05.03.1959
Efri deild: 79. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í C-deild Alþingistíðinda. (1403)
43. mál, póstlög
Frsm. meiri hl. (Björgvin Jónsson):
Herra forseti. Hv. 1. landsk. bar hér fram nokkrar fsp. í d. um daginn viðvíkjandi frv. um breyt. á póstlögum. Ég ritaði póst- og símamálastjóra þessar fsp. og óskaði eftir því, að hann svaraði þeim, þar sem þær voru eingöngu faglegs eðlis. Nú vil ég leyfa mér að lesa svörin við þessu frá póst- og símamálastjóra. Það er tekið fram, að þau eru skrifuð af Magnúsi Jochumssyni póstmeistara, vegna þess að símamálastjóri var farinn af landi brott í embættiserindum. En svörin eru þannig:
Við 1. spurningu: „Í alþjóðapóstsamningum eru engin bein ákvæði um eignarrétt póststjórnar á álímdum frímerkjum á eyðublöðum þeirra, því að það þykir svo sjálfsagður hlutur, þar sem flutningur póstsins er greiddur með frímerkjum. Slíkir gervipeningar eru og víða notaðir á öðrum sviðum, t.d. við vissa sjálfsala, og dettur víst engum í hug að nota fyrst peninginn og krefjast svo afhendingar á honum. Þá mætti nefna farmiða í strætisvögnum, járnbrautum o.fl. Í 101. gr. starfsreglugerðar, sem fylgir núgildandi alþjóðapóstávísanasamningi, er mælt svo fyrir, að póstávísanir skuli gefnar út samkv. eyðublaði af gerð MP 1, sem hér fylgir sýnishorn af. Þetta gildir þó ekki um póstávísanir landa, er nota svonefnt listakerfi, þar sem ávísanaspjöld eru ekki gefin út af upprunapósthúsinu, heldur aðeins listi. Yzt til hægri á því er eyða, sem er ætluð fyrir frímerki, sbr. áritunina: „hér skal setja frímerki:.“ Aftan á þessum hluta eyðublaðsins er kvittun viðtakanda, sem pósturinn á að halda eftir og geyma samkv. alþjóðapóstsamningnum tiltekinn árafjölda, eftir því sem póststjórnin ákveður að sé. Hér er reglan tvö ár, enda fsp. leyfðar innan þess tíma, sbr. 66. gr. alþjóðapóstsamningsins. Þess má geta, að á alþjóðapóstþinginu í Washington 1897 bar póststjórn Lúxemborgar fram till. um að setja í alþjóðapóstsamninginn ákvæði um eignarrétt póststjórnar á nefndum merkjum, og var sú ástæða færð fram, að þetta væri æskilegt til þess að kveða niður rifrildi um eignarrétt frímerkja hjá þeim, sem ekki skildu eðli málsins. Þetta þótti öðrum löndum óþarft og þar sem nauðsyn þætti til, væri innanlandslöggjöf rétti vettvangurinn.
2. Ákvæði um eignarréttinn var fyrst sett í póstlög hér 1940, en hins vegar giltu áður nákvæmlega sömu reglur um þetta. Er skemmst af að segja, að á meðan póstmálin hér heyrðu undir póstmálastjórnina í Danmörk, var þessi regla gildandi og hefur verið það síðan. Ástæðan til þess að setja þetta inn í póstlögin var fyrst og fremst hin sama og hjá Lúxemborg 1897 eða að losna við óþarfaþjark og til samræmis við tilsvarandi löggjöf nágrannalandanna.“
Síðan kemur hér útdráttur úr dönsku reglunum, sem eru mjög svipaðar og þær íslenzku.
„3. Samkv. alþjóðapóstávísanasamningnum og tilheyrandi reglugerðum, ber að geyma eyðublaðskvittunina óskerta þann tíma, sem póststjórnirnar ákveða. Er það gert vegna fyrirspurna, endurskoðunar og rannsókna. Hér eiga kvittanir að geymast, í vörzlu póstsins óskertar með frímerkjum og stimpli í tvö ár og er póst og símamálastjórninni ekki kunnugt um, að þetta sé brotið. Fyrst eftir hinn tilskilda geymslutíma eru frímerkin klippt af kvittanaeyðublaðinu og svo seld sem kílóvara.
4. Hin stimpluðu frímerki af eyðublaðskvittuninni geta gefið margs konar upplýsingar, bæði við endurskoðun á því, hvort póstmenn hafi reiknað burðargjald rétt, og veitt þeim þar með aðhald, svo og við rannsóknir. Þegar kærur koma fram, er þá bæði hægt að sjá, hvað upphæðin hefði átt að svara til burðargjaldsins, ef um mistök við bókun kynni að hafa verið að ræða, svo og af stimplinum, upplýsingar um stað og tíma o.s.frv. Það er því ekki hægt að vera án nefndra stimplaðra frímerkja nema þá með því að taka upp aðra aðferð til þess að fá sama aðhald og upplýsingar, svo sem notkun sérstakra véla til burðargjaldsástimplunar, en þær eru mjög dýrar, eða með því að nota önnur álímd burðargjaldsmerki, en frímerki eða með því að skrá upplýsingar um burðargjaldið á kvittunareyðublaðið. Þá eru yfir höfuð ekki notuð nein frímerki, en hinar aðferðirnar eru yfirleitt dýrari og ekki eins öruggar.
5. Eignarréttur póststjórnar á nefndum frímerkjum var, eins og áður er sagt, fyrir hendi frá ómunatíð og löngu áður, en póstmannasjóður var stofnaður. Og ákvæði um hann voru sett inn í póstlög hér án nokkurs tillits til póstmannasjóðs, en eingöngu til þess að forðast óþarfaþras um sjálfsagðan hlut. Hins vegar hefur hér sem í ýmsum löndum verið talið æskilegt, að tekjur af sölu hinna notuðu frímerkja gengju til styrktar póstmönnum til þess að örva þá til að stimpla greinilega og fara vel með frímerkin, því að þá fengjust annars vegar skýrari gögn við endurskoðun svo og rannsóknir á kærum, en hins vegar meiri verðmæti af sölu frímerkjanna. Póst- og símamálastjórnin telur ekki heppilegt að afla tekna með yfirverði á frímerkjum, því að það virðist ekki vinsælt hér á landi, eins og t.d. sýnir sig við hina tregu sölu á „Skálholtsmerkjunum“.
Ég vona svo, að hv. fyrirspyrjandi, 1. landsk. þm., geti sætt sig við þessi svör frá póst- og símamálastjóra. Þar sem fsp. voru eingöngu tæknilegs eðlis, taldi ég sem frsm. eðlilegt að lesa hér upp bréf frá póst- og símamálastjórninni.