23.01.1959
Neðri deild: 61. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 213 í B-deild Alþingistíðinda. (198)
87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.
Bjarni Benediktsson:
Herra forseti. Við höfum nú heyrt það, sem við vissum reyndar áður, að hv. þm. Mýr. (HS) er maður tölugur, og við vitum einnig, að hann er námfús og við vitum í þriðja lagi, að hann er nýliði á þingi. Þess vegna fyrirgefum við honum þær fjarstæður, sem hann segir. Hann er sem sagt enn það fyrirbæri, sem er sjaldgæft í þingsölunum, sá maður, sem trúir því, sem í Tímanum stendur. Það skyldi enginn ætla það sama um hv. 1. þm. S-M. (EystJ). Þar er maðurinn, sem skrökvar því, sem í Tímanum stendur.
Tímaspekin, við heyrðum hana hér áðan, þegar hv. þm. Mýr. sagði, að atvinnuvegirnir hefðu gengið vel í ár vegna efnahagslöggjafarinnar, sem sett var á s. l. vori, bjargráðin sælu. Hefur hv. þm. ekki heyrt, að vertíðin síðast gekk óvenjulega vel? Hefur hann kannske alls ekki heyrt um karfamiðin, sem fundust og hafa gefið 100–200 millj.? Ef hann hefði hlustað á hv. 2. þm. S-M. (LJós), fyrrv. hæstv. sjútvmrh., hér í gær, þá hefði hann þó getað fræðzt um þetta og er hann þó ekki allra bezta heimildin um sannleikann. En hv. 2. þm. S-M. er svo kunnugur, að honum datt ekki í hug að halda því fram, að betra veðurfar á miklum hluta landsins og betri veiðar og ný mið væri að þakka bjargráðunum, þótt þau hefðu mörgu komið til leiðar.
Þá sagði hv. þm. Mýr., að hv. 9. landsk. þm. (ÓB) hefði talið það vítaverða ráðstöfun á þessum 63 millj. kr. að verja þeim eins og gert var. Hv. 9. landsk. setti alls ekki út á það, hvernig þessu fé var varið, heldur að því skyldi vera varið á bak við Alþ. af klofinni ríkisstj. á hennar dauðastund. Sá maður, sem eitthvað þekkir til þingræðisreglna og almenns velsæmis, veit, að slíkt atferli er vítavert og ég veit, að eftir nokkur ár verður hv. þm. Mýr. búinn að læra þetta, þótt hann læri það utan þingsalanna, en ekki í þeim.
Hv. þm. taldi upp ýmsar framkvæmdir og sagði, að þetta væru þær framkvæmdir, sem við sjálfstæðismenn værum á móti, en allar þessar framkvæmdir, sem hann taldi upp, hver ein einasta var gerð í jafnstórum stíl eða stærri í okkar valdatíð, án þess að erlend lán þyrfti að fá í nokkuð líkum mæli á við það, sem nú hefur verið gert.
Ég heyri það á framsóknarmönnunum, að þeim hefur orðið bumbult af því, sem ég sagði í gær, að frv., sem hér lægi fyrir, væri um fyrstu afborgun af vanskilavíxli þeirrar ríkisstj., sem nú fór frá völdum skömmu fyrir áramótin. Þetta er þó óhagganleg staðreynd, og þeir geta ekki hnekkt því. Þeir vilja raunar telja, að fjárhagurinn hafi ekki verið svo bágur, hvorki hv. þm. Mýr. né sjálf höfuðkempan, hv. 1. þm. S-M., vegna þess að í bóli hans hafi nú fundizt töluvert af aurum, þegar hann var horfinn. Það er eins og þegar gamall maurapúki hrekkur upp af og hefur lifað í ruslakompu, að þegar farið er að hreinsa til, þá finnst fimmeyringur þarna og kannske hundrað króna seðill þarna, kannske gamall gullpeningur grafinn niður í jörðina og eitthvað slíkt. Hv. 1. þm. S-M, og hv. þm. Mýr. hæla sér af þessari og þvílíkri fjárstjórn. Það, sem ég vakti athygli á í gær og hefur enn mjög átakanlega sannazt í dag, einmitt af orðum hv. 1. þm. S-M., er hin dæmalausa óreiða og óvissa um öll atriði, sem varða fjárstjórn ríkisins. Ég vitna í það, sem þingheimur heyrði áðan, að hv. 1. þm. S-M. sagðist ekki skilja þann mun, sem væri á tölunum varðandi skuldaaukningu ríkisstj., sem nú sagði af sér, að hann heldur því fram eða hans tala segir, að opinberar skuldir hafi vaxið um 400 millj. á valdatíma þeirra herra, en ég hef haldið því fram, að þær hafði vaxið nokkuð á sjöunda hundrað milljóna.
Nú er það svo um þessa tölu, sem ég vitna til, að það er ekki í fyrsta skipti, sem hún heyrist hér í þingsölunum í gær af mínum munni. Hv. 2. þm. Eyf. (MJ) gat þessarar tölu við 1. umr. fjárl. snemma í október. Þá heyrði hv. 1. þm. S-M, þessa tölu og síðan hefur margoft verið vitnað til hennar í blöðum.
Hv. 1. þm. S-M. játar þó, að hann, sem var fjmrh. lengst af þessum tíma, hafi ekki enn gert sér grein fyrir, hvort skuldirnar í hans valdatíð, þegar hann var fjmrh. og réð einn öllu, hafi vaxið um 400 millj. eða á sjöunda hundrað milljóna. Þarf frekar vitnanna við, að sá maður, sem lýsir sínu eigin verki þannig, hann er ekki fær um að standa í þeirri miklu stöðu að vera fjmrh. Íslands? Mörg hörð orð hef ég sagt um hann, eftir að við sjálfstæðismenn slepptum af honum handleiðslu og hann lenti út á villigötur. En aldrei hefði mér dottið í hug, að hann væri svo óviss um sitt eigið verk og hefði farið jafnmikið aftur frá því, sem ég þekkti hann, af því að vera í vondum félagsskap, að hann væri orðinn svo ruglaður sem þetta dæmi sannar.
Hv. þm. vildi vitna til þess, að það hefði verið einhver ódrengskapur af mér að halda því fram, að hann hefði rangtalið tekjuafgang ríkissjóðs í fjárlfrv. 1959 um 80 millj. (EystJ: Falsað tekjuáætlunina.) Já, falsað tekjuáætlunina. Ég vitna einungis til þess, sem við heyrðum hér í gær af munni hæstv. forsrh., til þeirra staðreynda, sem hann skýrði frá. Ég einungis vitna til þess og ég vitna til orða hæstv. fyrrv. samráðh. hv. 1. þm. S-M., sem sagði hér í áheyrn þingheims í gær, að oft hefði hann nú verið blekktur, en ekki tryði hann því, að hann hefði verið blekktur svo, að samþingismaður hans, fjmrh., hefði lumað á 80 millj. án þess að láta sig vita.
Ég játa það, að ég er ekki töluglöggur maður, og hæli mér ekki af því, en jafnvel ég í minni tölublindni sýnist hafa meiri skilning á þeim, en sjálfur reikningshaldari Framsfl., 1. þm. S-M.
