23.01.1959
Neðri deild: 61. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í B-deild Alþingistíðinda. (200)

87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.

Eysteinn Jónsson:

Það verður aðeins athugasemd. Ég mun þar af leiðandi ekki minnast á margt af því, sem ástæða væri til þess að taka fram, sumpart út af því, sem hv. 1. þm. Reykv. (BBen) tók fram í kvöld. En það verður líka tækifæri til þess að minnast á það síðar. Ég ætla aðeins að minnast á tvö atriði.

Ég spurði hv. 1. þm. Reykv. um sparnaðinn, hverjar uppástungur Sjálfstfl. væru í þeim efnum. Hann svaraði því nú í raun og veru engu, en sagðist út af því vilja minnast á eitt dæmi um sparnað, sem hann hefði viljað koma fram. Hann segist hafa flutt till. um að hafa einn ráðuneytisstjóra fyrir menntmrn. og dómsmrn., en ég hafi ekki mátt heyra þetta nefnt.

Mig rekur nú ekki minni til þessarar viðureignar. En ég vil alls ekki segja, að hv. þm. segi þetta ósatt fyrir því, því að það skeður svo margt, sem fellur í gleymsku og þess vegna vil ég ekki fara út í pex um það. En ég vil bara í sambandi við þetta benda á þetta dæmi, eins og hv. 1. þm. Reykv. leggur það fyrir. Þá er það svona: Hann, þessi mikli áhugamaður um sparnað, leggur fram í ríkisstj. eða segist minnast á það í ríkisstj. að sameina þarna tvö ráðuneyti undir einn ráðuneytisstjóra. Einn af ráðh., segir hann, mótmælir þessu eða er á annarri skoðun, og hvað gerir þá þessi mikla sparnaðarhetja? Hún lekur niður. Hún hættir við þessa fyrirætlun, og samt sem áður er þetta algerlega á valdi þessa ráðh. og kemur fjmrh. í raun og veru ekkert við og hann hefur enga möguleika til þess að stöðva þetta. Hvers vegna gerði hv. þm. ekki þetta, fyrst hann áleit það rétt? Hvers vegna lak hann niður, þó að einhver hefði aðra skoðun, þegar þetta var á hans valdi ?

Ég vil svo nefna dæmi um það, að hv. þm., þessi mikli áhugamaður, var ekki að setja fyrir sig, þó að einhver ágreiningur væri, þegar um það var að ræða að fjölga embættum. Ég vil í því sambandi minna á, að lengi vel var útgerðarstjórn strandferðaskipa og varðskipa saman og þetta sparaði tvímælalaust mikið mannahald. Hv. þm. sleit þetta í sundur og það kostaði ekki eitt embætti, heldur mörg. Ég var á móti þessu, en hann gerði það samt. Hann þurfti sem sé ekki mitt samþykki til þess að fjölga embættum, en hann segist sjálfur hafa lekið niður á því að sameina embætti, af því að ég hafi andæft í ríkisstj, eitthvað þar á móti. Trúi hver, sem trúa vill, sem þekkir þennan hv. þm., að hann hafi sett það fyrir sig, þó að ég hafi eitthvað verið að kvaka um það, að mér væri þetta ekki alveg að skapi.

Nei, svona sögur hafa satt að segja ekki mikið gildi nema þá til skemmtunar.

Það er svo þar fyrir utan og getur verið ástæða til að minnast á það síðar, að það var ekki aðeins í þessu tilliti, sem ég var að nefna áðan, sem þessi hv. þm. stóð fyrir embættafjölgunum, því að sannleikurinn er sá, að hann mun hafa staðið fyrir meiri útþenslu á ríkiskerfinu tiltölulega miðað við tímalengd, en nokkur annar ráðh., sem ég þekki til. Í lögum voru ákvæði um, að gera mætti það að skilyrði, að embættafjölganir skyldu bornar undir fjmrn., og þessi hv. þm. hafði þetta ákvæði að engu og fjölgaði starfsmönnum eins og honum sýndist. Það var bara þegar hann ætlaði að fara að sameina störf, að þá þurfti hann að fá samþykki hjá Eysteini og ómögulegt að gera það, af því að Eysteinn var á móti. Það var ekki hægt, það varð að hætta við það. Sér nú ekki hv. þm., hvað hann gerir sig lítinn með því að vera að halda þessu fram? Ég held, að hann hljóti að sjá það.

Þá var annað atriði og svo mun ég ekki nefna fleiri, því að ég vil ekki þreyta þolinmæði manna né hæstv. forseta. Mikið er eftir að ræða um þessi mál í vetur vafalaust. En það er út af lántökunum. Þessi hv. þm. sagði, svo að ekkert var um að villast, að það hefði verið samið um framhaldandi dvöl varnarliðsins, og sagði m. a.: Beinn þáttur í endurnýjun varnarsamningsins var, að Ísland fengi lánið. — Og sönnunin. Jú, hún er, að í einhverri fréttatilkynningu úti í Bandaríkjunum sé það tekið fram, að féð í lánið sé tekið úr sérstökum sjóðum eða sjóði, sem eigi að vera til að stuðla að öryggi Bandaríkjanna. Hv. þm. veit ákaflega vel, að þessi er formúlan fyrir öllu því fé, sem Bandaríkin láta af hendi rakna yfir höfuð til annarra landa í einu og öðru formi til stuðnings við þeirra efnahagsstarfsemi. Og svo kemur þessi hv. þm. hér og segir: Þarna hafið þið sönnunina. Þetta var verzlun. — Og svo bætir hann við, að þetta sé staðfest, segir hann, í blaði stærsta stjórnarflokksins, Þjóðviljanum. Það var líka staðfest í Þjóðviljanum, að þessi hv. þm., einmitt þessi hv. þm., hefði verzlað við Bandaríkjamenn með veru varnarliðsins og Marshall-hjálpina. Það var líka staðfest í þessu sama blaði. Þetta er nú málflutningur.

Ég mun ekki minnast á fleiri atriði, sem þó gæti verið ástæða til og læt þetta nægja.