23.01.1959
Neðri deild: 61. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 153 í B-deild Alþingistíðinda. (194)
87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.
Ólafur Björnsson:
Herra forseti. Hv. 2. þm. S-M, minntist á það í ræðu þeirri, er hann flutti hér í gær, hverjar væru orsakir þess verðbólguvandamáls, sem við er að etja. Ég er nú sammála hv. þm. um það, að það sé nauðsynlegt skilyrði fyrir giftusamlegri lausn verðbólguvandamálsins, að þeir, sem um það fjalla, hafi réttar hugmyndir um orsakir verðbólgunnar. Ég verð þó að svo stöddu að láta mér nægja að lýsa í einni setningu skoðun minni á því máli, án þess að rökstyðja hana, því að það voru aðrar hliðar þessa máls, sem ég ætlaði að gera hér að umræðuefni. En röksemdafærsla hv. 2. þm. S-M. beindist í meginatriðum að því að hrekja þá skoðun, að hækkun kaupgjaldsins væri meginorsök verðbólgunnar og máli sínu til stuðnings vitnaði hann í ummæli tveggja mætra íslenzkra hagfræðinga, þeirra Jónasar Haralz og dr. Jóhannesar Nordals, sem þeir höfðu átt að láta falla um þetta efni á stúdentafélagsfundi, sem haldinn var um efnahagsmál á s.l. vori.
Ég var nú að vísu staddur á þessum fundi og minnist ekki að hafa heyrt þessi ummæli, en samt skal ég ekki vefengja það, að rétt sé með þetta farið hjá hv. 2. þm. S-M. Og hvað sem líður skoðunum þessara manna á því efni, þá skal ég ekki fara að vitna hér gegn hv. 2. þm. S-M. í því, að það er sjálfsagt auðvelt að vitna í marga kunna hagfræðinga, er því hafa haldið fram, að fjárfesting og bankaútlán séu að jafnaði grundvallarorsök verðbólgu, en þróun kaupgjaldsmála skipti þar minna máli. En það eru líka til merkir hagfræðingar, sem telja þróun kaupgjaldsins höfuðatriði verðlagsþróunarinnar, en fjárfestingin skipti þar minna máli.
Það, sem máli skiptir, er það að, að mínu áliti ber að gjalda varhuga við því að álykta allt of eindregið út frá slíkum almennum kenningum um orsakir verðbólguþróunarinnar hér á landi og ráðstafanir gegn henni. Að mínu áliti er sannleikurinn sá, að hér hafa tvær grundvallarorsakir verið að verki, meiri fjárfesting, en hægt hefur verið að afla fjár til með heilbrigðum hætti og víxlverkun kaupgjalds, vísitölu og verðlags landbúnaðarafurða.
Ef árangri á að ná í baráttunni gegn verðbólgunni, verður að taka fyrir báðar þessar uppsprettur hennar, en hvort fjárfestingin sé hér orsök og vísitöluskrúfan afleiðing, finnst mér ófrjótt að deila um. Mér finnst, að þetta sé hliðstætt því, að um það væri deilt, ef maður ofkælist og fær lungnabólgu, hvort það sé heldur ofkælingin eða lungnabólgusýklarnir, sem séu raunveruleg orsök sjúkdómsins.
Þessu atriði ætla ég að ljúka með því að lesa hér upp örfá orð úr erindi, er annar þeirra hagfræðinga, er nefndir hafa verið í sambandi við þetta, Jónas Haralz, flutti á fundi verzlunarráðsins nú fyrir áramótin og birt hefur verið í Frjálsri verzlun, með leyfi hæstv. forseta, en hann kemst í þessu erindi sínu þannig að orði:
„Það hefði verið nauðsynlegt að skipuleggja fyrir löngu allar þessar framkvæmdir“, opinberar fjárfestingarframkvæmdir, sem hér er um að ræða, — „þannig að tryggt væri, að útgjöld vegna þeirra færu ekki fram úr því fé, sem afla mætti með eðlilegum hætti. Hin óeðlilega þensla bankaútlána og hin mikla fjárfestingarstarfsemi hafa gert hvort tveggja í senn að þrýsta á greiðslujöfnuðinn og skapa of mikla eftirspurn eftir atvinnu innanlands. Hið síðarnefnda er auðvitað nátengt launamálunum.
Það er erfitt að segja, hvað kemur fyrst. Eru það kaupkröfurnar, sem byrja og útlánaaukningin, sem fylgir á eftir? Eða er það útlánaaukningin, sem byrjar og skapar grundvöllinn fyrir hækkuðu kaupgjaldi? Hvernig sem þessu kann að vera varið, held ég, að óhætt sé að fullyrða, að ekki sé hægt að halda kaupgjaldi í eðlilegu horfi, meðan of mikil útþensla á sér stað af hálfu bankanna og þess opinbera.“
Mér finnst, að í þessum orðum felist kjarni þessa máls. En af því, sem hér hefur verið sagt, leiðir það, að ég verð að mótmæla þeim skilningi, sem fram hefur komið í Tímanum, málgagni Framsfl., á ályktun þeirri um efnahagsmál, sem flokksráð sjálfstæðismanna gerði 18. des. s.l., en þessi skilningur kom líka fram í ræðu hv. 1. þm. S-M. hér í gær.