Hv. 1. þm. S-M. talaði um, að það væri hart, að ekki mætti hafa greiðsluafgang á fjárl. Það má segja, að það sé hart að mega ekki hafa greiðsluafgang á fjárl. En sannleikurinn er sá, að ef ráðh. ár eftir ár áætlar tekjur svo vitlaust, að munar tugum og jafnvel hundruðum milljóna hvert ár, þá fer sú áætlunargerð að vera meira en hæpin og hún er stórhættuleg fyrir þingræðið, vegna þess að þetta hefur leitt til þess, að þessi hv. þm. hefur ekki aðeins talið sig hafa miklu rýmri heimild til þess að ráðstafa fé í svokallaðar umframgreiðslur, sem hann hefur sannast sagt mjög hallað í meðferð á og það segi ég af fullri þekkingu eftir nær níu ára samstarf við hann í ríkisstj., — hann hefur mjög hallað í þeirri meðferð, en til viðbótar því, þá hefur hann helzt viljað hafa þann hátt á að geta komið um áramót eða eftir áramót og hafa nokkra milljónatugi til ráðstöfunar utan við þingið og stjórnin kokkað það innan sinna híbýla, hvernig þessu fé ætti að verja. Með því er þó sagan ekki öll sögð, vegna þess að hann hefur hlustað á það ár eftir ár, þessi þingmaður, að hagfræðingar, — ég tek nú ekki undir það með hv. 3. þm. Reykv. (EOl) að kalla þá sótsvarta hagfræðinga, en hagfræðingar eru stundum dálítið saklausir og vara sig ekki á refjum sumra manna, þess vegna hafa sumir hagfræðingar fallið í þá gildru hvað eftir annað, að þeir hafa hælt hv. 1. þm. S-M. fyrir það, að hann hafi haldið svo einstaklega vel á að safna þessum tekjuafgangi, taka peningana úr umferð, leggja þá til hliðar og þar með koma í veg fyrir verðþensluna, verðbólguna. En það er einmitt það, sem hv. þm. hefur aldrei viljað fallast á. Hann hefur tekið peningana og ráðstafað þeim eftir á, til þess að auka verðþensluna til fjárfestingar. Það er alveg óneitanlegt, að meginhlutinn af þessu fé hefur farið til þarflegra hluta.
Þótt ég kalli hv. þm. óráðsíumann og óspilunarmann á fjármuni ríkissjóðs, þá dettur mér ekki í hug að halda, að hann stingi á sig einum einasta eyri, ég veit, að hann er grandvar maður og heiðarlegur í persónulegu lífi umfram alla aðra, ég er ekki að tala um það, en hann hefur með þessu ráðslagi í senn tekið fjárveitingavaldið af Alþingi í mjög ríkum mæli og beitt sér fyrir því, að peningunum hefur verið varið til fjárfestingar, nýtrar eða óhollrar, sem óhjákvæmilega hlaut að hafa þau verðbólguvaxandi áhrif, sem hagfræðingarnir hafa verið að vara við. Þetta vissi hv. þm. ósköp vel, en hann hefur tekið rólegur við lofi hagfræðinganna og Tímans og sakleysingjans hv. þm. Mýr. fyrir það tvennt, að hann væri að taka peningana úr umferð og svo aftur fyrir að setja þá í umferðina og verja þeim til þeirra hluta, sem Alþingi hafði ekki samþykkt við setningu fjárl. að peningunum skyldi varið til. (EystJ: Þetta er mjög lævíslegt.) Hvort sem það er lævíslegt eða lævíslegt ekki, þá er þetta sú hreina Eysteinska.
Þá taldi hv. þm. það mér mjög til fákænsku, að ég kynni ekki full skil á þessum 63 millj. kr., sem hv. 2. þm. S-M. gat um hér í gær að ríkisstj. hefði úthlutað — þó með meirihluta atkvgr. — á sínu banadægri eða svo til. Hv. þm. held ég hafi ekki sagt, hverjum þessir peningar áskotnuðust, en gat þess, að þeir hafi áskotnazt vegna bjargráðalöggjafarinnar í vor. Það var varlega kveðið að orði, eins og þessa þm. var von og vísa. En það er líka ákaflega einkennilega kveðið að orði í því, sem hv. 1. þm. S-M., þáverandi hæstv. fjmrh., sagði um þetta í fjárlagaræðu sinni í haust, með leyfi hæstv. forseta:
„Nú er þess á hinn bóginn að geta, að þegar nýju efnahagsráðstafanirnar voru gerðar s. l. vor, var ákveðið að greiða 55% yfirfærsluuppbót á mestallan gjaldeyri, sem inn kæmi og ekki ætti rétt til hærri uppbóta samkvæmt ákvæðum laganna. Þegar þessi nýju lög komu í gildi, var ekki búið að færa heim þetta erlenda lánsfé, þótt búið væri að lána út á það fyrir fram hér innanlands til þess að styðja þær stofnanir og framkvæmdir, sem ég nefndi. Þetta þýðir, að á þetta lánsfé koma yfirfærsluuppbætur á þessu ári. Það drýgist í meðförunum hér innanlands um 62 millj. kr.“
Og síðan segir hann, með leyfi hæstv. forseta:
„Augljóst er, að grípa verður til þessara rúmlega 60 millj. í því sambandi, sem hin erlendu lán drýgjast um vegna nýju laganna. Ekkert verður um það fullyrt, hvort hægt verður með því að leysa þessi mál til fulls eða ekki, þar sem ekki er hægt að segja í dag með neinni nákvæmni, hvað til muni þurfa.“
Þetta er nú mjög glögg grg. fyrir 63 millj. kr. tekjum, sem einhver hefur hlotið, að lánin hljóti að drýgjast hérna innanlands í meðförunum. Það er alveg víst, að dollararnir eru alveg þeir sömu, ekki breyttu þeir um verðmæti við það, þótt þessir herrar hér kæmu sér saman um að leggja á yfirfærslugjald og borga meira fyrir dollarann. Það má að vísu segja, að það komi fram í ræðunni, að þetta sé einungis hér innanlands. En hver verður eigandi þessa fjár? Hver verður eigandinn? Á hvern leggst kostnaðurinn við þá drýgingu, sem hér á sér stað? Og hver verður eigandinn að drýgindunum? Hæstv. fjmrh. lætur alveg vera að útskýra þetta í ræðu sinni. Ég vil fullyrða, að loðnari skýring á 63 millj. kr. eignaaukningu hafi aldrei heyrzt í sölum Alþingis.
En hver sem verður talinn eigandinn og það hefur hæstv. ráðh. ekki skýrt enn þá, þá er hitt alveg vist, að hæstv. ríkisstj. tók að sér að útbýta þessum smádrýgindum, 63 millj. kr., klofin, eftir að hún hafði ákveðið að segja af sér, án þess að láta Alþingi vita um það og ég vil fullyrða og endurtaka, að sú aðferð er stórvítaverð, og sú grg., sem hæstv. ráðh. gefur um það í þessari ræðu, er vægast sagt mjög villandi og ófullkomin.
