27.01.1959
Neðri deild: 63. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í B-deild Alþingistíðinda. (205)

87. mál, niðurfærsla verðlags og launa o. fl.

Björn Ólafsson:

Herra forseti. Ég var á mælendaskrá við 1. umr. málsins, en var forfallaður sökum lasleika og tek þess vegna til máls við þessa umr.

Ég vil taka það fram strax, að ég fylgi þessu frv. vegna þess, að ég tel það vera nauðsynlegt spor í rétta átt. Með því er að vísu aðeins tekinn til úrlausnar einn þáttur dýrtíðarmálanna og verður því að líta á þetta frv. sem fyrsta skrefið til þess að leysa þau vandamál, enda munu flestir gera sér grein fyrir því. Ég mun ekki ræða einstök atriði frv., enda liggur það nokkuð ljóst fyrir, en ég ætla í þess stað að ræða nokkuð um dýrtíðarmálin á víðari grundvelli, þar sem meginþættir þessa máls eru óleystir, þó að þetta frv. verði samþ. Ég ætla ekki að blanda mér í deilur milli flokka, sem fóru fram við 1. umr. málsins, um það, hvaða flokkur eða hvaða flokkar ættu sök á þeim margháttuðu orsökum, sem hafa magnað óvætt verðbólgunnar. Að sjálfsögðu er nauðsynlegt að geta lært af þeim mistökum og óskynsamlegum ráðstöfunum, sem aukið hafa verðbólguna og gert hana að hættulegu fyrirbrigði í þjóðlífinu. En hitt skiptir ekki meginmáli, hverja við getum ásakað, heldur staðreyndin, sem við stöndum frammi fyrir, sú óhugnanlega staðreynd, að allt efnahagslíf þjóðarinnar getur hrunið í rúst, ef ekki eru nú gerðar ráðstafanir, sem geta hindrað þann ófarnað. Öngþveiti lítillar þjóðar brennur engum á baki nema henni sjálfri og þess vegna þarf hún ekki að vænta þess, að lausnin á erfiðleikunum komi utan frá. Nei, lausnin verður að koma innan að, frá henni sjálfri. Hún verður að bjarga sér sjálf, hún verður að bera sína eigin byrði og hún verður að fórna, ef fórnar er þörf. En umfram allt verður hún að gera sér grein fyrir því, hvar skórinn kreppir og hverra aðgerða er þörf. Hún verður að horfa gegn staðreyndunum og gera sér ljóst, hvar hún stendur, hvernig hún stendur og hvernig á því stendur, að hún getur nú ekki lengur flotið undan straumi án þess að eiga það á hættu, að skip hennar brotni í spón.

Ég hef ætið verið þeirrar skoðunar, að fyrst og fremst eigi að segja þjóðinni umbúðalaust, hvað að gangi, þegar af henni er ætlazt, að hún taki með skilningi og stillingu þungbærum ráðstöfunum, sem gerðar eru af illri nauðsyn.

Ég veit, að margir líta á þetta sem litla stjórnvizku og telja hitt farsælla, að sýna ekki þjóðinni framan í hætturnar og óþægindin, eins og þau eru í raun og veru og nefna þess vegna ekki alltaf hlutina með sínu rétta nafni. Af því leiðir að sjálfsögðu oft, að ekki er skorið fyrir meinið eins og þyrfti að gera af ótta við stundaróvinsældir, sem sársaukinn af aðgerðunum kann að hafa í för með sér.

Um þetta geta menn deilt. En í mínum huga eru engar efasemdir um það, að skemmsta leiðin að markinu er sú að segja þjóðinni sannleikann hispurslaust. Ég trúi því, að enginn flokkur muni til lengdar tapa á því að segja fólkinu það sanna og rétta í hverju máli, sérstaklega þar sem dómgreind og raunsæi almennings er á jafnháu stigi og hér á landi. En eina hættan, sem mér finnst á því, að dómgreind og raunsæi almennings fái að njóta sín, er sú stéttarsefjun, sem nú er róið undir hér á landi og kemur fram í því, að áróðursmenn stéttanna, hverrar um sig, hvetja þær til þess að heimta til sín gæði sér til handa án tillits til þess, hvaða áhrif það hefur á hag og afkomu þjóðarheildarinnar.

