29.10.1958
Sameinað þing: 6. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í D-deild Alþingistíðinda. (1889)

14. mál, votheysverkun

Flm. (Ágúst Þorvaldsson):

Herra forseti. Till. sú til þál. á þskj. 26, sem hér er til einnar umr., felur ríkisstj. að láta fara fram athugun á því, hvernig fljótast verði komið í kring almennri verkun votheys og hvernig tryggja megi um leið hollustu slíks fóðurs fyrir búfé landsmanna, enn fremur hvernig geymslur séu hentugastar til slíkrar heyverkunar og í senn ódýrastar og endingar beztar.

Ef til vill kunna ýmsir að hugsa sem svo, að slíkrar athugunar sé lítil þörf, þar sem allmargir bændur í landinu hafa verkað vothey um áratugi með góðum árangri og telja slíka heyverkunaraðferð einfaldasta og ódýrasta, auk þess sem slík heyverkunaraðferð geti tryggt gott fóður, hvernig sem viðrar.

Þrátt fyrir það, þótt slík jákvæð reynsla sé fyrir hendi hjá mörgum bændum víðs vegar um landið og búvísindamenn okkar hafi um langa tíð hvatt til votheysgerðar, er staðreyndin sú enn í dag, að of lítið af fóðuröflun bændanna er verkað á þennan hátt, og því hefur farið svo sem farið hefur, þegar langvarandi óþurrka hefur að höndum borið, að heyfengur hefur orðið lítill og skemmdur og orðið hefur að grípa til aðstoðar hins opinbera, svo að hægt hafi verið að fleyta bústofninum yfir þau mögru ár, sem óþurrkar hafa skapað. Tíðarfarið í sumar á stóru svæði landsins, óþurrkar og rýr heyfengur, minnti harkalega á það, að fjöldi bænda hefur enn of lítið sinnt því að byggja votheysgeymslur og bjarga heyfeng sínum undan rigningunni með þeim hætti að verka það sem vothey. Við flm. þessarar till. sáum því ástæðu til þess að hreyfa þessu máli hér á Alþ. og væntum þess, að málið fái þær undirtektir, að hreyfing hefjist til hagnýtra úrræða í þessu þýðingarmikla máli.

Frá því að landið okkar byggðist, hafa bændurnir orðið að þurrka heyið og gefa það þannig búfé sínu. Það þarf því engan að undra, þó að sú aldagamla aðferð eigi djúpar rætur í verkmenningu bændanna og erfitt sé að slita þær rætur og tileinka sér nýja hætti við heyverkun og fóðrun. Þar við bætist nokkur tortryggni í garð votheysins sem hollrar fæðu, a.m.k. handa sauðfé, því að sums staðar hefur borið á því, að sauðfé, sem fóðrað hefur verið á votheyi, hafi veikzt og drepizt. Fullnaðarþekking á ástæðum þeim, er valda slíkum óhöppum í sambandi við votheysgjöf, mun ekki vera fyrir hendi enn, en mikil þörf væri á því að hefja rannsóknir á þessu sviði.

Önnur ástæða er einnig fyrir hendi, sem fælt hefur marga bændur frá því að verka vothey, en það er, hversu miklu þyngra það er í meðförum, þegar verið er að fóðra á því, en þurrhey. Áríðandi er því að koma votheysgeymslum þannig fyrir við fjós og fjárhús, að sem hægast sé að flytja fóðrið fyrir skepnurnar.

Þá er og þess að geta, að ýmsum stendur stuggur af óþef þeim, er oftast er af votheyi. Er áríðandi að vera í hlífðarfötum við votheysgjöfina og snerta ekki á því með berum höndum. Þessi ólykt mun stafa af því, að heyið hefur ekki náð réttri verkun og gerlar náð að þróast í því, sem þar hefðu ekki átt að myndast. Í hinum háu turnum, sem nú er farið að byggja fyrir vothey, verkast það betur, og þar er ekki um þessa ólykt að ræða.

Finnskir bændur munu vera fremri flestum öðrum í votheysgerð, og er það að þakka hinum fræga finnska vísindamanni Virtanen, sem fann upp efni til íblöndunar í vothey, sem ver það fyrir myndun skaðlegra gerla. Þetta efni framleiða Finnar sjálfir, en ekki hefur verið talið fært kostnaðar vegna að flytja það hingað til lands og nota það hér. Vel mætti hugsa sér, að hér mætti framleiða slíkt efni, og er fyllilega ástæða til, að vísindamönnum yrði falið að rannsaka, hvort möguleiki til slíkrar framleiðslu væri til staðar hér og hvort unnt yrði fyrir íslenzkan landbúnað að hagnýta framleiðslu slíks efnis kostnaðar vegna.

