22.01.1959
Neðri deild: 60. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í B-deild Alþingistíðinda. (189)

87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Eins og þegar hefur komið fram í umr. um þetta frv., sem hér liggur nú fyrir, þá er hér aðeins um að ræða einn hlutann af efnahagsvandamálinu svonefnda. Það er því í rauninni ekki hægt að ræða þetta frv., eins og það liggur fyrir, án þess að jafnframt sé vikið að efnahagsvandamálinu sem heild og þá einnig gerðir nokkuð að umtalsefni hinir aðrir þættirnir, sem enn eru ekki komnir hér fram í málinu.

Þetta kom allgreinilega fram í upphafi málsins í ræðu hæstv forsrh., og skildist mér á ræðu hans, að ætlun stjórnarinnar væri, að þetta frv. fylgdist í rauninni að í afgreiðslu hér á Alþingi með öðru frv., sem væri um breytingar á lögunum um útflutningssjóð. Vitanlega er sá vandi, sem hér er við að glíma, fólginn í því, að gert er nú ráð fyrir nýjum samningum við framleiðsluna í landinu, gert ráð fyrir því að breyta bótum til hennar, hækka þar útgjöld allverulega og er þá um að ræða, hvernig afla skuli tekna í þessu skyni og þá er niðurfærsla á kaupgjaldi og verðlagi ekki nema aðeins einn hlutinn í þessu efni, fleira þarf þarna að koma til.

Ég skal síðar víkja nokkru nánar að frv. sjálfu, en mun fyrst ræða á breiðari grundvelli efnahagsmálin almennt.

Það var í lok maímánaðar á s.l. ári, sem nýjar reglur voru teknar upp viðvíkjandi bótum til framleiðsluatvinnuveganna. Það var í lok maímánaðar, sem lögin um útflutningssjóð voru þá samþykkt. Þar var um það að ræða, að kjörum framleiðslunnar var breytt nokkuð frá þeim samningum, sem höfðu þá verið gerðir í ársbyrjun og ætlaðir voru þá út árið. Sú breyting, sem átti sér stað í lok maímánaðar, var fyrst og fremst skipulagsbreyting, en þó örugglega gengið þannig frá málum, að talið var víst, að hagur framleiðslunnar yrði fremur betri, en lakari, en samið hafði verið við hana í ársbyrjun. Ástæðan til þess, að þessa löggjöf þurfti að setja í maímánuði, ber að rekja til þess, að svo hafði tekizt til á árinu 1957, að þá varð lélegt aflaár, tekjur útflutningssjóðs urðu allmiklu minni, en menn höfðu reiknað með og tekjur ríkissjóðs á sama hátt, en það stóð í beinu sambandi við það, að afli hafði reynzt sérlega óhagstæður á árinu 1957. Þessu til sönnunar hefur verið á það minnt, að svo fór á árinu 1957, að vöruflokkar þeir, sem aðaltekjuöflun bæði ríkissjóðs og útflutningssjóðs var byggð á, innflutningur á svonefndum hátollavörum, minnkaði svo mikið frá árinu 1956, að nam fullum 80 millj. kr. í gjaldeyri, eða þessar vörur voru fluttar inn fyrir um 254 millj. í gjaldeyrisverðmæti árið 1956, en aðeins fyrir 174 millj. árið 1957. Þetta orsakaði það, að tekjur útflutningssjóðs og ríkissjóðs urðu fullum 100 millj. minni, en þær hefðu orðið, ef innflutningur á þessum vörum hefði orðið með svipuðum hætti og var árið á undan.

Þetta var meginorsökin til þess, að það þurfti að grípa til nýrra ráðstafana á s.l. ári, og af því voru lögin um útflutningssjóð samþykkt í lok maímánaðar. Að vísu var það svo, að ýmsir vildu telja, að það væri full ástæða til að búast við því, að afli yrði ekki alltaf jafnlélegur og hann varð á árinu 1957, það mætti vænta þess, að afli yrði aftur betri á árinu 1958, enda hafði vetrarvertíðin þá þegar sýnt, að afli var miklu meiri 1958 heldur en 1957 og því voru ýmsir miklu bjartsýnni á, að sú löggjöf, sem í gildi var, gæti í rauninni skilað sér miklu betur á árinu 1958, heldur en hún gerði á árinu 1957 og það hefur nú reynslan líka sýnt, að svo hefði orðið. En allt um það, sú varð niðurstaðan, að nýtt skipulag var tekið upp í þessum efnum í maílok 1958 og kjör framleiðslunnar þá gerð nokkru betri, en þau voru ákveðin með samningum í ársbyrjun. En það kom glögglega fram í umr. á Alþingi og í skrifum blaða, um það leyti sem löggjöfin frá því í maí var sett, að menn gerðu sér fulla grein fyrir því, að afleiðingar af þessari löggjöf mundu verða þær, að verðlag í landinu mundi hækka. Það lá auðvitað ekki fyrir, svo að öruggt mætti teljast, hvað verðhækkanirnar yrðu miklar, en það var alveg víst, að verðhækkanir mundu talsverðar verða.

Í umr. hér á Alþingi sagði ég, þegar var verið að afgreiða þessa löggjöf, að ég væri mjög hræddur um og við Alþýðubandalagsmenn yfirleitt, að svo kynni að fara, að verðhækkanir yrðu mun meiri sem afleiðingar af þessum lögum, heldur en strangasti útreikningur hafði sýnt, því að venjan hefur alltaf verið sú, að þegar verðhækkanir ganga yfir á annað borð, þá vill margt fylgja þar á eftir, og m.a. er það alltaf vísasti vegurinn til þess að hleypa af stað verulegum kaupgjaldshækkunum, þegar verðhækkanir almennt ganga yfir. Þetta hefur líka farið svo, að það er ekki einasta, að verðhækkanir samkvæmt þessari löggjöf hafi orðið allmiklu meiri, en reiknað var með í byrjun, heldur fylgdu einnig á eftir allmiklar kauphækkanir hjá flestum stéttarfélögum og hafa þær grunnkaupshækkanir numið yfirleitt frá 5 til 9%.

Það er auðvitað hægt að rekja, hvaða aðrar orsakir lágu til þess, að þessar grunnkaupshækkanir urðu. Ég efast ekki um, að allveruleg ástæða til þess, að svo fór, var einmitt það, að með löggjöfinni frá því í maí á s.1. ári var farið inn á hækkunarleiðina, sem hlaut að draga á eftir sér eða ýta mjög undir kaupgjaldshækkanir almennt. En til viðbótar því var svo það, að Sjálfstfl. hafði mjög beitt sér fyrir því að koma fram kauphækkunum í ýmsum stéttarfélögunum í landinu, einkum þeim, þar sem laun voru þó greinilega langhæst fyrir. Einnig má geta þess, að í ýmsum félögum, þar sem Alþfl.-menn höfðu forustu, var einnig greinilega um sérstakan áhuga að ræða á því að koma fram kaupgjaldshækkunum og vil ég í því sambandi nefna t.d. Sjómannafélag Reykjavíkur, sem ekki dugði minna en tvívegis á árinu að ráðast í kaupgjaldshækkanir. Eigi að síður vil ég þó undirstrika, að það hefur alltaf farið svo og það mun lengi fara svo áfram, að þegar haldið er inn á verðhækkunarleiðina, þegar verðhækkanir ganga almennt yfir, þá er veruleg hætta á því, að kaupgjald fylgi þar mjög á eftir og kaupgjaldsbreytingar verði almennt.