Engin stétt getur lifað út af fyrir sig eða starfað án annarra, ekki frekar, en hjól í stórri vél, þar sem öll hjólin verða að snúast, til þess að hún geti gengið. Stéttir þjóðfélagsins verða fyrst og fremst að gera sér grein fyrir og viðurkenna þessa einföldu staðreynd, ef skipulag þjóðfélagsins á ekki að liðast í sundur af deilum og sérhyggju.

Undanfarið hefur það verið að smáskýrast í hugum manna vegna þeirra erfiðleika, sem nú hefur að höndum borið, af hvaða rótum þeir erfiðleikar eru runnir, sem nú safnast eins og svart ský yfir höfði þjóðarinnar. Erfiðleikarnir eru að sjálfsögðu af mörgum rótum runnir og það má segja, að þeir séu afleiðingar langvarandi sjúkdóms í atvinnu- og sálarlífi þjóðarinnar. En af þeim mörgu orsökum, sem verðbólgunni valda, hygg ég að þó sé ein, sem mestu hefur valdið nú síðustu árin og er að gera hraðann óstöðvandi, það er sú óhrekjanlega staðreynd, að landsmenn hafa síðasta áratuginn lifað um efni fram. Það er almennt viðurkennt, að lífskjör manna hér á landi eru yfirleitt betri en í flestum öðrum löndum. En það, sem þjóðin hefur aflað undanfarin ár, hefur ekki hrokkið til að halda við þeim lífskjörum, sem hún hefur notið og hún hefur gert kröfu til. Til þess að halda við þeim lífskjörum hefur þjóðin þegið miklar gjafir og tekið stórlán. Lífskjörunum hefur verið haldið uppi með erlendri hjálp. Engin þjóð getur til lengdar byggt efnahagslíf sitt á slíkum grundvelli. Þegar hin utanaðkomandi aðstoð rennur til þurrðar og að því hlýtur að koma fyrr eða seinna, þá stöðvast hjól atvinnulífsins og erfiðleikarnir halda innreið sína, nema þjóðin geri sig ánægða með að lifa á því, sem hún aflar.

Andvaraleysið hefur nú í mörg ár haft bólfestu í landi okkar. Það hefur sljóvgað tilfinninguna fyrir því, að það sé hægt að tapa sæmd sinni ekki síður, en velgengni með því að vera þiggjandi. Það hefur leitt af sér lausung og ábyrgðarleysi í meðferð fjármuna, bæði hjá einstaklingum og hinu opinbera.

Allt þetta hefur runnið að einum ósi, að ósi verðbólgunnar, sem nú rís eins og flóðalda og reynir að brjóta af sér stíflugarðana.

Ég sagði áðan, að þjóðin hefði haldið undanfarið uppi lífskjörum sínum með erlendum gjöfum og lánum. Ég ætla ekki að setja það reikningsdæmi upp hér. En ég vil aðeins geta þess út af umr., sem farið hafa fram um þetta atriði, að erlendar skuldir þjóðarinnar um s. l. áramót eru taldar 718 millj. kr., reiknað á núverandi bankagengi, sem verður með 55% yfirfærslugjaldi 1.113 millj. kr. Við þetta mætti svo bæta lánum, sem hafa verið tekin eða gerðir samningar um, en ekki notuð. En þetta er sú skuld, sem talið er að þjóðin sé í erlendis um s. l. áramót. Skuldaaukning þjóðarinnar er gífurleg. Þótt telja megi, að talsverður hluti erlendu skuldanna hafi gengið til þarflegra fyrirtækja, þá getur það ekki leikið á tveim tungum, að skuldabagginn er nú orðinn svo þungur, að fullrar aðgæzlu er þörf. Þessi skuldasöfnun, að því leyti sem hún hefur gengið til þess að greiða eyðslu þjóðarinnar umfram aflaðar tekjur, hefur stuðlað að sjálfsögðu að þeirri fjármálaupplausn, sem nú blasir við.