Auðvitað var fjarri lagi, að við teljum, að með því einu að færa vísitöluna niður um 10 stig eða kaupgjaldið niður um 5–6% séu efnahagsvandamálin í rauninni endanlega leyst. Við teljum að vísu, að hér sé um að ræða óhjákvæmilegan lið í heildarráðstöfunum á sviði efnahagsmálanna. En auðvitað verður að gera margt fleira, til þess að von geti verið um að koma þeim á kjöl. Annars hefur hv. 1. þm. Reykv. þegar gert þessu máli þau skil, að ég sé ekki ástæðu til þess að bæta þar neinu við. En það er m.ö.o. að gera þetta tvennt, stöðva víxlhækkunarskrúfu kaupgjalds og verðlags og taka fjárfestingar- og bankamálin nauðsynlegum tökum. Með þessu er ekki sagt, að nauðsynlegt sé að afnema vísitölukerfið með öllu. Í ýmsum okkar nágrannalöndum, þar sem sæmilegt jafnvægi hefur verið í efnahagsmálum um langt skeið, er vísitölufyrirkomulag í launagreiðslum og í því er nokkur sannleikskjarni, sem hv. 2. þm. S-M. sagði í sinni ræðu, að á tímum, þegar verðlagsþróunin er óróleg, þá getur þetta fyrirkomulag orðið til þess að koma í veg fyrir ýmsar vinnudeilur, sem ella hefðu orðið. En ef þessu fyrirkomulagi er haldið, þá verður a.m.k. að koma í veg fyrir það, að þannig skapist ört verkandi víxlhækkunarskrúfa eins og verið hefur oft og tíðum hér á landi og ekki sízt nú.
Þær ráðstafanir, sem nú stendur til að gera, ber eðlilega að líta á í beinu framhaldi af setningu bjargráðalaganna svokölluðu á s.l. vori og því, hversu frá þeim var gengið, en kjarni þessara ráðstafana í efnahagsmálum var raunverulega gengisfelling. Almenn yfirfærslugjöld voru hækkuð úr 16% í 55% og 30% yfirfærslugjöld lögð á brýnustu nauðsynjar og náms- og sjúkrastyrki. Þannig var framkvæmd nokkurn veginn hlutfallslega sama hækkun á öllum yfirfærslugjöldum, en það er einmitt þetta, sem skeður, þegar gengið er lækkað.
Þessar ráðstafanir voru að vísu ekki kallaðar gengislækkun af þeim, sem að þeim stóðu. En það var aðeins angi af þeim skollaleik, sem þáverandi ríkisstj. taldi sér henta að leika gagnvart þjóðinni við meðferð þessara mála. Því fer nú fjarri, að borið hafi verið á móti því af okkur sjálfstæðismönnum, að gengi íslenzku krónunnar hafi að undanförnu verið rangskráð. Þvert á móti tóku margir okkar þingmannanna það fram í umr. um bjargráðin svokölluðu á sínum tíma, að svo væri, leiðrétting á gengisskráningunni í einhverri mynd væri óhjákvæmileg. Á hinn bóginn ætti það að vera öllum ljóst, að svo veruleg gengislækkun sem í rauninni var framkvæmd á s.l. vori hlaut, miðað við þær aðstæður, sem nú eru og hafa verið hér á landi, að leiða til skefjalausrar verðbólgu, nema gerðar séu sérstakar ráðstafanir til þess að fyrirbyggja slíkt. Ástæðan til þess, að gengislækkun hlýtur að hafa mikil áhrif til hækkunar á verðlagi hér á landi, er auðvitað sú, hve innflutningurinn er mikill þáttur í neyzlu landsmanna og þegar svo þar við bætist vísitölufyrirkomulagið í launagreiðslum, þá hljóta verðhækkunaráhrif slíkra ráðstafana alltaf að vera mikil, enda hefur það verið svo, að þegar gripið hefur verið til gengislækkunar að undanförnu, svo sem var vorið 1939 og aftur 1950, þá voru ráðstafanir til þess að fyrirbyggja óstöðvandi verðbólguþróun jafnframt gerðar í sambandi við þá lagasetningu, sem ákvað gengislækkunina.
Það var og í rauninni viðurkennt af þeim, sem að bjargráðalöggjöfinni stóðu, að hún væri að þessu leyti botnlaus. Botninn átti ekki að slá í að svo stöddu, heldur skyldi hans leitað á næsta hausti, að vísu ekki suður í Borgarfirði, eins og þjóðsagan segir, heldur á stéttaþingum þeim, sem þá átti að halda. En eins og kunnugt er, tókst fráfarandi ríkisstj. ekki að finna botn sinn þar og kemur það mál nú til kasta Alþingis að slá botninn í bjargráðin til þess að forða þjóðinni frá þeim voða, sem af því hlýzt óhjákvæmilega, ef verðbólga brýzt út, en það er yfirvofandi, ef ekkert verður að gert.