Þegar komið var svo fram undir áramótin síðustu, stóðu vandamál atvinnulífsins þannig, að glöggt var, að vísitalan hafði hækkað um 17 stig 1. des., og allir virtust sammála um, að þessi 17 stig þyrftu með einum eða öðrum hætti að hverfa eða þá að það þyrfti að auka bætur til framleiðslunnar sem þessum 17 stigum nam. Auk þess var svo um það að ræða, að grunnkaup hafði hækkað, eins og ég sagði áður, um 5–9%, og auðvitað hlaut framleiðslan líka að stilla þessari grunnkaupshækkun fram og gera kröfur um auknar bætur þar á móti. Það voru þessir tveir þættir, sem lágu fyrir núna um áramótin og við var að glíma, frá því, sem áður var búið að glíma við. En hitt var líka ljóst, að eins og þetta tvennt gerði hag framleiðslunnar lakari, en hann hafði verið metinn í samningum áður, þessi 17 vísitölustiga hækkun og grunnkaupshækkunin, þá höfðu líka komið aðrir þættir inn, sem höfðu bætt hag útgerðarinnar í landinu og framleiðslunnar almennt allverulega. Þetta kom t.d. greinilega fram við athugun sérfræðinga á rekstraraðstöðu frystihúsanna í landinu, en eftir að þeir höfðu athugað rekstraraðstöðu frystihúsanna nú um áramótin, þá kváðu þeir upp þann dóm, að slíkar breytingar hefðu orðið á rekstraraðstöðu hraðfrystihúsanna í landinu með verðhækkun á framleiðslu þeirra erlendis og með stóraukinni framleiðslu og þannig betri nýtingu, að þessir sérfræðingar töldu, að frystihúsin gætu að fullu og öllu tekið á sig þá grunnkaupshækkun, sem orðið hefði á árinu, eða frá 6 til 9%, eins og hún nam almennt. Það var því alveg greinilegt, að það, sem hér var við að glíma, var fyrst og fremst 17 vísitölustigin og afleiðingarnar af grunnkaupshækkuninni, 6 til 9%, en þó ekki nema að litlu leyti, vegna þess að þar komu aðrir þættir inn í, sem gerðu hag framleiðslunnar betri, en hann hafði verið metinn áður.

Nú um áramótin lá það líka ljóst fyrir, að öll aðstaða til að glíma við þennan vanda var miklum mun betri, en áður að því leyti til, að útflutningssjóður, sem standa átti undir þessum bótum, hafði nú að fullu og öllu unnið upp þann skuldahala, sem hann hafði dregið á eftir sér, frá tíð fyrrv. ríkisstj. Nú var það að fullu og öllu unnið upp og sýnilegt, að hagur sjóðsins væri sá, að hann ætti fyllilega fyrir öllum sínum útgjöldum. Sama var að segja um ríkissjóð. Það var líka glöggt mál nú um áramótin, að hagur ríkissjóðs var mjög góður, þar mundi verða allverulegur greiðsluafgangur og því ekki bein þörf, eins og oft áður, að krefjast þar verulegra nýrra tekna, svo að neinu næmi. Og sjálf framleiðslan í landinu viðurkenndi það opinberlega, að búið hefði verið þannig að henni, að hún yrði að játa, að hennar hagur væri mjög sæmilegur, enda var það svo, að margar greinar sjávarframleiðslunnar sýndu, að þær komu út með þó nokkurn hagnað á rekstri sínum nú á s.1. ári og var því mikill munur að fást við þessi efni eða áður var.

Í stórum dráttum stóðu málin svona um síðustu áramót.

Eins og jafnan áður, þá vitanlega voru uppi skiptar skoðanir á milli manna og flokka um það, til hvaða ráða ætti nú að grípa. Þetta hefur verið svona í hvert eitt og einasta skipti, sem þessi mál hafa verið til umræðu og úrlausnar, að það hafa verið skiptar skoðanir um, hvað gera ætti. Og þetta byggist m.a. á því, að skoðanir manna um það, hver sé hin raunverulega orsök að þessum erfiðleikum, eru mjög mismunandi. Sumir eru þeir, sem í sífellu klifa á því, að kaupgjaldið í landinu sé orðið svo hátt, að það valdi hér öllum vanda og því beri aðeins að lækka það og það hafi verið hækkað kaupgjald, sem færði allt úr skorðum. Þeir vitanlega reyna eins og fyrri daginn alltaf að miða sína tillögu við að koma fram kauplækkun í einu eða öðru formi. Stundum er valin til þess gengislækkunarleið, beinlínis til þess að koma fram kauplækkun. Í annan tíma velja menn það að binda kaupið fast um einhvern tíma, á meðan ákveðnar hækkanir eru að ganga yfir og koma kauplækkuninni þannig fram. Og stundum er talað um að skera beinlínis niður vísitöluna og ná kaupinu þannig niður, vegna þess að þeir, sem að þessum till. standa, trúa því, að það sé kaupið, sem sé meginorsökin að þeim vanda, sem við eigum að glíma við varðandi rekstur atvinnuveganna í landinu. Aðrir eru aftur þeir, sem vilja ekki fallast á það, að hér sé fyrst og fremst kaupið að verki, að hér sé fyrst og fremst um það að ræða, að kaup, t.d. hins almenna verkamanns í landinu, sé of hátt, til þess að þjóðfélagið fái staðið undir því. Í þessu efni þykir mér réttað rifja það upp, að tveir af kunnustu hagfræðingum okkar, þeir sem mjög hafa komið við sögu í sambandi við lausn efnahagsmálanna, þeir Jónas Haralz efnahagsmálaráðunautur ríkisstj. og Jóhannes Nordal hagfræðingur seðlabankans, ræddu orsakir verðbólgunnar m.a. á fjölmennum fundi, sem haldinn var á vegum Stúdentafélags Reykjavíkur hér á s.l. sumri. Þá létu þeir báðir hafa það eftir sér og það var birt hér í blöðum eftir þeim, að þeir væru báðir sammála um það, að þeir teldu ekki, að það væri kaupið, sem væri orsökin að þeim vanda, sem við eigum að glíma við í efnahagsmálunum. Þeir töldu, að kauphækkanirnar hefðu miklu fremur, eins og þeir orðuðu það, verið afleiðing af öðrum verðhækkunum, sem orðið hefðu í landinu, heldur en hitt, að það hafi verið kaupið, sem hefði skrúfað upp aðrar verðhækkanir.

Ég held, að það sé nauðsynlegt, þegar þessi efnahagsmál eru rædd, að reyna að gera sér nokkru nánari grein fyrir því, hvaða orsakir raunverulega liggja til þess, að við eigum við þennan vanda að glíma.

