23.01.1959
Neðri deild: 61. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í B-deild Alþingistíðinda. (197)

87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Í hvert sinn, sem hv. 3. þm. Reykv. (EOl) talar um efnahagsmál hér í hv. d., þá minnist hann með söknuði gömlu góðu daganna, þegar íhaldið og kommúnistar sátu í nýsköpunarstjórninni. Þessi sami hv. þm. talar um það, að við eigum ekki að lifa fyrir augnablikið, heldur eigum við að leggja línur fram í tímann. En ef sú lína, sem þessir flokkar fylgdu í landbúnaðarmálunum í nýsköpunarstjórninni, ríkti enn þá, þá væri landbúnaðurinn á Íslandi sama sem kominn í eyði og það væri löngu komið svo, að við hefðum ekki nóga mjólk eða nóg kjöt handa þessari þjóð af eigin framleiðslu. Á þeim árum, nýsköpunarárunum, voru ekki byggð nema eitt eða tvö hús á ári í sveitum landsins og annað var eftir því. Það er þessi stefna, sem þessi hv. þm. vill fylgja í landbúnaðarmálunum. Og hann saknar þess alltaf, að hann skuli ekki ná aftur til sjálfstæðismanna, því að þá getur hann framfylgt henni.

Það er vitað mál, að þjóðinni fjölgar mjög ört. Það er þess vegna ekki nema skammsýni að halda það, þó að við höfum í dag meira en nóg af landbúnaðarvörum, að þá sé einhver hætta á ferð. Það er e. t. v. ekki nema stutt þangað til við eigum ekki nóga landbúnaðarframleiðslu, hvað þá um of. En hv. 3. þm. Reykv. stefnir að því og vonast til þess, að sá tími renni upp, þegar búið er að laga kjördæmamálið, eins og hann orðaði það áðan, að sjálfstæðismenn og hann geti tekið upp aftur nýsköpunarstefnuna í landbúnaðarmálunum.

Hv. 9. landsk. (ÓB) er vanur að segja nokkuð það, sem honum býr í brjósti. Hann sagði hér stórmerkilegan hlut áðan. Hann sagði, að það hefði verið stórvítaverð ráðstöfun á afgangi þeim af ameríska láninu, sem var ráðstafað í haust. Það var vítaverð ráðstöfun að láta fé ganga til ræktunarsjóðs, það var vítaverð ráðstöfun að láta fé ganga til fiskveiðasjóðs, það var vítaverð ráðstöfun að láta fé ganga til sementsverksmiðjunnar, og það var vítaverð ráðstöfun að láta fé ganga til raforkumálanna. Þetta er auðvitað stefna Sjálfstfl., sem hv. 9. landsk. sagði hér frá, en hinir flokksmennirnir eru bara ekki að segja frá því, þeir bíða eftir því, að kjördæmin verði löguð fyrst. Þetta kveður nokkuð við annan tón, en þegar hv. þm. A-Húnv. (JPálm) og hv. 1. þm. Rang. (IngJ) eru stundum að tala hér í hv. d. um, að það hafi verið vanefndir á framkvæmdum í raforkumálum, þó að það hafi verið á síðasta ári gert meira, en sú fjáröflun, sem fyrir lá, gerði ráð fyrir. En hvernig hefði átt að leysa þessi mál, ef þessum lánum hefði ekki verið ráðstafað á þennan hátt? Hvaðan áttu að koma fjármunir til sementsverksmiðjunnar, ræktunarsjóðsins, fiskveiðasjóðsins og rafmagnsplansins? Átti kannske að láta þessi verk ógerð? Þessu þurfa sjálfstæðismenn að svara og það nú í þessum umræðum.

