27.11.1958
Efri deild: 27. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í B-deild Alþingistíðinda. (143)

52. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég get ekki svarað því, sem hv. 1. þm. Eyf. drap á, öðruvísi en þannig, að upphaflega hafa þessi ákvæði verið miðuð við eitt ár og síðan hefur það orðið að venju að hafa svo áfram, en það er sjálfsagt að taka til athugunar þetta sjónarmið, sem hann gat um.