11.05.1959
Efri deild: 116. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í C-deild Alþingistíðinda. (1423)
86. mál, kirkjugarðar
Frsm. (Sigurvin Einarsson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af ræðu hv. 1. þm. N-M. (PZ). Hann er ekki ánægður með orðalag á þessari rökstuddu dagskrá, en er þó sammála okkur um afgreiðslu á málinu. En það, sem mér virðist að hann hafi aðallega út á að setja, er, að það sé ekki nóg að fá umsagnir frá söfnuðum um frv. til þess að leggja fyrir næsta þing. Ég vil ekki mótmæla þessu. Það er mikið rétt í þessu. En það stendur ekkert um það í þessari dagskrá, hvernig það frv. á að vera úr garði gert, sem kemur fyrir næsta þing, og hæstv. ríkisstj. getur því látið gera þetta, án þess að breytt sé orðalagi dagskrártill. Í henni stendur aðeins, að ríkisstj. leggi málið fyrir næsta þing, og auðvitað verður maður að treysta því, að hún geri það í því formi, sem hún telur bezt og réttast, eftir að vitneskja er fengin um það, hvað söfnuðir vilja í þessu máli. Mér hefur að vísu verið bent á, að það sé erfitt að leggja svona mál fyrir alla söfnuði í landinu. Það er náttúrlega rétt, en héraðsfundir eru haldnir, og ég tel ekki vandkvæði á, að prestar geti komið á umr. á héraðsfundum eða beint í söfnuðunum um málið. Mér sýnist ekki nauðsynlegt að breyta orðalagi dagskrárinnar til þess að verða við þeim óskum, sem hv. þm. hefur hér flutt.