Hv. 1. þm. Reykv. (BBen) var að tala um það í gær, að hann væri mjög hissa á því, að það skyldi skorta fjármagn í byggingarsjóð, bæði ríkisins og sveitanna og veðdeild Búnaðarbankans og taldi, að það hefði verið illa að þessum sjóðum búið, fyrst nú ætti að fara að afla fjár til þeirra. Ég held, að hv. þm. ætti að muna þann tíma, 1956, þegar hann fór úr ríkisstj. Þá skorti víða fjármagn, bæði í byggingarsjóði og fleiri staði. Og það er til hér þingskjal með þáltill. frá sjálfstæðismönnum, sem í felast till., sem sjálfstæðismenn lögðu til í húsnæðismálastjórninni, um að útvega 250 millj. kr. til húsnæðismálanna, af því að þar skorti það fé. Þess vegna þarf þessi hv. þm. ekki að vera hissa á því, þó að það sé farið fram á 15 millj. kr. fjárútvegun.

En ég mun nú ekki fara langt út í ræðu þessa hv. þm. Hann var að vísu svo skemmtilegur, að það er ástæða til þess að þakka fyrir þá skemmtun, sem maður hafði af ræðu hans, því að það er alveg ný fyndni að telja það óreiðu, fjársukk og vandræði í fjármálum, þegar menn skila af sér stórum sjóðum. Þetta er fyndni, sem ég vonast til að sjá í „Íslenzkri fyndni“ á þessu ári.

Þessi hæstv. ríkisstj. hefur gert tvennt í efnahagsmálum. Hún hefur aukið niðurgreiðslur og hún hefur lagt fram þetta frv., sem hér liggur fyrir. Um niðurgreiðslurnar vildi ég segja, að það hefur jafnan verið mín skoðun, að niðurgreiðslunum fylgdi veruleg hætta. Sú hætta er fólgin í því, að við erum með niðurgreiðslunum að leyna verðbólgunni. Fólkið fer að álíta, að verðið á þessum vörum sé ekki hærra, en það þarf að greiða fyrir það. Það gleymir stundum fljótt, hvað niður er greitt, og þetta er einn þátturinn í því að viðhalda verðbólgunni, að leyna henni á þann hátt. Þá er það annað atriði þessa máls, að ef niðurgreiðslurnar hætta, þá mun verð á þessum vörum hækka svo stórkostlega, að það gæti haft áhrif á sölu þeirra. Og nú við þessa síðustu niðurgreiðslu eru niðurgreiðslurnar orðnar það miklar, að þær eru komnar niður fyrir framleiðsluverð. Þess vegna verða bændurnir, sem framleiða mjólk og kjöt, að drekka sína mjólk og borða sitt kjöt með hærra verði, en neytendurnir í kaupstöðunum. Þetta er alveg óeðlilegt og það má ekki fylgja fram þeirri stefnu, að niðurgreiðslur verði nokkurn tíma meiri, en skráð framleiðsluverð er, að þær fari niður fyrir það. Og ég vil benda á það, ef hæstv. ríkisstj. heldur áfram að auka niðurgreiðslur, að þá verður hún að gera það á þann hátt að greiða niður fleiri vöruflokka, en má ekki auka niðurgreiðslurnar á landbúnaðarvörunum, því að þar er nóg komið. Þá ber nauðsyn til að leiðrétta í þessu frv. það, að landbúnaðinum er ætlaður annar réttur en sjávarútveginum og geri ég ráð fyrir því, að það mál verði auðsótt.

Um það frv., sem hér liggur fyrir, vil ég annars segja þetta: Hv. 1. þm. Reykv. sagði, að þetta væri fyrsta afborgun af vanskilavíxlum fyrrv. ríkisstj., en deildi svo á sjóðina á eftir, sem alls staðar væru til staðar og mér skildist á hæstv. forsrh., að það ætti yfirleitt að styðjast við það, sem væri búið að afla af fyrrv. ríkisstj. eða hún hefði lagt grundvöll að að afla, til þess að koma málum ríkissjóðs og atvinnuveganna áfram. Meginmálið í þessu frv. er að fella niður 10 vísitölustig. Ég vil nú með nokkrum orðum segja skoðun mína á ástæðu fyrir því, að þetta mál er hér fram komið.