Það leiðir af því, sem ég hef þegar sagt, að varla getur orkað tvímælis, að óhjákvæmilegt skilyrði þess, að forða megi skefjalausri verðbólgu, er það, að með einhverju móti verði stöðvuð sú víxlhækkun kaupgjalds og verðlags, sem nú á sér stað. Þetta getur ekki átt sér stað nema með tvennu móti: annaðhvort því, að launþegar gefi eftir vísitöluuppbót að vissu marki, eða þá að gerðar séu ráðstafanir til lækkunar á verðlaginu, þar með vísitölugreiðslum á kaup, annaðhvort með niðurgreiðslum úr ríkissjóði eða á annan hátt. Það væri að vísu hugsanleg leið, að framkvæmd væri lækkun á verðlagi t.d. með verðlagsákvæðum án þess, að til niðurgreiðslna þurfi að koma. En þar sem ströng verðlagsákvæði hafa undanfarið verið í gildi, er slíkur möguleiki varla fyrir hendi. Og má raunar að gefnu tilefni á það benda, að jafnvel þó að svo væri, þá mætti alveg á sama hátt eins og því hefur nú verið haldið fram, m.a. af málgagni Alþb., að niðurgreiðslur séu kjaraskerðing fyrir launþega, staðhæfa, að svo mundi einnig vera, ef verðlagsyfirvöld framkvæmdu t.d. lækkun álagningarinnar á vísitöluvöru, því að þá mætti reikna út, að launþegar mundu við það tapa meiru í kaupi en þeir spara á lækkuðu vöruverði, þannig að slíkar ráðstafanir væru í rauninni eins konar launarán.
Þó að hæstv. menntmrh. hafi nú þegar gert því máli skil, hvert gildi þessir útreikningar Þjóðviljans hafa og ég sé honum sammála um það, sem hann hefur sagt í því efni, þá tel ég því þó ekki með öllu ofaukið, þó að bætt sé við það nokkrum orðum, því að hér er vissulega um mjög þýðingarmikið atriði að ræða. Ég lít svo á, að undir þessu atriði, hver áhrif ráðstafanirnar hafa á kjör launþega og þá um leið alls almennings í landinu, sé það í rauninni komið, hvort þessar ráðstafanir eiga rétt á sér eða ekki, því að ef til væru einhverjar aðrar ráðstafanir, aðgerðir eða þá aðgerðarleysi í þessum efnum, sem mundu leiða það af sér, að kjör alls almennings yrðu miklu betri, en þau verða, eftir að þessar ráðstafanir hafa verið gerðar, þá er það mitt álit, að fyrirhugaðar ráðstafanir ættu ekki rétt á sér og það ætti þá að fara þessar aðrar leiðir, ef þær eru til.
Það vakti annars athygli mína í ræðu hv. 2. þm. S-M., að hann gein ekki við þeirri flugu að lesa hér upp þessa vafasömu útreikninga úr Þjóðviljanum. Hann komst þannig að orði, að — ef ég tók rétt eftir — hann skyldi ekki neitt fullyrða um það, hver áhrif þessar ráðstafanir hefðu á kaupmátt launa, og sagði um leið, að alla slíka útreikninga bæri að taka með nokkurri varúð. Þetta var í sjálfu sér hófsamlegur málflutningur, en reikningarnir heimtust nú af fjalli, þegar flokksbróðir hans, hv. 7. þm. Reykv. (HV), tók hér til máls áðan.
Það hefur verið reiknað út og fyrir því bornir hagfræðingar, að ef þær ráðstafanir, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, væru gerðar, þá mundi það hafa í för með sér 9–10% kjaraskerðingu fyrir alla launþega í landinu. Ef launþegarnir gefi eftir einhver vísitölustig, þá sé það bein kjaraskerðing, sem eftirgjöfinni nemur, sé vísitala borguð niður og það jafnvel þótt fjár til niðurgreiðslnanna sé aflað án þess að leggja á nýja skatta, þá sé það raunar líka kjaraskerðing, því að launþegarnir tapi meiru í kaupi, en þeir spari við þessar verðlækkanir. En þar sem aðrar leiðir koma ekki til greina til þess að varna því, eins og nú er ástatt, að verðbólgan verði óviðráðanleg, en þessar tvær, eftirgjöf eða niðurgreiðsla, þá getur niðurstaðan af þessu ekki orðið nema ein og hún er sú, að eina leiðin til þess að tryggja launafólki óskert lífskjör sé sú að gera engar ráðstafanir til þess að stöðva verðbólguna og gegnir í rauninni mikilli furðu, að slíkt skuli vera borið á borð fyrir fólkið.
Allir sjá, að það getur ekki staðizt, að bezta leiðin til þess að tryggja lífskjör launafólks í landinu sé sú að láta verðbólguna ganga óhefta og ætti það út af fyrir sig að nægja til þess að sýna fram á, hve fjarstæðukenndur þessi málflutningur er. En þessu til frekari áréttingar skal þó bent á örfá atriði í sambandi við þessa útreikninga.