En það er e. t. v. von í raun og veru, að hæstv. fyrrv. ráðherra sé dálítið montinn yfir þessu, að hann geti bara með því að snúa hattinum fengið 63 millj. þarna og 8o millj. á hinum staðnum. Núna er myndasaga í Morgunblaðinu af Münchausen barón og hans afrekum. Ég held ég verði næst að fá einhvern til þess að gera myndasögu af afrekum fjármálaráðherrans fyrrverandi og hvernig hann bjó til milljónir þarna og milljónir þarna, en skildi þó við ríkissjóðinn eftir eigin sögn þannig, að hann sagði, að það væru galtómir sjóðir og í þeirri hörmungu, að það væri fjöldi fólks, sem væri komið að því að missa íbúðir sínar, vegna þess að ekki hefði verið hægt að standa við gefin loforð. Þannig fór nú fyrir galdramanninum, þegar til átti að taka. Frammistaðan hjá honum reyndist ekki jafngóð og hjá Münchausen heitnum, enda sagði hann sjálfur í gær, að nú blasti við óbotnandi verðbólguhít. Þannig skilur hann við þjóðarhaginn. Hann var að vísu að hæla sér áðan af því, þegar hann var að svara hv. 3. þm. Reykv., forseta þessarar deildar, og sagði: „Ja, er það ekki undir minni fjármálastjórn, sem hér hefur verið hægt að viðhalda þjóðfélagi án atvinnuleysis? “ — Öðruvísi mér áður brá. Venjulega hefur þessi hv. þm., meðan hann var ráðherra, alls ekkert haft með efnahagsmálin að gera. Þá hélt hann, að hægt væri að stjórna fjármálunum, án þess að það kæmi efnahagsmálunum nokkurn skapaðan hlut við eða hefði nokkra þýðingu, aðeins ef hann gæti lagt eyri við eyri og búið út fallega reikninga, þegar það passaði og ljóta, þegar það passaði, þá væri allt í lagi.
Um álitið á samstarfsmönnum hans sást, þegar hann sagði, að hann skyldi nú koma þeim út úr holunum, áður en yfir lyki, þeir yrðu nú að koma út úr holunum. Hann veit, hvar hann hefur dvalizt með þeim, sá hái herra.
Ég skil það mætavel, að hv. þm. kemst ætíð bæði í nokkur vandræði og jafnvel bregður honum, sem verður nú annars ekki, vegna þess að hann er skapstillingarmaður og dagfarsprúður, þegar minnzt er á þátt hans í kauphækkuninni. Hann getur ekki borið á móti því, að meðan kaupbindingarlögin voru í gildi haustið 1956, þá átti hann þátt í því og ekki síztan, að starfsmenn Sambands ísl. samvinnufélaga fengu 8% kauphækkun. Og þar með var rofið það bann, sem menn höfðu haldið að væri á kauphækkunum og hrundið af stað þeirri kauphækkunaröldu, sem stóð alla tíð fyrrv. hæstv. ríkisstjórnar. Hv. 1. þm. S-M. segir, að þeir hafi bara fengið þetta til samræmis, starfsmenn S. Í. S. En hvenær hefur nokkur kauphækkun orðið, að þeir, sem hana fengu, segðu ekki, að þeir væru að fá hækkað kaup til samræmis? Nefni hv. þm. mér eitt einasta dæmi. Hann er ófeiminn að leggja spurningar fyrir aðra, en svari hann þessari spurningu. Það er óhagganlegt, að ef á að stöðva, þá verður að stöðva á ákveðnum tíma og eins og hlutirnir þá standa. Hv. þm. var sá fyrsti, sem braut þann varnarvegg, sem fyrrv. stjórn var að reyna að reisa og má segja að hafi verið hennar eina tilraun til þess að standa á móti verðbólguvextinum. Og það er vafalaust, að hv. þm. var sá, sem beitti sér fyrir að brjóta þann varnarvegg og þess vegna er enginn maður, ekki hér í þingsölunum og ekki á öllu Íslandi, sem er jafnsekur í þessum efnum og hv. 1. þm. S-M., sekur, ef við teljum það rangt að hækka kaupið, meðan ekki er geta til þess. Hinu er ég hissa á, að hv. 3. þm. Reykv., forseti deildarinnar, skuli ekki hafa gert þennan mesta kauphækkunarpostula Íslands að heiðursfélaga í kommúnistaflokknum, vegna þess að þá virðingu á hann sannarlega skilið. Hver veit nema hann lendi þar?
Þá fannst mér hann gera heldur lítið úr frægðarverki deildarstjórans, sem var sendur á bæjarstjórnarfundinn í haust til þess að krefjast þess, að umsvifalaust væri samið við Dagsbrúnarmenn um 12% grunnkaupshækkun. Þetta stendur ótvírætt í tillögunni, sem maðurinn flutti, að í meginatriðum átti að verða við kröfunni og semja tafarlaust. Hv. þm. lætur svo sem hann hafi viljað rétta hlut þeirra verst launuðu. En hverjir voru það, sem fengu fyrstu kauphækkunina eftir setningu bjargráðanna í vor? Hverjir voru það? Það voru iðnaðarmenn hér í Reykjavík, sem óneitanlega eru töluvert betur settir, en verkamenn. Og hvaða blað var það, sem sérstaklega mælti með þeirri kauphækkun? Það var einmitt Tíminn. Og dettur nokkrum í hug, að Tíminn hafi gert það án samþykkis þessa þáverandi hæstv. ráðherra? Og hverjir voru það, sem ekki aðeins beittu sér fyrir kauphækkun til sambandsmannanna á sínum tíma, hverjir voru það, sem gerðu mögulega kauphækkun til flugmanna, þegar þeir fengu sina hækkun, og ekki eru þeir þó launaðir á borð við verkamenn? Og hvernig var hægt að ætlast til þess, að aðrar stéttir gætu unað við óbreytt kjör, eftir að bæði sambandsmennirnir og flugmennirnir höfðu fyrir beina þátttöku og forustu fjármálaráðherrans fengið slíka kauphækkun sem þeir fengu? Ég vil ekki segja, að þetta hafi verið skemmdarstarfsemi. Ég held það hafi bara farið fyrir hv. þm., eins og hann segir núna sjálfur öðru hverju: Ég bara skil þetta ekki. — Hann bara skildi alls ekki, hvað var að gerast, og gerði þess vegna tóma vitleysu, aumingja maðurinn.
Hv. þm. spurði, hvaða fjárfestingu við sjálfstæðismenn teldum að mætti draga úr. Ég skal svara því með ákaflega einföldu dæmi, hvaða framkvæmdir ég tel að mættu fara hægara. Hver sá maður, sem fer út fyrir Reykjavík, — þarf raunar ekki að fara út fyrir Reykjavík til þess, — sér, að það er segin saga, að stærsta eða með stærstu húsunum, sem sjást á hverjum stað, eru þau hús, sem það fyrirtæki ræður yfir, sem hv. 1. þm. S-M. er varaformaður í. Ef menn koma í kauptún úti á landi, þá er yfirleitt ein höll og önnur smáhöll, þ. e. kaupfélagsbyggingin og kaupfélagsstjórabyggingin. (Gripið fram í.) Nei, nei, það á alls ekki að rífa þau. Ég held það ætti að láta alveg tilsvarandi fjárfestingarreglur gilda um byggingu þessara húsa og gilda hér í Reykjavík. Ég sé enga ástæðu, af hverju frekar má eða þarf að reisa verzlunarhús á þessum stöðum en hér í Reykjavík. Það er síður en svo, að ég telji eftir, að þessi hús séu byggð, en meðan staðið er á móti öðru, þá er eðlilegt, að þeir, sem verða fyrir barðinu á stjórnarvöldunum, ætlist til þess, að í þessu séu sömu lög látin gilda yfir alla landsmenn, en það vita allir og allra helzt 1. þm. S-M., að það hefur ekki verið gert í þessum efnum. Þarna er aðeins eitt dæmi.
