22.10.1958
Sameinað þing: 4. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 169 í D-deild Alþingistíðinda. (2067)

16. mál, lífeyrissjóður fyrir bátasjómenn

Sjútvmrh. (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Það er í sambandi við nokkur ummæli, sem hér hafa fallið varðandi þessi lífeyrissjóðsmál, sem mér þykir rétt að koma hér að nokkrum athugasemdum.

Mér sýnist, að hér sé skýrt frá þessu máli á þann hátt, að ekki segi allan sannleika um það, sem gerzt hefur í því að undanförnu. Það eru aðalatriði málsins, að ég hygg, að fyrir nokkrum árum voru uppi raddir manna um það, að eitt ráðið til þess að reyna að tryggja okkur sjómenn á togaraflota okkar væri að veita togarasjómönnum nokkur sérstök fríðindi fram yfir það, sem ýmsar aðrar starfsstéttir hefðu, og var þar m.a. bent á lífeyrissjóð handa togarasjómönnum, af því að það mundi einnig vera tiltölulega einfalt að koma slíku á.

Hér á Alþingi var síðan flutt frv. um málið af einum þm. Reykjavíkur, Einari Olgeirssyni, og landsk. þm., Gunnari Jóhannssyni, að ég hygg.

Framhald málsins var svo það, því að þetta frv. náði ekki fram að ganga, að í samningum á milli samtaka sjómanna og ríkisstj., þegar samið var um kjör sjómanna og rekstrargrundvöll útgerðarinnar um ein áramótin, var gert samkomulag varðandi þetta atriði, en þá höfðu fulltrúar sjómanna lagt á það nokkra áherzlu, að sett yrðu lög um lífeyrissjóð togarasjómanna. Og það var það, sem þeirra kröfur og óskir miðuðust þá við, og var fyllilega tekið tillit til þess í þeim samningum, sem þá fóru fram, að togarasjómenn fengju nú fyrirheit um að fá lifeyrissjóð sér til handa og fengju að sínu leyti minni hækkanir á sínu almenna kaupi en bátasjómenn fengu þá um það sama leyti.

Í krafti þessa samkomulags var það svo, að skipuð var sérstök nefnd með fulltrúum frá sjómönnum, sem höfðu staðið að þessu samkomulagi, og fulltrúum frá ríkisstj. til þess að undirbúa löggjöf um lífeyrissjóð togarasjómanna. En meðan á þessu gekk, fóru að koma fram hér á Alþingi raddir frá sumum um það, að rétt væri að veita öllum sjómönnum þessi réttindi, sem fulltrúar sjómanna höfðu samið um aðeins fyrir togarasjómenn eina á þessu stigi málsins, og einnig fóru svo að koma hér fram till. um, að ekki aðeins ætti að veita öllum sjómönnum þessi fríðindi, heldur væri rétt að stofna lífeyrissjóð fyrir nálega allar starfsstéttir í landinu, og till. var hér samþ. á Alþingi um það, að hafinn skyldi undirbúningur að stofnun slíks lífeyrissjóðs.

Til þess nú að haga framkvæmdinni í þessu máli á þá lund, sem mest var í samræmi við það, sem þegar hafði verið samið um við ákveðnar starfsstéttir, og einnig við þann vilja, sem fram hafði komið á Alþingi, þá var unnið þannig að málinu, að 1. flm. þeirrar till., sem víðtækust var og fjallaði um stofnun lífeyrissjóðs fyrir allar starfsstéttir, var skipaður formaður í þeirri nefnd, sem átti að undirbúa fyrsta þátt þessara mála, lífeyrissjóð togarasjómanna, ásamt með fulltrúum frá samtökum þeirra sjómannasamtaka, sem höfðu knúið málið í gegn í sínum samningum.

Vitanlega var talsvert verk fyrir þessa nefnd að koma saman frv. til laga um þessi efni. Það tókst á sínum tíma, og var lagt hér fyrir Alþ. frv., sem þessi nefnd hafði samið, og gert hér að lögum, ég hygg á síðasta þingi.