Meginatriðið er þetta: Hvað er það, sem miðað er við, þegar talað er um 9–10% kjaraskerðingu? Það er auðsjáanlega miðað við það, að verðbólgan gæti stöðvazt af sjálfu sér án nokkurra sérstakra ráðstafana í verðlags- og launamálum. Það er auðvitað hægt, ef maður hefur ánægju af því, að reikna það út, hvað kaupmáttur launa mundi aukast, ef engar verðhækkanir mundi leiða af þeirri 21% kauphækkun, sem orðið hefur umfram það, sem bjargráðalögin á sínum tíma gerðu ráð fyrir og útflutningsframleiðslan gæti borið slíka kauphækkun án aukinna uppbóta. Og ég skal ekki vefengja, að ef slíkt væri mögulegt, þá mundi kaupmáttur launa sennilega verða 9–10% meiri, en hann getur orðið, ef horfzt er í augu við þá hverjum manni augljósu staðreynd, að þetta er ekki möguleiki. En slíkir útreikningar eru bara ekki hagfræði, heldur óraunhæfar fjarstæður og hugarórar. Það væri ekkert fjær veruleikanum að gera sér til skemmtunar að reikna út, hvað hægt væri að auka kaupmátt launanna, ef kaupið væri hækkað t.d. um 50% eða 100%, án þess að slíkt hefði í för með sér neinar verðhækkanir eða hækkun útflutningsuppbóta. Í sambandi við það má nefna það, þegar hv. 7. þm. Reykv. gaf þær upplýsingar, að kaupmáttur launa í janúarmánuði s.l. væri 13% meiri, en hann hefði verið í október, eða 9–10% meiri, en gert er ráð fyrir að hann verði, eftir að búið er að gera þær ráðstafanir, sem frv. fjallar um.
Spurningin er bara sú, hvort það ástand í þessum málum, sem var í janúarmánuði, getur haldizt. Þá er það einmitt þannig, að niðurgreiðslurnar, þær niðurgreiðslur, sem ákveðnar voru af hæstv. ríkisstj., eru komnar til framkvæmda, en launþegarnir njóta enn þá þeirrar vísitöluuppbótar, sem þeir fengu 1. des. Það er ekki einu sinni orðin sú lækkun á kaupinu, sem undir öllum kringumstæðum hefði átt að verða samkvæmt vísitölufyrirkomulaginu vegna lækkunar á vísitölunni úr 219 stigum í nóv. í 212 stig í janúarmánuði. Þá eru heldur ekki nema að litlu leyti komnar fram þær verðhækkanir, sem hlaut að leiða af hækkun kaupgjaldsins frá 1. des. Enn fremur eru ekki komnar til framkvæmda og ekki komnar til að hafa nein áhrif á verðlagið þær hækkanir skatta, sem vitað er að óhjákvæmilega hefði, miðað við þessar kringumstæður, orðið að gera til þess að koma í veg fyrir stöðvun útvegsins. En ef það hefði nú verið hægt að greiða áfram kaupgjald samkvæmt desembervísitölu, án þess að nokkur frekari hækkun, en orðin var í jan., kæmi til sögunnar, ef það hefði verið hægt að láta útgerðina ganga óhindrað, án þess að hún fengi nokkrar frekari uppbætur, þá er sjálfsagt ekki vafi á því, að kaupmáttur launa mundi verða 9–10% meiri, en hann verður, ef þessar ráðstafanir eru gerðar. En er þetta bara hægt?
Ef hv. 7. þm. Reykv. sér einhverja möguleika á því, að þetta verði framkvæmanlegt, ef hann hefði einhverjar till. að gera, sem gerðu það mögulegt, að kaupmáttur launa héldist í því, sem hann var í janúarmánuði, þá teldi ég að Alþingi bæri skylda til að fylgja honum í því efni. Ég skyldi verða fyrstur þm. til þess að veita slíkum till. stuðning. Ég hef ekki umboð til þess að binda aðra þm. til fylgis við hv. 7. þm. Reykv. í þessu efni, en ég teldi, að ef aðrir gerðu það ekki líka, þá væri það að bregðast skyldum sínum, við hagsmuni meginþorra kjósendanna. En þessi hv. þm. hefur bara ekki enn þá sýnt fram á, hvernig slíkt mætti verða og í þeirri grein, sem hæstv. menntmrh. las upp eftir hann frá s.l. hausti, hefur hann ekki á þeim tíma haft trú á því, að það væri mögulegt. Þar gerir hann ráð fyrir því, að óhjákvæmilegt sé að færa niður bæði kaupgjald og verðlag á landbúnaðarvörum. Og ég vil við þetta bæta, að í þessu sambandi má minna á það, að málflutningur hv. þm. Alþb. og málgagns þess, Þjóðviljans, var töluvert annar í þessum efnum fyrir rúmum tveim árum, þegar vísitöluuppbót launþega var skert um 6 stig að tilhlutun þáverandi ríkisstj. Þá komst Þjóðviljinn einmitt að þeirri niðurstöðu, að vegna þeirra verðhækkana, sem af því mundi leiða, að þessi 6 stig yrðu greidd, væri í rauninni engin fórn né kjaraskerðing að gefa þau eftir.
