir sig sjálft; og ákvæði 3. gr. l. að þessu leyti er alveg ótvírætt. Ástæðan til þess, að Jón Helgason var látinn sitja lengur, getur ekki verið nein önnur er sú, að þáv. kirkjumrh. taldi, að sérákvæði laganna í 1. gr. tækju til biskups. Að ekki hafi komið til undirskriftir presta, haggar ekki því, vegna þess að það hefur heldur aldrei verið farið eftir orðalagi þessara laga eða samsvarandi l. varðandi þau önnur ákvæði, sem voru um það, að ganga ætti til atkvgr. um presta að nýju, ef þeir ættu að sitja til 75 ára aldurs. Ákvæði í gr. l. frá 1935, niðurlags hennar, hljóðar þannig: „Ef embættismaður, sem hlotið hefur embætti sitt með almennri kosningu, fer frá skv. ákvæðum þessara laga, skal honum heimilt að sækja um embættið að nýju. Hljóti hann kosningu, skal hann fá veitingu fyrir embættinu um 5 ár.“ Þetta hefur verið skilið þannig, að embættismaðurinn mætti sitja fimm ára tímabil, en það hefur aldrei fram að þessu verið látin fara fram ný kosning þrátt fyrir skýlaust fyrirmæli í bókstaf laganna.

Hv. þm. lét svo sem það hefði dregizt nánast óvart, að biskup Jón Helgason hefði verið látinn víkja úr embætti. En það skaut því að mér hér einn þm., að það er fleira, sem getur gert menn minnislausa, heldur en ellin ein, ef það er eingöngu vegna gleymsku þáv. ráðherra, að herra Jón Helgason var látinn vera um 21/2 ár í embætti fram yfir það, að hann varð sjötugur, því að ekki var núv. hæstv. kirkjumrh. — hvort sem hann kann að vera ellibilaður í dag eða hans skortur á ýmsum hæfileikum sprettur af elli eða öðru, þá var a.m.k. ekki ellinni til að dreifa þá, fyrir nær aldarfjórðungi.

Það verður ekki fram hjá því komizt, og það skiptir mjög miklu máli í þessu sambandi, að lögin voru framkvæmd með þeim hætti og hafa ætið þangað til í haust verið skilin þannig, að biskup mætti eins og prestar almennt sitja til 75 ára aldurs. Þessu var slegið föstu í framkvæmd, strax og í fyrsta skipti reyndi á. Að þessari framkvæmd hefur aldrei verið fundið, og m.a. prestastéttin með sínum undirskriftum nú í sumar sýndi, að hún, sem þessum málum er kunnugust og hana snertir mest, taldi sjálfsagt, að þetta væri enn í gildi. Hér er því, eins og ég sagði, ekki verið að efna til nýrrar reglu eða nýrrar undantekningar, heldur einungis verið að staðfesta, að það sé í gildi, sem allir hafa talið, frá því er fyrst reyndi á, að væri í gildi, og engum hefur þangað til núna komið til hugar að finna að.

Hv. frsm. gerði ráð fyrir því, að áður hefði verið almenn heimild til þess, að menn mættu sitja fram yfir 75 ára aldur, en sú heimild hefði verið numin úr lögum, vegna þess að hún hefði ekki reynzt vel. Þetta er misskilningur, vegna þess að áður var ráðgert, að menn færu almennt frá 65 ára gamlir, og þurfti nánast sérstaka ákvörðun um það, ef maður ætti að sitja lengur, nema þetta með prestana, að alltaf var ráðgert, að þeir gætu setið til 75 ára aldurs með þeim hætti, sem ég vitnaði til.

Það, sem skeði, var, að síðar þótti 65 ára aldur vera of lágt aldurshámark, og í stað þess, að það var látið vera í valdi þess, sem skipaði, hvort maðurinn færi frá milli 65 og 70 ára aldurs, þá hefur sá, sem skipar í stöðuna, nú ekki rétt til þess að láta manninn fara frá fyrr en, hann verður sjötugur, nema sannanleg glöp af elli eða öðrum sökum komi til. Hið almenna aldurshámark var því í raun og veru hækkað. Frá því eru hins vegar undantekningar, þar sem lægra aldurshámark tekur til, sem sýnir, að sjötíu ára aldurinn er ekkert guðsboðorð, ef svo má segja, sem alls ekki megi víkja frá.