Við stjórnarmyndunina 1956 tók ríkisstjórn Hermanns Jónassonar upp þá stefnu að hafa samstarf við hin stóru stéttarfélög í landinu, bæði Alþýðusambandið og Stéttarsamband bænda. Það lágu nokkur rök að því, að það var gert, m. a. það, að þótt það væri sterkt þingfylgi, sem stóð að stjórn Ólafs Thors, þá mistókst henni í efnahagsmálum og hafa ýmsir stuðningsmenn þeirrar stjórnar, eins og t. d. hv. 1. þm. Reykv., oft vitnað til verkfallsins 1955 og talið það ástæðu fyrir því, sem miður fór, þó að hann hafi síðar talið, að það væri ekki hyggilegt að hafa samstarf við stéttarfélögin. Þetta samstarf við stéttarfélögin tókst vel í fyrstu. Það tókst samstarf á milli ríkisstj. og stéttarfélaganna um niðurfellingu 6 vísitölustiga 1956 eða hliðstætt og hér á að gera. En þegar Sjálfstfl. fór að átta sig á, hvert stefndi, þá fór hann líka að hugsa sitt mál. Hann hafði sem stjórnarfl. fordæmt stjórnarandstöðu kommúnista, sem væri óábyrg og við það eitt miðuð að eyðileggja þau störf, sem ríkisstj. ynni að, en ekki hugsað um þjóðarhag. Maður skyldi nú halda, að þeir sjálfstæðismenn mundu ekki detta í sömu gröf. En þeir voru ekki lengi í paradís og þeir komu víða við. Allir muna eftir skeytunum góðu, allir muna eftir því, þegar þeir ræddu um það hér á háttv. Alþingi, að ríkisstj. mundi ekki takast að fá erlend lán, en það eitt mundi nú samt ekki nægja til þess að koma henni frá, það yrði að gera meira. Og þetta, meira sem þeir hugsuðu sér að keppa að, var að ná í valdaaðstöðu í verkalýðsfélögunum til þess að reyna þannig að sprengja það samstarf eða gera að engu það starf, sem ríkisstj. ætlaði að vinna að um stöðvun verðbólgunnar. Það kom fram þar, sem hv. 9. landsk. sagði hér áðan, að menn hugsuðu meira um að kenna þeim, sem stjórnuðu, um það, sem miður hefði farið, heldur en standa að því, sem betur mætti fara. Þessu fylgdu sjálfstæðismenn trúlega.

Áður en Sjálfstfl. fór að hafa áhrif í verkalýðsfélögunum, tókst ríkisstj. og verkalýðsfélögunum vel í samstarfinu, eins og áður er getið, svo sem varð um eftirgjöfina 1956 og lögin um útflutningssjóð, sem samþ. voru rétt fyrir jólin 1956. En upp úr áramótunum fór róðurinn að harðna. Þá fór Sjálfstfl. að vinna af alefli í kosningabaráttunni í verkalýðsfélögunum og náði samstöðu við hluta úr einum stjórnarflokknum, hægra liði Alþfl. Og eftir að þeir höfðu náð á vald sitt sumum verkalýðsfélögunum, eins og Iðju, þá skeði það, sem munu vera fá dæmi um hér á landi, að atvinnurekendurnir buðu upp á kauphækkun. Það þurfti ekki að knýja fram kauphækkunina þá, hún stóð Iðjufélögunum til boða, enda hafði hún verið óspart notuð í kosningabaráttunni. Þannig hélt þetta áfram og þegar kom að því, að ríkisstj. ætlaði að gera annað og meira í efnahagsmálunum, það sem nauðsyn bar til að gera til þess að ná því jafnvægi, sem hún stefndi að og til þess að atvinnulífið í landinu yrði eflt og þróttmikið, þá fóru að sjást brestir í samstarfi ríkisstj. og verkalýðsfélaganna. Þegar efnahagsmálalöggjöfin var hér til meðferðar á s.l. vori, þá komu brestirnir greinilega fram, sem voru í verkalýðsfélögunum, þeir komu fram við afgreiðslu þess máls. Það, sem gerðist, var það, að fulltrúar héðan úr Reykjavík voru andvígir löggjöfinni, en fulltrúar utan af landsbyggðinni stóðu fast með henni. Hér komu fram greinileg merki þeirrar baráttu, sem háð er um fjármagnið til landsbyggðarinnar, sem er uppistaðan í stjórnmálabaráttunni, sem fram undan er.