Ef þetta hefur á sínum tíma verið rétt, þá má ábyggilega byggja það á nákvæmlega sömu rökum, að það sé ekki kjaraskerðing fyrir launafólk að gefa eftir þau 10 vísitölustig, sem nú er um að ræða. Sannleikurinn er nefnilega sá, að jafnvel þó að byggt sé á hinum hæpnu mælikvörðum, sem gert er við áðurnefnda útreikninga, þá hlýtur, ef betur er að gáð, niðurstaðan að verða allt önnur en sú, sem þar er komizt að.
Það er gerð grein fyrir því í grg. þeirri, er fylgir frv. þessu og hefur raunar verið vitað nokkrar undanfarnar vikur, að verði ekkert gert til þess að stöðva verðbólguna, muni vísitalan verða 270 stig í nóvember n.k. eða hækka að meðaltali um 5 stig á næstu mánuðum. En breytingar þær á kaupgjaldsvísitölu, sem samkvæmt núgildandi samningum eru gerðar á þriggja mánaða fresti, eru miðaðar við næsta mánuð á undan, þannig að þegar af þessari ástæðu leiðir það, að sé hækkunin að meðaltali 5 stig á mánuði, þá verður kaupgjaldsvísitalan alltaf 5 stig á eftir framfærsluvísitölunni, auðvitað til viðbótar þeim 17 stiga mun, sem nú er alltaf á kaupgjaldsvísitölu og framfærsluvísitölu, þannig að í byrjun þess tímabils, þegar ný kaupgjaldsvísitala kemur, verður launþeginn 5 stigum á eftir, en í lok þessa þriggja mánaða tímabils verður kaupgjaldsvísitalan að jafnaði 15–20 stigum á eftir. Þetta leiðir af því, að reiknað er með, að hún hækki að meðaltali um 5 stig á mánuði. Af því leiðir, að sé miðað við mitt tímabilið, þá hlýtur launþeginn alltaf að vera 10–12 stigum á eftir.
Enn fremur leiðir það af þessu, að kjör launþega hlytu alltaf að skerðast um þau 10 stig og jafnvel eitthvað meira, sem hér er um að ræða að gefa eftir, þó að engu væri breytt um núverandi fyrirkomulag í þessum efnum. Þetta væri þó aðeins byrjunin, en strax á komandi hausti má gera ráð fyrir því, að hraðinn í vexti verðbólgunnar yrði orðinn meiri, en 5 stig á mánuði til jafnaðar og mundi þá auðvitað bilið milli framfærsluvísitölu og kaupgjaldsvísitölu enn breikka.
Ég skal taka það fram, að auðvitað er mér ljóst, að þó að vísitalan hækki þannig að meðaltali um 5 stig, þá þýðir það auðvitað ekki, að hún hækki um 5 stig á hverjum mánuði. Á því verða auðvitað sveiflur. En ég tel ekki ástæðu til að ætla, að það breyti í rauninni neinu um þessa niðurstöðu. Við vitum, að bilið á milli kaupgjaldsvísitölu og framfærsluvísitölu verður auðvitað mest á haustin, eftir að nýtt landbúnaðarverð er komið í gildi, það gerist 1. sept., svo að af því leiðir, að við þetta breiða bil verða launþegarnir að una í þrjá mánuði. Það eru því engar líkur á því, að þó að tekið væri tillit til þessa, mundi það breyta nokkru um þá niðurstöðu, að jafnvel þó að miðað sé við þann hraða á vexti verðbólgunnar, sem verður allra næstu mánuði, þá hljóta launþegarnir sjálfkrafa að verða 10–12 stigum á eftir eða nokkurn veginn því sama, sem nú er um að ræða að gefa eftir og síðar verður þetta meira.
Nú mætti náttúrlega spyrja sem svo: Geta launþegarnir þá ekki komizt hjá þessari kjaraskerðingu með því að knýja það fram, að vísitalan sé greidd t.d. mánaðarlega, en ekki á þriggja mánaða fresti? Ég tel, að svo mundi ekki vera. Afleiðingin af því yrði aðeins sú, að í stað þess að vísitalan hækkar um 5 stig á hverjum mánuði, þá mundi hún eftir þá breytingu fara að hækka um 5 stig á hverri viku eða svo. Á tímum óðaverðbólgunnar í Þýzkalandi 1923 var svo komið, að það var farið að reikna nýja kaupgjaldsvísitölu vikulega, en þá var það þannig, að verðlagið hækkaði um 10% eða 20% frá degi til dags.
Þetta er nú ráðningin á þeirri gátu, sem ég býst við að ýmsir hafi velt fyrir sér, því að auðvitað má spyrja sem svo: Hvernig stendur á því, að því er haldið fram, að það sé nauðsyn að stöðva verðbólguþróunina, en á hinn bóginn er alltaf verið að birta útreikninga, gerða af hagfræðingum, sem sýna fram á það, að ráðstafanir til þess að stöðva verðbólguna hljóti óhjákvæmilega að hafa svo og svo mikla kjaraskerðingu í för með sér?