Síðustu árin hefur Vestur-Evrópa smám saman með samvinnu milli landanna og skynsamlegum efnahagsráðstöfunum verið að treysta fjárhag sinn og atvinnuvegi í því skyni að bæta kjör fólksins og koma á eðlilegu frjálsræði í viðskiptum þjóðanna, en slíkt frjálsræði getur aðeins byggzt á efnahagslegu jafnvægi. Ísland hefur allan þennan tíma, sem þessi samvinna hefur staðið, verið þátttakandi í samvinnu þessara þjóða án þess að uppfylla þau skilyrði, sem sett voru fyrir samvinnunni, nema að mjög litlu leyti. Síðustu árin hefur Ísland enga samleið átt með þessum vestrænu þjóðum að þessu leyti. Þau héldu í áttina til aukins frjálsræðis, meðan við héldum á ný inn á braut hafta, opinbers eftirlits og nefndaskriffinnsku, sem kollvarpaði algerlega því viðskiptafrelsi, sem komst á í byrjun þessarar efnahagssamvinnu vestrænu þjóðanna.

Nú um áramótin gerðust þau merkilegu tíðindi, að flest þau lönd, sem að samvinnunni stóðu, stigu síðasta sporið á þeirri braut, sem þau hafa fetað sig á einn heilan áratug, með því að gefa frjálsa gjaldeyrissölu þjóða á milli og þar með viðskiptin milli þjóðanna. En meðan þetta gerist í nágrannalöndum okkar, er íslenzka þjóðin skuldunum vafin í flestum viðskiptalöndum sínum. Engan hlut, sem kostar meira en ein máltíð í veitingahúsi, er hægt að flytja inn án leyfis, enga krónu er hægt að fá yfirflutta til útlanda án þess að útfylla til þess beiðnir og bíða nokkrar vikur eftir svari. Ef farareyrir fæst til útlanda, er hann af svo skornum skammti, að svartur markaður á erlendum gjaldeyri hefur sprottið upp á öðru hverju götuhorni.

Menn munu halda, að hér sé fulldjúpt tekið í árinni. En ef þeir vilja kynna sér þetta mál nánar, þá munu þeir komast að raun um, að svartur markaður á gjaldeyri hér á landi er alveg furðulegur. Að vísu er það ekki meira, en er í löndum, þar sem efnahagsástand er svipað og hér. Í þeim löndum hafa ferðamenn ekki frið fyrir mönnum, sem elta þá á götunum til þess að bjóða þeim helmingi hærra verð í gjaldeyri, en bankar landsins kaupa hann fyrir.

Allt er þetta rökrétt afleiðing af þeirri ringulreið, sem orðið hefur á efnahagskerfi landsins undanfarin ár, vegna þess að þjóðin krafðist meira, en hún aflaði, vegna þess að hún til þess að dylja þá staðreynd gerði aðalatvinnuveg sinn, útflutningsframleiðsluna, að styrkþega og vegna þess að óttinn við þessi grundvallarmistök gerði að engu traustið á gjaldeyri landsins. Þegar svo var komið, settist eyðslan í forsætið hér á landi og því harðari sem snúningurinn verður á verðbólgunni, því meir eykst eyðsluviðleitnin hjá þjóðinni.

Í sambandi við þessar hugleiðingar langar mig til að minnast lítillega á eitt mál, sem er lítill gaumur gefinn, eins og sakir standa. En eins og allir vita, eru til gjaldeyrissamtök, sem heita sterlingssvæðið eða Sterling Area á ensku máli. Í þessum samtökum eru Bretland, nýlendur þess, Ástralía, Nýja-Sjáland, Írland og Ísland. Ég hygg, að það séu margir Íslendingar, sem hafa ekki hugmynd um, að Ísland er á sterlingssvæðinu og mundi mörgum þykja súrt í broti, eins og núna standa sakir, að Ísland sé þar sem ein nýlenda Breta. En í byrjun stríðsins gerðist Ísland aðili að þessari samþykkt, vegna þess að álitið var að það gæti bjargað okkur frá dollaraskorti. En um það leyti hafði Bretland stofnað sérstakan dollarasjóð fyrir sterlingssvæðið, sem átti að hjálpa þessum löndum, ef þau kæmust í vandræði með dollara, enda áttu þau þá að skila öllum sínum dollaratekjum í sjóðinn. En við þurftum aldrei að nota þennan dollarasjóð og við greiddum heldur aldrei neitt í sjóðinn, hvorki fyrr né síðar. Það varð til þess, að þessi aðild okkar að sjóðnum í raun og veru varð aldrei annað, en nafnið tómt og veitti okkur ekki nein hlunnindi. En nú er svo komið vegna síðustu ráðstafana í gjaldeyrismálum, sem gerðar hafa verið í Evrópu, að frjálst er að kaupa dollara í Bretlandi fyrir erlendar þjóðir, en ekki fyrir Breta sjálfa eða þau lönd, sem eru á sterlingssvæðinu. M. ö. o.: Ísland hefur ekki formlega neinn rétt til þess að kaupa dollara í Bretlandi, eins og t, d. Danmörk eða Noregur. Það virðist því tímabært að athuga, hvort rétt sé fyrir Ísland að halda áfram að vera í þessum samtökum, þegar er sýnilegt, að það hefur aldrei haft nein not af því og hefur nú frekar skaða af því, eins og málum er komið. Hitt getur svo verið, að Bretar veiti Íslandi heimild til að kaupa dollara. En það haggar ekki þeirri staðreynd, að Ísland er á sterlingssvæðinu og hefur ekki formlega réttinn.

