11.03.1959
Sameinað þing: 32. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í D-deild Alþingistíðinda. (1987)

113. mál, mannúðar- og vísindastarfsemi

Flm. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég hef ásamt hv. 2. þm. Reykv. leyft mér að flytja till. til þál., sem prentuð er á þskj. 272. Hún er þess efnis, að Alþingi álykti að fela ríkisstj. að athuga, hvort unnt sé að auka fjárhagsstuðning við mannúðar- og vísindastarfsemi á Íslandi með því að gera framlög fólks til þeirra mála frádráttarhæf við álagningu tekjuskatts og útsvars.

Á tveimur síðustu þingum höfum við flutt frumvörp um þetta efni, þar sem vitanlega hefur verið kveðið nánar á um, hvernig þessu skyldi vera hagað, og var þá tekið fram, að þessa stuðnings mættu njóta kirkjur svo og félög eða stofnanir, sem vinna að vísindum, menningar- og mannúðarmálum, ef upphæð sú, sem gefin er, fer ekki fram úr 15% af nettótekjum gefanda. Jafnframt var bent á, að skattyfirvöldum þyrftu að hafa borizt tilkynningar um þessar gjafir frá aðilunum, sem gjafirnar hefðu þegið.

Ákvæðið um það, hve stór hluti tekna mætti verða skattfrjáls eða frádráttarhæfur vegna þessarar ráðstöfunar, hefði e.t.v. getað verið með örlítið öðrum hætti, sem við flytjendur frv. hefðum eins getað fallizt á. Ekki eru þarna heldur nákvæmlega tilgreindir þeir aðilar, sem njóta mættu þessa stuðnings. Það yrði að sjálfsögðu reglugerðarákvæði í hvert skipti, enda geta þarfirnar verið mismunandi frá ári til árs, og nýjar stofnanir kunna að rísa, sem stuðnings þyrftu að verða aðnjótandi á þennan hátt, og þess vegna er ógerningur að taka það nákvæmlega fram í lagafrv. Þessi frumvörp náðu í hvorugt skiptið fram að ganga. Ég vil ekki trúa því, að það hafi verið beinlínis vegna þess, að hv. þm. væru mótfallnir hugmyndinni, sem fram kom í þeim. Líklegra er, að sú andstaða hafi fremur varðað smærra atriði, sem um var að ræða í frumvörpunum og við, sem frv. fluttum, gátum alveg fallizt á að væri hnikað til, á einhvern hátt.

Þegar um svona frv. varðandi frádrátt frá skatti er að ræða, koma að sjálfsögðu til greina ýmis tæknileg atriði, sem einstökum þm. er ekki eins auðvelt að fá upplýsingar um og gera sér grein fyrir og kannske þeim, sem standa í nánara sambandi við þá aðila, sem þarna ráða málum. Þess vegna er það, að nú höfum við flutt þáltill. um, að þetta verði gaumgæfilega athugað, að hve miklu leyti væri hægt að fara þessa leið. Það er ekki aðalatriði frá okkar sjónarmiði séð, nákvæmlega hvaða prósenttala er tilbúin eða nákvæmlega hvaða stofnanir, heldur hitt, að þessi heimild sé til í íslenzkum skattalögum, vegna þess að við erum eindregið á því, að heimild sem þessi mundi reynast mjög happasæl fyrir rekstur ýmissa þeirra stofnana, sem átt er við í þessu frv., hér á Íslandi. Það er kunnara, en frá þurfi að segja, að hér er um aðila að ræða, sem alltaf eiga í meiri eða minni fjárþröng. Við könnumst öll við óvinsæla og erfiða merkjasölu á sunnudögum, happdrættismiðasölu og ýmislegt slíkt, sem auðvitað mundi engan veginn útilokast með slíkri heimild í lögum, en öll fjáröflun þessara aðila yrði mun auðveldari.

Þess má geta, að við minnumst hér í þessari þáltill. aðeins á stuðning við mannúðar- og vísindastarfsemi vegna þess, að við töldum, að þar væri fjárskorturinn eiginlega sárastur í okkar landi. En að sjálfsögðu eru ýmsir fleiri aðilar, sem mjög kæmi til greina að veita stuðning á þennan hátt, og dettur mér þá einna helzt í hug, að núna nýlega var lagt fram frv. hér um listasafn ríkisins og fjár átti að afla til þess með því að leggja til listaverkakaupa 600 þús. kr. úr menningarsjóði. Þarna held ég að væri t.d. einn aðili, sem mjög væri æskilegt að gæti notið stuðnings á þennan hátt, og mætti vel ætla, að þetta hefði nokkur áhrif í þá átt að auka frjáls framlög fólks við slíka listastarfsemi. Enn fremur má benda á annað mál, svipað kannske, sem var á ferðinni hér í hittiðfyrra. Það var um vísindasjóð. Þar átti einnig að taka mörg hundruð þús. kr. úr menningarsjóði. Að vísu var þarna um lágmarksupphæðir að ræða, en einmitt við svona aðila væri það mjög hagstæður stuðningur, ef á einhvern hátt væri ýtt undir áhuga fólks til að styðja þá með fjárframlögum á þann hátt, að skattgreiðendur þyrftu þá ekki að greiða ríkinu líka gjöld af þeirri sömu upphæð sem þeir þegar hefðu vaxið til þessara mála, sem ríkinu væri annars skylt eða rétt að styðja.

Við teljum, að aðalatriðið sé, að það sé gaumgæfilega athugað, á hvern hátt sé hægt að koma þessu á hér á landi, og viljum eindregið vænta þess, að hv. alþm. sjái sér fært að styðja það, að Alþingi álykti að felst ríkisstj. að athuga, að hve miklu leyti sé hægt að fara þessa leið hér á landi. Þessi leið er víða farin í öðrum löndum og ýmsar stofnanir beinlínis grundvallaðar á framlögum, sem hafa fengizt á þennan hátt. Í Bandaríkjunum t.d. er mönnum heimilt að ráðstafa 20% af brúttótekjum sínum. Í frumvörpum okkar í fyrra var aðeins talað um 15% af nettótekjum, svo að ekki er hægt að segja, að við höfum verið mjög stórtæk. En sem sagt í Bandaríkjunum þykir þetta gefast mjög vel. Það er að vísu eðlilegt. Þar er um miklu ríkara land að ræða. En samt held ég, að það sé alveg áreiðanlegt, að hér á íslandi, þar sem ýmsar framkvæmdir af þessu tagi eiga mjög langt í land með að geta fullkomlega gegnt hlutverki sínu, væri þessi heimild mjög þörf.

Það skaðar kannske ekki að geta þess svona í lokin, að við bindum enn fremur nokkrar vonir við, að það geti eitthvað komið út úr þessari athugun, þegar þess er gætt, að þótt við tilheyrum ekki stjórnarflokki, þá held ég sé alveg óhætt að segja, að þeirri hæstv. ríkisstj., sem nú situr, sé heldur betur treystandi til að koma slíku skattamáli í sæmilegt horf en þeirri, sem sat síðastliðin þing.

Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að þessu máli verði vísað til hv. fjvn. og umr. verði frestað.