Ég fyrir mitt leyti er á sömu skoðun og þessir tveir hagfræðingar. Ég tel, að það sé með öllu rangt að telja, að kaup verkamanna í landinu eigi hér sök á, hvernig komið er. Ég álít, að það sé rangt mat. Ég held, að það sé allt annað, sem hefur verið hér miklu þyngra á metunum. Þar kemur auðvitað margt til, en ég vil víkja hér m.a. að einu, aðeins til þess að benda á, hvaða líðir hér eru að verki og hverjir þeirra eru kannske hvað sterkastir. Hvað er það þá, ef það er ekki kaupgjaldið, sem hefur þessi áhrif, að verðlagið í landinu fer upp og kaupið kemur svo á eftir? Ég hef bent á það áður, að það er enginn vafi á því, að fjármálastjórn ríkis og bæjarfélaga á hér mikinn og stóran þátt í. Það getur ekki farið fram hjá neinum alþingismanni, að svo hefur verið háttað um fjármál ríkisins í mörg undanfarin ár, að þar hafa útgjöldin hækkað frá ári til árs, hækkað miklum mun meira en hinni almennu hækkun nemur í landinu. Ég vil benda t.d. á það, að rekstrarútgjöld ríkisins hækkuðu frá árinu 1950, — ef maður ber saman rekstrarútgjöldin 1955 og 1956, þá hækkuðu rekstrarútgjöldin um 140 millj. kr., eða um 26.5%. Þó hækkuðu hin beinu útgjöld ríkisins enn þá meira en þetta, ef maður lítur á sjóðsyfirlitið eða fjárfestingarþátt ríkisins á öðru sviði. Á sama tíma og þetta gerðist hækkaði kaupgjald almennt í landinu ekki nema á milli 7 og 8%. Árið 1957 hækkuðu útgjöld ríkissjóðs um 133 millj. kr. frá árinu á undan, eða um rúmlega 20%, en á sama tíma hafði kaupgjaldshækkun, bæði vegna vísitölu og grunnkaups, ekki numið nema rétt um 4%. Það er alveg augljóst mál, að það er ekki hægt að taka inn í ríkissjóð tugmilljónir króna á ári eða jafnvel hundruð milljóna á ári, sem aðallega eru teknar inn með því að hækka tolla og skatta og hækka þannig verðlagið í landinu, án þess að það segi einhvers staðar til sín. Hið nákvæmlega sama hefur átt sér stað hjá mörgum bæjarfélögum. Þar eru útgjöldin hækkuð frá ári til árs um marga tugi milljóna króna, langt fram yfir það, sem verðlag hefur almennt hækkað um. Þegar þessir aðilar hækka verðlagið í landinu, um leið og þeir ná inn þessum tekjum í ríkissjóð og til bæjarfélaganna, þá vitanlega standa þeir fyrir því, að kaupgjald muni á eftir hækka. Það er einmitt þetta, sem var að gerast núna á s.l. ári og hefur verið að gerast á árunum þar á undan.

Í janúarlok 1956 var verið á þennan hátt að stórauka tekjur ríkissjóðs. Í desemberlok 1956 var þetta gert á sama hátt. Og nú síðast í maí 1958 var einnig verið að gera þetta sama. Afleiðingin hefur svo orðið sú, t.d. núna á þessu ári, að það er mjög sennilegt, að hreinn greiðsluafgangur verði hjá ríkissjóði árið 1958, sem nemur 60–70 millj. kr. Tekjur hafa verið innheimtar það rösklega, að greiðsluafgangurinn mun verða á milli 60 og 70 millj. kr., og hefur þó ekki verið dregið úr eyðslunni á neinn hátt. Vitanlega segir svona tekjuöflun til sín og hækkar verðlagið í landinu, vísitöluna og þar með kaupið. Ég er sannfærður um, að það er alröng skoðun að ætla að telja vísitöluna og vísitölukerfið út af fyrir sig vera höfuðorsök þess, hvernig komið er þessum efnum, því þó að menn færu nú þá leið, sem ýmsir eru að leggja til, að kippa vísitölunni úr sambandi, hætta að mæla við vísitölu, þá vitanlega kemur allt út á eina leið, ef gerðar eru einhverjar þær ráðstafanir, sem hækka verðlag í landinu um yfir 100 millj. kr., vöruverð í landinu, sem þessu nemur. Þá finna launþegar það á sér, jafnvel þó að búið sé að brjóta mælinn, jafnvel þó að búið sé að kippa vísitölunni úr sambandi og þeir koma með sínar kauphækkunarkröfur til að reyna að jafna þennan reikning. Og svo þegar þeir eru búnir að hækka sitt kaup til jöfnunar við þessa verðhækkun, þá kemur svo framleiðslan á eftir, iðnaðarframleiðendur og aðrir slíkir, og þeir segja: Nú hefur kaup hækkað og við verðum líka að hækka okkar framleiðsluvöru. — Og það þarf enga vísitölu til þess, að þetta snúist svona eftir sem áður.

Ég vil líka minna á það í þessu sambandi, að annar þessara tveggja kunnu hagfræðinga, sem ég minntist á, Jóhannes Nordal, að hann segir hér eiginlega í riti seðlabankans á þessa leið viðvíkjandi þessu máli:

„Vísitölukerfið sjálft er í rauninni afleiðing, en ekki orsök verðbólgunnar. Það er tilraun til þess af hálfu launþega og framleiðenda að tryggja, að verðhækkanir verði ekki til þess að rýra afkomu þeirra. Það er því lítil von til þess, að takast megi að draga verulega úr áhrifum þessa kerfis til lengdar, hvað þá að afnema það, nema jafnframt sé komið á jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar.“

Þarna játar þessi hagfræðingur það réttilega, að auðvitað er vísitölukerfið, þó að margt megi um það segja og á því séu ýmsir gallar, engin orsök að þeim vanda, sem við eigum hér við að glíma. Vísitalan gerir ekki annað, en segja okkur til um það, hvað hefur verið að gerast.

Það er einmitt út frá þessu, sem leiðir hafa vitanlega skipzt um það, hvað hægt væri að gera og hvað ætti að gera í sambandi við vanda efnahagsmálanna. Þeir, sem líta svo á, að kaup verkamanna, sem munu vera í kringum 4.400 kr. á mánuði eða um 52 þús. kr. á ári hjá verkamanni, sem vinnur alla rúmhelga daga ársins í 8 klst., — þeir, sem líta svo á, að okkar þjóðfélag beri það ekki að borga þetta kaup, það beri að skerða þetta kaup, þeir vitanlega reyna að miða sínar till. við að strika út af vísitölu eða binda kaupið og ganga fram hjá öðrum þáttum þessa vandamáls. En hinir, sem eru á þeirri skoðun, að m.a. ríkið og aðrir opinberir aðilar hafi gengið of langt í því að færa upp eða hækka verðlagið í landinu, þeir vitanlega snúast meira að því að reyna að stilla þarna í hóf, þeir beina augum sínum að því að skila t.d. til baka því, sem ríkið hefur sannarlega oftekið eða tekið fram yfir það, sem beinlínis þurfti og að því að reyna að draga nokkuð úr þeim útgjöldum hjá ríkinu, sem hægt ætti að vera að draga úr, svo að heildarútgjöld ríkissjóðs þyrftu ekki að hækka frá ári til árs öllu meira, en verðlagið í landinu almennt hækkar um og sama þarf að gerast vitanlega hjá bæjar- og sveitarfélögum almennt.

