29.10.1958
Sameinað þing: 6. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í D-deild Alþingistíðinda. (1890)
14. mál, votheysverkun
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég stend hér ekki upp til þess að gera út af fyrir sig athugasemdir við hina greinargóðu ræðu hv. 1. þm. Árn. (ÁÞ), sem að vanda flutti mál sitt vel og skörulega. Það fer áreiðanlega ekki á milli mála og getur engum ágreiningi valdið, að það mál, sem hann ræddi, hefur mjög mikla þýðingu, fyrst og fremst fyrir bændastétt landsins, en að sjálfsögðu einnig fyrir þjóðfélagið í heild. Það er vitanlega eitt hið mesta nauðsynjamál, ef hægt er að finna einhver úrræði til þess að létta heyöflunina og tryggja öflun góðra heyja og gera bændur óháðari hinni mjög stopulu sumarveðráttu, sem við er að fást hér og flest ár veldur erfiðleikum meira eða minna í ýmsum héruðum landsins.
En það, sem kom mér til þess að standa hér upp, er nánast að spyrjast fyrir hjá hv. flm. þessa máls, 1. flm., varðandi það, sem hefur gerzt nú að undanförnu í þessum málum og ég geri ráð fyrir að hann hljóti að hafa kynnt sér og þeir flm. þessarar till. Þannig er mál með vexti, að á Alþingi 1955 var flutt af fyrirrennara hans sem 1. flm., hv. 1. þm. Árn. þá (JörB), og nokkrum öðrum hv. þm. till., sem gekk mjög í sömu átt og þessi till. hér. Hún gerði ráð fyrir því, að rannsakað yrði um einmitt ný úrræði bæði í sambandi við votheysverkun, súgþurrkun og önnur þau atriði, er til mála gætu komið til þess að leysa úr þeim vanda, sem hér er um að ræða. Þessi till. var samþykkt þá á Alþ. einróma með smávægilegri breytingu, sem fjvn. þá gerði á henni, og var sú breyt. gerð eftir ábendingu búnaðarþings, sem fékk þá málið til meðferðar, og var breytingin aðallega sú, að framkvæmd málsins yrði falin verkfæranefnd ríkisins og tilraunaráði búfjárræktar í samráði við Búnaðarfélag Íslands. Í þessu formi var till. samþykkt og afgr. til hæstv. ríkisstj., sem átti að hafa forgöngu um það, að þessir aðilar tækju þessi mál til athugunar og rannsóknar, og var einmitt í þeirri ályktun gert ráð fyrir því, að Búnaðarfélag Íslands léti bændum í té, svo fljótt sem verða mætti, niðurstöður þessara rannsókna og tilrauna, þannig að þær gætu komið bændum sem fyrst að gagni.
Í sambandi við umr., sem urðu þá um þessa till., komu fram ýmsar ábendingar, að mörgu leyti þær sömu sem 1. flm. hér gat um og nokkrar aðrar, sem vikið var að þá í umr., þannig að svo virðist sem mál þetta hafi þá verið rætt nokkuð alhliða og hefði átt að fást sæmilega góður grundvöllur til þess að geta framkvæmt þær rannsóknir, sem gert var ráð fyrir að ríkisstj. hefði forgöngu um að unnar yrðu af þessum tilteknu aðilum, sem ég nefndi.
Nú er í sambandi við þessa þáltill. ekki gerð nein grein fyrir því, hvað gerzt hefur í þessu máli, og ég held ekki einu sinni minnzt á það, að þessi ályktun hafi verið gerð. Það er vitanlega mjög fróðlegt að fá upplýsingar um það, — vafalaust mun sú nefnd, sem fær þetta til meðferðar, gera það, — hvað hefur gerzt í þessu efni, hvort ríkisstj. hefur ekki falið þeim aðilum, sem gert var ráð fyrir í till. frá 1955, að annast þessar athuganir og rannsóknir eða hvort þessir aðilar hafi ekki gert það, verkfæranefndin og tilraunaráðið, eða hvort í þriðja lagi Búnaðarfélag Íslands hefur ekki gefið þær upplýsingar og leiðbeiningar, sem gert var ráð fyrir að það gæfi bændum í framhaldi af þessum athugunum og rannsóknum.
Ég fæ nefnilega ekki annað séð, en að með þeirri ályktun, sem þá var gerð, og í því formi, sem hún var samþykkt, hafi átt að vera lagður a.m.k. traustur grundvöllur að því, að þá þegar væru hafnar þær mikilvægu rannsóknir, sem tvímælalaust er þörf á í þessu máli og þessi till. nú gerir ráð fyrir. Þetta tel ég að því leyti nauðsynlegt að fá að vita, vegna þess að hér er gert ráð fyrir að fela þetta raunverulega sömu aðilum, — að vísu er verkfæranefndin hér ekki með í þessari till., — því að ef þessir aðilar hafa ekki sinnt þessu verkefni, svo sem þeim var falið með þál. á Alþingi 1955, þá vitanlega hefur litla þýðingu að vera að fela þeim aðilum þessa rannsókn nú.
Þessar spurningar hljóta að vakna, þegar þessi till. kemur hér til meðferðar, og ég held, að til þess að líklegt sé að fá raunhæfan grundvöll til að taka upp þessar rannsóknir, sem hér er gert ráð fyrir, sé nauðsynlegt að gera sér fullkomlega grein fyrir því, hvað hefur gerzt áður í hliðstæðu máli, til þess að menn þá geti gert upp sinn hug um það, hvað hér hefur verið svo áfátt hjá þessum aðilum, sem þá var falið málið, að ástæða hefur þótt til þess að taka það nú upp á nýjan leik. Þótt málið verði athugað í nefnd að þessu leyti og nefndin vafalaust rannsaki það og spyrjist fyrir um það hjá þeim aðilum, sem ég nefndi og var falið þetta verkefni eftir tillögu búnaðarþings 1955, væri vitanlega engu að síður æskilegt, ef hv. flm. gætu upplýst þingmenn um það nú í sambandi við meðferð þessa máls, hversu ástatt er í þessum efnum og hvaða vanræksla það er á þessu sviði, sem hefur valdið því, að þeir sjá ástæðu til þess að taka málið nú upp aftur.