Um það eru allir sammála, að stöðvun verðbólgunnar sé þjóðarnauðsyn. Jafnvel kommúnistar þykjast vera á þeirri skoðun. En stöðvunin er að mínu áliti meira, en venjuleg þjóðarnauðsyn. Hún er skilyrði fyrir því, að íslenzkt þjóðfélag liðist ekki í sundur í nálægri framtíð vegna efnahagslegrar brjálsemi. En efnahagslega brjálsemi kalla ég það, þegar allt er að fara úr böndunum vegna deilu um, hvað sé rétta leiðin, þegar útflutningsframleiðslan þarf allt að 500 millj. í styrk til þess að framleiða útflutningsvörur fyrir 1.000 millj., þegar ríkissjóður þarf til sinna þarfa sem svarar nær öllu útflutningsverðmæti landsmanna og þegar eitt mesta góðæri, sem yfir þetta land hefur gengið til lands og sjávar, leiðir af sér eina mestu gjaldeyriskreppu, sem yfir þetta land gjaldeyrisskortsins hefur gengið. There is something rotten in the state of Denmark, sagði Hamlet. En hvað mundu Íslendingar geta sagt, ef þeir litu í eigin barm? Ef þetta er nú svo, er þá hægt fyrir Alþingi, sem ber alla ábyrðina gagnvart þjóðinni, að láta sem ekkert sé og enginn vandi á höndum? Getur það látið dagana líða hvern eftir annan í þögn og aðgerðarleysi, meðan meinsemdin í efnahagslífi og atvinnulífi þjóðarinnar breiðist út eins og krabbamein?

Ég geri ráð fyrir því, að flestir séu sammála um það, að ekki sé unnt að komast hjá því að gera bráðabirgðaráðstafanir í svipinn, eins og þær, sem hér er stefnt að, er stöðvað geti verðbólguna þegar í stað og fært til baka framleiðslukostnaðinn. En þótt slík ráðstöfun sé gerð, einungis til þess að geta fótað sig á svellinu, eru meginverkefnin óleyst eftir sem áður og lausn þeirra er svo aðkallandi, að þetta ár má ekki líða svo, að atvinnulíf og efnahagslíf landsmanna komist ekki að verulegu leyti á traustan og heilbrigðan grundvöll.

Í þessu sambandi vil ég minnast á þrjú meginatriði, sem ég tel að verði að taka til greina og leysa á réttan og raunhæfan hátt, ef giftusamlegar ráðstafanir í efnahagsmálunum eiga að takast. Ég veit, að lausn þessara þriggja atriða getur valdið deilum. Þess vegna vil ég taka fram, að það, sem ég segi, eru mínar persónulegu skoðanir.

Þau atriði, sem ég ætla að minnast á, eru vísitalan, gengið og útflutningsstyrkirnir.

Frá þeim tíma, er vinnulaun og verð landbúnaðarvara voru órjúfanlega tengd vísitölu framfærslukostnaðar, en síðan eru, ef ég man rétt, um 15 ár, hefur verðbólgan, ef svo mætti segja, matazt á þeim víxláhrifum, sem verðlagið í landinu hefur orðið af þessum sökum. Við þekkjum allir, hvernig skrúfan gengur. Verðlagið eltir kaupgjaldið, kaupgjaldið eltir verðlagið, þangað til verðlagið fer aftur að elta kaupgjaldið. Þessi hringekja er öllum svo kunn, að ég ætla ekki að lýsa nánar þessu sjúklega þjóðfélagsfyrirbrigði. En þjóðin, eftir þann langa tíma, sem hún hefur verið að berjast við að hindra það, að vísitölukvörnin malaði skip hennar í kaf, ætti nú að vera farin að skilja, að það er hættulegt að láta kvörnina mala lengur. Með því móti getum við ekki haldið skipinu á floti. Og að lokum verða þeir verst úti, sem vísitölukvörnin átti að tryggja réttláta afkomu.

