14.01.1959
Sameinað þing: 21. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í D-deild Alþingistíðinda. (2090)

47. mál, bann gegn togveiðum í landhelgi

Karl Guðjónsson:

Herra forseti. Áður en þessari till. verður vísað til n., svo sem vænta má að gert verði, þykir mér hlýða að taka fram nokkur atriði, sem snerta það, að ég er þessari till. gersamlega andvígur og tel rétt, að þegar liggi fyrir þau rök, sem ég tel sérstaklega mæla gegn því, að till. sem þessi verði samþykkt.

Till. er flutt, að því er fram kemur bæði í grg. till. og einnig í framsöguræðu flm., sérstaklega til þess að gera okkar málstað í landhelgisdeilunni, sem við nú eigum í við Breta, betri og líklegri til þess að fá samúð erlendis. Ég skal síðar koma að því, að einnig í þessu tilfelli tel ég að till. sé vanhugsuð. En áður en Alþ. afgreiðir svona till., þá held ég, að vert sé, að hv. alþm. geri sér grein fyrir því, til hvers við erum að sækjast eftir því að hafa okkar landhelgi sem stærsta. Og ég held, að það þurfi ekki lengi að leita, þar til við komumst að þeirri niðurstöðu, að tilgangur okkar er sá fyrst og fremst að tryggja efnahagslega afkomu íslenzku þjóðarinnar, en hún byggist, svo sem öllum er kunnugt, öllu frekast á því, að fiskveiðar landsmanna geti gengið sem bezt, að við höfum möguleika á sem allra mestu aflamagni.

Við viljum þess vegna tryggja okkar þjóð réttinn til fiskveiða hér við strendurnar umfram aðrar þjóðir, og við erum ekki að friða hafið í kringum Ísland fyrst og fremst, við erum að tryggja okkur einkarétt til þeirra veiða og halda þeim veiðum undir okkar lögsögu, þannig að við getum á hverjum tíma takmarkað veiðarnar við það, sem eðlilegt má teljast, við það, að fiskistofnarnir geti gefið af sér nokkurn veginn þá hámarksveiði, sem hægt er að fá af þeim, en ekki hitt, að láta þá spretta úr sér og verða ellidauða með því að friða fiskinn á fiskimiðunum í kringum Ísland algerlega.

Ef við lítum aðeins á einn þátt þess máls, sem þessi till. tekur til, en það eru veiðar á flatfiski, sem hér voru mjög stundaðar á árunum eftir 1930 og fram til 1952, þá giltu um þær veiðar sérstök lög, sem bönnuðu þessar veiðar hálft árið, en leyfðu þær að hinu leytinu frá 1. júní til 1. des. ár hvert, og voru þá flatfiskveiðar með dragnót stundaðar verulega, og afli landsmanna varð mjög mikill af þeim veiðum og einmitt af fiski, sem er sérstaklega verðmætur, þar sem er um að ræða flatfiskinn, aðallega skarkola, þykkvalúru, langlúru. En þessi lög voru raunverulega felld úr gildi með friðunarreglugerðinni frá 1952, þ.e.a.s. með reglugerðinni, sem afmarkaði okkar fiskveiðilandhelgi í rauninni við 4 sjómílur. Það var eðlilegt, að það væri gert á þeim tíma, enda hafði þá greinilega um skeið verið um ofveiði að ræða á þessum fiskistofnum.

Þessu er ekki lengur til að dreifa. Nú ber öllum, sem rannsakað hafa þessi mál, saman um það, að við séum fremur að spilla fyrir okkar veiðiskap, heldur en að efla hann með því að hafa slíkt algert bann við dragnótaveiðum í landhelgi, sem nú gildir. Þessir flatfiskistofnar hafa vaxið upp og eru nú orðnir miklir að magni, og það er álit margra fiskifræðinga, og get ég þar tilgreint sérstaklega álit Jóns Jónssonar, sem er deildarstjóri í fiskideild atvinnudeildar háskólans, einnig álit Árna Friðrikssonar, sem starfar, svo sem öllum er kunnugt, hjá alþjóðafiskirannsóknarstofnun, um það, að nú séu beinlínis nauðsynlegar nokkrar flatfiskveiðar, þ.e.a.s. nokkrar dragnótaveiðar, ekki einungis innan viðbótarbeltis landhelginnar, þess sem til kom við 12 mílna landhelgisstækkunina, heldur einnig innan gömlu 4 mílna fiskveiðitakmarkanna, til þess að við getum fengið þar eðlilegt aflamagn af öðrum fiski.

