11.05.1959
Efri deild: 116. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í C-deild Alþingistíðinda. (1424)
86. mál, kirkjugarðar
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Það er náttúrlega alveg laukrétt, að þegar búið er að senda málið út til safnaðanna, þeir eru búnir að senda sínar umsagnir til ríkisstj., þá getur ríkisstj. sett þær í bunka, slegið utan um það og sent það menntmn. þessarar d. eða þessari d. og sagt: Hér hafið þið umsögn safnaðanna. Hér er málið komið til ykkar aftur með þeirra umsögn. Hér er gamla frv., eins og það var, og þetta segja nú söfnuðirnir um það, hér hafið þið það. — En þá getur hún líka sagt við biskupinn eða einhverja aðra góða menn, sem hún trúir fyrir því: Ja, það er sýnilegt, að söfnuðirnir hafa ýmislegt við þetta að athuga. Viljið þið nú gera svo vel að setjast hér á einhverja rökstóla og semja nýtt frv. um kirkjugarða, sem við svo leggjum fyrir hv. Alþingi til samþykktar ásamt þeim umsögnum, sem komnar eru um gamla frv.? Þannig vilja þeir láta afgreiða málið. — Þess vegna vil ég leggja til, að till. orðist svona: „Í trausti þess, að kirkjumálastjórnin leiti umsagnar safnaðanna í landinu um frv. þetta og leggi síðan frv. um kirkjugarða, byggt á umsögnum safnaðanna, fyrir næsta reglulegt þing.“ Það er það, sem ég vil fá fram, að ríkisstj., þegar hún er búin að fá svörin, feli einhverjum mönnum að vinna úr því frumvarp, sem verði lagt fyrir næsta þing. Þess vegna legg ég til, að dagskránni verði breytt í samræmi við þetta, sem ég nú las upp.