Hv. þm. spurði nú ekki að því að þessu sinni, hvað við meintum með sparnaði. Það munar að vísu lítið um það, en ég hef sagt áður hér í þinginu, að það er ekki von, að hægt sé að koma við miklum sparnaði í ríkisrekstrinum, meðan höfuð ríkisins er jafnósparlega til haft og óhyggilega, eins og stjórnarráðið er nú og hefur verið á undanförnum árum. Reglan hefur verið sú, að ef vandræði hafa verið um, hvern átti að velja í skrifstofustjórastöðu, þá hefur bara tveimur verið veitt staðan í staðinn fyrir einn. Það er ósköp einföld regla. Ég ætlaði, þegar ég var menntmrh., að gera þá breytingu hjá mér að leggja niður svokallaða skrifstofustjórastöðu í menntmrn., sem hafði verið skipt út úr dómsmrn. fáum árum áður. Var þó í alla staði hyggilegra og betur með málin farið að láta þau vera í dómsmrn. Ég hreyfði þessu á ríkisstjórnarfundi. Fjmrh. setti blátt bann við því, að þetta væri gert, — blátt bann. Ég veit ekki, hvort maðurinn, sem gegndi stöðunni, var þá nýgenginn opinberlega í Framsfl. eða hvort hann gerði það rétt á eftir. Þetta er aðeins lítið dæmi. En fyrir þá menn, sem leyfa sér að fara þannig með hin æðstu völd, sem þeim hafa verið falin, þá er von, að skriffinnska aukist og embættisbákn endalaust í kringum þá. Og hvar sést annar eins hópur og í sjálfu fjmrn., sem hefur vaxið upp undir handarjaðri 1. þm. S-M.? Ég lagði til í fyrra, að Alþingi kæmi sér saman um að skipa 5 manna nefnd til þess að endurskoða löggjöfina um stjórnarráð. Hún er öll í brotum og þarf mjög endurskoðunar við og það hefur stórkostlega, bæði fjárhagslega, starfslega og ég vil segja siðferðilega þýðingu, að þessi löggjöf verði endurskoðuð og henni komið í heillegt form.
Hv. 1. þm. S-M., þáv. fjmrh., treysti sér ekki til að stöðva alveg þessa tillögu, en hann fékk henni breytt þannig, að það var ríkisstj., þ. e. a. s. hann sjálfur, sem átti að annast endurskoðunina. Það máttu ekki aðrir komast að og gá undir lokið, hvernig þar var ástatt. Ég veit ósköp vel, að hv. 1. þm. S-M. finnst þetta ósanngirni. Hann telur, að það sé rangsleitni af mér að vera að tala um þetta. En það verður að segja hlutina eins og þeir eru og hafa kjark til þess. Hv. þm. er búinn að vera svo lengi ráðherra og orðinn svo samdauna því andrúmslofti, sem hann hefur átt ríkan þátt í að skapa og hans samstarfsmenn, að þeir átta sig ekki á fýlunni, sem þaðan leggur. Og ef menn vilja koma á endurbótum, þá verður að hafa kjark til þess að byrja endurbæturnar ofan frá. En hv. þm. hefur vandlega gætt þess að hindra slíkt og legið á því eins og mara, að það væri gert.
Hv. þm. brá sér í það að fara að tala um kjördæmamálið og sagði, að það ætti að leggja öll kjördæmi niður nema eitt. Það er eins og sagt væri, að ef piltur og stúlka ætluðu að giftast og ganga í heilagt hjónaband, ætti að drepa þau bæði. Kjördæmin eru drepin, lögð niður, á nákvæmlega sama veg og piltur og stúlka, sem ganga í hjónaband. En ég spyr hv. 1, þm. S-M.: Hver er tillaga Framsóknar í kjördæmamálinu? Hann er að skamma okkur hina fyrir okkar tillögur, en hver er tillaga hans? Og hann átti ekki nógu sterk orð yfir það, að ég hefði talað um sérkreddu Framsfl. í kjördæmamálinu. Við hreyfðum því og ræddum um það við fulltrúa Framsóknar, þegar við vorum að athuga möguleika til þess að Sjálfstfl. myndaði stjórn, hvort hugsanlegt væri, að við gætum komið okkur saman um kjördæmamálið. Hverjar eru ykkar tillögur? spurðum við. Jú, þeir höfðu tillögur, jú, þeir höfðu hugsað málið og þeir vissu svona hér um bil, hvernig tillögurnar voru, voru búnir að ákveða þær. Vildu þeir þá ekki láta okkur fá þær skriflega? Nei, það er alveg ómögulegt, skriflega getið þið ekki fengið þær, sögðu þeir. Þær hafa ekki verið birtar enn í dag. Veit hv. þm., hvað Framsfl. vill í kjördæmamálinu? Hann vill aðeins eitt. Hann vill halda við ranglætinu og hann vill leita að öllum hugsanlegum leiðum til þess að halda ranglætinu við.
Hv. þm. hafði sig svo til þess að afneita þeim ágæta manni, Haraldi Guðmundssyni og sagði, að hann hefði alls ekki talað í sínu umboði, þegar hann gaf hina frægu yfirlýsingu fyrir hönd Hræðslubandalagsins. Meðferðin á Haraldi talar sínu máli og fjölyrði ég ekki frekar um hana. En svo sagði hann, að ég hefði haft mann á launum til þess að leita að því með logandi ljósi, hvort hann sjálfur, Eysteinn Jónsson, hefði lýst því yfir á prenti, að hann ætlaði ekki að vinna með kommúnistum. Hann veit nú svei mér vel um mína hagi og mín fjárráð, úr því að hann velt, hverjum ég borga fé í þessu skyni eða öðru. Við þurfum ekki að eyða orðum að því. En við skulum taka eftir því, hvernig hv. þm. orðaði yfirlýsingu sína. Hann neitaði því alls ekki, að hann hefði lýst þessu yfir. En hann bara sagði: Þið sjáið það hvergi á prenti. Já, það var nefnilega það. Hann þykist svo sem hafa haft vaðið fyrir neðan sig.
Þá býsnaðist hv. þm. mjög yfir því, að ég og við sjálfstæðismenn könnuðumst ekki við það, að við værum stjórnarflokkur og var með margar skýringar á því. Ja, það er nú bara ein skýring á því, og það er, að við erum það ekki. Hv. framsóknarmenn hlæja ákaflega mikið. Þeim finnst nefnilega svo skrýtið, að menn skuli ekki segja ósatt. Það er eitt af því, sem hv. 1. þm. S-M. getur ekki skilið, að maður skuli ekki segja ósatt.