Þá vil ég einnig benda á það, að verulegur hluti af fiskibátaflota Íslendinga er nær ónotaður einmitt á því tímabili, sem eðlilegast væri að hann stundaði þær veiðar, sem ég hef hér vikið að og telja má að séu ekki einasta þjóðhagslega nauðsynlegar sem slíkar, heldur einnig nauðsynlegar til þess, að aðrar fiskveiðar geti haldizt í eðlilegu horfi. Og kem ég þá loks að þeim rökum, sem notuð hafa verið gegn okkur Íslendingum á erlendum vettvangi af þeim mönnum, sem eru andvígir þeirri stækkun fiskveiðilandhelginnar, sem fór fram á s.l. ári.

Því hefur verið haldið fram, að við stæðum betur að vígi til þess að verja okkar málstað, ef við bönnuðum sjálfum okkur algerlega allar veiðar með botnsköfuveiðarfærum innan 12 mílna fiskveiðilandhelginnar. Þetta kann að vera rétt, að þessu hafi einhvers staðar verið slegið fram. Á hinn bóginn verð ég að segja það, að þau rök, sem næst hafa komizt því að geta talizt eðlileg af hálfu Breta gegn okkur í málinu, eru þau, að við séum að halda eðlilegum matvælum fyrir mannkyninu með okkar stækkuðu fiskveiðilandhelgi.

Það væri okkur fyrst hættulegt, ef þessi svokölluðu rök Breta, sem ekki hafa verið fyrir hendi fram að þessu, gætu orðið rök, ef við ætluðum að halda okkur fast við ákveðið bann gegn öllum veiðum á flatfiski og þeim fiski öðrum, sem veiddur er með dragnót og botnvörpu innan fiskveiðilandhelginnar, — þau rök, að þar værum við að spilla fyrir því, að á heimsmarkaðinn kæmi sú matvara af Íslandsmiðum, sem eðlilegt má telja að þar sé veidd og flutt á erlendan markað. Ég álít þess vegna, að gagnstætt því, sem segir í rökum þeim, sem fram eru færð í grg. till. og hv. frsm. drap hér á, þá sé okkur það bókstaflega nauðsyn, einnig vegna málstaðar okkar í landhelgismálinu, að sýna fram á það, að öll íslenzku fiskimiðin séu eðlilega nytjuð og hér sé ekki haldið neinum matvælum ónotuðum, sem annars er hægt að framleiða hér sannanlega með þeim hætti, að ekki sé gengið á fiskistofnana.

Mér þykir vert að benda hv. n., sem kemur til með að rannsaka þessa till. og væntanlega gefa út álit um hana, einmitt á þetta, sem ég tel vera þungamiðju málsins, að ef við ætluðum að samþykkja svona till., þá væri með nokkrum rétti hægt að segja, að við værum að banna öllum að taka fisk á Íslandsmiðum, sem eðlilegt er að veiddur sé og komi í matvælabúr mannkynsins á einhverjum stað.

Það er orðið alllangt umliðið, síðan þessi till. var lögð hér fram í hæstv. Alþ., og þar sem hún hafði ekki komið til umr. í nokkrar vikur, þótt hér væru fundir í Sþ. og dagskráin ekki alltaf svo stór, að ekki hafi verið hægt að koma þar fyrir þeim málum, sem fyrir lægju, þá hélt ég sannast að segja, að hv. flm. hefði dregið till. til baka, hann hefði í kyrrþey áttað sig á því, að hún er ekki innlegg í okkar mál, og taldi það vel farið. Nú sé ég hins vegar, að svo muni ekki vera. En ég vildi einnig beina þeim tilmælum til hv. flm., að hann athugaði af gaumgæfni einmitt þær hliðar, sem ég hef bent hér á málinu, og gerði það síðan upp, hvort hann óskaði eftir því, að till. kæmi hér til endanlegrar afgreiðslu. Ég þykist hafa sýnt fram á það, að till. gerir íslenzkum þjóðarbúskap þyngra fyrir, ef samþ. væri. Hún er einnig þess eðlis, að fjandmönnum Íslands í landhelgisdeilunni væri nokkurt lið að henni að mínu viti, og enn fremur hitt, að það er óeðlilegt, að við stækkum landhelgi okkar æ ofan í æ og bönnum jafnvel sjálfum okkur, hvað þá öðrum, þær veiðar, sem geta með eðlilegum hætti farið fram og öll rök hníga að, að eðlilegt sé að framkvæmdar séu.

Að lokum vil ég svo sérstaklega óska þess, að hv. alþm. geri sér þess ljósa grein, að hér er verulegt alvörumál á ferðinni, ef banna ætti þær veiðar, sem till. ræðir um, í allri íslenzku fiskveiðilandhelginni. Sjálfur hef ég í hyggju að flytja hér lagafrumvarp á næstunni, sem fer í gagnstæða átt, einmitt í þá átt, að íslenzka löggjöfin heimili takmarkaðar veiðar af því tagi, sem þessi till. gerir ráð fyrir að algerlega séu bannaðar, og mun væntanlega leggja það fyrir hér á þingi innan skamms.