Það er einmitt í framhaldi af þessu, sem ég hef minnzt örlítið á, sem við Alþýðubandalagsmenn höfðum bent á það í sambandi við lausnir þessara mála nú, að þessu sinni, að rétt væri að greiða niður vísítöluna sem næmi ca. 15 vísitölustigum. En við lögðum á það megináherzlu, að þessi niðurgreiðsla yrði gerð í fullu samráði við launþegasamtökin í landinu, því að það er vitanlega gefið mál, að það er hægt að falsa stórkostlega kaup og koma fram kauplækkun, ef niðurgreiðslan á vísitölu fer fram með það í huga að reyna að falsa vísitölu. Það er því ekki sama, hvernig það er gert. Við Alþýðubandalagsmenn erum því sammála út af fyrir sig, sem nú hefur verið gert af núverandi ríkisstj., að greiða niður vísitöluna um 13 stig. Við höfum flutt till. um það í samningaumleitunum varðandi þessi mál, að niðurgreiðslan næmi ca. 15 stigum og það bendir nú margt til þess, að svo muni verða hjá þessari ríkisstj., að hún þurfi a.m.k. að borga niður um 15 stig, eins og hún hefur haldið á málinu. En það, sem skilur á milli okkar og þeirra viðvíkjandi þessu atriði, er það, að við höfum lagt áherzlu á, að niðurgreiðslan verður að fara fram í samráði við launþegasamtökin í landinu, annars mun þetta knapplega halda. En hæstv. ríkisstj. hefur valið þá leið að gera þetta án þess að hafa samráð um það, hvernig niðurgreiðslan færi fram og m.a. valið þær leiðir í þessu efni, sem munu valda tortryggni, því að það vita auðvitað allir, að sá aðili, sem er að borga niður vísitöluna og velur m.a. kartöflur og smjörlíki og annað þess háttar, hann er vitanlega að borga niður þá liði, sem svíkja vísitöluna, því að þeir eru svo rangir í samsetningu vísitölunnar og er ekki eðlilegt, að launþegar uni því.

Þá lögðum við einnig til í okkar till., að auk þessa yrði reynt að leita eftir samkomulagi við launþegasamtökin í landinu og framleiðendasamtökin í landinu um það að færa niður kaupgjaldsvísitölu um nokkur stig gegn þar til ákveðnum bótum, sem þessir aðilar fengjust til þess að fallast á. Við settum ekki neitt ákveðið mark um það, hversu mikið þetta yrði, því að það lá ekki svo glögglega fyrir og gat vitanlega aldrei legið svo glögglega fyrir, hversu mikið þetta væri, sem þarna þyrfti, fyrr en samningar hefðu tekizt við framleiðendur, við útflutningsframleiðsluna. En hér er vitanlega líka stórmikill munur á því, sem við höfum gert í okkar till., og því, sem hæstv. ríkisstj. leggur fram í sínum till. Hún leggur nú til, að strikuð séu út 10 stig a.m.k. með öllu bótalaust fyrir launþega, en við vildum gjarnan, að leitað yrði eftir samkomulagi við framleiðendur landbúnaðarvara og við launþega um það, hvort þeir gætu fallizt á það að falla frá nokkrum vísitölustigum gegn tilteknum bótum á móti. En það gat vitanlega fyllilega komið til greina.

Við bentum á, að fært mundi vera að fara þessa leið, m.a. með því að taka tekjuafgang ríkissjóðs, eins og hann verður á árinu 1958 og nota hann í þessu skyni eða sem sagt skila því til baka, sem hafði verið tekið um of í sambandi við álögurnar á s.l. vori. Við töldum líka, að það væri fært að færa niður ýmis útgjöld á fjárlögum og spara þannig nokkuð, því að þar hefur óneitanlega þensla verið óeðlilega mikil á ýmsum liðum nú um margra ára skeið og efast eflaust enginn um, að það er hægt að draga þar úr útgjöldum, án þess að það þurfi að valda nokkrum manni skaða í landinu. Þá bentum við einnig á það í okkar till. og virðist núv. hæstv. ríkisstj. einnig fara eftir því í ýmsum efnum, að það mundi vera hægt að afla tekna fyrir ríkið upp á nokkra tugi millj., a.m.k. 25–35 millj. kr., í sambandi við einkasölurekstur ríkisins og aðra þá liði, sem ekki þyrftu að hvíla að neinu verulegu leyti á almenningi í landinu. Með þessu og án þess að það þyrfti að skerða raunveruleg launakjör verkafólks í landinu töldum við, að hægt væri að ná endunum saman í þessum efnum og tel ég, að það liggi nú orðið ljóst fyrir, að það hefði verið hægt, ef hefði verið haldið sig við það að ætla útflutningsframleiðslunni sambærileg rekstrarkjör og hún bjó við á s.l. ári, en ekki stórauka uppbæturnar til útflutningsframleiðslunnar frá því, sem hún hafði sjálf samið um í byrjun ársins.

En á því getur enginn vafi leikið, að gert er nú ráð fyrir því með þeim samningum, sem gerðir hafa verið við útflutningsframleiðsluna, að hækka bæturnar til útgerðarinnar allverulega frá því, sem samkomulag hafði verið við hana áður um. Mér sýnist á þeim tölum, sem hér hafa komið fram í þessum umr., og þeim upplýsingum, sem ég hef fengið annars staðar frá, að augljóst sé, að hreinlega bætt rekstraraðstaða útgerðarinnar í landinu sé ekki undir því að vera 60–70 millj. kr., miðað við sams konar útgjaldaaðstöðu, hún sé a.m.k. 60–70 millj. kr. hagstæðari fyrir útgerðina í þessum samningum, en hún samdi sjálf um í ársbyrjun 1958. En þessi fjárhæð, sem þarna hefur verið samið um, mun vera mjög nærri því að vera sú kauplækkun, sem nú á að keyra í gegn með þeim afleiðingum, sem af því geta vitanlega hlotizt, eða m.ö.o.: það, sem útvegsmenn sjálfir höfðu játað opinberlega og hvað eftir annað að væri tiltölulega hagstæður rekstrargrundvöllur, það er lagað um a.m.k. 60–70 millj. kr. til þess á sama tíma að lækka hið almenna kaupgjald í landinu um álíka háa upphæð.