Við höfum gefið Alþfl. yfirlýsingu um það, að við munum styðja hann með þeim hætti að verja hann vantrausti gegn tilteknum skilyrðum, sem hæstv. forsrh. tilkynnti alþjóð sama dag og stjórnin var mynduð. Þetta er allt það samband, sem er á milli þessara flokka. Hv. 1. þm. S-M, sagði, að við bærum vitanlega sömu ábyrgð á þessu frv. og ættum í því sama hlut og hæstv. ríkisstj. Ég bið hann nú bara um að spyrja nágranna sinn þarna, hæstv. menntmrh., að því, hvernig þessu sé varið. Það er alveg rétt, að við fengum frv., eins og hér hefur verið skýrt frá. Frv. hefur verið í samningu núna í nokkrar vikur og til undirbúnings hjá hæstv. ríkisstj. Við fengum það til yfirlestrar s. l. föstudag. Þetta vissi jafnvel hv. 7. þm. Reykv.(HV). Við höfðum rætt málið, alveg eins og ég veit að málið hefur verið rætt við hv. 1. þm. S-M. Svona er málið einfaldlega. Það getur skeð, að þetta þyki ósköp einfeldnislegt af okkur sjálfstæðismönnum, að tryggja okkur enga aðstöðu aðra í sambandi við þessa stjórnarmyndun og ætla okkur ekki slíkt húsbóndavald yfir Alþfl. eins og hv. 1. þm. S-M. ímyndaði sér að hann hefði. En þessi er bara munurinn á okkur. Við förum öðruvísi að, en hann. Þess vegna erum við líka allt að því þrisvar sinnum stærri flokkur, vegna þess að við erum öðruvísi, sem betur fer.
Þá fór hv. þm. að tala um lántöku og varnarmál. Já, á mörgu hefur hann nú lyst, en ég hélt þó, að allra sízt þessa dagana mundi hann fá sig til þess að fara að rifja þetta mál upp aftur. Ég hef sagt frá því, sem af alþjóð er vitað, að það var beinn þáttur í endurnýjun varnarsamninganna haustið 1956, að Ísland skyldi fá lántökur, eftir að þeir hefðu verið gerðir. Það er vafalaust rétt, sem hæstv. þáv. og núv. utanrrh, hefur sagt, að hann sjálfur stóð ekki í þeim samningum, en það voru bara aðrir samningar, sem áttu sér stað samtímis, og samningamenn vissu ósköp vel hver af öðrum. Þetta var staðfest í blaði stærsta stjórnarflokksins, sem sagði frá því alveg óhikað, að Sogsvirkjunarlánið hefði fengizt eftir og í sambandi við það, að varnarsamningarnir voru gerðir. Ég hef nú ekki allt of mikið álit á kommúnistum eða þeirra velsæmistilfinningu, en ég verð þó að segja það, að í þessu sambandi hafa þeir auðsjáanlega alveg staðið við gerða samninga. Það hefur verið sagt frá því í blaði hæstv. forsrh., stjórnarblaðinu, sem nú er, að ráðherrar kommúnista hafa á tveggja ára tímabili aldrei minnzt á það að reka varnarliðið burt.
Það var vitanlegt, að þeir vissu, að það var búið að semja um það og ganga frá því, að liðið ætti að vera hér. Meðan þeir voru í ríkisstj. hreyfðu þeir þess vegna málinu alls ekki, kom það ekki til hugar. Þeir vildu ekki ganga á gerða samninga. En strax og þeir eru farnir úr stjórn, — ja, þeir gerðu það nú kannske ekki alveg strax, en áður en liðinn er mánuður, flytja þeir allt í einu till., sem var útbýtt, hvort það var í morgun eða í gær, — með leyfi hæstv, forseta: Það er 181. mál, till. til þál. um endurskoðun og uppsögn varnarsamningsins frá 1951, flm.: Alfreð Gíslason, Björn Jónsson, Einar Olgeirsson, Finnbogi R, Valdimarsson, Gunnar Jóhannsson, Hannibal Valdimarsson, Karl Guðjónsson, Lúðvík Jósefsson. Þarna eru þeir komnir. Nú eru þeir lausir allra banda. Þeir eru farnir úr ríkisstj., eru ekki lengur skuldbundnir við loforðin, hvort sem þau voru formleg eða óformleg, sem fylgdu lánveitingunum, og þá flytja þeir strax till. Hvaða skýring er önnur til á því, að málið skuli hafa verið látið liggja þennan tíma? Við þurfum ekki heldur að fara neitt í grafgötur um þetta, það liggja fyrir alveg ótvíræð gögn um þetta.
Þegar lánið, sem veitt var um áramótin 1956 og 1957, var veitt, — það mun hafa verið 4 millj. dollara, — tilkynnti Bandaríkjastjórn það, sem ég nú skal lesa, með leyfi hæstv. forseta:
„Fé til dollaralánsins er fengið úr sérstökum sjóði, sem forseti Bandaríkjanna ræður yfir samkvæmt heimild Bandaríkjaþingsins og aðeins má nota til ráðstafana, sem forsetinn telur mikilvægar fyrir öryggi Bandaríkjanna.“
Þetta er opinber stjórnartilkynning, sem fyrir liggur. Svo kemur hv. 1. þm. S-M. hér og segir, að af því að kommúnistar hafi skrökvað því upp á mig, að ég hafi gert slíka samninga, — og hann játaði, að þeir hefðu skrökvað því, — þá megi ég ekki segja satt. Ég má ekki segja satt um þá samninga, sem hans eigin stjórn gerði, af því að aðrir skrökva. Þá á að hætta að segja sannleikann.
Þetta er ljót saga sannarlega, ljótasta sagan, sem skeð hefur í okkar tíð á Íslandi. Munurinn kemur einnig fram í því, að hv.
1. þm. S-M., sem leyfði sér að vera með brigzlyrði til mín, af því að ég sagði hér satt, veit ofur vel, að þær lántökur, sem fengnar voru, meðan ég var í ríkisstj., voru veittar fyrir milligöngu Alþjóðabankans og eftir að sérfræðingar hans höfðu komið hingað heim, en þær lántökur, sem hér um ræðir, eru veittar fyrir beina milligöngu ríkisstj. bandarísku og af hennar fé, eins og þessi tilkynning segir:
Hv. þm. segir svo: Af því að sjálfstæðismenn og ég höfum vítt þessar aðfarir, þá megum við ekki taka lán í Bandaríkjunum eða í Rússlandi né neins staðar annars staðar, nema lán fengist á tunglinu. — Hann hefur þá haft spurnir af því, að þar væri nú helzt peninga að leita, enda hefur hann víða þurft að þreifa fyrir sér. Ja, ég segi: Við höfum aldrei gefið slíkar upplýsingar um brottrekstur hersins og okkur hefur aldrei komið til hugar að tengja það mál við fjárútveganir á þann veg, sem gert hefur verið, aldrei. Sjálfsagt er hag Íslands komið þannig nú, að það er ekki margra kosta völ. Þannig hefur stjórnin verið hjá okkur og þannig er þessum herrum og ekki sízt hæstv. fyrrv. fjmrh. fyrir að þakka.
