07.01.1959
Sameinað þing: 19. fundur, 78. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í D-deild Alþingistíðinda. (2104)
70. mál, akvegasamband við Vestfirði
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð til þess að taka undir flest það, sem hv. fyrsti flm. þessarar till. sagði hér í frumræðu sinni um nauðsyn þess, að sú till. yrði samþykkt, sem hér liggur fyrir.
Þess er þá fyrst að geta, að á Vestfjörðum, á því svæði, sem nú er án sambands við akvegakerfi landsins, búa um 6.000 manns í kaupstöðum, kauptúnum og sveitum.
Ég hygg, að það sé ekki ofmælt, að þessi héruð séu ein þróttmestu framleiðsluhéruð landsins. Það mun óvíða eða hvergi á Íslandi vera framleitt jafnmikið til útflutnings að tiltölu við fólksfjölda eins og einmitt á þessu svæði, sem veglaust er eða sambandslaust við akvegakerfi landsins. Nú er það staðreynd, sem ekki verður sniðgengin, að einmitt samgöngur á landi eru einn meginhyrningarsteinn atvinnulífs og félagslífs. Þess vegna má það furðulegt heita, að samfélagið skuli ekki enn þá hafa komið í framkvæmd vegagerð til þessa landshluta, þar sem svo að segja hver einasta starfandi hönd vinnur að framleiðslu útflutningsverðmæta, og hægt er að leiða gild rök að, að samfélagið á í raun og veru meira undir komið, að fólk haldist þar við, heldur en á fjölmörgum öðrum stöðum á landinu. Nú vil ég ekki hafa á móti því, að nokkurt byggðarlag á landi hér fái samgöngubætur og samband við meginakvegakerfi landsins, þvert á móti. Ég tel, að allir landsmenn eigi á því jafnan rétt. En ég bendi á það, að ég álít, að samfélagið hafi misstigið sig bókstaflega gagnvart þessum landshluta í þessu atriði.
Það er fyrst árið 1946, sem akvegasamband er skapað við Ísafjarðardjúp um Þorskafjarðarheiði. En það þýðir ekki nema að nokkru leyti akvegasamband við þennan landshluta. Sjóleið verður að fara frá innanverðu Ísafjarðardjúpi til Ísafjarðarkaupstaðar og þaðan síðan til byggðarlaganna við utanvert Ísafjarðardjúp og í Vestur-Ísafjarðarsýslu. Öll Vestur-Ísafjarðarsýsla og meginhluti íbúa Norður-Ísafjarðarsýslu og allir íbúar Ísafjarðarkaupstaðar eru án sambands við akvegakerfi landsins. Ég segi, að þegar till. koma fram um það, að úr þessu verði bætt, sem hægt er að gera með tiltölulega auðveldum hætti, þá reynir á það, hvað hæstv. Alþ. meinar með þeim orðum, sem mjög oft hafa fallið hér á undanförnum árum, að koma þyrfti á svokölluðu „jafnvægi í byggð landsins“.
Ég skal ekki fjölyrða um þetta að þessu sinni. Ég hef gert það oft áður. Ég álít, að það væri mjög illa farið, ef Alþ. tæki þannig undir þessa till., að við svo búið yrði látið standa. Og ég mundi líta á það sem ótvíræða sönnun þess, að margir menn, sem á undanförnum árum hafa ýmist haft frumkvæði um það, sem kallað hefur verið jafnvægi í byggð landsins, eða tekið undir það, meintu harla lítið með því, og hlutur strjálbýlisins væri þá enn miklu verri og nyti miklu minni skilnings á löggjafarsamkomunni en ástæða hefur verið til að ætla að hann gerði.
