11.05.1959
Neðri deild: 124. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í C-deild Alþingistíðinda. (1483)

164. mál, Siglufjarðarvegur

Gunnar Jóhannsson:

Herra forseti. Ég ætla mér ekki að fara að deila við hv. 2. þm. Eyf. (MJ) um það, hvor vegurinn er þýðingarmeiri, vegurinn frá Ólafsfirði fyrir Ólafsfjarðarmúla eða vegurinn fyrir Stráka. Ég vil aðeins benda á það, að á Ólafsfirði búa innan við 1.000 manns, en á Siglufirði búa 2.700. Auk þess er vegurinn fyrir Stráka ekki eingöngu hagsmunamál fyrir Siglfirðinga, heldur er hann mjög mikið hagsmunamál fyrir allar útsveitir Skagafjarðar. Eins og hv. frsm. tók fram, er þetta áhugamál beggja þessara sveitarfélaga, sem þarna eiga hlut að máli, og verður tæplega hægt að segja, að það sé viðunandi lengur fyrir jafnstóran bæ og Siglufjörður er að búa við það vegasamband, sem hann hefur orðið að búa í undanfarin ár. Það má líka segja um Ólafsfjörð, að þar sé mjög slæmt vegasamband, þar sem vegasamband þar er lokað lítið styttri tíma en Siglufjörður. Ekki skal ég út af fyrir sig hafa á móti því, þó að þetta verði tvinnað saman. Ég vildi bara benda á það, að svo mikið hagsmunamál sem það er Ólafsfirðingum að fá vegasamband fyrir Ólafsfjarðarmúla, þá er þó hitt enn þá meira og stærra hagsmunamál fyrir Siglufjörð. Það má t.d. benda á það, að á vorin, þegar atvinnulífið á Siglufirði er að byrja, þá er mjög bagalegt fyrir fólk, sem þarf að komast norður, að þurfa að notast við þau samgöngutæki, sem þarna eru og torvelda á margan hátt, að hægt sé að koma því atvinnulífi í gang, sem þarf, einmitt vegna þess, hvað vegasambandið hefur verið slæmt, að ég nú ekki tali um það, hvernig þessir bæir á Norðurlandi eru settir, ef t.d. kæmi ísár. Það eitt, ef maður bara hugsar til fyrri tíma, þegar hafísinn lokaði hverri einustu höfn á Norðurlandi ár eftir ár, þá ætti það eitt út af fyrir sig að vera nægileg meðmæli með því, að allt verði gert, sem hægt er, til þess að þessi sveitarfélög kæmust í betra vegasamband, en er nú. Í þessu sambandi má benda á, að Siglufjörður er einn af stærstu framleiðslubæjum landsins og á því að dómi okkar flm. skilyrðislausan rétt til þess, að allt sé gert til að leysa þetta mikla hagsmunamál okkar Siglfirðinga, sem er um leið hagsmunamál alls landsins, á sem hagfelldastan hátt.

Þegar þetta mál var flutt hér á Alþ., var það vitanlega okkar meining, sem að þessu stóðum, að það fengist afgreitt eins og frv. lá fyrir. Nú hefur það sýnt sig síðan, að það hefur ekki unnizt tími til þess, — eða talið, að ekki mundi vinnast tími til þess að fá málið afgreitt. Fjhn. hefur flutt hér till., þar sem málinu er vísað á vinsamlegan hátt til hæstv. ríkisstj. Hv. formaður fjhn., hv. þm. V-Húnv. (SkG), boðaði okkur flm. á fund og ræddi um þessa afgreiðslu málsins við okkur. Við lýstum því þar allir yfir, eins og hann tók fram, að við gætum á þessu stigi fellt okkur við þessa afgreiðslu og teldum, að það væri betra að afgreiða málið þannig, heldur en þó að afgreiða það ekki. Hins vegar skal ég taka það fram, að æskilegast hefði það verið, ef hægt hefði verið að afgreiða málið eins og það lá fyrir. Þó er það alveg rétt, sem var bent á í ræðu hv. frsm. n., að vitanlega er það aðalatriðið, að hægt sé að útvega lánið til þessara framkvæmda, og það er einmitt bent á í þessari till., að bæjarstj. Siglufjarðar, sýslunefnd Skagafjarðarsýslu og bæjarstj. Sauðárkróks taki málið til athugunar og rannsóknar, hvort hægt væri að fá umtalað lán, eins og frv. gerir ráð fyrir að þurfi að fá.

Ég vil svo að lokum þakka hv. fjhn. fyrir afgreiðslu á þessu máli og vonast til þess, að þm. samþykki það álit, sem hér liggur fyrir.