27.11.1958
Neðri deild: 29. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 64 í B-deild Alþingistíðinda. (173)

57. mál, aðstoð við vangefið fólk

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Á seinasta þingi var sett löggjöf um aðstoð við vangefið fólk. Í þeirri löggjöf var gert ráð fyrir ákveðinni fjáröflun til þess að reisa stofnanir fyrir vangefið fólk. Með rekstur slíkra stofnana, er þessum sjóði ekki ætlað að hafa neitt að gera. Í þessu frv. er lagt til, að inn í 4. gr. l. bætist heimild til þess að mega verja fé úr styrktarsjóði vangefinna, einnig til endurbóta á stofnunum fyrir vangefið fólk, en það getur leikið á nokkur vafi, hvort það sé heimilt samkvæmt gildandi lögum.

Það eru stofnanir á höndum einstaklinga, sem inna af hendi þjónustu fyrir vangefið fólk, og við erum þannig á vegi stödd með hin opinberu hæli fyrir vangefna, að þau geta ekki tekið við nándar nærri öllum, sem hælisvistar þurfa, og því má það ekki koma fyrir, að þessi hæli, sem eru nú rekin af einstaklingum eða félagasamtökum, hætti sinni starfsemi. En ekki er vissa fyrir því, að starfsemin haldi áfram, nema hægt sé að endurbæta þessar stofnanir með aðstoð, t.d. úr styrktarsjóði vangefinna, og blasir það raunar við, að það er bráð nauðsyn að koma þar hjálpandi til, og við teljum, að það sé eðlilegt, að sjóðurinn fái þá heimild til þess að veita slíka nauðsynlega aðstoð.

Ég held, að það sé alveg óþarft að skýra þetta frv. með fleiri orðum. Það er sem sé eingöngu farið fram á það, að í viðbót við 4. gr., þar sem heimilað er samkv. gildandi l. að verja fé sjóðsins til þess að reisa stofnanir fyrir vangefið fólk, komi nú inn í gr.: og til endurbóta á slíkum stofnunum.

Þetta er 1. umr. Ég legg til, að málinu verði vísað að lokinni umr. til hv. heilbr.- og félmn.