25.02.1959
Sameinað þing: 29. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (1919)

17. mál, ríkisábyrgðir

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Mig langar til í sambandi við þessa till. að segja fáein orð, sumpart til þess að segja frá minni reynslu í þessum efnum, ef það gæti orðið eitthvað að gagni fyrir þá, sem fá þetta mál til skoðunar.

Ég vil fyrst taka það fram, að ég er ákaflega hræddur um, að menn reki sig fljótt á talsvert mikla örðugleika í því að koma á, eins og það er orðað, raunhæfri heildarlöggjöf um ríkisábyrgðir. Ég er ákaflega hræddur um, að menn reki sig fljótt á ýmsa örðugleika í því sambandi, en álit þó, að full ástæða sé til þess að skoða þetta eigi að síður. Það er fyrst, að ríkisábyrgðir eru fyrir mismunandi fyrirtæki. Það hafa verið teknar ábyrgðir til þess að koma upp rafmagnsveitum, t.d. rafmagnsstöðvum, teknar ábyrgðir til þess að koma upp hafnarmannvirkjum, ríkisábyrgðir til þess að koma upp fiskiðjuverum margs konar og ríkisábyrgðir til þess að kaupa skip, ríkisábyrgðir til þess að kaupa flugvélar, og þannig mætti lengi telja. Og niðurstaða löggjafarvaldsins hefur orðið sú, að það gildir nokkuð sín reglan um hvert þessara tilvika. Það er máske gert ráð fyrir því að heimila að taka ábyrgð á allt að 60% af stofnkostnaðarverði fiskiðjuvera, svo að dæmi séu nefnd, en svo e.t.v. 85% af stofnkostnaði raforkustöðva fyrir einstök byggðarlög, og í ýmsum dæmum hefur jafnvel verið fallizt á að taka ábyrgð á allt að 90% af kaupverði, þegar um það hefur verið að ræða að ábyrgjast andvirði skipa, sem aflað hefur verið fyrir byggðarlög, þar sem sérstök ástæða hefur þótt til þess að auka skipastólinn. Þannig mætti lengi telja, að niðurstaðan hefur orðið sú, að það hefur gilt mjög mismunandi um hverja grein, hversu langt skuli ganga í ábyrgðunum, hversu mikinn hluta af stofnkostnaði menn hafa viljað taka í mál að ríkið taki ábyrgð á. Og ég óttast, að þetta valdi miklum erfiðleikum við að koma á heildarlöggjöf um ríkisábyrgðir.

Það mætti náttúrlega hugsa sér að hafa það þannig, að allar ríkisábyrgðir skuli settar í einn lagabálk eða eina lagalengju, sem yrði þá sífellt verið að auka við og breyta. En ég óttast það mjög, að í framkvæmdinni yrði þetta í raun og veru engin breyt. frá því, sem nú er.

Þá langar mig til þess að biðja þá, sem hafa beitt sér fyrir þessu máli, að benda á það, hvort þeir hafa hugsað sér, að hægt væri að setja í slíka löggjöf, hversu löng lánin skuli vera í hverju falli. Það er ákaflega þýðingarmikið mál og eitt af stærstu atriðunum í þessu sambandi, því að sannleikurinn er sá, að þegar búið er að samþykkja heimild til þess, að ríkið takist á hendur ábyrgð, þá fara menn að fara fram á það, að sú heimild verði notuð. Og þá vill oft verða hin mesta rimma milli þeirra, sem hafa áhuga fyrir því að koma fyrirtækjunum upp, og ríkisstj. um það, hvort það skuli taka ábyrgð á þessu eða hinu láninu, sem er máske að áliti ríkisstj. til of stutts tíma, til þess að hægt sé að standa undir því af rekstrinum, en að dómi þeirra, sem hafa áhuga fyrir því að koma fyrirtækinu á fót, nógu langt. Út af þessu verður oft mikill metingur og mikil vandkvæði að ákveða, hvað gera skuli. Og þó að fjmrn. sé að reyna að hafa í þessu reglu, t.d. að setja sér þá reglu, að lán skuli ekki vera undir 15 árum, sem reynt hefur verið mikið í sambandi við fiskiðjuver t.d., þá er ákaflega erfitt að halda sér algerlega við þvílíka reglu. Það stendur kannske þannig á, að hlutaðeigendur eiga eftir herzlumuninn, geta ef til vill fengið 12 ára lán eða 10 ára lán. Og þá getur verið um það tvennt að velja, að fyrirtækið stöðvist í byggingu eða þá að það sé fallizt á 10 eða 12 ára lán. Ótal svona dæmi mætti nefna um lánalengdina. Og mér þætti fróðlegt að vita, hvort það væri t.d. þetta atriði, sem vekti fyrir flm., hvort þeir teldu, að það mundi vera hægt að setja í löggjöfina takmark um lánstíma, t.d. að lán til raforkustöðva mættu ekki vera til styttri tíma, en svo og svo og lán til hafnargerða yrði að vera svo og svo o.s.frv. — Enn fremur um vextina, sem er ákaflega þýðingarmikið atriði. Það er náttúrlega reynt að veita aðhald um það, að vextir séu ekki óhæfilega háir af ríkisábyrgðarlánum, en verður þó að fara eftir almennri venju í því. Spurningin er, hvort flm. hafa þá t.d. hugsað sér, að í svona löggjöf væri ákvæði um þá vexti, sem mætti viðurkenna hæsta. En nú vitum við, að þetta er mjög á reiki og breytingum undirorpið, þannig að eftir eitt ár eða svo væru þau ákvæði, sem sett væru um þetta, orðin úrelt og yrðu að endurskoðast, ella mundu þau máske stöðva algerlega eðlilegar lántökur og ríkisábyrgðarveitingar.