Hv. þm. spurði mig að því, hver þau eyðslulán væru, sem tekin hefðu verið. Það er auðvitað ætíð hægt að haga lántökum þannig að taka lán og kalla lánið til þarflegra hluta og til uppbyggingar og við vitum allir, að það er ákaflega mikil framþróun og uppbygging á Ísland, og sem betur fer tókst fyrrv. ríkisstj. ekki að stöðva hana. En það, sem gerzt hefur á síðustu áru, er, að nú hafa verið tekin lán erlendis til þeirra framkvæmda, sem menn áður höfðu innlent fjármagn til að byggja fyrir, margvísleg mannvirki. Þetta er meginmunurinn og þess vegna er það, að þótt hægt sé að sýna, að framkvæmdirnar hafi verið þarfar, þá er munurinn sá, að áður stóðum við sjálfir með eigin fé, — t. d. í stjórn Ólafs Thors, þá stóðu Íslendingar með eigin fé undir sambærilegum framkvæmdum og nú hafa verið tekin erlend lán fyrir. En fjárhagskerfi fyrrv. hæstv. ríkisstj. hvíldi á þeim grunni, að hún varð að fá lánin, ekki aðeins vegna hinnar ofboðslegu eyðslu innanlands og hallans á þjóðarbúinu, heldur varð hún að fá hinn erlenda gjaldeyri til þess að geta varið honum til að flytja inn vörur, sem kæmust í háa gjaldaflokka, til þess þannig að fá enn þá meiri eyðslueyri undir hendur. Við höfum heyrt hv. fyrr., fjmrh. hvað eftir annað sjálfan lýsa yfir því, að Íslendingar gætu ekki lengur vænzt þess að fá lán í jafnstórum mæli erlendis og þeir gerðu og ég hygg, að það hafi verið ráðunautur Alþýðusambandsins í fjármálaefnum, sem sagði í vetur, að nú væri lántökuleiðin að lokast vegna þess, hversu þar hefði langt verið haldið að undanförnu. En ástæðan til þess, að svona hefur farið, er m. a. sú, að á árunum 1953–56 var sparifjáraukningin í landinu 700 millj. kr. Það sést, hversu það er mikið fé, þegar borið er saman við, að öll efnahagsaðstoðin frá 1948–54 var aðeins 486 millj. kr. Eitt af því ískyggilegasta, sem gerðist í tíð fyrrv. stjórnar og hæstv. forsrh. drap á í sinni ágætu frumræðu um þetta mál, að nú væri beinn voði á að yrði enn þá örðugra, en nokkru sinni fyrr, það er minnkun á aukningu sparifjárinnlaganna. Aukningin hefur stórminnkað frá því, sem var á því árabili, sem ég lýsti og viðskilnaður hæstv. fyrrv. ríkisstj. er slíkur, að hæstv. núverandi forsrh. lýsir því, að ef svo verði fram haldið, séu horfur á því, að öll sparifjármyndun stöðvist og þar með möguleiki til þess að byggja upp framkvæmdir hér með eðlilegum hætti af innlendu lánsfé.
Hv. 1. þm. S-M. sagði, að eins og við sjálfstæðismenn hefðum talað, þá mundum við verða að ganga undir mörg jarðarmen, áður en eða þegar við kæmum til valda, svo margt sem við hefðum sagt. Það má vel vera. Margt verður að gera og enginn veit sína ævina, fyrr en öll er. En víst veit ég það, að aldrei þurfum við að ganga undir ömurlegra jarðarmen en Framsfl., þegar hann lýsir því nú yfir eftir það, sem á undan er gengið, að ekki sé hægt að stjórna þessu landi án Sjálfstfl. og að hann þori ekki að fara í kosningar nema hafa verið með okkur í samstjórn í eitt og hálft ár, áður en til kosninganna komi, til þess að við hjálpum til að þvo af þeim skammarbletti. Það er það ömurlegasta jarðarmen, sem nokkur stjórnmálaflokkur hefur þurft að ganga undir. En skilningur hv. þm. á þessu var að öðru leyti að nokkru réttur. Hann sagði, að við sjálfstæðismenn vildum fá kosningar sem fyrst af flokkshagsmunum. Hvað felst í þessu? Hann telur og veit, að fólkið í landinu fylgir nú Sjálfstfl. í miklu ríkara mæli, en nokkru sinni fyrr og það er vegna þess, að við treystum þessu, — og hv. þm. óttast það, — að við viljum fá kosningarnar sem fyrst, en hann vill fá þær sem seinast. En hvor okkar sem hefur rétt fyrir sér í áliti á dómgreind fólksins, — og erum við þó í raun og veru sammála, aldrei þessu vant, um það, að við hlökkum til kosninga, en þeir kvíða fyrir þeim, — þá er víst, að þannig hefur verið haldið á málum að undanförnu, að það er lýðræðisleg skylda, að kjósendur á Íslandi fái sem allra fyrst að kveða upp sinn dóm yfir því, sem gert hefur veri, og segja til, hvaða stefnu skuli halda í framtíðinni.
Hv. 7. þm. Reykv. (HV) talaði hér í dag, og eitt af því eftirtektarverðasta í hans ræðu var það, að hann sagði, að honum og hans flokksbræðrum þætti ekki verst við þessa löggjöf, sem hér er frv. um, að hún færi fram á kauplækkun, heldur væri það verst, að hér væri verið að skerða samningsréttinn og í fyrsta skipti væri það nú gert og því yrði að mótmæla.