Það er auðvitað eðlilegt, að skynsamur maður hljóti að draga af þessu þá ályktun, að annaðhvort sé það bábilja, að það sé nauðsynlegt að stöðva verðbólguþróunina, eða þá að eitthvað hljóti að vera bogið við þessa útreikninga, sem sýna fram á þá kjaraskerðingu, sem stöðvunin muni hafa í för með sér. Það síðara er auðvitað að mínu áliti það rétta. Það er bogið við þessa útreikninga, að þeir taka ekki tillit til þess vaxtar verðbólgunnar, sem um hlýtur að verða að ræða. Hagnaður launþeganna við það, að stöðvunin er gerð, jafnvel þó að það kosti eitthvað í kaupi, er fólginn í því, að ef þetta tekst, þá sleppa þeir við þá rýrnun á kaupmætti launanna, sem leiðir af því, að verðlagið fer hækkandi frá mánuði til mánaðar, en kaupgjaldið hlýtur af sjálfu sér alltaf að verða á eftir, þannig að þótt ekki væri tekið tillit til annars en hinnar reikningslegu skerðingar á kaupmætti launanna, sem sjálfkrafa hlýtur að leiða af vexti verðbólgunnar, þá verður hún samkvæmt því, sem ég hef sagt, meiri en þær fórnir, sem nú er gert ráð fyrir að færðar séu til þess að stöðva hana. En óþægindi þau og kjaraskerðing, sem bæði launþegar og aðrir mundu verða fyrir, ef ekki tekst að forða því, að óðaverðbólga skelli á, eru þó miklu víðtækari en þetta, og það er full ástæða til þess að bregða upp mynd af þeirri þróun, sem þá blasir við.
Almenningur hefur það vissulega á tilfinningunni, að í vændum sé eitthvað verra, en hingað til hefur átt sér stað og krefst þess af fulltrúum sínum á Alþingi, að gerðar séu þegar ráðstafanir til þess að afstýra aðsteðjandi voða. Það er þó rétt og jafnvel nauðsynlegt að gera sér sem gleggsta hugmynd um það, í hverju þessi voði er fólginn, því að almenn slagorð eins og hrun og öngþveiti, sem oft eru notuð í þessu sambandi, segja auðvitað lítið út af fyrir sig.
Þótt hin hæga verðbólguþróun, sem verið hefur undanfarin ár, hafi valdið þjóðarbúinu og framleiðslunni margvíslegu tjóni, þá hefur þó hingað til tekizt að halda henni svo í skefjum, að tekizt hefur að forða stórvandræðum. Þegar ný ríkisstj. hefur setzt að völdum, þá hefur því verið lofað að stöðva verðbólguna. Þótt árangur af því hafi verið misjafn og aldrei fullnægjandi, þá hefur þó tekizt að vekja vonir um það, að eitthvað nýtt og raunhæft yrði gert, svipað því og menn vonast oft eftir betra tíðarfari með nýju tungli. En þó að vonirnar hafi e.t.v. að jafnaði brugðizt, þá hefur þetta þó nægt til þess, að fólk hefur ekki misst alveg trúna á verðgildi peninganna, haldið óbreyttum daglegum viðskiptavenjum, lagt peninga í banka, þeir sem þá hafa haft afgangs daglegum þörfum, o.s.frv.
Ef verðbólgan fer hins vegar að vaxa með þeim hraða, sem nú hlýtur að verða, ef ekkert verður að gert, þá hlýtur það að valda stórfelldari röskun á efnahagsstarfseminni en von er að menn almennt geri sér næga grein fyrir, því að núlifandi kynslóð á Íslandi þekkir ekki óðaverðbólgu nema af afspurn. En ef menn vita það, að vísitalan verður 270 stig eftir tíu mánuði og e.t.v. 400 stig eftir hálft annað ár, þá hlýtur það að breyta algerlega viðhorfum manna til þess að eiga peninga. Allir hljóta að forðast það, sem unnt er, og breyta því, sem þeir eiga í peningum, í einhver föst verðmæti. Afleiðingin verður kaupæði, búðir tæmast og algert stjórnleysi skapast í verðlagsmálum og opinberum fjármálum. Þegar svo er komið, er aðeins til ein leið, sú að innkalla hina verðlausu mynt og taka upp nýja eða gera svipaðar ráðstafanir og sagt er að Rússar hafi gert gagnvart hinum verðlausa gjaldmiðli nazistanna í Austur-Þýzkalandi eftir stríðið. Þeir gerðu sér hægt um vik og strikuðu tvö eða þrjú núll út af öllum upphæðum til þess að fá meðfærilegar tölur í viðskiptum.
En þetta virðist nú út af fyrir sig einfalt, og ég hef talað við menn, sem hafa sagt, að e.t.v. sé þetta það æskilega, hreinsunareldur, sem þjóðin verði að ganga í gegnum. En ég held þó, að þeir menn, sem þannig tala, mundu ekki gera það í alvöru, ef þeir gerðu sér fyllilega ljóst, hvað hér er um að ræða og hvaða verði þjóðin yrði að kaupa slíka reynslu.
Fólk, sem dvaldist í Þýzkalandi, þegar óðaverðbólgan gekk þar yfir eftir fyrri heimsstyrjöldina, sagði, að vandræði og skortur stríðsáranna hefðu aðeins verið svipur hjá sjón miðað við neyðarástand verðbólguáranna.