Um hæstaréttardómara eru sérákvæði í sjálfri stjórnarskránni þess efnis, að þá má láta hætta, þegar þeir eru 65 ára og hvenær sem er eftir það. Og hliðstæð ákvæði eru nú og voru sett með l. nr. 32 1948 varðandi aðra dómara og eru felld inn í l. um meðferð einkamála í héraði, nr. 85 frá 1936, þannig að í þeim l., sem fjalla um réttarfar, er undantekningarregla varðandi aldurshámark embættismanna, sem sýnir, að það er á misskilningi byggt, sem ég hygg að hv. frsm. minni hl. víki að í sínu nál., að það sé eitthvað óviðkunnanlegt, að þetta sérákvæði, sem ætlazt er til að lögfest sé með okkar frv., er fellt inn í l. um biskupskosningu. Það er einmitt með hliðsjón af þeim sérákvæðum, sem fyrir hendi eru nú þegar, sem þetta form var valið. Fordæmin segja einmitt til um, að þannig hefur þótt réttast að haga þessu efni.

Þegar menn svo tala um, að í hinum virðulegustu embættum megi menn ekki vera eldri, en í þeim óvirðulegri, þá játa ég það, að í mínum augum er biskupsembættið eitt af virðulegustu embættum landsins. En þó er það ekki virðulegra, en t.d. embætti forseta Íslands, og ég vil ekki segja, að það sé virðulegra, en embætti ráðherra í ríkisstj. Íslands, þó að það sé mjög sitt með hverjum hætti. En hvorki um embætti forseta Íslands né ráðherraembættin gildir aldurshámark. Lögin um aldurshámark taka alls ekki til þessara aðila. Það er vegna þess, að þeir eru valdir með sérstökum hætti. Kjósendum forseta, alþjóð á Íslandi, er ætlað að hafa dómgreind til þess að kveða á um, hvort maður sé sökum aldurs hæfur til þess að vera kjörinn í sína stöðu.

Forseta, en einkanlega Alþ., er ætlað að dæma um það, hvort ráðherra sé þrátt fyrir aldur hæfur til þess að gegna ráðherrastöðu. Það er ekkert því til fyrirstöðu, að maður væri áttræður eða jafnvel níræður ráðherra á Íslandi, eins og sums staðar, sbr. t.d. Þýzkaland nú, mjög vel hefur gefizt. Þetta er í höndum þeirra, sem ráða vali manna í stöðuna. Alveg með sama hætti ætlumst við, stuðningsmenn þessa frv., til, að það sé í hendi þeirra, sem eiga að ráða vali biskups, hversu lengi hann sitji í sínu embætti, en þó ekki lengur en til 75 ára aldurs. Það verður ekki fram hjá því komizt, að alveg eins og það eru sóknarmennirnir, sem kjósa sinn prest, þá er það prestastéttin, sem með almennri kosningu í þeim hóp hefur í hendi sér að kjósa biskup: Og hvað er eðlilegra heldur en, eins og sóknarmennirnir hafa vald til þess eftir l., að prestur megi sitja áfram til 75 ára aldurs, eins hafi kjósendur biskups, prestarnir, vald til þess að kveða á um það, að hann megi sitja til 75 ára aldurs, alveg eins og Alþ. hefur í hendi sér að ákveða aldurshámark ráðherra og íslenzka þjóðin hefur í hendi sér að ákveða aldurshámark forseta Íslands? Þetta er sú almenna regla, sem að lögum gildir um þá embættismenn, sem valdir eru í hin virðulegustu embætti með þeirri kosningu, sem í hverju einstöku tilfelli er takmörkuð við mismunandi hópa. Það væri því beinlínis til að brjóta ekki aðeins á móti þeirri hefð og framkvæmd, sem gilt hefur, heldur á móti þeirri almennu réttarreglu, sem viðtekin er um öll samsvarandi embætti og ekki prestastéttina eina, ef menn vildu nú fara að innleiða nýja reglu varðandi biskupinn. Og ég legg enn áherzlu á, að það er ekki með þessu frv. verið að leggja til, að ný regla verði upp tekin, heldur eru andstöðumenn frv. að berjast fyrir nýjum hætti í þessu máli.