1947 var flutt frv. af þáverandi ríkisstj., sem Alþfl. einnig hafði myndað, um lækkun vísitölu og bindingu með mjög svipuðum hætti og nú, á þann veg, að þáverandi forsrh., Stefán Jóh. Stefánsson, sagði að næmi 5% kauplækkun. Hæstv. þáverandi forsrh. lýsti þá einum aðalþætti laganna á þennan veg, með leyfi hæstv. forseta:
„Um fyrri kaflann er það að segja, að í 12. gr. er svo fyrir mælt, að þar sem miðað er við verðlagsvísitölu, þá má ekki miða við hærri vísitölu en 300, á meðan þessi lög eru í gildi. Þetta er hvort tveggja niðurskurður á vísitölunni og stöðvun hennar í vissu marki. Ég skal segja það hreint og ljóst, að þessi niðurskurður er ekki nema um 8% og eftir útreikningi hagstofunnar um það, hvað ætla mætti að þetta mundi nema miklu í lækkun launa, mætti ætla, að það yrði um 5%.“
Þetta er svo svipað ákvæði því, sem nú er sett í lög, að ætla má, að það sé í raun og veru alveg sniðið eftir því, sem þá var gert. Einn af þeim, sem greiddu atkv. um þetta, var maður að nafni Hannibal Valdimarsson, og hann gerði við nafnakall svo hljóðandi grein fyrir atkvæðinu, ef ég má lesa það upp, með leyfi hæstv. forseta:
„Með því að ég lít svo á, að í þessu frv. felist ákvæði, sem skapi aukið atvinnuöryggi, sem ég tel að veiti verkalýð landsins betri hagsbætur heldur en sem nemur þeirri kaupskerðingu, sem binding vísitölunnar leiðir af sér, þá greiði ég atkv. með þessu frv. Auk þess virði ég það við núverandi hæstv. ríkisstj., að hún hefur með því að bera þetta frv. fram sýnt viðleitni í að gera þó eitthvað í dýrtíðarmálunum, sem ég líka vænti að verði til góðs og hefur hún þá gert betur, heldur en tvær síðustu ríkisstjórnir á undan henni, sem gengið hafa alveg á snið við dýrtíðarmálið.“
Þetta sagði hv. þm. þá um skerðingu vísitölunnar og bindingu. Það má segja, alveg eins og hann sagði, að núverandi hæstv. ríkisstj. tekur við af ríkisstj., sem að vísu hefur ekki gengið alveg á snið við dýrtíðarmálið, en hefur gersamlega mistekizt allt, sem hún sagðist ætla að gera í málinu. En eins og ég gat um fyrr í máli mínu, þá var það í upphafi, þegar fyrrv. hæstv. ríkisstj. tók við völdum, að hún gerði tilraun til þess að setja hemil á. Ég veit ekki, hvort menn muna, hvað þau lög hétu, en þau voru gefin út 28. ágúst 1956, og það voru brbl. um festingu verðlags og kaupgjalds. Það var festing kaupgjalds. Og í innganginum segir:
„Forseti Íslands gerir kunnugt: Félagsmálaráðherra hefur tjáð mér, að vegna atvinnuöryggis í landinu beri nauðsyn til að koma í veg fyrir áframhaldandi hækkun verðlags og kaupgjalds, á meðan athugun fer fram á varanlegri lausn efnahagsmálanna.“
Hver haldið þið að hafi skrifað undir þetta frv. með herra forseta Íslands, en frv. fór fram á það að svipta launþega 6 vísitölustigum, sem þeir áttu að fá greidd 1. sept. næstan á eftir þessum 28. ágúst? Hver haldið þið, að hafi skrifað undir? Jú, það er líka maður, sem heitir Hannibal Valdimarsson, sem segir svo hér í dag, að það sé í fyrsta skipti í sögunni, að Alþ. ætli að setja slíka löggjöf eins og þessa. Guð gefur embættismanninum vitið, segir danskurinn og ég vonast til þess, að það hafi reynzt svo með þennan hv. þm., meðan hann var ráðherra. En það er alveg ljóst, að guð hefur ekki gefið honum minnið.
Þá talaði hv. þm. mikið um samráð við verkalýðsstéttirnar og verkamennina og Alþýðusambandið og að ekkert væri hægt að gera án samráðs við þá góðu stofnun. En hvernig hefur því samráði verið háttað í framkvæmd? Kallaði hv. þm., áður en hann gaf út þessi brbl., sem ég gat um áðan, — kallaði hann þá Alþýðusambandsþing saman og bar undir það setningu þessara laga? Kallaði hann saman fund í einu einasta verkalýðsfélagi til þess að fá skoðun þess á málinu? Nei, síður en svo. Það, sem hann gerði, var, að hann hóaði saman á leynifund nokkrum mönnum og fékk þá til þess að samþ. þetta og með þeirri skýringu, að ef dýrtíðarskrúfan gengi sinn gang, — hann lýsir því í bréfi, sem hann skrifar 17. sept. á vegum Alþýðusambandsins, að það, sem hann hafi komið í veg fyrir, væri fyrst 6 stiga kauphækkun 1. sept., síðan 11.8% verðhækkun landbúnaðarvara um miðjan september og margs konar aðrar hækkanir á vörum og þjónustu og svo nokkurra stiga hækkun aftur á kaupi 1. des. og þannig koll af kolli, sífelldar hækkanir á víxl fram á næsta ár. Að þetta hafi verið afleiðingin, taldi hann þá nóga ástæðu til þess að bera málið ekki undir Alþýðusambandsþing eða eitt einasta verkalýðsfélag í landinu, vegna þeirrar ógnar, sem stafaði af því, ef verðbólguskrúfan væri látin halda áfram að ganga. En hvað hefur breytzt? Að hverju leyti er aðstaðan nú varðandi þetta önnur, en hún var 1956? Hv. 3. þm. Reykv. (EOl) sagði, að það hefði verið allt í lagi með að gera þetta 1956. En hver er munurinn? Skyldi munurinn ekki vera sá einn, að þeim hafi verið sett það skilyrði til þess að fá að koma í stjórnina í fyrstu, að þeir yrðu þó að sýna einhvern lít á því að gera eitthvað raunhæft í málunum, en síðan hafi þeir horfið frá því, þegar þeir voru búnir að búa betur um sig? En annars höfum við allir heyrt og vitum, að málflutningur þessara manna hnígur allur að því, að þeir telja sjálfum sér leyfilegt að gera það, sem þeir telja níðingshátt og ofbeldi, ef aðrir gera.
En ég spyr: Í hverra umboði tala þessir menn? Er það lítill hópur manna, sem á að ráða, eða er það íslenzka þjóðin, sem á að ráða sínum málum? Hér sitja kjörnir fulltrúar Íslendinga á Alþ. og þeir eiga að hafa æðsta vald og þeim ber skylda til þess að fara með hið æðsta vald og forða þjóðinni frá voða, þegar hann blasir við og miklu frekar ber þeim skylda til þess að fara með þetta æðsta vald, þegar sýnt er, eins og fyrrv. hæstv. ríkisstj, sýndi fyllilega í sínum athöfnum, að talið um samráð við verkalýðinn var blekking frá upphafi til enda.
Hæstv. menntmrh. skýrði frá því í dag, að tillögur Framsfl, í dýrtíðarmálum hefðu verið lagðar fram á stjórnarfundi, ég hygg 17. nóv., og tillögur Alþb., sem hann svo nefndi, fyrir mánaðamótin. Ef þetta er rétt, þá lágu tillögur beggja þessara flokka fyrir í ríkisstj., áður en Alþýðusambandsþingið kom saman í vetur eða a. m. k. áður, en því sleit. Ef ætlunin var í alvöru að hafa samráð við Alþýðusambandsþingið, af hverju voru þá ekki þessar tillögur lagðar fyrir Alþýðusambandsfulltrúana og ræddar við þá og þeim skýrt frá þeim a. m. k., — þær skýrðar út fyrir þeim og þeirra álit heyrt? Af hverju fór hæstv. fyrrv. forsrh. inn á fund Alþýðusambandsþings og bað um frest, en lagði ekki fram fyrir þá stofnun, sem hann myndaði sína stjórn til að hafa samstarf við, þær tillögur, sem hann var búinn að leggja fram í ríkisstj.? Það var vegna þess, að það átti að leyna fólkið, hvað gera skyldi. Það átti að fá þessa samkundu til þess að samþykkja opið umboð, einskisvert orðagjálfur, til þess að þessir herrar gætu síðan haldið áfram að fara með völdin og beita þeim og misbeita þeim á þann veg, sem þeir hafa gert. Þessir menn hafa með sínum stjórnarháttum óvirt Alþ. og óvirt lýðræði á Íslandi, en engan hafa þeir þó frekar óvirt heldur en Alþýðusambandið, sem þeir sögðust ætla að fara að vinna með, með þeim skollaleik, sem þar var leikinn í vetur.