Það tókst þó að setja efnahagslöggjöfina á s.l. ári. Þessi löggjöf hafði mikil áhrif í rétta átt í efnahagsmálum þjóðarinnar. Hún stefndi að auknu jafnvægi. Það var, eins og hæstv. fyrrv. fjmrh. tók hér fram í gær, verið að fara út úr uppbótakerfinu. Frá skömmtunarkerfinu, sem þar var komið á, var horfið og atvinnulífið í landinu var frjálsara og þróttmeira en fyrr, enda er það mál manna, að einmitt árið, sem var að líða, var gott atvinnuár vegna löggjafarinnar, sem var sett í efnahagsmálum á s.l. vori, en það dró ýmsar blikur á loft, er fram á sumarið kom.

Það var tekið fram í grg. fyrir efnahagsmálalöggjöfinni, að þær bætur, sem atvinnuvegunum voru ætlaðar samkvæmt henni, væru við það miðaðar, að kaup hækkaði ekki í landinu umfram það, sem gert var ráð fyrir í löggjöfinni sjálfri. Mönnum var ljóst, að ef kaupgjald færi hækkandi, þá yrði að gera nýjar ráðstafanir og þjóðinni hefur aldrei verið betur frá þessu skýrt, en einmitt í sambandi við þessa löggjöf.

Af hálfu ríkisstj. var þetta mál líka lagt fyrir myndarlega við fulltrúa alþýðusamtakanna, svo að þeir máttu gerla sjá, að hér stefndi í rétta átt. En þegar kom fram á sumarið, fór annað að verða uppi. Þá fóru sumir að verða hræddir um, að nú gæti farið svo, að þetta tækist hjá hæstv. ríkisstj., að fá stöðvun, að fá jafnvægi í efnahagsmálin og halda uppi áfram þróttmiklu atvinnulífi í landinu, og þá voru sendimennirnir látnir byrja í verkalýðsfélögunum að tala fyrir kauphækkun, sem nú væri nauðsynleg, og svo hélt þetta áfram allt sumarið. Blöðin ögruðu hvort öðru. Alþýðublaðið sagði: Hvað hugsa kommarnir? Ætla þeir bara ekki að vakna? Alþýðusambandið væri steindautt. Það hugsar ekkert um kjarabætur fyrir fólkið í landinu. Það eru allir búnir að rétta af nema þessir herrar.

Og svona hélt þetta áfram. Morgunblaðið fylgdi eftir og sendimenn Sjálfstfl. voru látnir túlka þessa skoðun í verkalýðsfélögunum, en þessi leið var svo notuð, þegar verið var að heyja kosningabaráttuna til Alþýðusambandsþings á s.l. hausti.

Ríkisstj. hafði lýst því yfir, þegar efnahagslöggjöfin var sett, að hún mundi leita eftir samkomulagi við alþýðusamtökin um framhald af þeirri stefnu, sem hún markaði um efnahagslöggjöfina. Hún mundi á hausti komanda, er alþýðusamtökin héldu sitt þing, leita eftir samkomulagi um vísitöluna, sem var tekið fram í grg. frv. og hæstv. ráðh. lýstu hér í framsöguræðum sínum að þyrfti að taka til frekari athugunar. Og þegar kom á Alþýðusambandsþing, þá vissu allir menn að, að því yrði stefnt að leita eftir þessu samkomulagi.

Nú hafði þingið dregizt lengur, en gert var ráð fyrir og 1. des. átti að taka gildi ný vísitala. Það var almenn skoðun manna í stjórnarflokkunum hér á hv. Alþingi, að nauðsyn bæri til að koma í veg fyrir, að þessi vísitala tæki gildi. Það vissu allir, hvað það er miklum erfiðleikum bundið að taka aftur það, sem komið er. Það bar fyrst að stöðva.