Í grg. þeirri, sem fylgir till., er drepið á ýmislegt fleira, en hér hefur verið talið, sem athuga þarf í sambandi við þetta stórmál, og mun ég því ekki hafa um þetta langan formála. Mér þykir þó rétt að drepa á eitt atriði, sem mjög vandlega þarf að rannsaka og það sem fyrst. Votheysgeymslur hér á landi eru byggðar úr steinsteypu og eru, svo sem flestar byggingar hér hjá okkur, alldýrar, 10 metra hár votheysturn, sem er 4 metrar í þvermál, mun hafa kostað nú að undanförnu um 50 þús. kr. Með slíkum turni þarf að hafa blásara, sem blæs heyinu upp í hann, og svo þarf annaðhvort traktor eða mótor, sem knýr blásarann. Þegar þetta allt er fengið, kostar slíkt fyrirtæki orðið stórfé á mælikvarða flestra bænda, og er mörgum manni ofvaxið að ráðast í slíkt. Hér er erfiður vandi, sem leysa þarf. Allvíða hagar svo til, að 2 eða 3 bændur gætu átt blásara saman, og mundi það létta kostnaðinn, en skilyrði til góðrar samvinnu verða að vera fyrir hendi, til þess að slík sameign geti blessazt og komið að gagni.

Töluvert mun bera á því, að sýrur þær, sem myndast í votheyi, leysi steinsteypu sundur, og er af þeim sökum uggur í mörgum bændum um það, að hinir dýru turnar, sem byggðir hafa verið á undanförnum árum, muni endast illa. Hér er efni til rannsóknar, og þarf að vinda bráðan bug að þeirri athugun, því að mikil verðmæti eru í húfi, ef byggðir eru margir turnar á ári og svo skyldu þeir ekki endast nema stuttan tíma.

Landbúnaðurinn er elzti atvinnuvegur þessarar þjóðar, og þrátt fyrir miklar breytingar í atvinnulífinu er þó landbúnaðurinn enn annar stærsti þátturinn í framleiðslu þjóðarbúsins. Þung áföll í þessum atvinnuvegi lama þá, sem að honum vinna, og skerða tekjur þjóðarbúsins í heild. Óþurrkar um heyannatímann hafa oft valdið þungum búsifjum fyrir bændur landsins og þjóðina alla, og er fyrir skemmstu slíks að minnast. Það er því ekki að ófyrirsynju, þótt bent sé á nauðsyn þess, að af þjóðfélagsins hálfu sé allt gert, sem unnt er, til rannsókna og aðstoðar til að tryggja sem bezt afkomu landbúnaðarins eins og annarra atvinnuvega, svo að hann megi verða sem óháðastur sveiflum veðráttunnar. Sé hægt að tryggja fóðuröflunina betur, en verið hefur, er það stór hagur fyrir þjóðina alla. Gott heyfóður geymir mikla lífsorku, sem fólkið fær til sín í afurðum bústofnsins, mjólk, kjöti o.fl., og því betur sem tekst að tryggja öflun og geymslu heyjanna, því minna þarf af kjarnfóðri, sem að mestum hluta verður að sækja til útlanda.

Þáltill. gerir ráð fyrir því, að stuðlað verði að útbreiðslu annarra þeirra heyverkunaraðferða, er að gagni mega koma í óþurrkum. Súgþurrkun er nú alþekkt heyverkunaraðferð, og nota hana margir bændur sér til mikils hagræðis. Öll hin nýja tækni við heyskapinn og heyverkunina er dýr, sérstaklega í stofnkostnaði, og er því mikil ástæða til þess, að haft sé vakandi auga á öllum þeim nýjungum, sem upp kunna að koma og búast mætti við að lækkað gætu kostnað við heyöflunina og fóðurgeymslurnar, samfara því, sem leitað er eftir sem beztum árangri við öflun og geymslu fóðursins.

Ég hef svo ekki fleiri orð um þetta, en ég vil leyfa mér að leggja til, að umr. verði nú frestað og málinu vísað til hv. allshn.