Ég vildi sem sagt spyrja flm., sem hljóta að hafa hugsað talsvert um þetta mál, í fyrsta lagi, hvort þeir hafa hugsað sér, að í svona löggjöf gæti orðið tiltekið, að það mætti ekki fara yfir ákveðinn hluta stofnkostnaðar, og það ætti að gilda um öll hugsanleg ábyrgðartilvik, allar hugsanlegar framkvæmdir; enn fremur, hvort þeir hafi hugsað sér, að í svona löggjöf gæti komið ákvæði um lánalengdina, skilyrði um lánalengdina, og loks, hvort þeir hefðu hugsað sér, að í svona löggjöf kæmi ákvæði um vextina.

Þetta eru þau atriði, sem mér dettur helzt í hug að nefna, vegna þess að það eru einmitt þessi atriði, sem einna mestu máli skipta eða a.m.k. mjög miklu máli skipta í þessu sambandi. Og ef ekki er hægt að koma þessum ákvæðum inn í almenna löggjöf, sem vafalaust eru miklir annmarkar á, þá mundi almenn löggjöf um þetta hafa ákaflega takmarkaða þýðingu.

Þá er það varðandi það atriði, sem drepið er á í ályktuninni og ekki er nema eðlilegt að á sé minnzt, og það eru hin miklu útgjöld, sem ríkissjóður hefur orðið fyrir vegna ríkisábyrgðanna. Þetta er stórfé, sennilega s.l. ár á milli 20 og 30 millj. kr. Og þegar við vorum að undirbúa fjárlagafrv., þá sýndist okkur ekki betur, en það yrði að gera ráð fyrir því, að þetta gæti farið upp undir 30 millj. kr. á því ári, sem núna er að byrja. Hér er um gífurlega mikla fjármuni að ræða, og vil ég fara nokkrum orðum um reynsluna einmitt í þessu efni.

Ég vil þá minna á, að þessi ábyrgðatöp munu að langmestu leyti vera í lánum til hafnargerða og til skipakaupa og síldarverksmiðja. Ég hygg, að vegna þessara liða séu langflest af þessum töpum. Og ég vil fara aðeins fáeinum orðum um reynslu mína í hverju þessu atriði.