Ég hygg, að óhætt sé að fullyrða, að þau lönd í Evrópu og Ameríku, sem nú búa við öruggan fjárhag, stöðugt verðlag og frjálsa verzlun, hafa aldrei farið inn á þá braut að láta framfærsluvísitöluna ákveða sjálfkrafa kaupgjald og framleiðslukostnað. Fyrir þjóðir, sem þurfa að byggja tilveru sína aðallega á útflutningi, eins og Íslendingar, er slíkt sama og að bjóða óstöðvandi verðbólgu heim, enda höfum við fengið af því smjörþefinn. Það er haft eftir einum sérfræðingi okkar, sem mikið hefur fengizt við þessi mál nú upp á síðkastið, að án stöðvunar á víxláhrifum vísitölunnar sé engin lækning möguleg til frambúðar á því krabbameini, sem efnahagskerfi okkar þjáist af.

Menn munu nú spyrja hvaða leiðir séu hugsanlegar til þess að losna við víxláhrif vísitölunnar. Að sjálfsögðu verður að gera sér grein fyrir, að launastéttirnar í landinu og bændastéttin, sem fá hækkuð laun sín eftir því, sem vísitalan hækkar, muni ógjarnan vilja gefa upp þennan mælikvarða á launatekjur þeirra, jafnvel þótt hægt sé að sýna fram á með rökum, að fastheldni við vísitölukaupið er beinasta leiðin til ófarnaðar. En þetta er mannlegt og ég dæmi engan fyrir það, sérstaklega ekki á þeim tíma, þegar allt verðlag er á hverfanda hveli. Mér sýnist þess vegna, að afnám víxláhrifa vísitölunnar, sem er grundvallarskilyrði fyrir heilbrigðu efnahagslífi í framtíðinni, verði ekki framkvæmt fyrr en gerðar hafa verið aðrar ráðstafanir fyrst, sem miði að því að koma á heilbrigðu jafnvægi í efnahagskerfinu og endurreisi traust almennings á verðgildi krónunnar. Þegar það hefur verið gert og ró færist yfir verðsveiflurnar, er kominn tími til að nema burt sýkilinn, sem valdið hefur hitasóttinni í efnahagskerfinu. En verði þá ekki til hugrekki eða skilningur til að stíga það spor, blossar sjúkdómurinn upp á ný og eitrar efnahagslíf landsins með þeim afleiðingum, sem verður ekki séð út yfir að sinni.

Kommúnistar hafa reynt og reyna enn að telja þjóðinni trú um, að hægt sé að hækka kaup, eins og ástæður eru nú hér á landi, án þess að kauphækkunin sé jafnóðum sótt í vasa almennings með hækkuðum álögum. Þetta er hin mikla pólitíska blekking, sem haldið hefur íslenzku efnahagslífi í heljargreipum verðbólgunnar í nálega tvo áratugi. Kommúnistar hafa enn fremur valið sér þá rökvana stefnu í efnahagsmálunum að telja almenningi trú um það, að gengislækkun sé glæpur gagnvart þjóðinni, glæpur, sem sporna verði við, hvað sem öðru líður. Þessi staðhæfing er annaðhvort sprottin af barnalegri fáfræði, sem þeim er ekki trúandi til, eða pólitískri spákaupmennsku, sem mér þykir líklegra. En þeir eru í þessu, sem mörgu öðru, ekki sjálfum sér samkvæmir. Þeir hafa sjálfir með þátttöku og stuðningi við síðustu ríkisstjórn samþykkt stórkostlega gengisskerðingu krónunnar beint og óbeint með sérstökum skatti, 55% gjaldeyrisskatti, og nýjum aðflutningsgjöldum. Allt er þetta auðvitað gert til þess að leiðrétta gengi krónunnar, því að engin þjóð, sem nokkur viðskipti hefur við útlönd, getur til lengdar haft mjög rangt gengi án þess að verða að leiðrétta það, opinberlega eða grímuklætt. En svo koma þessir góðu menn fram, kommúnistarnir, sem með lagasetningu hafa lækkað gengi krónunnar stórkostlega á tveimur árum og hamra á þeirri furðulegu firru, að ekki megi hrófla við gengi krónunnar til þess að komast út úr efnahagsflækjunni og öngþveitinu, sem þeir hafa manna mest verið valdir að. Um það stoðar ekki að deila, hvernig sem reynt er að dylja staðreyndirnar, að gildi krónunnar er fallið stórlega. Og allt, sem gert er til að leyna þeirri staðreynd um stundarsakir, — því að lengur verður það ekki gert, — það er allt saman ráðstafanir til bráðabirgða. Það er allt saman tjaldað til einnar nætur.