Það, sem ég tel þó hæpnast af öllu í sambandi við þær leiðir, sem núv. hæstv. ríkisstj. hefur lýst hér að hún ætli að fara í þessum málum er, að hún virðist ekki hafa neitt öryggi fyrir því enn þá, að þær till. nái fram að ganga, sem hún virðist þó miða allar þessar ráðagerðir við. Hefur hún tryggt sér það, að hún hafi hér þingmeirihluta fyrir því að lækka útgjöld á fjárlögunum frá því, sem þau eru nú á fjárlfrv., um ca. 40 millj. kr.? Ég efast ekkert um, að þingflokkur forsrh. mun standa að slíkum till., og kemur mér það ekkert að óvörum. En hvað segir Sjálfstfl. um það? Það væri fróðlegt, að talsmaður Sjálfstfl., sem hér talar næst á eftir mér, svaraði því, hvort Sjálfstfl. hefur gefið samþykki sitt til þess að ætla að leysa þetta mál á þeim grundvelli, að útgjöld á fjárlögum verði skorin niður a.m.k. sem nemur 40 millj. kr., því að vitanlega á því byggist það, að hér sé eitthvert plan til þess að leysa málið á, annars eru hitt bara frómar óskir 8 þm., sem standa að Alþfl. og vitanlega hafa lítið að segja í þessu efni.

Sama er að segja um það: Er það tryggt, að Sjálfstfl. fallizt á það, að hægt sé að hækka tekjuliði fjárlagafrv. um 83 millj. kr., án þess að þá sé gert ráð fyrir einhverjum nýjum útgjöldum þar á móti? Ja, fyrrv. fjmrh. hefur lumað á ýmsu, vil ég segja, ef hann hefur lumað á því, án þess að við fengjum um það að vita, að fjárlagafrv., sem hann lagði fram, hafi verið falsað upp á 83 millj. kr. (BBen: Kemur ræðumanni það á óvart?) Ja, ég verð nú að segja, að það kemur mér mjög á óvart, að ég hafi verið blekktur svo mikið. Ég hafði að vísu trú á því, að hægt mundi vera að áætla þar nokkra liði nokkru hærra en gert hafði verið á frv., hafði enda orðið var við það, að fyrrv. fjmrh. hafði viðurkennt, að það mundi vera hægt að teygja eitthvað nokkuð úr þeim, en að hér væri um að ræða tekjur, sem væru faldar fyrir mér upp á 83 millj. kr., það kemur mér alveg á óvart. Vildi ég gjarnan heyra það, hvort Sjálfstfl. er búinn að sannfæra sig um, að þetta muni vera hægt og að þessar tekjur séu því raunverulega til staðar og það sé því raunverulegur þingmeirihluti fyrir slíku, því að annars er heildaruppsetningin á þessu alveg botnlaus.

Til viðbótar við það, sem ég hef hér sagt um möguleikana á því að fara þær leiðir, sem við stungum upp á í þessum efnum, þykir mér rétt að skýra líka frá því, að auk þess sem greiðsluafgangur mun verða á árinu 1958, sem nemur 60–70 millj. og sannar auðvitað, að það voru teknar inn meiri tekjur í ríkissjóð á árinu 1958 með lögunum frá maí, en beinlínis var þörf á og hefur vitanlega kallað á það, að vísitalan hefur hækkað og verðlag hefur hækkað í landinu, að til viðbótar við það var einnig lagt á landsmenn í gegnum þá löggjöf upphæð, sem nemur 63 millj. kr. og ráðstafað var af fulltrúum Framsfl. og fulltrúum Alþfl. síðasta daginn, sem fyrrv. ríkisstj. sat í stólunum, en þá var ákveðið einnig að taka tekjuöflun upp á 63 millj. kr. (BBen: Má ég aðeins spyrja: Er það til viðbótar við tekjuafganginn?) Já, já, til viðbótar við hann. Já, viðbótar við greiðsluafganginn, algerlega þar fyrir utan. Þá var ákveðið að ráðstafa sérstökum tekjum, sem komu inn vegna þeirra álagna, sem lagðar voru á með útflutningssjóðslögunum frá því í maí, þá var ákveðið að ráðstafa þar 63 millj. kr. á þennan hátt: Það var ákveðið að láta sementsverksmiðjuna fá 17 millj. kr., láta ræktunarsjóð fá 18.5 millj. kr. og fiskveiðasjóð fá 14.5 millj. kr. og raforkuplan dreifbýlisins 13 millj. kr., eða samtals 63 millj. kr. Þessar tekjur, sem þarna var um að ræða og eins greiðsluafgangurinn, sem verður á árinu 1958, milli 60–70 millj., þetta er samanlagt um 120–130 millj. kr. En eins og við bentum á, þegar var verið að setja löggjöfina í maí s.l. ár, þá var það stefna okkar Alþýðubandalagsmanna, að hér væri verið að taka meira, en þörf væri á að gera, sem hlyti að kalla á meiri verðhækkun, meiri hækkun á vísitölu og kallaði á meiri hækkun á kaupgjaldi, en við þyrftum að gera á þessu stigi málsins. En vitanlega er ekki hægt að taka inn þessar tekjur og ráðstafa þeim til ágætra framkvæmda eins og til raforkumála, sementsverksmiðjubyggingar, ræktunarsjóðs og fiskveiðasjóðs, auðvitað er ekki hægt að ráðstafa þessu fé til þessara framkvæmda, nema þetta er tekið af fólkinu í landinu í gegnum hækkað vöruverðlag, og vöruverðlagið getur ekki hækkað, nema vísitalan hækki á eftir. Því er það stefna okkar, að við segjum, að þegar svona er á haldið, þá getum við ekki fallizt á það að neita svo að taka afleiðingunum af því, sem gert hefur verið og ætla svo að kippa vísitölunni úr sambandi og segja: Við skulum bara kippa henni úr sambandi, við skulum bara neita því að lesa af mælinum, eins og hann hefur stigið upp, og við skulum bara láta launþegana í landinu taka þetta á sitt bak. — Það er enginn vafi á því, að það var hægt samkvæmt till. okkar, bæði í sambandi við notkun á þeim umframtekjum, sem urðu hjá ríkissjóði í sambandi við þessar 63 millj. kr., og í sambandi við hugsanlegan sparnað á fjárlögunum, að fara þá leið að tryggja útgerðinni í landinu jafngóð kjör og hún samdi sjálf um í ársbyrjun 1958, án þess að þyrfti að ráðast að verkafólkinu í landinu og knýja þar fram beina launalækkun, eins og nú á að gera.

Ég vík þá með nokkrum orðum að frv. sjálfu, eins og það liggur hér fyrir. Það er eins og hér hefur verið sagt, aðalatriði þessa frv. er í rauninni það að ákveða kauplækkun, sem nemur 10 vísitölustigum, án allra bóta. Og það hefði vitanlega verið miklu hreinna og eðlilegra af ríkisstj. að hafa þetta frv. eina litla grein, sem hefði sagt þetta hreint og skilmerkilega, heldur en að vera að vefja þetta inn í margar greinar, sem skapar mikla tortryggni og reyndar er þannig úr garði gert á eftir, að það er auðvelt að gera fórn launþeganna í landinu miklum mun meiri en 10 stig, þó að það sé sagt í orði, að fórnin eigi aðeins að vera 10 stig, því að kjarni málsins, eins og hæstv. forsrh, sagði hér, kjarni málsins, kjarni frv., er þessi, til þess er frv. flutt að reyna að lögfesta það, að launþegar í landinu gefi eftir 10 vísitölustig, án þess að þeir fái þar á móti nokkrar bætur, því að á móti þessum 10 stigum eiga þeir ekki að fá neinar bætur. En það er nú samt rétt að gera sér svolítið nánari grein fyrir því, hvernig framkvæmdin mundi verða, eins og þetta frv. er upp byggt.