Fyrst hafnargerðirnar. Þetta er yfirleitt, eins og menn vita, þannig, að í hafnarlögunum er gert ráð fyrir ríkisábyrgð að vissum hluta. Þessar hafnir eru byggðar yfir höfuð í áföngum. Og ef fjmrn. eða ríkisstj. segði sem svo: Við tökum ekki ríkisábyrgð fyrir þessari hafnargerð, nema þið getið sýnt okkur fram á, að höfnin muni standa undir láninu og þið getið lokið höfninni og komið henni í það lag, að hún geti staðið undir láninu, — þá mundu sáralitlar framfarir hafa orðið hér í hafnarmálum á Íslandi síðustu áratugina, því að það er alveg undantekning, — það fullyrði ég, — að menn hafi nokkurn möguleika til að sýna fram á þetta, þegar þeir koma til ríkisstj. og spyrja, hvort hún vilji notfæra sér ríkisábyrgðarheimildina vegna hafnargerðarinnar. Þess vegna hefur verið tekin sú regla alveg hiklaust, og ég hygg, að henni hafi verið fylgt af öllum stjórnum nú áratugum saman, að ef hæstv. Alþ. hefur veitt fé á fjárlögum til hafnargerðar, þá hefur verið veitt ríkisábyrgð á móti, — alveg hiklaust veitt ríkisábyrgð á móti, — en reynt þó að koma því svoleiðis fyrir, að lánin væru sem lengst. En það er ekki því að leyna, að víða eru í byggingu hafnir, sem byggðar eru í ákaflega smáum áföngum, miðað við það, sem þær eiga að verða, og hafnir í byggingu, sem hafa sáralitlar tekjur ár eftir ár, meðan verið er að byggja þær upp, og jafnvel sama og engar tekjur. Og þá verður það vitaskuld þannig, að greiðslurnar af þessum hafnarlánum lenda hreinlega á ríkissjóði, á meðan hafnirnar eru í byggingu og þangað til reksturinn verður það mikill, að þær geti staðið undir sér. Og þannig er milljón eftir milljón lögð út af hendi ríkisins í greiðslur af slíkum hafnarlánum, sem segja má að sé í raun og veru þátttaka í stofnkostnaði við þessar hafnargerðir. Hér er í sumum tilvikum um mjög stórar fjárhæðir að ræða.

Ef fjmrn. eða ríkisstj. hefði þá aðferð að takast ekki ábyrgð á hendur fyrir neinn, sem væri í vanskilum, þú mundu þessar hafnargerðir óðara stöðvast, því að þess væri enginn kostur fyrir þær að gera hreint fyrir sínum dyrum, áður en næsta lántaka færi fram, ef hafnargerðin á að geta haldið áfram. Hér er því áreiðanlega ekki um nema þrennt að ræða. Eitt er það að taka stranga stefnu um ríkisábyrgðir i þessu tilliti, en það þýðir að stöðva hreinlega mestallar hafnargerðir i landinu. Ef það ætti að firra ríkissjóð öllu tjóni af slíkum ábyrgðum, þá mundi það þýða stöðvun. Ef menn ekki vilja gera það, sem ég býst nú ekki við að hér séu talsmenn fyrir, þá verða menn annaðhvort að haga þessu svipað og verið hefur og taka þessi ábyrgðartöp eða þá að ríkið taki að sér miklu meira af hafnargerðarkostnaði beint, en gert er núna. Þetta vil ég aðeins benda á til þess að bregða upp mynd af því viðfangsefni, sem hér á að fást við. Þetta er um hafnargerðirnar.

Um togarakaupin, sem hafa orðið ríkissjóði mjög útgjaldasöm, eða ábyrgðir vegna togarakaupa, vil ég aðeins fara örfáum orðum. Það hefur verið mikið að því gert nú upp á síðkastið, ef kaupa hefur átt togara til landsins, að ríkissjóður annaðhvort keypti skipin og seldi þau síðan aftur og þá raunverulega gengi í ábyrgð fyrir mestum hluta andvirðisins, eða þá, að ríkissjóður hefur hjálpað ýmsum byggðarlögum með ríkisábyrgð til þess að eignast skipin og því tekið ábyrgð a.m.k. stundum á 90% af andvirðinu. Venjulega hefur það verið þannig a.m.k., þegar um hefur verið að ræða togaraútgerðir, þar sem verið er að reyna að koma togaraútgerð á fót og hún hefur ekki áður verið. Heima fyrir hefur reynzt fullerfitt að ná saman einhverju fé til þess að nota sem rekstrarfé.

Venjulega hefur þetta verið þannig, að ef þeir togarar, sem eru keyptir á þennan hátt með ríkisábyrgð, ekki mokfiska undireins og allt gengur fullkomlega að óskum, þá er þess enginn kostur, að þeir geti greitt af þessum ábyrgðarlánum, þegar til á að taka. Þannig hefur þetta verið nú um mörg ár a.m.k. um flestar togaraútgerðir utan Reykjavíkur, að þær hafa ekki getað greitt af stofnlánum sínum um lengri tíma. Þessi fyrirtæki eru byggð upp af fullkomnum vanefnum. Það er verið að reyna að koma þessum nýja atvinnurekstri á í byggðarlögunum.