Það er í fyrsta lagi hætta á því, að hið algera öngþveiti í vörudreifingunni, sem leiðir af hruni gjaldmiðilsins, orsaki algeran nauðsynjaskort og jafnvel sult. En jafnvel þótt því versta í þeim efnum yrði með einhverjum hætti forðað, þá mundi þó efnahagur þjóðarinnar særast þeim sárum, ef slíkt dyndi yfir, sem seint tækist að græða. Allir þeir, sem unnið hafa það þjóðnytjastarf á undanförnum árum að leggja fyrir sparifé, yrðu bótalaust sviptir eignum sínum. Það yrðu laun þjóðfélagsins þeim til handa fyrir að hafa ráðstafað fjármunum sínum í þágu uppbyggingar atvinnulífsins í stað þess að eyða þeim í persónulegan munað. Allir þeir opinberu sjóðir, sem gegna margvíslegum verkefnum á sviði menningarmála og áratugi hefur tekið að byggja upp, yrðu þurrkaðir út. Þá er og augljós sú hneisa og álitshnekkir, sem landið mundi verða fyrir í augum annarra þjóða, ef slíkt skeði. Þess eru að vísu ýmis dæmi frá þessari og síðustu öld, að óðaverðbólga hefur átt sér stað hjá þjóðum, sem beðið hafa ósigur í styrjöldum. Þau dæmi, sem við þekkjum bezt, eru t. d. bankahrun — danska bankahrunið 1814, sem kom til að snerta okkur vegna stjórnmálasambands okkar við Dani á þeim tíma, hrun þýzka marksins eftir fyrri og seinni heimsstyrjöldina og gríska gjaldmiðilsins eftir borgarastyrjöldina þar í landi 1945. Hins vegar þekki ég þess engin dæmi frá siðmenningarlöndum, að óðaverðbólga hafi átt sér stað einungis vegna of mikillar fjárfestingar á friðartímum. Okkar dæmi yrði þannig einsdæmi, ef slíkt henti og ekki til þess fallið að skapa traust á fjármálum landsins, svo að ekki sé meira sagt.
Það versta er þó e.t.v., að engin trygging er fyrir því, þótt ósköpin dyndu yfir, að slíkt mundi skapa nein skilyrði fyrir varanlegri endurreisn efnahagslífsins. Eru líkur á því, þótt taka yrði upp nýjan gjaldmiðil, að með því væru úr sögunni grundvallarorsakir verðbólgunnar hér á landi, of mikil fjárfesting og of mikil bankaútlán og óábyrg stefna í launamálum af hálfu ýmissa launþegasamtaka? Gæti ekki sami dansinn og áður hafizt að vörmu spori á nýjan leik, þannig að sparifjársöfnun, sem er grundvöllur efnahagslegra framfara, yrði um ófyrirsjáanlegan tíma úr sögunni?
Í þessu sambandi má benda á það, að jafnvel þótt þetta skeði, að gjaldmiðillinn yrði verðlaus, þá hef ég ekki neina trú á því, að það yrði farið að ræða það á meira hagfræðilegum grundvelli, en verið hefur, hverjar hafi verið hinar raunverulegu orsakir verðbólgunnar. Það eru blöðin, sem skapa almenningsálitið í þessum efnum. Ég hef ekki trú á því, að eftir það færu þau frekar, en nú að gefa þær skýringar, að þarna sé um að kenna of mikilli fjárfestingu og óábyrgri stefnu í launamálum o.s.frv. Nei, það yrðu allt aðrar skýringar, sem þjóðinni yrðu gefnar á þessu fyrirbrigði, nefnilega þær, að það er þessi stjórnmálaforingi þarna og þeir, sem honum fylgja að málum, sem eiga sökina á því, hvernig komið er og um það yrði svo deilt. Það var vegna þess, að þjóðin bar ekki gæfu til annars, en fela þessum mönnum yfirstjórn sinna mála, sem þetta skeði. En það yrði ekki frekar en áður farið að gera grein fyrir hinum raunverulegu orsökum ófarnaðarins.
Ég hef þá reynt í stórum dráttum að gera grein fyrir því, hvað blasir við, ef Alþingi það, sem nú situr, ber ekki gæfu til þess að gera viðhlítandi ráðstafanir til þess að stemma stigu við verðbólgunni. Ég er ekki að mála neina grýlu á vegginn, heldur aðeins að lýsa þvi, sem óhjákvæmilega skeður á næstu mánuðum, ef ekki verður að gert.
Það ætti ekki að vera deiluefni milli stjórnmálaflokkanna, hverja nauðsyn ber til að stöðva verðbólguna. Um einstök atriði í sambandi við leiðirnar má hins vegar deila, t.d. um það, hve mikið af niðurfærslu vísitölunnar eigi að vera eftirgjöf af hálfu launþega og hve mikið eigi að borga niður úr ríkissjóði.
Í frv. því, sem hér liggur fyrir, er að mínu áliti farin skynsamleg millileið í því efni. En þó að einhver önnur skipting væri gerð, þá mundu það að mínu áliti frekar vera aukaatriði í þessu sambandi, því að allar þær leiðir, sem til greina koma, eru þó betri og almenningi hagstæðari, en ef ekkert yrði að gert. Og ég vona, að það verði á slíkum grundvelli, sem framhaldsumræður verða um þetta frv., en sé að öðru leyti ekki ástæðu til þess að ræða þessar leiðir frekar að sinni.