Það, sem hæstv. fyrrv. ríkisstj. óskaði eftir, var að halda áfram samstarfinu við alþýðufólkið í landinu, við verkalýðsfélögin og stéttarfélag bænda. Og nú óskaði hún eftir því, að frestað yrði að taka vísitölu í einn mánuð. En forustumennirnir á Alþýðusambandsþingi voru ekki á þessari skoðun. Það hafði að vísu heyrzt, áður en Alþýðusambandsþing kom saman, að þá sæti á rökstólum nefnd, sem væri að athuga þessi mál, Alþýðusambandsþingsfulltrúar frá Sjálfstfl., Alþfl. og Alþb. Og þegar kom að þeirri stundu, að ríkisstj. leitaði til Alþýðusambandsþings um að halda þessu samstarfi áfram, sem hefði gefizt báðum aðilum vel, og leitað yrði eftir þeim leiðum, þar sem þeir gætu farsællega leyst sín mál, þá kom neitunin fram.

Nú vilja menn kannske segja: Það er ekki von, að mennirnir væru að fallast á þetta. Það var svo erfitt að leysa efnahagsmálin núna og þeir hafa ekki viljað leggja það á sig. — Var nú svo erfitt að leysa efnahagsmálin á s.l. hausti? Hvenær hefur verið meiri atvinna í landinu, en einmitt á s.l. ári? Hvenær hefur verið meiri almenn velmegun, en einmitt þá. Það hefur verið tekið fram hér í umr., og m. a. vék hv. 3. þm. Reykv. að því. Hvenær hefur verið meiri framleiðsla, en einmitt á þessu ári og stórkostleg aukning? Við seldum alla okkar framleiðslu,og hvenær eru skilyrði til þess að leiðrétta í efnahagsmálum, ef það er ekki þegar aðstæður eru á þann veg?

Jú, það var grundvöllur fyrir því, að þetta samstarf héldi áfram, enda hafði það reynzt alþýðu landsins vel, þar sem hafði verið séð fyrir því, að atvinnulífið í landinu og velmegun væri betri, en fyrr.

En þá kom það, að neitunin var gerð og stjórnarsamstarfið var þar með búið. Þá höfðu mennirnir, sem höfðu verið að vinna að því í verkalýðsfélögunum að sprengja þetta stjórnarsamstarf, komið sínu fram. Og þarna stóðu þeir saman, forustulið úr Sjálfstfl., kommúnistaflokknum og hægra lið Alþfl.

En hvað skeði svo, þegar þessi hæstv. ríkisstj. var fallin? Þá fór nefnilega að breytast svipurinn á þessu öllu saman, þá fóru menn að sjá betur, en nokkru sinni fyrr, hvað hinir hefðu verið að vinna að. Formanni Sjálfstfl., hv. þm. G-K. (ÓTh), var falið að mynda ríkisstj., og þá tóku þeir til, sjálfstæðismennirnir, og fóru að athuga þessi mál. Þeir höfðu auðvitað aldrei getað gert till., þeir voru svo ókunnugir þessum málum, að það var ekki von, að þeir gætu gert till. í efnahagsmálunum, þó að þeir hefðu setið í ríkisstj. á annan tug ára. Og þeir sátu nú yfir grg. og athugunum, sem fyrrv. ríkisstj. hafði gert. Og sjá, hvað kom út úr þessu? Það, sem kom út úr því, var það, að bjargráðin frá í vor, sem þeir höfðu deilt mest á, voru gefin út í annarri útgáfu og þá voru þau bara látin heita: viðreisnartillögur Sjálfstfl. Það átti að taka burt það, sem þeir sjálfstæðismenn höfðu staðið fyrir að koma á yfir sumarmánuðina og svo átti bara að gefa bjargráðin út á nýjan leik. Ef kaupið var lækkað um 6%, þá var nægjanlegur möguleiki til þess að greiða það niður, sem á skorti og þurfti ekki að afla neinna nýrra tekna til. Þetta var dómur Sjálfstfl. á verkum vinstri stjórnarinnar, sem hafði áður verið í alla staði óhæf og til engra hluta nýt.