Togaraútgerðin hefur einnig á þessum tíma staðið ákaflega höllum fæti, þannig að það lá nærri um tíma, að riði henni algerlega að fullu. Hún bjó sem sé við svo miklu lakari kjör, en bátaútvegurinn lengi vel, og hún gerir það raunverulega í dag. Þó að búið væri að jafna metin í fyrra, þá hefur nú verið mismunað aftur verulega togaraútgerðinni í óhag.

Togaraútgerðinni var sem sagt alveg að blæða út, og þó að þau fyrirtæki, sem stóðu á gömlum merg við hagfelldustu skilyrði, gætu staðið þetta af sér, — og voru alveg að færast í kaf, — þá urðu þetta slík áföll fyrir öll þessi nýju fyrirtæki, að þau hafa alls ekki getað staðið undir vaxta- né afborganagreiðslum. Og engin ríkisstj. hefur haft hörku í sér til þess að segja við þá, sem hér eiga hlut að máli: Jæja, fyrst þið ekki getið borgað sjálfir vextina og afborganirnar af þessum lánum, þá verður togarinn seldur burt úr byggðarlaginu. — Engin ríkisstj. hefur haft sig í að segja þetta. Og niðurstaðan hefur þess vegna orðið sú, að þarna hafa verið lagðar út milljónir á milljónir ofan, en togararnir haldið áfram að eiga heima í þeim byggðarlögum, þar sem þeir hafa verið. Þetta hefur hreinlega verið gert til þess að stuðla að því, að þeir þyrftu ekki að flytjast til. Hér er um verulegar fjárhæðir að ræða.

Þá eru það síldarverksmiðjur. Það eru aðallega síldarverksmiðjur ríkisins sjálfs, sem ríkissjóður hefur ábyrgzt fyrir, og svo nokkrar aðrar. Það eru milljónatugir, sem lagðir hafa verið út sem ábyrgðargreiðslur af þeim stofnlánum. Við vitum, að síldariðnaðurinn hefur orðið fyrir gífurlegum áföllum ár eftir ár undanfarið og ríkið hefur neyðzt til þess að greiða af þessum lánum og hreinlega ekki verið neitt annað að gera, en að leggja það fé út. Nokkuð hefur verið aukið við síldarverksmiðjukostinn, og það hefur áreiðanlega komið að mjög miklu liði fyrir landsmenn í heild. Það eru þessar tiltölulega smáu verksmiðjur, sem bætt hefur verið við á Norðausturlandi og Austurlandi. Heildaraflinn hefur orðið stórum meiri vegna þeirra. Þeim hefur verið komið upp af fullkomnum vanefnum fjárhagslega séð, ríkið ábyrgzt 90–95%, og það er alveg augljóst, að þó að þetta hafi bjargað nú þegar talsvert miklum verðmætum fyrir þjóðarbúið, þá eiga þessar verksmiðjur líka ákaflega erfitt með að standa undir stofnlánum, enda í raun og veru í byggingu. Og það er sama sagan um þetta eins og ég var að segja frá um hafnargerðirnar og raunar togaraútgerðirnar, að þegar átt hefur að ákveða það, hvort notaðar skyldu heimildir, t.d. til þess að koma upp þessum síldarverksmiðjum, þá hefur það verið gert til þess að koma þeim áfram, þó að ekki væri fullkomlega séð fyrir endann á því, hvar fjármagn skyldi tekið til þess að gera þær fullkomlega úr garði. Það hefur verið lagt í það í þeirri trú, að það rættist úr og hægt yrði að útvega fjármagn til þess að Ijúka þeim.

Það væri hægt að hafa í þessu allt aðra stefnu, harða stefnu fjármálalega, eins og bankar taka t.d., og segja: Hér verður engin ábyrgð veitt, nema hlutaðeigandi geti sýnt fram á, að hann komi verkinu alveg í höfn og það standi fullkomlega undir sér, þegar það er búið, — fyrr en þetta liggur fyrir, verður engin ábyrgð veitt. — En ef menn taka svona stefnu í þessum efnum, þá verður alveg gerbylting í uppbyggingu atvinnulífs hér frá því, sem verið hefur, því að þessar ríkisábyrgðir hafa verið gífurlegur þáttur í því að byggja upp bæði atvinnutæki og samgöngutæki víðs vegar um landið og svona stórfelldur þáttur af því, að þær hafa verið framkvæmdar eins og ég er að lýsa á undanförnum áratugum. En ef framkvæma ætti ríkisábyrgðarheimildir eftir venjulegum bankareglum, þá hlyti þarna að verða alveg stöðvun eða þá að menn yrðu að finna allt aðrar leiðir til þess að byggja upp, t.d. að ríkið sjálft legði stórmikið fjármagn fram í þessar framkvæmdir beinlínis sem stofnfé.