Mér sýnist alveg augljóst, enda er það viðurkennt af þeim sérfræðingum stjórnarinnar, sem maður hefur fengið nokkrar upplýsingar hjá um málið, að fórnin, sem launþegum er ætlað að bera, er allmiklu meiri en 10 vísitölustig, a.m.k. í febrúarmánuði. Kaupgjaldsvísitalan nú í dag á aðvera 195 stig. Nú er ætlað að færa hana niður í 175. Það er því alveg glöggt, að það á að færa kaupgjaldsvísitöluna skyndilega niður um 20 stig.

Hæstv. forsrh. gaf á þessu þá skýringu, að hér virtist þetta vera 10 stigum meira, en launþegum væri nú ætlað að bera bótalaust, þá skýringu, að um 5 stig af þessu ættu að hverfa, vegna þess að 17 vísitölustigin, sem greidd hafa verið í desember og janúar, hafi raunverulega dregið það á eftir sér inn í vísitöluna og um leið og þau eru tekin í burtu, þá ætti vísitalan sjálf að lækka um 5 stig. Ég hafði spurt hagstofustjóra einmitt um það, hversu mikil hækkun hafi orðið á vísitölunni sem afleiðing af því, að þessi 17 vísitölustig voru í gildi í desember og janúar og hann gaf mér það upp sundurliðað og sagði ekki 5 stig, heldur 2.3 stig. Það sundurliðaðist þannig, að 1.4 stig af vísitölunni var vegna hækkunarinnar í útsölu á landbúnaðarvörum, 0.25 stig var vegna rafmagnsvöruverðhækkunar, 0.7 stig var vegna hækkunar á fatnaðarlið vísitölunnar og 0.45 stig vegna viðhaldskostnaðar í húsaleigu, en viðhaldskostnaðurinn í húsaleigu hafði vitanlega hækkað vegna 17 vísitölustiganna á kaup á þessum tíma, eða þetta eru samanlagt 2.3 stig, en ekki 5 stig. Þetta hafði mér verið gefið beint upp af hagstofustjóra. Ég hafði svo heyrt það og hef það m.a. úr blaði hæstv. forsrh., að stjórnin gerði sér von um það, að afleiðingar af því, að landbúnaðarvöruverðið er fært niður sem nemur þessum 10 vísitölustigum og álagning í landinu er líka lækkuð til samræmis við það og annað verðlag, að þetta gæti þýtt í hinni almennu vísitölu um 4 stig. Haldi menn sér nú við þessar upplýsingar, en vitanlega tekur það alllangan tíma, að þetta komi allt saman fram, þessi 4 stig, og hitt, sem hagstofustjóri hafði sagt, að afleiðingarnar af þessum 17 stigum væru 2.3 stig, þá er vitanlega alveg ljóst, að það, sem launþegar eiga að missa í febrúarmánuði, verður ekki 10 stig, heldur a.m.k. 14–15 stig. Það verður aldrei minna en 14–15 stig, sem þeir eiga að tapa algerlega í febrúarmánuði. Síðan koma ákvæði í frv. um marzmánuð. Þá lofar ríkisstj. því, að 1. marz ætli hún að bæta við niðurgreiðslurnar þannig, að hin raunverulega kaupgjaldsvísitala hefði orðið 185 stig, þannig að hinn bótalausi niðurskurður verði ekki nema 10 stig. Mér þykir því alveg sýnilegt, að þá verði ríkisstj. að bæta þarna við niðurgreiðslum upp á ein 4–5 stig, eða 3–4 stig a.m.k. Nú er þetta ekki lögbundið, en lýst er yfir í grg., að þetta skuli gert.

Eins og ég gat hér um áður, þá er það vitanlega ekki heldur sama fyrir launþega, hvernig þessi niðurgreiðsla á 3–4 stigum til viðbótar fer fram. Ef á að framkvæma það allt á kartöflum, þá er það svo að segja einskis virði. Þá er þetta bara vísitöluplat. Það skiptir því vitanlega höfuðmáli, hvernig á að haga þessari viðbótarniðurgreiðslu. En svo er enn ákvæði í frv., sem segir, að taka skuli vísitöluna og miða við þá hækkun, sem verður á henni frá 1. marz til marzloka, og miða síðan kaupgjaldsvísitöluna næstu 4 mánuði við það, hvernig vísitalan hefur hreyfzt í marzmánuði einum. Það sýnist nú auðvitað alveg upplagt mál, þegar svona er búið til, að ríkisstj. hljóti að halda vísitölunni nokkurn veginn í skefjum í marzmánuði einum, því að það borgar sig vitanlega fyrir hana að borga örlítið niður í einn mánuð til þess að þurfa ekki að borga frekari kauphækkun næstu 4 mánuði. En um það er svo ekkert sagt, að framfærsluvísitalan geti ekki raunverulega haldið áfram að hækka í þessa 4 mánuði og ef svo færi, eins og veruleg hætta er á, þá yrði fórn launþega meira en 10 stig, því að þeir eiga að taka kaup alltaf samkvæmt vísitölunni 175.

Mér sýnist því, eins og frv. er upp byggt, að langmestar líkur séu til þess, að fórn launþega verði a.m.k. 14–15 stig í febrúarmánuði, enda það viðurkennt hér af forsrh., að fórnin muni verða meiri í febrúar en 10 stig, hins vegar muni fórnin væntanlega ekki vera meiri en 10 stig í marzmánuði, en hún geti hæglega orðið 12–13 stig eða kannske enn meira á næstu 4 mánuðum þar á eftir. Og auðvitað er verið að glenna úr þessu tímabili með því að láta launþega bíða í 4 mánuði eftir því að fá sína kaupgjaldshækkun úr því, sem áður var 3 mánuðir, til þess að hafa þarna meiri möguleika til þess að plata launþega eitthvað svolítið.

En hvað sem þessu líður, þetta er nú ekki aðalatriðið, hvort sem sagt sú fórn, sem launþegar koma til með að bera skv. þessu frv., verður 10 stig nákvæmlega þennan tíma eða hvort fórnin verður 12 stig eða 13 stig, það er ekki aðalatriðið. En ef ríkisstj. hefði ætlað sér að hafa fórnina nákvæmlega 10 stig og aldrei meira en 10 stig, þá átti hún vitanlega að hafa það skýrt ákvæði í lögunum, að svo væri þetta og binda sig þá við það að verða að halda framfærsluvísitölunni í þeirri fjarlægð frá kaupgjaldsvísitölunni allan tímann, að bilið yrði aldrei nema 10 stig. En þetta er ekki bundið í lögunum og þetta vitanlega skapar tortryggni launþega og ég skil ekki í því, að ríkisstj. hafi verið að búa til allt þetta kerfi, sem þarna er búið til, nema vegna þess, að hún hafi haft eitthvað í huga.