Rétt gengi er bráðnauðsynlegur þáttur í heilbrigðu efnahags- og atvinnulífi hverrar þjóðar. Og mikið af þeim erfiðleikum, sem nú steðja að í efnahagsmálunum, hefur sprottið af því, að gengi krónunnar er ekki rétt skráð. Ástæðan fyrir því er að mínu áliti tvenns konar: annars vegar óttinn við óvinsældir meðal almennings af beinni gengislækkun, en hins vegar skortur á pólitískri og efnahagslegri undirstöðu, sem gengisbreyting verður að byggjast á, ef hún á að koma að gagni. Gengisbreyting, þótt hún sé bráðnauðsynleg, er tilgangslaus og jafnvel skaðleg, ef hún er jafnóðum gerð gagnslaus með samsvarandi hækkun á kaupgjaldi og verðlagi. Þess vegna þarf annað hvort að gerast, að öruggt sé, að gengislækkun mæti fullum skilningi hjá þjóðinni eða hún sé gerð í áföngum, til þess að verðbreytingin valdi ekki svo mikilli og skyndilegri breytingu á högum þjóðarinnar, að hún snúist til virkrar andstöðu við þessa óþægilegu, en bráðnauðsynlegu aðgerð.

Þegar fyrrv. stjórn var að fást við efnahagsmálin, kvaddi hún hingað erlenda sérfræðinga sér til ráðuneytis til þess að segja álit sitt um það, hvað bæri að gera til þess að komast út úr þeim vandræðum, sem þjóðin var þá komin í. Stjórnin var margspurð um það, hvað þessir erlendu sérfræðingar hefðu lagt til. Út úr henni fékkst ekki orð. Hvers vegna? Vegna þess að hinir erlendu sérfræðingar lögðu til, að framkvæmd yrði bein gengislækkun til þess að ráða bót á því misvægi, sem komið var í efnahagskerfinu. Að sjálfsögðu þurfti að gera ýmsar ráðstafanir til þess að tryggja, að slík ráðstöfun næði tilgangi sínum, en til þess mun stjórnin ekki hafa treyst sér.

Efnahagsstofnun Evrópu lætur árlega gera yfirlit um efnahagsástand þátttökuríkjanna. Þessi stofnun hefur nýlega gert skýrslu um efnahagsástandið hér á landi. Skýrslan er birt í síðasta hefti efnahagstímarits Landsbankans. Ég ætla ekki að ræða um þessa skýrslu hér, en niðurlagsorð hennar langar mig til að lesa upp, með leyfi hæstv. forseta, en þau hljóða svo:

„Það er mjög æskilegt, að eins fljótt og auðið er, verði mismunandi útflutningsbóta- og innflutningsgjaldakerfi lagt niður og í staðinn tekin upp einföld og raunhæf gengisskráning.“

Þetta eru niðurstöðuathuganir sérfræðinga Efnahagssamvinnustofnunar Evrópu um efnahagsástand á Íslandi í dag.

Í mínum huga getur ekki valdið neinum dellum, að rétt gengisskráning er eitt höfuðskilyrði fyrir því, að efnahagsmálin komist í heilbrigt form. Það væri barnaleg sjálfsblekking að halda, að hægt sé að sneiða hjá því til langframa að skrá rétt geng. En eins og ég hef tekið fram, þá er tilgangslaust að gera slíka ráðstöfun, fyrr en nauðsynlegur grundvöllur hefur verið lagður, sem tryggir, að ráðstöfunin beri tilætlaðan árangur. En því lengur sem dregst, að þessi og aðrar óhjákvæmilegar ráðstafanir séu framkvæmdar í efnahagsmálunum, því meir eitrar óvissan og tortryggnin allt efnahagslífið.

