09.04.1959
Efri deild: 97. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 92 í C-deild Alþingistíðinda. (1465)

61. mál, skipulagslög

Frsm. (Alfreð Gíslason):

Herra forseti. Hv. heilbr.- og félmn. hefur haft þetta frv. til laga um skipulag alllengi til athugunar og hefur haldið um það allmarga fundi og kallað menn úr þeirri n., sem undirbjó frv., á sinn fund.

Það er áreiðanlega mikil þörf á því, að löggjöfum skipulag verði endurskoðuð og ný lög um það efni samþykkt. Lög um skipulag kauptúna og sjávarþorpa eru frá 1921 að meginefni til, en á þeim var þó gerð breyt. árið 1938.

Á Alþingi 1948 og 1949 voru flutt frv. um þetta sama efni, en fengu þá ekki afgreiðslu.

Nefnd sú, sem samdi það frv., sem fyrir liggur hér, var skipuð árið 1955, og það var verkefni hennar að sjálfsögðu að endurskoða gildandi löggjöf um skipulag. Í þessari n. áttu sæti þeir Zóphónías Pálsson skipulagsstjóri, Hallgrímur Dalberg lögfræðingur, Gunnar Ólafsson skipulagsstjóri Reykjavíkur og Einar Pétursson lögfræðingur.

Grg., er frv. fylgir, ber það með sér, að þessum sérfróðu mönnum hafi fljótlega orðið það ljóst, að tæpast var nóg að afgreiða þetta mál, skipulagsmálið, eitt út af fyrir sig. Löggjöf um byggingarmál og byggingarframkvæmdir er nátengd þessu efni, og einnig sú löggjöf er að meginefni til orðin gömul og úrelt. Þannig eru lög um byggingarsamþykktir frá árinu 1905. Auk þess eru svo til lög um byggingarmálefni Reykjavíkur frá 1944 og lög um byggingarsamþykktir fyrir sveitir og þorp, sem ekki eru löggiltir verzlunarstaðir, frá 1945. Þessi löggjöf þarfnast að dómi sérfróðra manna einnig mjög endurskoðunar og þessi löggjöf er náskyld þeirri löggjöf, sem hér um ræðir, lögum um skipulagsmál. Í grg. frv. segir svo um þetta efni, með leyfi hæstv. forseta:

„Í nágrannalöndum vorum, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, hafa lög þau, er varða byggingar- og skipulagsmál, verið felld saman í sérstakan lagabálk. Telur n. þennan hátt mjög til fyrirmyndar, jafnnátengd og þessi mál eru. Öllum, sem til þekkja, er ljóst, að hin ófullkomna löggjöf um byggingarmál, sem sett var hér á landi árið 1905, er orðin úrelt og ófullkomin í alla staði. Nauðsynlegt er því að endurskoða hana sem allra fyrst, auka hana og endurbæta, þannig að hún fullnægi kröfum tímans. Jafnframt telur n., að heppilegt væri, að öllum þeim lögum, er varða skipulag og byggingarmál, verði steypt saman í eina heildarlöggjöf. Þar sem n. er í skipunarbréfi sínu markaður sá þröngi bás að endurskoða gildandi lög um skipulag og frv. þau, er lögð voru fyrir Alþingi árin 1948 og 1949, en náðu ekki fram að ganga, var það ekki á færi n. að fara út fyrir þetta takmarkaða svið.“

Það var sérstaklega þetta sjónarmið, sem hafði áhrif á hv. heilbr. og félmn. við afgreiðslu þessa máls. Hún getur einróma tekið undir þessa skoðun og telur eins og frumvarpshöfundar mjög æskilegt, að lögin um byggingarmál, byggingarsamþykktir, verði endurskoðuð hið allra fyrsta, og telur æskilegt, að síðan verði þessum báðum lagabálkum steypt saman í eina löggjöf. Þar við bættist svo, að hv. n. átti í nokkrum örðugleikum að því leyti, að hún leitaði umsagnar nokkurra sérfróðra aðila, en hefur gengið mjög treglega að fá svör, sem hún þó taldi sér mikilvægt að fá til þess að kanna fleiri sjónarmið, en koma fram hjá frumvarpshöfundum.

Af þessum ástæðum og þó sérstaklega þeirri fyrrtöldu mælir n. með því, að frv. verði að þessu sinni vísað til ríkisstj. með áskorun um að láta undirbúa löggjöf, er taki bæði til skipulagsmála og byggingarmála, og leggja frv. um hana fyrir Alþingi, svo fljótt sem verða má. N. vill undirstrika, að hún hefur fullan skilning á mikilvægi þessa máls og þörfinni fyrir, að málið sé ekki tafið úr hófi fram, en telur hins vegar þetta svo mikilsvert atriði, að verjandi sé að vísa málinu til ríkisstj. á þessum grundvelli.