Það fór nú svo, að þeir mynduðu ekki þessa ríkisstj. Ekki var það af því, að þeir kæmu sér ekki saman, eftir því sem segir í áramótagrein formanns Sjálfstfl. Hann telur jú, að Alþb.-menn hafi viljað fara skemmra í niðurfærslunni, en sjálfstæðismenn og Alþfl.-menn, en það, sem bar á milli var það, að Alþb. vildi láta kjósa 1960, en þeir sjálfstæðismenn strax og það var það, sem sprengdi þetta væntanlega stjórnarsamstarf, annars hefði verið hægt að koma því á.

Og nú var allt gleymt, nú voru kommúnistarnir ekki einu sinni vondir, þeir voru bara vel samstarfshæfir, — Ungverjalandsmálin, það var ekki talað um þau eða neitt slíkt. Nei, þetta var allt hægt að gera, ef bara hefði ekki staðið á þessu, að Alþb.-menn vildu starfa saman til 1960. Og það er svo sem greinilegt hér í hv. d., að þeir hafa hug á því að ná saman síðar, því að hv. 3. þm. Reykv. (EOl) er ekki að hæla þeim sjálfstæðismönnum bara í meiningarleysi eða hv. 1. þm. Reykv. (BBen) gagnstætt, nema það sé eitthvað á bak við, enda vita allir að, að þessu stefnir.

Og framhaldið í þessum málum hefur svo verið það, að Alþfl. hefur tekið að sér að taka í burtu kauphækkanir, sem settar voru í sumar til þess að eyðileggja efnahagslöggjöfina, eins og hæstv. menntmrh. komst að orði, að andstæðingar efnahagslöggjafarinnar í vor hefðu staðið saman um að eyðileggja fyrra stjórnarsamstarf m. a. með þessu.

Þegar kom að því að þurfa að fara að taka kauphækkunina til baka, var ekki einu sinni talað um það, að menn skorti umboð, hvað þá að það sé nú gefinn fyrirvari fyrir því, að menn séu hræddir um, að þetta njóti ekki stuðnings verkalýðsfélaganna og þess vegna sé ekki hægt að fylgja málinu fram. Nei, nei, nú er þetta bara gott og ágætt og kjarabæturnar frá í sumar, sem var verið að ögra með, eru nú ekki nefndar, heldur er þetta talið sjálfsagt mál, að það þurfi að taka til baka það, sem Sjálfstfl. og aðrir stjórnarandstæðingar komu með í sumar til þess að skemma efnahagslöggjöfina. Og það er mikill misskilningur hjá hv. 1. þm. Reykv., að þetta frv. eigi að heita fyrsta afborgun af víxlum fyrrv. stjórnar, það er þegar búið að hrekja það. Þetta frv. á að heita frv. til laga um árangur af verkalýðsbaráttu Sjálfstfl. og nánustu fylgismanna hans. Það var það, sem er verið að taka til baka. En um leið stendur eftir eitthvað af þeirri hækkuðu verðlagningu, sem hefur orðið vegna kauphækkana og fólkið er búið að missa þá ríkisstj., sem vildi hafa samstarf við það og enn þá verra er það, að atvinnulífið í landinu er ekki eins vel undirbyggt og fjárhagslega tryggt nú, eins og áður, þar sem ekki er séð fyrir tekjum til að standa við skuldbindingar til atvinnulífsins.

Hér hafa menn árangurinn af verkalýðsbaráttu Sjálfstfl. og nánustu samstarfsmanna hans, svo glæsilegur sem hann er. En Sjálfstfl. hefur fengið sitt. Vinstri stjórnin er fallin, en fólkið á eftir að þakka fyrir sig.