Nei, leiðin til þess að bæta hag launafólks í landinu er ekki sú að gefa verðbólgunni lausan tauminn. Það væri þvert á móti það versta, sem hægt væri að gera frá þeirra hagsmunasjónarmiði. Hitt væri eðlilegt, að hagsmunasamtök launamanna geri þá kröfu til ríkisvaldsins, að það geri það, sem í þess valdi stendur, til þess að lækka verðlagið sem unnt er fram yfir það, sem þessi lög gera ráð fyrir. Og vegna þeirra breytinga, sem nú hafa verið gerðar á kaupgreiðslum, þannig að vísitöluuppbótin fram til þessa verður að grunnkaupi, mundu slíkar lækkanir, ef til kæmu, verða hrein kjarabót. Hvaða möguleikar eru fyrir hendi í þessu efni, er að mínu áliti undir því komið, hvernig á næstunni verður tekið á fjárfestingar- og útlánamálunum, þannig að stöðvuð verði dýrtíðaráhrif þaðan.
Það mundi leiða of langt hér að gera þau mál að nánara umtalsefni að svo stöddu, enda gefst sennilega tími til þess síðar. Á það tel ég þó rétt að benda, að breyting sú á vísitöluútreikningi, sem hér er gert ráð fyrir að lögfest verði, gerir slíkar ráðstafanir meira aðkallandi, en ella mundi vera. Það má gera ráð fyrir því, að verðlag hinna brýnustu nauðsynja, sem haldið hefur verið í skefjum með niðurgreiðslum og ströngum verðlagsákvæðum, hafi allmiklu minna gildi í nýja vísitölugrundvellinum, en þeim gamla. Af því leiðir aftur, að gera má ráð fyrir því, að þau dýrtíðaráhrif, sem stafa frá bankakerfinu og fjárfestingunni, muni eftirleiðis koma í miklu ríkara mæli fram í framfærsluvísitölunni, en áður hefur verið. Og þegar hér við bætast ákvæði frv. um sjálfkrafa hækkun fiskverðs og verðs á landbúnaðarvöru til samræmis við hækkun vísitölu, verður hætta á því, að verðbólguhjólið snúist enn örar en áður. Fari það af stað, er ljóst, að nauðsynlegar aðgerðir í banka- og fjárfestingarmálum verða eftir samþykkt frv. enn meira aðkallandi en áður.
Eins og ég sagði, má auðvitað um það deila, hvernig skipta eigi þeirri niðurfærslu vísitölunnar, sem nauðsynleg er talin, milli þess, sem launþegar taka á sig, og þess, sem borgað er niður.
Ég tel æskilegt, að sú leið verði farin, eftir því sem unnt er, að gera þær fórnir, sem hér kynni að vera um að ræða í bili, launþegunum sem léttbærastar. Og hafi það verið rétt með farið hjá hv. 2. þm. S-M. hér í gær, að fráfarandi hæstv. ríkisstj. hafi, rétt áður en hún fór frá völdum, úthlutað einum 60 millj. kr. í handbæru fé til ýmiss konar fjárfestingarframkvæmda, þá tel ég það stórlega vítavert. Þeim peningum eða nokkru af þeim a.m.k. hefði þá eins mátt verja til þess að gera þær ráðstafanir, sem hér er um að ræða, almenningi sem léttbærastar. En við, sem verið höfum í stjórnarandstöðu, stöndum nú einu sinni gagnvart því, að hér er um skeðan hlut að ræða, svo að þeim peningum verður þá ekki ráðstafað að nýju.
En hvað sem annars má segja um niðurgreiðslurnar, tel ég ekki á því vafa, að ef fjár til þeirra er aflað án þess að leggja á nýja skatta, þá er það auðvitað hagkvæmara launþegunum, en eftirgjöf vísitölu. Á hinu má þó vekja athygli, að það eru takmörk fyrir því, hvað hægt er að skerða fjárfestinguna mikið, án þess að það skapi almenningi ekki líka óþægindi. Og hér komum við aftur að því, að þessir útreikningar, sem gerðir eru á kaupmætti launa og breytingum á þeim, eru engan veginn einhlítur mælikvarði á kjör launafólks. Það væri auðvitað hægt að hugsa sér að borga vísitöluna meira niður, en gert er, en ef fjár til þess á að afla með niðurskurði á fjárfestingu, þá hlyti það auðvitað að verulegu leyti að þýða stöðvun á nauðsynlegum verklegum framkvæmdum í landinu. Þau óþægindi, sem fólk hefur af slíku, koma að vísu ekki fram sem skertur kaupmáttur launa, en vissulega eru það óþægindi fyrir almenning, ef ónógt húsnæði er fyrir skóla, svo að börnin verða að hafast þar við undir heilsuspillandi skilyrðum, ef menn geta ekki fengið spítalapláss, þó að nauðsyn beri til, o. s. frv., svo að þá hlið á málinu verður einnig að taka til athugunar. Það má ekki einblína á hinn reikningslega kaupmátt launanna.