Ég held, að það sé skynsamlegt, sem bent er á í þessari till., að freista þess að taka upp ákvæðisvinnu við vegagerðir. Allir hv. fulltrúar sveitakjördæma vita, að mjög misjafnlega vinnst fyrir þær fjárveitingar, sem Alþ. veitir hverju sinni til vegagerðar í hinum einstöku héruðum. Það fer eftir mörgu og ekki sízt eftir því, hvernig þeir menn eru verki farnir og hæfir til verkstjórnar, sem til þess veljast á hverjum stað að stjórna framkvæmdum. Ég er alveg sannfærður um, að það væri skynsamleg nýbreytni að láta vinna nokkuð af þessum framkvæmdum í ákvæðisvinnu. Ég held, að það sé tilraun, sem sé vert að gera. Menn vita, hvað þeir hafa í þessum efnum, en ákvæðisvinna hefur á vegum vegagerðarinnar ákaflega lítið verið reynd. Hins vegar, eins og hv. þm. Ísaf. minntist á, mun hún hafa verið reynd nokkuð á vegum flugmálastjórnarinnar og raforkumálastjórnarinnar.
Hv. 1. þm. Eyf. tók hér til máls og sagði, að þessi till. væri mjög nýstárleg. Það má vel vera, að svo sé. En hér er þá einnig um nokkuð sérstakt mál að ræða, þannig að ekki er óeðlilegt, að nýstárlegra úrræða væri leitað til þess að ráða fram úr þeim vanda, sem þau byggðarlög og það fólk á við að etja, sem hér um ræðir. Ég vil þó benda á það, að hv. þm. taldi það mikla nýlundu og jafnvel goðgá, að heimilað væri fé úr ríkissjóði til vegaframkvæmda með þál. Ég vil í því sambandi benda á, að hér á hæstv. Alþ. fer því víðs fjarri, að fjvn. ein ákveði um framlög til þjóðvega eða vegagerða í landinu yfirleitt. Hér hafa verið sett lög um einstaka þjóðvegi, og meira að segja á þessu ári og undanförnum árum hefur verið unnið samkv. þeim l. að stórfelldum vegaframkvæmdum í nágrenni Reykjavíkur. Mér er einnig kunnugt um það, að í öðrum landshlutum hefur verið unnið fyrir hundruð þúsunda og jafnvel milljónir kr. að vegagerðum, sem fjvn. hefur lítt komið nálægt að ráðstafa. Þar eru ákveðnir tekjustofnar, sem vegamálastjórnin ræður yfir í samráði við ráðh. Meira að segja hluta af þeim tekjustofni var á s.l. sumri varið til framkvæmda við veginn af Barðaströnd yfir í Arnarfjörð, einn þeirra vega, sem ræðir um í þessari þáltill. Ég man heldur ekki betur, en það hafi verið samþ. þáltill. um vegagerðir, ég tala nú ekki um rannsóknir á vegarstæðum og öðru slíku. Hér er þess vegna um miklu minni nýlundu að ræða en hv. 1. þm. Eyf. vill vera láta.
Loks vil ég benda á það, að í 22. gr. fjárl. eru árlega heimildir til handa hæstv. ríkisstj. til þess að greiða fé til samgönguframkvæmda, til samgangna fyrst og fremst á sjó, að mig minnir, einnig á landi, en örugglega til samgöngubóta á sjó.
Þeim röksemdum verður þess vegna ekki beitt gegn þessari till., að hún feli í sér eitthvert hættulegt nýmæli, sem tefldi hinum trausta fjárhagsgrundvelli íslenzka ríkisins í stórkostlega hættu.
Hv. 1. þm. Eyf. sagði, að það væri góð regla, sem á hefði verið höfð í þessum efnum undanfarin ár, og þeirri reglu vildi hann halda. Ég skal ekki fara hér að deila á hv. fjvn., hún hefur í mörg horn að líta. En það vil ég segja, að sú regla, sem hefur haft það í för með sér, að einstökum landshlutum hefur verið mismunað jafnhrapallega og raun ber vitni um á undanförnum árum í fjárveitingu til vega, það er ekki góð regla. Það getur vel verið, að hún sé góð í augum 1. þm. Eyf., en hún er ekki góð í augum þm. Vestfjarða, þar sem búa 6.000 manns, sem eru gersamlega án sambands við akvegakerfi landsins. Og mér þykir raunar hálfhlálegt til þess að vita, að jafnmætur og ágætur þm. eins og hv. 1. þm. Eyf. skuli verða til þess hér ár eftir ár að hafa í frammi andmæli og sýna andúð á réttlætiskröfum þess landshluta, sem verst hefur úti orðið í vegagerðarmálum landsins.
