20.02.1959
Sameinað þing: 28. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í D-deild Alþingistíðinda. (1898)
14. mál, votheysverkun
Frsm. (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Sú till., sem hér um ræðir, felur það í sér, að ríkisstj. skuli vinna að því í samráði við Búnaðarfélag Íslands, tilraunaráð búfjárræktar, verkfæranefnd ríkisins og rannsóknaráð ríkisins að finna viðunandi lausn á einu af okkar stærstu vandamálum innan landbúnaðarins, en það er betri hagnýting á þeim heyforða, sem við árlega öflum.
Sem kunnugt er, hefur hið ræktaða land stórum aukizt hin síðari ár og eigum við þar mest að þakka hinum stórvirku vélum, sem völ er á til að þurrka landið og einnig til að brjóta það og vinna undir sáningu. Þá ber einnig að minnast þess, að hin síðari ár hefur ríkisvaldið sýnt bæði stórhug og framsýni í því að létta undir með bændum að því er ræktun varðar. Þetta virða bændur og hafa ekki látið sitt eftir liggja að tileinka sér þá tækni, sem völ hefur verið á hverju sinni og efnahagur þeirra hefur leyft. — Staðhættir lands okkar eru þannig, að við búum við stutt og fremur köld sumur, sem oft eru einnig úrkomusöm. Af þessu leiðir það, að við eigum ekki völ á að rækta ýmsar jurtir til manneldis, sem nágrannaþjóðum okkar veitist allajafna mjög auðvelt, eins og korntegundir til manneldis. Við verðum því að hafa húsdýrin sem millilið til að geta notað þann gróður, sem auðveldast er að rækta hér, en það eru hinar ýmsu grastegundir, sem yfirleitt eru bæði harðgerar og kjarnmiklar.
Með vaxandi áburðarnotkun og framleiðslu kjarnaáburðar innanlands hefur það sýnt sig, að auka má verulega uppskerumagnið frá því, sem áður var, meðan eingöngu var notazt við húsdýraáburð. En það er augljóst mál, að saman þarf að fara stór og grasgefin tún og fullkomin og góð nýting heyjanna. Þetta kostar allt það mikið, að ekki neitt má fara til spillis. Með nýtízku vélum og tækjum er auðvelt að losa grasið, en of margir bændur eru háðir veðurfarinu með nýtingu heyjanna. Venjan er sú að þurrka heyin úti og hirða þau í hlöðu þurr, stundum góð og stundum mjög hrakin. Hin síðari ár hafa ýmsir bændur þurrkað heyin í hlöðum með þar til gerðum blásurum, en þetta er ekki hægt, nema því aðeins að heyin séu þurrkuð úti fyrst að nokkru leyti og að rakastig loftsins, sem blásið er i heyið, sé mun minna, en rakastigið í heyinu, sem þurrka skal. Að vísu má hita loftið, sem blásið er. Það kostar aukaútbúnað og þykir yfirleitt kostnaðarsamt. En allar líkur benda til þess, að súgþurrkun geti gefið mjög gott hey, sem er fullgild fóðurvara, og yfirleitt fellur mönnum betur að fóðra með þurrheyi en votheyi. Þá hefur og votheysgerð á heyi verið mikið prófuð, bæði af bændum og opinberum stofnunum bændastéttarinnar. En þó hefur henni aldrei tekizt að vinna þann sess meðal bænda, sem við hefði mátt búast, en því veldur það tjón, sem bændur hafa orðið fyrir vegna hinnar svonefndu Hvanneyrarveiki í sauðfé, sem orðið hefur vart við fóðrun á votheyi. Auk þessa þykir ekki eins þægilegt og þrifalegt að meðhöndla vothey sem þurrhey. Votheysgeymslur þurfa að vera vandaðar að frágangi og vel staðsettar, til þess að það kosti ekki of mikla tækni að koma heyinu í þær og ná því þaðan aftur. Þetta er ekki erfitt spursmál, þegar um byggingar er að ræða, sem reistar eru frá grunni samtímis, en oft hið gagnstæða, þegar votheysgeymslur eru byggðar við gömul peningshús. Það er margs að gæta við verkun á votheyi og ýmislegt reynt í því sambandi. Reyndar hafa verið margs konar sýrur til að binda næringarforðann og hafa áhrif á heppilega sýrumyndun í votheyi. Þetta hefur geysimikla þýðingu, ekki sízt þegar um mjólkurframleiðslu er að ræða, því að mjólkin er viðkvæm matvara, og þar þarf því að viðhafa mikla nákvæmni á allan hátt.
Vera má, að okkur, sem búum í þessu kalda landi, en þó landi, sem býr yfir mikilli orku og miklum yl, þar sem hveraaflið er, verði unnt, þegar fram líða stundir, að fóðra búfé á veturna á gróandi grasi að nokkru eða öllu leyti, en nýjasta tækni og nýjustu rannsóknir benda í þessa átt. Margar aðrar nýjungar eru á þessum sviðum, sem vert er að gefa gaum og ég veit að þeir, sem hafa þessi mál með höndum, munu veita athygli í sambandi við athugun á þessu spursmáli, sem till. felur í sér.
Ég hef hér reynt að leiða rök að því, hversu nauðsynlegt er að fylgjast vel með og komast að niðurstöðu um það, hvernig við getum á skynsamlegan hátt varðveitt þau næringarefni, sem okkar kjarnmikli túngróður býr yfir. Vafalaust sparast miklir fjármunir, þegar niðurstöður eru fengnar í þessum efnum og bændur geta tileinkað sér þær með góðum árangri, því að það að eiga ekki allt sitt undir sól og regni er oft mikils virði.
Ég vil að lokum vænta þess, að till. þessi njóti skilnings Alþingis og að samþykkt hennar megi verða til þess að leiða í ljós þá lausn á vandanum, sem gerir öllum bændum kleift að notfæra sér þær niðurstöður með góðum árangri. Allshn. hefur leitazt við að breyta till. á þann veg, að þar megi sameina krafta þeirra stofnana, sem að nokkru leyti hafa fjallað um þessi mál og svipuð áður, en þó ekki á skipulegan hátt, og væntir n. þess, að hæstv. ríkisstj. beiti sér fyrir því, að svo megi verða. Að öðru leyti læt ég nægja að vísa til þeirra umræðna, sem fram fóru í vetur, og þeirra fskj., sem fylgja nál. á þskj. 253.