11.05.1959
Efri deild: 116. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 60 í C-deild Alþingistíðinda. (1422)

86. mál, kirkjugarðar

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Út af fyrir sig get ég verið ánægður og glaðzt yfir þessari afgreiðslu málsins að því leyti til, að frv., eins og það kom frá hæstv. ríkisstj. eða mþn., var að mínum dómi óskapnaður, sem þurfti að umsteypa, ef það átti að vera sæmandi að leggja það fyrir Alþingi.

Mér líkar till. og þó ekki alls kostar kannske, að kirkjumálastjórnin leiti umsagnar safnaðanna í landinu um frv. þetta og leggi það siðan fyrir næsta þing. Mér er það ekki nóg. Frv. er svo bágborið, eins og það er, að það er varla hægt að ætlast til þess, að söfnuðirnir um landið fari að leggja sig niður við að betrumbæta það, því að það er margra daga verk að reyna að koma sæmilegu viti í það. Þess vegna vildi ég láta bæta hér við í till., ekki bara það að leggja málið síðan fyrir næsta þing, heldur leggja málið endurskoðað fyrir næsta þing, að þegar hún væri búin að fá umsögnina utan af landinu, þá fæli hún einhverjum, kannske þá nýja biskupnum, ef hann hefur meiri áhuga á því, en sá gamli, eða nýja biskupsritaranum að endurskoða beinlínis frv. Það þýðir ekki að láta frv. koma inn í þingið aftur í sama formi og það seinast var, því að það er ofvaxið þm., sem á að gegna einhverjum öðrum störfum, að taka það fyrir og breyta því. Ég vil fá inn í till. um það, að kirkjumálastjórnin leiti umsagnar safnaðanna í landinu um frv. þetta og leggi málið síðan endurskoðað fyrir næsta þing. Ég vil fá það í öðru formi, en það kom núna seinast inn í þingið. Ég verð ekki á því þingi, svo að það skiptir ekki máli, hvað það snertir, — ég legg ekki hönd á það þá, — en það fæst aldrei neitt út úr því á Alþingi, ef það kemur í svona formi eins og það er núna. Það er ekki hægt. Það verður að vera búið að undirbúa það betur fyrir þingið, þó að það liggi fyrir umsögn sóknarnefndanna.

Þess vegna vil ég nú mælast til þess, hvort n. vildi ekki breyta þessari till. sinni á þann veg, að það jafnframt fæli ríkisstj. að endurskoða málið að nýju, þegar fengnar væru fram umsagnir safnaðanna um málið, því að það tel ég vera nauðsyn.