Aðalatriði málsins er vitanlega það, að hér er gengið inn á þá braut að skera niður kaupgjald um a.m.k. 10 stig og skerða þannig samningsrétt launþegasamtakanna í landinu. Og það er það, sem er það alvarlegasta í málinu. Það hefur aldrei gefizt vel, þegar sú leið hefur verið farin hér á Alþingi að ætla sér það að ganga fram hjá launþegasamtökunum í landinu og setja lög þvert gegn þeirra vilja. Það hefur venjulega gefizt illa. Og ég er ákaflega hræddur um, að svo kunni að fara enn.

Þá er að finna í þessu frv., eins og það liggur hér fyrir, ákvæði um það, sem er mjög sérstaks eðlis, að hér er nú ákveðið, að nýlega umsamið fiskverð til sjómanna, skiptaverð, skuli einnig lækka. Ég tel fyrir mitt leyti, að hér hafi verið farið mjög ranglega að. Ég álít, að það sé hættulegur leikur fyrir ríkisvaldið eða aðra slíka aðila að ætla að setjast að samningaborði við frjálsa viðsemjendur, semja við þá um tiltekin kjör, það vitanlega togast á eins og gengur í alllangan tíma, meira að segja um hvern einstakan eyri, hvað skiptaverðið eigi að vera hátt, skrifa undir slíka samninga, því að rétt er að gæta að því, að í þessu tilfelli skrifuðu fulltrúar ríkisstj. undir það samkomulag, sem þarna var gert um það, að ríkisstj. skyldi ekki leggja það til í efnahagstill. sínum, að þetta skiptaverð skyldi taka breytingum, ráðuneytisstjórinn Gunnlaugur Briem og einn af þingmönnum Alþfl. ásamt forstjóra útflutningssjóðs skrifa undir þetta samkomulag með eigin hendi, en ríkisstj. vill ekki standa við það, segist ekki vilja hlíta þessu og áskilur sér rétt til þess að mega lækka alveg nýlega umsamið verð. Auðvitað hefði verið miklu réttara fyrir ríkisstj. í þessu efni að segja sínum viðsemjendum strax í upphafi, að hér sé gengið út frá því annaðhvort, að ríkisstj. vilji fá leyfi til þess að skera þetta niður og þetta sé því í rauninni tala, sem þeir geti alls ekki treyst á, og þá hefði vitanlega gengið illa að semja, því að það er ekki gaman að semja undir slíkum kringumstæðum, eða þá að miða sína samninga við það, að það, sem sjómönnum var ætlað í þessu tilfelli, stæði óbreytt í þeirri löggjöf, sem þegar var í rauninni búið að ákveða, hvernig skyldi vera.

Af þessu hafa svo spunnizt nokkrar deilur milli ríkisvaldsins annars vegar og samtaka sjómanna víða og það er vitanlega ekki séð, hvernig það fer. Ég er ákaflega hræddur um, að sjómenn kunni því illa, þegar þeir finna, að þeirra kaup á að lækka jafnmikið og þetta frv, gerir ráð fyrir, og þeir þykist ýmsir grípa þar nokkuð í tómt. Ég tel líka fyrir mitt leyti, að það sé mjög vafasamt að ætla sér að fara að vísitölubinda skiptaverð á fiski. Það er ákaflega erfitt að koma slíku við og það mun hafa truflandi áhrif á ýmsa þætti í útgerðinni að ætla að gera slíkt.

Ég skal aðeins nefna eitt einasta atriði, bara eitt atriði, þau eru vitanlega ótalmörg. Kaupgjaldsvísitala er að breytast um viss mánaðamót alltaf og maður veit jafnvel fyrir, að nú á hún að breytast, t.d. vissu það allir fyrir í nóvembermánuði, að kaupgjaldsvísitalan átti að þjóta upp um 17 stig 1. des. Ekki vil ég álasa þeirri togaraskipshöfn fyrir það, sem er að koma með 350 tonn af fiski að landi og hún á að landa fiskinum daginn fyrir, þó að hún bara doki við þangað til daginn eftir og nái sér í kauphækkunina. Ekki hefði ég viljað álasa henni fyrir það.

Það er svo margt í framkvæmdinni í þessu, sem gerir það að verkum, að það er vægast sagt óeðlilegt að vera að sveifla svona til með fiskverðið. Hins vegar er það, að ekki lengri tími en venjuleg vertíð er hjá okkur, þá er ofur eðlilegt, að það fiskverð, sem ákveðið er í upphafi vertíðar, fái að standa út vertíðina.

Nú verður sá einkennilegi háttur á, vegna þess að farið er inn á þessa nýju braut, að binda þetta vísitölu, að fiskverð til skipta þýtur í janúarmánuði upp í kr. 1,91, en svo í febrúar á það að detta ofan í kr. 1,66. Ja, það skyldi bara vera, að okkar framleiðsla sem heild yrði ekki fyrir einhverjum vandræðum, þegar þessi snöggu umskipti koma. Menn hafa aldrei átt þessu að venjast. Ég tel því, að það hafi verið óheppilega haldið á þessu og óeðlilega og svona eigi ekki að miða þessa samninga.

Hitt var svo vitanlega hægt að deila um, hvort sú fiskverðshækkun, sem sjómönnum var ætluð í þessu tilfelli, 20 aurar á fiskkíló, var of mikil fyrir okkar bátasjómenn. Hún var mjög sæmileg. Það hafa hins vegar verið uppi kenningar um það hjá mörgum, að við ættum enn að hækka mun meira kaup til okkar sjómanna, heldur en til annarra vinnustétta í landinu, vegna þess að okkur skortir miklu meira sjómenn, en menn í aðra vinnu, og ég álít því, að það hefði verið fyllilega réttlætanlegt, eins og á stóð, að láta sjómenn halda þessu fiskverði og jafnvel þó að það hefði verið meira.

Þá er einnig farið inn á þá braut í þessum samningum, að gert er nú ráð fyrir því, að útgerðarmennirnir sjálfir skuli fá þær bætur, sem þeim eru ákveðnar, líka metnar miðað við vísitölu. Það er hlutur, sem ég hefði ekki viljað standa í, að glíma við það atriði, þegar á að fara að margrífa upp bótakerfið til útgerðarinnar á einu rekstrarári, margrífa það upp, vegna þess að þeir trompa þar fram vísitölubreytingum. Það verður erfitt verk og mjög óeðlilegt, að þær framleiðslubætur, sem eru ákveðnar handa útgerðinni, skuli ekki geta staðið út eitt ár. Ég tel því, að það ákvæði sé heldur ekki til bóta, nema síður sé.

