11.03.1959
Sameinað þing: 32. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í D-deild Alþingistíðinda. (1951)
120. mál, athugun á nýjum björgunartækjum
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Í sambandi við þessa ágætu till. vil ég skjóta því fram til athugunar fyrir þá n., sem kann að fá hana, að það kann að vera ráðlegt að athuga fleira, en björgunartæki. Í sambandi við þá skiptapa, sem við höfum orðið fyrir nýlega, las ég það í brezku blaði, Fishing News, sem er eitt af fremstu blöðum fiskiðnaðarins í Bretlandi, að eftir að Bretar fyrir 2–3 árum misstu tvo togara, að því er þeir telja á svipaðan hátt og við misstum togara nú, gerðu þeir mjög ýtarlegar rannsóknir, ekki aðeins á björgunartækjum, heldur á allri byggingu skipanna. Eftir því sem þarna var frá sagt, gerðu þeir tilraunir með líkön af ýmsum gerðum togara, reyndu þau í þar til gerðum tækjum, þar sem hægt er að búa til storma og vinda eftir vild, tækjum, sem mikið eru notuð til þess að reyna flugvélar. Mér skilst á ummælum þessa blaðs, að niðurstöður hafi orðið þær, að það mætti draga stórkostlega úr hættu á því, að skip farist við þær aðstæður, sem hér var um að ræða, með því að gera ýmsar minni háttar breytingar á fyrirkomulagi og byggingu skipanna sjálfra. Ég vil skjóta því til n., hvort væri ráðlegt að reyna að stuðla að því, að athugað væri fleira, en björgunartækin sjálf, ef vera kynni, að það mætti á þann hátt, sérstaklega í sambandi við framtíðarbyggingar skipa, draga úr hættu á því, að til slíkra harmleikja komi aftur sem orðið hafa í vetur hjá okkur.