En af öllu, sem aflaga fer í efnahagslífinu, er þó að mínu áliti alvarlegust sú staðreynd, að útflutningsatvinnuvegi þjóðarinnar er haldið gangandi með stórkostlegum útflutningsbótum þannig, að landsmenn eru skattlagðir í flóknu kerfi, til þess að útflutningsframleiðsla geti starfað. Það einkennilega fyrirbrigði er nú að verða árlegur viðburður í þessu þjóðfélagi, að allur fiskifloti landsins verður að semja við ríkisstj. um það, hvaða verð hann eigi að fá á vertíðinni. Og ef samningar nást ekki við vinnuveitandann, sem er ríkissjóður, gerir flotinn verkfall, eins og hver önnur launastétt. Þetta er versta tegund ríkisrekstrar, sem hægt er að finna. Og í kapítalistísku þjóðfélagi, sem er byggt upp á frjálsum atvinnurekstri og eignarrétti einstaklinganna, stendur þetta fyrirkomulag eins og fleinn í því efnahagskerfi, sem byggt er upp til þess að starfa á gerólíkan hátt. Íslenzkt atvinnulíf og fjárhagskerfi verður þess vegna ætíð sjúkt og brenglað, meðal aðalatvinnuvegur landsins fær ekki að standa á eigin fótum, en er í þess stað gerður að styrkþega af almannafé og verður á hverju ári að berjast baráttu sem hver önnur launastétt þjóðfélagsins til þess að geta starfað. Þess vegna er lífsnauðsyn fyrir þjóðina að losa sjávarútveginn úr þeirri spennitreyju óviturlegrar ríkisíhlutunar, sem hann er í kominn og þetta ástand heldur við því ömurlega öngþveiti, sem nú þjakar þjóðfélagið, — og því lengur sem það stendur, því meir hallar á ógæfuhliðina. En við skulum alveg gera okkur grein fyrir því, að þetta ástand lagast ekki, fyrr en tekin hefur verið upp rétt gengisskráning, sem byggist á traustu efnahagsjafnvægi. Þess vegna er rétt gengisskráning, byggð á nauðsynlegum öryggisráðstöfunum, undirstaða þess, að efnahagslíf landsins komist á heilbrigðan grundvöll. Og þess vegna verða allar ráðstafanir hér eftir að stefna að því, að sjávarútvegurinn fái rétt gengi fyrir gjaldeyrinn, rétta og heilbrigða hlutaskiptingu og að afnumdir verði allir styrkir. Eftir það á útvegurinn að sjá um sig sjálfur. Engin þjóð getur farsællega stundað sinn aðalatvinnuveg, ef sá atvinnuvegur þarf sífellt að standa í kröfustappi við ríkisvaldið sjálft um tilveru sína.

Ég efast ekki um, eins og ég tók fram í upphafi, að allir geri sér ljóst, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, sé aðeins fyrsta skrefið til þess að lagfæra það ástand, sem nú ógnar efnahagslífi landsmanna. Ef vel gengur, getur þetta stöðvað óheillaþróunina um stundarsakir. En eins og ég hef líka tekið fram, eru meginþættir vandamálsins enn óleystir, og þess vegna er ekki til setunnar boðið, þó að þetta frv. komist í gegnum þingið.

Mér finnst ástæða til að segja það, að ríkisstj. Alþfl. hefur sýnt lofsvert pólitískt hugrekki með því að leggja þessar till. fyrir þingið, sem vafalaust verða ekki eins vinsælar og þær eru nauðsynlegar. Flokkurinn hefur því sýnt meira raunsæi og meiri ábyrgðartilfinningu, en kommúnistarnir sýna, hafa sýnt eða munu sýna. Kommúnistarnir leika nú þann loddaraleik að reyna að telja almenningi trú um, að hag hans sé bezt borgið með því, að sundrað sé grundvellinum fyrir því atvinnulífi, sem hann byggir nú á tilveru sína. Allir þjóðhollir menn munu vænta þess, að þetta fyrsta spor verði undanfari annarra nauðsynlegra ráðstafana, sem aftur geta skipað okkur í flokk þeirra landa, sem hluttæk teljast í efnahagssamvinnu frjálsra þjóða.