Í framhaldi af þessu varð svo það, að sjómenn á farskipaflotanum tryggðu sér einnig í samningum við sína vinnuveitendur nákvæmlega hliðstæð lífeyrissjóðsréttindi eins og togarasjómenn höfðu fengið samkvæmt þessu.

Þessi mál flokkast ekki undir mitt ráðuneyti, og ég get því ekki sagt nákvæmlega um gang þeirra, hvernig þessu máli hefur að öðru leyti miðað áfram, og verður því að bíða síðari umr. að gefa um það skýrslu. En ég hygg, að einmitt þessari nefnd, sem var falið það verk að semja frv. það um lífeyrissjóð togarasjómanna, sem nú hefur verið lögfest hér á Alþingi, hafi jafnframt verið falið undirbúningsverkið að löggjöf varðandi stofnun lífeyrissjóða, sem næðu til vinnustéttanna nokkuð almennt. Ég hygg því, að þetta sé allt á nokkuð eðlilegri leið og því beri miklu fremur að skoða það svo, að till., sem hér koma fram nú eða frv. um sérstakan lífeyrissjóð fyrir alla sjómenn eða fyrir allar starfsstéttir, séu aðeins áhugamerki einstakra þm. um að hraða málinu, heldur en að það liggi hér fyrir nokkur nauðsyn á því að taka nýjar ákvarðanir á Alþingi í þessum efnum, því að það sé í rauninni unnið að þessu á eðlilegan hátt.

Hitt vil ég svo aftur taka fram, að ég tel, að það hafi verið í fyllsta máta eðlilegt, að togarasjómenn hafi orðið hér fyrstir, enda var það svo, að einnig forustumenn sjómannasamtakanna kusu að hafa það svo í sínum samningum, að ætla þeim nokkru meiri rétt, en bátasjómönnum í þessu tilfelli. Var þar aðeins um samningamál að ræða, eins og ég skýrði áður frá. Og ég tel einnig, að það hefði verið full ástæða til þess, að sjómenn almennt, einnig bátasjómenn, hefðu gjarnan mátt líka vera einu ári eða svo á undan ýmsum öðrum starfsstéttum í landinu, þegar litið er á þá almennu aðstöðu, sem þessir aðilar hafa, að öllum öðrum starfsstéttum ólöstuðum, því að svo hefur nú háttað til, að beinn voði hefur verið á ferðum hjá okkur í sambandi við það, að okkur hefur sérstaklega skort togarasjómenn og okkur hefur skort sjómenn almennt. Einmitt út frá því sjónarmiði var ekki óeðlilegt, að byrjað væri á þessu mikla verkefni einmitt þar, sem gert hefur verið. En því skulu menn gera sér fulla grein fyrir, að það kostar vitanlega mikið fé að koma upp þessum lífeyrissjóðum. Um það var getið á s.l. ári, eða kannske hefur það reyndar verið á þessu ári, en á síðasta þingi, að bein útgjöld við að afla tekna, m.a. með álögum á landsmenn, vegna laganna um lífeyrissjóð togarasjómanna, mundu nema á milli 8 og 10 millj. kr. á ári, og var þar aðeins um togarasjómenn eina að ræða.

Það er því ekki óeðlilegt, að slík stórvirki sem þetta séu tekin hér í nokkrum áföngum, og verða menn þá vitanlega að gera það upp við sig, hvern þáttinn þeir vilja leysa fyrst og hver þátturinn það er, sem kallar mest að.

Ég held því, að það sé ekki réttmætt á þessu stigi málsins að saka ríkisstj. eða einstök ráðuneyti um neina vanrækslu í þessum efnum, því að haldið hafi verið á málinu á mjög eðlilegan hátt og þýðingarmiklir þættir þegar leystir og undirbúningur að málinu sem heild á eðlilegu stigi.