Þá vil ég einnig nefna í þessu sambandi ýmis raforkuver, sérstaklega dísilstöðvar. Áður en farið var að byggja úti um land hinar stærri vatnsaflsstöðvar, var víða verið að notast við dísilstöðvar. Þær voru ákaflega erfiðar í rekstri. Þótt rafmagnið væri selt okurverði, reyndist mönnum ekki mögulegt að reka þessar stöðvar þannig, að þær gætu staðið undir lánum, en ríkið ábyrgðist fyrir byggðarlögin lánin til að koma þessum stöðvum upp. Þær ábyrgðir voru teknar, þótt menn sæju fram á erfiðleikana. Menn vildu heldur gera það, en að þessi byggðarlög yrðu algerlega af rafmagninu, og niðurstaðan varð svo sú, að þegar nokkuð leið frá, hygg ég, að langflestar dísilstöðvar á landinu hafi komizt algerlega í þrot og ríkið hafi orðið að greiða vexti og afborganir af langflestum dísilstöðvalánum. Nú eru þessar stöðvar smátt og smátt að færast inn í raforkukerfið sem varastöðvar.

Þá eru það fiskiðjuverin. Það eru geysilega miklar ábyrgðir í sambandi við fiskiðjuverin og líka nú upp á síðkastið vinnslustöðvar fyrir landbúnaðarafurðir. Þessar ábyrgðir eru komnar til á þann hátt, að hér um árið var sett löggjöf um stofnlán til sjávarútvegsins og sjávarútvegsfyrirtækja. En áður en varði, var það fé þrotið, sem stofnlánadeildin hafði yfir að ráða, en á hinn bóginn ákaflega mörg fyrirtæki, sem voru þá í uppbyggingu og ekki höfðu fengið nein stofnlán. Önnur höfðu menn fyrirhugað. Þá fundu menn ekki ráð til þess að ná peningum inn í stofnlánadeildina til viðbótar þeim, sem þangað höfðu verið látnir og gengnir voru til þurrðar. Gripu menn þá til þess til að reyna að gera eitthvað fyrir þá, sem ekki fengu stofnlánin og áttu sín verk óunnin, að lögleiða heimild til þess, að ríkisstj. ábyrgðist stofnlán fyrir fiskiðjuver, og síðar var það látið ná til iðjuvera fyrir landbúnaðarafurðir.

Framkvæmdin hefur verið sú, að það hefur verið miðað við 60% af stofnkostnaðarmati þessara fyrirtækja og reynt að koma því svoleiðis fyrir, að lánin væru til sæmilega langs tíma. Sannleikurinn er sá, að langminnst af töpunum hefur orðið á ábyrgðum fyrir þessi iðjuver. En auðvitað geta hér orðið töp, því að í þessu sambandi hefur verið viðhöfð sú regla, að það hefur verið lagt út í að taka ábyrgðir fyrir þessi fiskiðjuver, þótt sá, sem hlut átti að máli, hafi ekki getað sýnt fram á, hvar hann ætlaði að fá síðustu krónurnar til þess að koma fiskiðjuverinu upp. Þess vegna hafa mörg þeirra verið gífurlega lengi í byggingu og hlaðizt á mikill kostnaður vaxta og annars þvílíks, og sum eru í byggingu og ekki fullkomlega fram úr séð, hvenær þeim verði lokið, en búið að samþykkja miklar ríkisábyrgðir samt sem áður.