Hv. 3. þm. Reykv. hélt hér ýtarlega ræðu, sem ástæða væri til að spjalla við hann um hér á þingfundi í góðu tómi. Fyrri hluti ræðunnar var nánast eins og þar væri kominn kapítalisti frá Bandaríkjunum. Það var eins og Mikojan hefði sent einhvern af sínum fylgdarsveinum og sagt hv. 3. þm. Reykv., hvað auðjöfrarnir í Chicago og Detroit og hvar þeir nú allir eru, hvað þeir segðu um það, hvernig ætti að stjórna málunum, og við ættum nú af þeim að læra. Margt af því, sem hv. þm. sagði af þessum lærdómi, er gott. Það er t. d. alveg rétt, að núverandi fjárhagskerfi riðar til falls, m. a. af því, að öll hemla er úr því. Þetta er alveg rétt, að jafnóðum er verðhækkunum, kauphækkunum, öllum auknum tilkostnaði velt yfir á einhvern annan en þann, sem tekur hann á sig. Þetta er alveg rétt.
Hv. þm. segir: Af hverju eru ekki atvinnurekendur látnir bera kostnaðinn við hækkað kaup? Það er ósköp einfalt dæmi, að þetta er ekki hægt að gera, þegar verðlagsákvarðanir eru teknar með þeim hætti, sem hér er og reiknaður út tilkostnaður á þann veg, sem gert er. Atvinnurekendurnir geta nú ýmist með hækkuðu verðlagi á sinni vöru eða bara með auknum kröfum á ríkissjóð velt öllum tilkostnaði, sem þeir taka á sig, yfir á almenning aftur. Þess vegna er þetta tal um það, sem hv. þm. byggði ræðu sína annars á: við skulum taka af þeim ríku, við skulum hreinsa til, áður en við tökum af almenningi, — allt þetta tal er út í bláinn, vegna þess að hv. þm. veit, að allur almenningur verður héðan í frá eins og hingað til að borga þennan brúsa og það er fyrst og fremst það fjárhagskerfi, sem hér hefur þróazt á síðustu árum, sem gerir þessa svikamyllu svo hættulega sem hún er, og einmitt af þeim sökum leggjum við sjálfstæðismenn megináherzlu á, að við verðum að forða okkur út úr þessu kerfi, — þó að það baki einhverja örðugleika og það sé ekki auðfarin leið, þá tjái ekki að halda þeim leik áfram, sem nú er leikinn í íslenzku þjóðlífi, að atvinnurekendunum stendur í raun og veru á sama, hvaða kaup þeir borga, vegna þess að þeir gefa ávísun jafnóðum á einhvern annan. Það verður að koma jafnvægi á efnahagslífið, m. a. einu gengi, sem geri það að verkum, að atvinnurekandinn beri sjálfur ábyrgð á sínum atvinnurekstri, en ekki Alþ. og þar með almenningur verði að borga kostnaðinn, þó að venjulega sé kostnaðurinn reiknaður með þeim hætti, að passað sé, að jafnvel sá óhæfasti fari ekki á hausinn.
Við vitum sjálfir, að það er töluvert til í því, sem hv. 3. þm. Reykv. sagði í dag, að það er von, að menn verði leiðir á að tala um þessa styrki og uppbætur og að allt sé að fara á hausinn. Það er von, að menn verði leiðir á því að vissu leyti. En hugsum okkur það kerfi, sem er búið að sannfæra nær allan almenning um, að sjávarútvegurinn sé á ríkisframfæri; — við, sem í raun og veru erum öll á sjávarútvegsins framfæri, ef satt skal segja. Hér hefur átt sér stað sá öfugsnúningur, sem verður einhvern veginn að sleppa frá.
Ég játa það og segi það hreinlega: Við eigum allir, sem hér erum inni, meiri og minni sök á þessu, þó að sök okkar á ýmsu öðru sé mjög misskipt, en á þessu eigum við allir mikla sök. En það er alveg nauðsynlegt, að þjóðinni séu gerðir ljósir annmarkarnir, sem þessu fylgja, og það sé hreinskilnislega komið til hennar og sagt: Viltu leggja það á þig, sem þarf til þess að komast út úr þessari svikamyllu, til þess að fá heilbrigt efnahagslíf, þannig að það geti lifað, sem á að lifa, en ekki það, sem einhverjum ráðherra, — hvort sem það er hæstv. sjútvmrh. fyrrv., hæstv. fjmrh. fyrrv. eða dómsmrh., — þóknast að ákveða. Fólkið á sjálft að fá að ráða sínum ráðum, en ekki að þurfa að koma sníkjandi til okkar um það, sem það sjálft verður að gera og verður að vera óheft af okkur til að gera, ef þetta þjóðlíf á að geta blessazt og blómgazt, eins og við allir óskum í okkar hjarta.
Hv. þm. ræddi svo um það, að varhugavert væri fyrir Alþ. að taka ákvarðanir, sem væru verkalýðnum andstæðar. Það hefði ekki blessazt og mundi ekki blessast. Ég játa það, að ég tel, að þvingunarlög eigi ekki að setja fram í þessum efnum frekar en öðrum fyrr en í síðustu lög. Við sjálfstæðismenn reyndum að mynda okkar stjórn á þeim grundvelli að fá stéttirnar með frjálsu samkomulagi og þeirra forustumenn til að fallast á þær eftirgjafir, sem við töldum nauðsynlegar. Hin pólitíska forusta fékkst ekki sameinuð um það, og þar með var það mál vonlaust. En eins og ég segi, þá verður æðsta valdið á Íslandi að vera innan sala Alþingis, hjá kjósendum við alþingiskosningar, forseta Íslands, ríkisstj. og hvergi annars staðar. Ef við ætlum að fara að stjórna með það fyrir augum, að einhver annar, hver sem það er, geti sett þjóðinni stólinn fyrir dyrnar, svo að löglegir valdhafar verði að hverfa frá því, sem þeir telja nauðsynlegt og óhjákvæmilegt, er þetta þjóðfélag á glötunarbarmi. Þá blessast Ísland ekki til lengdar. Og það er vist, að ég tala þar ekki fyrir hönd Sjálfstfl. eins, ég tala áreiðanlega fyrir hönd fleiri þm., manna, sem eru mér ósammála um margt, og ég tala fyrir hönd yfirgnæfandi meiri hluta Íslendinga í öllum flokkum, þegar ég segi, að það er jafnfráleitt að lýsa því yfir, að maður vilji aldrei vinna með einhverjum, eins og það er fráleitt af nokkrum að ætla að ryðjast til valda á Íslandi með því að beita Alþingi Íslendinga hótunum. Ef þeirri aðferð á að beita, er svarið ekki nema eitt, að það verður að gerast, sem rétt er, fari síðan að guðs vilja, hvernig fer, — en það verður ekki gefizt upp við fyrstu atrennu, heldur haldið áfram, þangað til þjóðarinnar vilji fær að ráða.