21.11.1958
Efri deild: 24. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í B-deild Alþingistíðinda. (140)

52. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Með þessu frv. er lagt til, að framlengd verði ákvæði um tekjuöflun, sem sett voru með l. nr.100 1948, um dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna, með þeim breyt., sem gerðar hafa verið á þeim, m.ö.o.: að framlengd verði þau ákvæði, sem nú eru í gildi.

Ég sé ekki ástæðu til að færa fram um þetta efni frekari skýringar, en óska eftir, að málinu verði vísað til hv. fjhn, að lokinni þessari 1. umr.