Ef sá háttur hefði verið hér á hafður að taka ekki neina ábyrgð, fyrr en hlutaðeigandi gat sýnt fram á það fullkomlega, hvernig hann ætlaði að ljúka fiskiðjuverinu, þá hefði aldrei verið farið á stað með meginhluta þeirra fiskiðjuvera, sem upp hafa komizt. Þau hafa komizt upp eingöngu vegna þess, að þessi stefna hefur verið tekin, að ábyrgjast jafnóðum og þeim miðaði áfram, í trausti þess, að það mundi að lokum takast að afla nægilegra fjármuna til þess að ljúka þeim. Þetta mundi ekki neinn banki gera á þessa lund, hvorki varðandi framkvæmdina á fiskiðjuveraábyrgðunum eða hafnargerðaábyrgðunum né öðrum ábyrgðum, sem ég hef verið að lýsa. En svona hafa allar ríkisstj. framkvæmt þessi mál um langan tíma, vegna þess að menn hafa séð fram á, að þetta var eina leiðin til þess að styðja þá uppbyggingu, sem ætlun hæstv. Alþ. var að styðja. Niðurstaðan af þessu hefur svo orðið sú vitaskuld, að ríkisábyrgðir verða alltaf meiri og meiri með hverju ári og áhætta í þessu sambandi hefur verið geysilega mikil, og í raun og veru hefur ríkið beinlínis lagt fram stórfé í þessar framkvæmdir eftir ríkisábyrgðaleiðinni.

Ég vil loks einnig nefna, að stundum hafa verið samþykktar hér á Alþ. heimildir til ríkisábyrgða, sem allir hafa vitað fyrir fram upp á hár að hlutu að falla á ríkið að miklu leyti. Ég vil nefna í því sambandi þurrafúaábyrgðina til dæmis. Og það var nú ekki um neitt gott að gera, þegar þurrafúinn fór að koma fram í bátunum. Menn urðu fyrir stórfelldum búsifjum. Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti yfir menn, og skipin kannske reyndust ónýt að 1/5, 1/3 eða jafnvel helmingi. Og menn gátu ekki fengið nokkurs staðar lán til þess að gera við skipin. Bankarnir sögðu: Við skulum lána til þriggja ára mest, ef ríkið vill ábyrgjast. — Í þessari neyð var sú stefna tekin hér á hæstv. Alþingi að veita heimild til að ábyrgjast þessi þurrafúalán, og menn vissu, að það mundu verða svona stutt lán. Niðurstaðan hefur svo vitanlega orðið sú, að ríkið hefur orðið að leggja út ég held hvern einasta eyri, sem enn þá hefur fallið i gjalddaga af þessum þurrafúalánum. Nú er till. um það í fjárlagafrv. að afhenda þessar kröfur á útvegsmenn til fiskimálasjóðs til hliðstæðrar meðferðar þar eins og kröfur vegna harðindahjálpar eiga að fá í bjargráðasjóði. Ég nefni þetta bara til dæmis um það, hvernig ábyrgðaleiðin hefur verið notuð.

Það er fullkomlega til athugunar, hvort það er rétt að nota ábyrgðaleiðina svona áfram eða hvort á að leggja meira fé beinlínis fram til stuðnings ýmsum framkvæmdum. Það er það, sem þarf að átta sig á, hvort þetta er hyggilegasti mátinn til þess að styðja þær framkvæmdir, sem menn vilja styðja. Ég býst við því, að það vilji enginn hér bera sér það í munn, að það hafi yfirleitt átt að neita um þessar ábyrgðir svona upp og ofan, sem teknar hafa verið. En það getur verið álitamál, hvort það á að styðja uppbyggingu á þennan hátt eða hvort á að styðja hana með hreinum framlögum.

En ég er ákaflega hræddur um, að ef uppbyggingin hefði ekki verið einmitt studd með þessum aðferðum, ábyrgðunum, þótt á þeim megi finna galla, þá hefði hún aldrei orðið neitt í áttina jafnmikið og hún hefur orðið. Og yfir höfuð finnst mér, að þessi uppbygging með ábyrgðastuðningi hafi orðið til mikils góðs. Ég fyrir mitt leyti sé ekkert eftir því, síður en svo, að hafa stutt þessa stefnu og átt þátt í að framkvæma hana, þó að þetta hafi orðið allútgjaldasamt fyrir ríkið og megi finna á þessu ýmsa annmarka. En þetta er allt til athugunar. Og ég er að taka þetta fram núna, aðeins til þess að lofa mönnum að heyra ofurlítið af minni reynslu í þessu efni, ef hún gæti orðið nokkuð til léttis við þá skoðun á málum, sem á að fara fram.

Ég held, að ég hafi ekki ástæðu til þess að taka fleira fram í þessu sambandi, og læt máli mínu lokið.