26.11.1958
Sameinað þing: 11. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í D-deild Alþingistíðinda. (1906)

29. mál, skipulagning hagrannsókna

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég vil aðeins láta þess getið með örfáum orðum, að ríkisstj. hefur undanfarið verið að vinna að því verkefni, sem fjallað er um i till. hv. 9. landsk. þm. Ég er honum algerlega sammála um, að gera þarf — og hefur raunar lengi þurft — sérstakar ráðstafanir til þess að samræma störf þeirra opinberra stofnana, sem fást við hagrannsóknir hér á landi. Sömuleiðis ber til þess brýna þörf að bæta mjög þá þjónustu, sem ríkisvaldið og opinberir aðilar eiga völ á frá sérfræðingum í hagrannsóknum.

Mjög skömmu eftir að núv. ríkisstjórn var mynduð, voru gerðar ráðstafanir til þess að ráða í þjónustu ríkisins efnahagsmálaráðunaut. Slíkur ráðunautur hafði starfað fyrir ríkisstj. áður um alllangt skeið, en sú starfsemi síðan legið niðri um nokkurt bil. Það tókst ekki fyrr, en á s.l. ári að ráða til ríkisins mann, sem gæti gegnt slíku starfi, en það tókst á s.l. ári, og ég hygg, að ekki sé um það ágreiningur, að þar hafi valizt hinn hæfasti maður til, þar sem er Jónas H. Haralz hagfræðingur.

En tilætlunin hefur verið að láta ekki við það eitt sitja, að á vegum ríkisstj. starfaði efnahagsmálaráðunautur, heldur að komið yrði á fót hagdeild eða hagrannsóknastofu, efnahagsmálarannsóknarstofu eða hvað sem menn vildu kalla slíka stofnun, annaðhvort í stjórnarráðinu sjálfu eða í nánum tengslum við það. Það mál hefur verið í athugun, þó að henni sé ekki fullkomlega lokið, og málið hefur verið rætt við nokkra af þeim stofnunum, sem hv. 9. landsk. þm. nefndi í ræðu sinni og getið er í till. En niðurstaða er ekki enn fengin um það, með hverjum hætti heppilegast væri að skipuleggja slíka hagdeild, enda eru þar mörg álitamál og úr mörgum vanda að ráða. Skal ég ekki á þessu stigi tefja þessar umr. með því að víkja að einstökum atriðum. Auk þess vil ég á það minna, að síðasta Alþ. samþ. þál., sem gerði ráð fyrir endurskoðun á l. um stjórnarráðið. Það er verið að vinna að athugunum í samræmi við þá ályktun, og hefur þetta mál nokkuð blandazt inn í það.

Ég vildi þó láta þess getið, að ég er ekki alveg sammála hv. flm. till. um eitt atriði, sem hann vék að í ræðu sinni, það, að heppilegt kynni að vera, að til væri ein stofnun, sem stjórnað væri af fulltrúum ríkisvalds og launþegasamtaka og ýmissa annarra opinberra stofnana, sem hefðu þessar rannsóknir með höndum, og tel hitt að sumu leyti eðlilegra, að til séu fleiri, en ein stofnun, sem sinni svipuðum verkefnum, þ.e. annars vegar fyrir hið opinbera og hins vegar t.d. fyrir launþegasamtökin. Að sumu leyti er það líklegra til þess, að ekki óeðlilegri tortryggni og sumpart óhjákvæmilegri sé eytt, að launþegasamtökin hafi sjálf sínar eigin athugunarstofnanir í þessum málum og sína eigin trúnaðarmenn. Hitt er annað mál, að sjálfsagt er, að milli þeirra opinberu hagrannsóknastofnana, sem þegar eru fyrir hendi, og þeirrar hagdeildar í stjórnarráðinu, sem e.t.v. verður stofnuð, sé miklu nánari samvinna, en nú á sér stað.

Hitt er líka sjálfsagt, að ef til væri ein eða fleiri opinberar hagrannsóknastofur og svo ein eða fleiri hagrannsóknastofur fyrir launþegasamtökin, þá ynnu þær ekki sama verkið, að þar yrði ekki um að ræða tvíverknað, heldur ættu stofnanirnar aðgang að þeim frumgögnum, sem hver um sig safnaði, þannig að um fullkomna upplýsingamiðlun á milli stofnananna yrði að ræða. Þetta er auðvitað aukaatriði í málinu, en aðalatriðið, sem ég vildi láta koma fram þegar við þennan fyrri hl. umr., er, að nú þegar er verið að sinna þessu verkefni á vegum ríkisstj., þessu verkefni, sem ég er hv. flm. alveg sammála um, að er mjög brýnt.