Nú er gert ráð fyrir því að fara eins að með bændur, breyta líka hvað eftir annað kaupi bóndans í verðlagningu landbúnaðarafurða. Ætli það verði ekki bein afleiðing af því, sem hefur verið samþykkt fyrir útgerðarmenn, að ákveða einnig að breyta hinum almenna rekstrargrundvelli landbúnaðarbúsins líka hvað eftir annað á árinu? Ef það er meiningin að tengja þannig sífellt fleiri og fleiri liði við útreikning vísitölunnar og gera málið þannig erfiðara í þeim tilgangi, eins og hér hefur jafnvel komið fram, að nota það síðan sem röksemd fyrir því að taka vísitölu úr sambandi, þá skilur maður leikinn. En ég er ekki viss um það, að við munum hagnast á því hér yfirleitt að ætla að hverfa með öllu frá vísitöluákvæðum okkar, þó að án efa hefði mátt lagfæra þau eitthvað í framkvæmd. Það er rétt að hafa það líka vel í huga, að vísitöluákvæðin hafa komið í veg fyrir margar vinnudeilur, sem annars hefðu orðið, og það er mjög hætt við því, a.m.k. á meðan verðlagið er óstöðugt og verðlag sífellt fer hækkandi, að vinnudeilurnar yrðu ærið margar, ef engin vísitöluákvæði væru í gildi.

Í þessu frv. eða í grg. þess er sú einkennilega uppstilling, að reynt er að halda því á lofti, að kaupmáttur launa hafi fremur hækkað, en lækkað við þessar ráðstafanir, miðað við október, eins og svo er bætt við. Flestum verður þetta vitanlega í fyrstu hrein ráðgáta, að sagt er í frv., að launþegar eigi að gefa eftir bótalaust 10 vísitölustig og lækka skuli umsamið kaup um 5.4%, segir ríkisstj., en svo er birt tafla, þar sem gerð er grein fyrir því, að kaupmáttur launa muni þó heldur aukast hjá flestum eða öllum stéttum, eftir að aðgerðirnar hafa farið fram, miðað við október. Ég tel, að hér sé verið með blekkingar, sem á engan hátt hæfi að leggja hér fram í þingskjali á Alþingi og verði sízt til stuðnings þessu máli. Auðvitað er, eins og annars kemur fram í frv., hér um beina kjaraskerðingu að ræða frá gildandi samningum, kjaraskerðingu, sem menn geta kannske deilt eitthvað um, hversu mikil er. En vitanlega er enginn vandi að finna út svona dæmi eins og þetta, sem þarna er nefnt.

Það skilja allir, að þegar þannig tímabil ganga yfir, eins og t.d. frá 1. sept. s.l. til 1. des., 1. sept. var ákveðin útreiknuð kaupgjaldsvísitala og hún var 185 stig, en næsta kaupgjaldsvísitala á ekki að koma fyrr en eftir þrjá mánuði eða 1. des., en þessa þrjá mánuði vitanlega er verðlag að hækka miskunnarlaust, það hækkar hver vörutegundin af annarri allan tímann, og ef maður tekur nú verðlagið, eins og það er komið í nóvembermánuði eða rétt áður, en ný vísitala á að koma inn til þess að bæta mönnum upp verðhækkunina, þá er vitanlega hægt að segja: Ja, kaupmáttur mannsins í október eða nóvember var enn þá miðaður við vísitöluna 185, því að hann fékk ekki meira kaup, en verðlagið, sem hann þurfti að borga, var vitanlega orðið miklu hærra, og þar með var kaupmátturinn þá orðinn stórkostlega rýrður. — M.ö.o.: það er svo, að þegar búið er að taka hér 5.4% eða 6% eða 7%, hvað sem það kann nú að reynast, af raunverulegu kaupi manna bótalaust, þá getur það eigi að síður verið heldur minna, en búið var að taka af mönnum í gegnum verðhækkanirnar, áður en þeir höfðu fengið verðhækkanirnar borgaðar í sínu kaupi í gegnum kaupgjaldsvísitölu. Það er svona, sem í þessu liggur, að þetta er fundið út eingöngu til þess að blekkja eða villa um fyrir mönnum frá því, sem raunverulega er í málinu.

Útreikningur á því, hver hafi verið raunverulegur kaupmáttur launa, sýnir alveg glöggt, að miði maður við þennan útreikning, sem hér er lagður til grundvallar, þá hefur kaupmáttur launa verið 109.9, miðað við 1. des., en verður samkvæmt því, sem segir í þessari grg., 103.9 1, marz, eða það munar 6% á þessu. Þarna er verið að leggja til samjafnaðar tvær svipaðar tölur, en ekki tölur, sem eru byggðar upp á gersamlega mismunandi grundvelli.

Mér þykir augljóst á því, sem fram hefur komið hér í umr. um þetta frv., að enn þá er það í algerri óvissu hjá ríkisstj., hvernig á að fara með þann fjárhagsvanda, sem hér er á ferðum. Hún sér fyrir, að þeir samningar, sem hún þegar hefur gert og þær ráðstafanir, sem hún hefur gert í sambandi við niðurgreiðslur á vörum, að þetta kostar aldrei undir 175 millj. kr., en tekjur þar á móti eru mjög óráðnar. Ríkisstj. hefur enn ekki glöggvað sig á því einu sinni sjálf, hvort það muni nú vera hægt að láta þessa enda ná saman, og það liggur svo ekkert heldur fyrir um það, að ríkisstj. hafi meira en aðeins 8 þm. á bak við þessar hugmyndir sínar um tekjuöflun þarna á móti. Mér sýnist því, að þetta sé í rauninni allt botnlaust, eins og það er nú, og segi í rauninni ekki nema hálfa sögu um það, hvernig hægt muni að leysa vandann.

Það er svo, eins og ég sagði í upphafi, alveg augljóst mál, að það er ekki hægt að afgr. þetta frv., eins og það liggur hér fyrir, eitt út af fyrir sig. Það verður að afgreiðast í beinum tengslum við breytingarnar á útflutningssjóðslögunum, og það verður í rauninni einnig um leið að afgreiðast í beinu samhengi við það, hvernig á að standa að afgreiðslu fjárl. Ef þetta verður ekki gert, þá er ósköp hætt við því, að svo fari, að það vanti marga tugi milljóna eða jafnvel hundruð milljóna upp á það, að tekjur séu á móti gjöldum, og þá er í rauninni valin sú leið að lofa útgjöldum, en afla ekki tekna á móti og skapa þannig nýjan skuldahala á næsta hausti og þá líklega með þeim hætti, að þá eigi að afloknum kosningum að ráðast í það að velja þær leiðir, sem velja þarf til þess að afla teknanna.

En það kom hér fram hjá hæstv. forsrh., að hann ætlaðist til þess, að væntanlega um næstu helgi kæmi fram frv. um útflutningssjóð og gefst þá vitanlega nýtt tækifæri til þess að ræða fleiri þætti saman af þessu máli og þá getur það líka einnig skýrzt nokkru nánar, hvaða möguleikar virðast vera fyrir hendi til þess, að hægt sé í rauninni að afgr. þetta á frambærilegan hátt. En ég held, að ríkisstj. hafi ekki enn gert sér fulla grein fyrir því, hvaða meginhættur eru fólgnar í þessu frv., sem hér hefur verið lagt fram, hvaða hættur eru á því, þegar svona nokkuð á að lögfestast, án þess að haft hafi verið samráð við launþegasamtökin í landinu, að þetta verði í rauninni allt að engu gert, ef launþegasamtökin vilja ekki una því, sem hér er einhliða ákveðið án samráðs við þau.