Þessi sami hv. þm. sagði á síðasta Alþ., að til væru þeir landshlutar hér á landi, sem hentaði betur að hafa samgöngur á sjó, en á landi. Ég spurði þá: Hvaða landshlutar eru það? Er það ólafsfjörður í Eyjafjarðarsýslu? Eða eru það bara byggðarlögin í Vestur-Ísafjarðarsýslu og Norður-Ísafjarðarsýslu sem hentar betur að hafa samgöngur á sjó, en á landi? Ég leyfi mér að benda á það, að fólk í Ólafsfirði hefur falið sínum þm., hv. 1, og 2. þm. Eyf., að hafa forustu um það, að brotizt yrði í því með ærinni fyrirhöfn og miklum kostnaði að leggja veg um þverbratta hamra og skriður til þess að fá ekki aðeins eina leið um land til sambands við önnur héruð, heldur tvær. Það er vitað, að Ólafsfjarðarkaupstaður hefur samband um Lágheiði við vegi í Skagafirði, veg, sem að vísu er lokaður mikinn hluta ársins. Þetta fólk hefur óskað þess, þó að þar búi harðduglegustu sjómenn landsins og þó að þar sé fólk vant við sjóferðir, að fá veg lagðan í samband við hið mikla og fagra Eyjafjarðarhérað, fyrir Ólafsfjarðarmúla, og það er byrjað á þessari vegargerð, og vonir standa til þess með hjálp guðs og góðra manna, að sá vegur verði lagður. Svo stendur hv. 1. þm. Eyf. hér upp og er að vanda um við okkur þm. Vestfirðinga um það, að við skulum vera að flytja nýstárlegar tillögur, — nýstárlegar tillögur um það að koma vegalausum landshluta eða landshluta, sem er án sambands við akvegakerfi landsins, í það samband. Ja, það má hver lá mér og okkur þm. þessa landshluta, þó að þeir taki ekki slíkum umvöndunum með þökkum.
Nei, kjarni málsins er sá, að þó að einstakir landshlutar verði oft vegna sinna aðstæðna að notast við samgöngur á sjó, í hörðu árferði og miklum snjóavetrum, þá er það auðvitað sanngirniskrafa alls fólks í þessu landi, að vegir séu lagðir um þess byggðir og milli allra landshluta og byggða landsins. Þetta er krafa, ekki aðeins sjötta áratugs 20. aldarinnar, heldur hefur verið krafan allt frá að liðnum einum eða tveimur fyrstu áratugum aldarinnar. Og þær raddir, sem tala um það, að fólk eigi nú að láta sér nægja samgöngur á sjó í einstökum landshlutum, þær eru alls ekki raddir 20. aldarinnar. Það eru raddir aftan úr öldum, þegar menn þóttust góðir, ef þeir áttu árabát til þess að komast fram fyrir landssteinana til þess að draga sér í soðið eða þegar menn fögnuðu fyrstu mótorbátunum sem furðuverkum tækninnar. En þessir tímar eru bara liðnir, og vænti ég, að hv. 1. þm. Eyf. geri sér ljóst, að maður þurfi ekki að sitja undir því þing eftir þing, þegar fluttar eru fram sjálfsagðar kröfur heilla landshluta um jafnrétti í samgöngumálum, að slíkar raddir aftan úr öldum þrumi gegn manni.
Ég leyfi mér svo, herra forseti, að endurtaka óskir mínar um það, að hæstv. Alþ. taki af skilningi á þessu máli, sem allir Vestfirðingar veita hina mestu athygli og byggt er á grundvelli réttlætis og sanngirni.